Morgunblaðið - 24.04.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 24.04.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1980 5 Fimmtudagsleikritid: Upptaka á leikritinu Höldum þvi innan fjölskyldunnar i fuilum gangi í Útvarpssal. Höldum því inn- an fjölskyldunnar f kvöld fimmtudaginn 24. apríl (sumardaginn fyrsta) kl. 20.10 verður flutt leikritið „Höldum því innan fjölskyldunnar“ eftir Aleksandr Nikolajevitsj Ost- rovskí. Þýðinguna gerði óskar Ingimarsson, en leikstjóri er Klemenz Jónsson. í helstu hlut- verkum eru Helgi Skúlason, Þóra Friðriksdóttir, Lilja Þórisdóttir og Þórhallur Sigurðsson. Flutn- ingur leiksins tekur um fimm stundarfjórðunga. Tæknimaður var Georg Magnússon. Lípotjka, dóttir Bolsjovs kaup- manns, er komin á giftingaraldur, og foreldrum hennar þykir tíma- bært að finna henni mannsefni. Ekki horfir þó vel með hjúskap- inn, því stúlkan er í meira lagi kenjótt. En Bolsjov hefur í þjón- ustu sinni slunginn starfsmann, Lazr Podhaljúzín, sem kann vel að færa sér í nyt erfiðar aðstæður. Þetta er ósvikinn gamanleikur þar sem Ostrovskí flettir ofan af svindlinu í kaupmannastétt Moskvu um miðja 19. öld. Þröng- sýni og fastheldni á gamla og úrelta siði fá líka sinn skammt af gagnrýni. Ljósm: Emilía Bj. Bjórnsdóttir. Aleksandr Ostrovskí fæddist í Moskvu árið 1823. Um tíma stund- aði hann lögfræðinám í heimaborg sinni, en vann síðan nokkur ár við verslunardómstól Moskvuborgar og kynntist þá vel siðum og háttum kaupmannastéttarinnar. „Höldum því innan fjölskyldunn- ar“ var fyrsta leikrit hans. Það vakti mikla reiði og kostaði hann stöðuna. Eftir það lifði hann eingöngu á að skrifa leikrit, en þau urðu alls milli 50 og 60. Ostrovskí lýsir vel umhverfi og margvíslegum manngerðum, en ristir ekki sérlega djúpt í skáld- skap sínum. Hann lést árið 1886. Áður hafa verið flutt eftir Ostrovskí í útvarpi leikritin „Mánudagur til mæðu“ 1963, „Hamingjudagur" 1965 og „Dag- bók skálksins" 1976. Fundur um örygg- ismál Norðurlanda Dr. Áke Sparring. forstöðu- maður Sænsku utanríkismála- stofnunarinnar, flytur erindi á hádegisverðafundi Samtaka um vestræna samvinnu laug- ardaginn 26. apríl í Átthaga- sal Hótel Sögu. Fundurinn hefst kl. 12. og er öllum heimill aðgangur. Dr. Sparring mun fjalla um öryggismál Svíþjóðar og tengsl þeirra við önnur Norðurlönd Qg Atlantshafssvæðið. Fyrirlest- urinn verður fluttur á ensku og nefnist „Swedish Security — its Nordic and Atlantic Ties“. Fyrirlesarinn mun svara fyr- ispurnum, að erindi sínu loknu. Áke Sparring lauk magist- ersprófi við Uppsalaháskóla 1948 og doktorsprófi við Stokkhólