Morgunblaðið - 24.04.1980, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.04.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1980 23 Lárus Jónsson alþm.: Einstæð fréttafölsun Þjóðviljans Tekjuskattshækkun Ragnars Arnalds er óbreytt, a.m.k 2-3 milljarða króna. Nær öll hjón í landinu hækka um 40 þús. kr. frá fyrri tillögum rikisstjórnarinnar njOÐVIUJNN TiUaea Ragnars Arnalds: SKATTALÆKKUNI 5SOO mUjónir krona íhiá bamafolki oglágtekjufólki| JX í Þjóðviljanum í gær er risa- fyrirsögn, sem fólki er ætlað að skilja þannig að nýjustu tillög- ur Ragnars Arnalds feli i sér 5500 m. kr. skattalækkun hjá barnafólki og lágtekjumönnum frá fyrri tillögum hans og rikisstjórnarinnar. Sannleikur- inn er sá, að nýjustu tillögur rikisstjórnarinnar fela í sér a.m.k. 2—3 milljarða hækkun tekjuskatta í heild frá vinstri stjórnar sköttunum miðað við siðustu opinberar upplýsingar um tekjur manna, sem lagt verður á. Síðasta breyting ríkis- stjórnarinnar á skattstigum hækkar skatta á hjónum i landinu um 40 þús. kr. miðað við fyrri tillögur sjálfrar ríkis- stjórnarinnar. Á hinn bóginn lækka skattar einstaklinga og einstæðra foreldra frá fyrri tillögum ríkisstjórnarinnar. Út- koman fyrir rikissjóð er sama f járöflun eftir báðum skattkerf- unum. Á fjárhags- og viðskipta- nefndarfundi beggja deilda Al- þingis í gær gaf sérfræðingur Reiknistofnunar háskólans þær upplýsingar að nýjustu tillögur ríkisstjórnarinnar um tekju- skattskerfi hefðu í för með sér eftirfarandi breytingar miðað við fyrri tillögur stjórnarinnar: • 1. Skattar á hjónum hækka í heild um 1740 m. kr. eða um 40 þús. kr. á nær öllum hjónum í landinu. • 2. Einstaklingar lækka um 1340 m. kr. • 3. Einstakir foreldrar fá 400 m. kr. lækkun vegna aukinna barnabóta. • 4. Heildarskattbyrði verður sú sama með báðum skattkerf- unum. Reiknistof nun há- skólans skipað að reikna skakkt I öllum útreikningum ríkis- stjórnarinnar er vísvitandi reiknað með því að tekjur manna á árinu 1979 hafi orðið 45% hærri en árið 1978. Hér er stuðzt við margra mánaða gamla áætlun Þjóðhagsstofnunar. Nú liggja fyrir frá sömu stofnun nýjar upplýsingar. Þar kemur fram, að óyggjandi er að tekjur manna hafa hækkað mun meira í fyrra en 45% eða a.m.k. um 47—48% frá tekjum 1978. Tekju- skattsstofninn verður því miklu hærri en ríkisstjórnin skipar Reiknistofnun háskólans að reikna með. Meira að segja reiknar vinstri meirihlutinn í Reykjavík með því þegar áætluð er útsvarsálagning, að tekjur hafi hækkað um 48,5% milli áranna. Ef sú tala reyndist rétt meðaltal á landinu yrði skatt- þunginn í tekjuskatti aukinn um 3—4 milljarða fram yfir útreikn- inga ríkisstjórnar og áætlun fjárlaga ofan á hækkun útsvara um 5—6 milljarða vegna nýju heimildarinnar um 10% hækkun þeirra. Því til viðbótar eykst byrði óbeinna skatta á árinu um 21 milljarð króna, þ.e. sölu- skattshækkun og vörugjalds- hækkun, sem ákveðin var í fyrra gildir allt árið og þyngir það skatta um 15 milljarða frá fyrra ári og „orkujöfnunargjaldið" nýja um 6 milljarða. Samtals er hér um 28—30 milljarða að ræða í auknar skattaálögur eða sem svarar um 650 þúsund kr. á hverja fimm manna fjölskyldu í landinu. Hér er ekki innifalin hækkun skatta á benzín fram yfir verðlag né hækkun flugvall- argjalds og fleiri gjalda og skatta. Hér er því hvergi ofsagt, enda varla hægt að ýkja þær skattahækkanir, sem nú dynja yfir þjóðina, bæði þau heimili, sem hafa háar tekjur og ekki sízt lágtekjufólk, en hækkun neyzlu- skattanna hlýtur að bitna þungt á því. Blekkingar Þjóðviljans Þjóðviljinn segir í feiknarlegri forsíðufrétt að tekjulágt fólk og barnafólk fái 5500 m. kr. skatta- lækkun skv. síðustu tillögum Ragnars Arnalds. Þá frétt verð- ur að lesa í ljósi framangreindra staðreynda, ef menn vilja hafa það sem sannara reynist. Aftur á móti er það rétt hjá Þjóðvilj- anum, að persónuafsláttur og barnabætur láglaunafólks nýt- ast mun betur eftir núverandi skattkerfi en gamla kerfinu. Ástæðan er fyrst og fremst sú kerfisbreyting að nú eru hjón skattlögð sitt í hvoru lagi. Sam- tals fá þau því háan persónuaf- slátt. Allur landslýður veit að sú kerfisbreyting fór fram þegar Matthías Á. Mathiesen var fjár- málaráðherra. Þjóðviljinn þyrfti því að finna aðrar skrautfjaðrir fyrir Ragnar Arnalds t.d. alla þá beisku skattasúpu, sem hann býður alþýðuheimilunum um þessar mundir. Þetta geröist____________________ 24. april 1976 — Ný stjórnarskrá tekur gildi eyjum eftir viðræður viö Breta. í Portúgal. 1723Friðrik IV útilokar danska 1970 — Kínverjar skjóta fyrsta aðalinn frá mikilvægum embættum. gervihnetti sínum = Misheppnað 1617 — Concino Concini, Marquis banatiiræði við varaforsætisráð- d'Angre, ráðinn af dögum að skipun herra Taiwan í New York. Loðvíks XIII og Charles d’Albert, 1967 — Sovézki geimfarinn Vladi- mir Komarov fórst í lendingu. 1926 — Þjóðverjar og Rússar semja um vináttu og hlutleysi. 1909 — Ung-Tyrkir taka Konstan- tínópel úr höndum byltingarmanna. 1898 — Spánverjar segja Banda- ríkjamönnum stríð á hendur. 1883 — Landnám Þjóðverja í Suð- vestur-Afríku hefst í óþökk Breta. 1819 — Tyrkir fá Parga af íóna- hertogi af Luynes, tekur við stjórn- 1514 — Herferð Selim I Tyrkjasol- dáns gegn Persum hefst. Afmæli — Vilhjálmur þögli, prins af óraníu (1533—) — St. Vincent de Paui (1576-1600) - Edmund Cartwright, enskur uppfinninga- maður (1743—1823) — Anthony Trollope, enskur rithöfundur (1814 — 1882) — Barbra Streisand, bandarísk leikkona (1942—). Innlent - 1261 Heit í Skálholti - 1854 Verzlunarfrelsi — 1840 d. Sveinn Pálsson læknir — 1862 Tillaga Sigurðar málara um stofn- un forngripasafns í „Þjóðólfi" — 1874 Gísli Brynjúlfsson skipaður í nýtt embætti prófessors í sögu íslands og bókmenntum — 1879 Norölendingar halda búnaöarsýn- ingu á Grund — 1959 Loftleiðir kaupa tvær Cloudmaster-flugvélar — 1960 Söngsveitin Fílharmónía stofnuð — 1967 „Sif“ tekur brezka togarann „Brand“ við Eldey — 1967 Tvær mjölskemmur brenna í Vest- mannaeyjum — 1970 Námsmenn leggja undir sig menntamálaráðun- eytið. Orð dagsins — Veikur líkami veikir hugann — Jean Rousseau, franskur heimspekingur (1812—1778). inni í Frakklandi. 1961 — Tshombe Katangaforseti 1598 — María Skotadrottning gift- handtekinn eftir fund kongóskra ist elzta syni Frakkakonungs. leiðtoga. 1521 — Uppreisnarmenn bíða ósig- 1939 — Robert Menzies verður ur við Villalar, Spáni, og leiðtogar forsætisráðherra Ástralíu. andstæðinga Habsborgara teknir af lífi. Þetta geróist 25. apríl 1978 — Suður-Afríka samþykkir vestræna áætlun um undirbúning sjálfstæðis Suðvestur-Afríku. 1974 — Portúgalskir liðsforingjar taka völdin í Portúgal — Gönther Guillaume, aðstoðarmaður Willy Brandtz kanzlara, handtekinn. 1971 — Sovézkt geimfar lendir eftir tengingu við geimstöð á braut. 1957 — Sjötti bandaríski flotinn siglir til Miðjarðarhafsbotna og Hussein konungur lýsir herlögum í Jórdaníu og lokar landamærum. 1949 — Friðarviðræður ísraels- manna og Araba hefjast. 1945 — Fulltrúar 45 þjóða koma saman í San Francisco til að stofna Sþ — bandariskir og rússneskir hermenn mætast í Torgau við Saxelf, Þýzkalandi. 1920 — Yfirherstjórn Bandamanna felur Bretum verndarstjórn í Mesó- pótamíu og Frökkum í Sýrlandi og Líbanon — Pólverjar hefja sókn gegn Rússum í Okraínu. 1915 — Landganga Bandamanna á Gallipol-skaga hefst. 1905 — Transvaal fær stjórn- arskrá. 1998 — Bandaríkin segja Spáni stríð á hendur. 1864 — Lundúna-ráðstefna um Slésvíkurmálið hefst. 1859 — Vinna hefst við lagningu Súez-skurðar. 1849 — Stjórnarskrá tekur gildi í Austurríki — Páfaríkið gengur í lið með Sardiniu — Austurríkismenn bæla niður uppreisn í Kraká. Bretar gera vináttusamning við Síkha í Amritsar. 1792 — Höggstokkurinn reistör í París. 1707 — Ósigur Breta við Almanza. 404 f. Kr. — Spartverjar sigra Aþiminga eftir 27 ára borgarastrið og taka Aþenu, Afmæli — Oliver Cromwell, enskur stjórnmálaleiðtogi (1599—1658) — Edward Grey, enskur stjórnmála- leiðtogi (1852—1933) — Guglielmo Marconi, ítalskur útvarpsfrömuöur (1874-1937). Andlát — 1800 William Cowper, skáld - 1882 J.F.K. Zöllner, vis- indamaður. Innlent — 1913 Eldgos við Hrafna- björg — 1762 f. Sveinn Pálsson — 1265 d. Hálfdan Sæmundarson á Keldum — 1850 Ötkoma „Hljóðólfs“ i Kaupmannahöfn — 1869 f. Jón Jónsson Aðils — 1915 Hótel Reykjavík og 11 önnur hús brenna í Reykjavík — 1952 Bygging áburðar- verksmiðju hefst í Gufunesi — 1967 Vorfundur utanríkisráðherra Norð- urlanda í Reykjavík — 1968 Eldur í Hótel Sögu — 1970 „Mótmælastöð- ur“ við fjögur íslenzk sendiráö — 1979 Farmannadeila. Orð dagsins. Mesta virðing sem við getum sýnt sannleikanum er að segja satt. — Ralph Waldo Emer- son, bandarískur rithöfundur (1803-1882). Tískusýning í kvöld kl. 21.30. EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐENIJ Al GLÝSINGA- SÍMINN ER: 4» 22480

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.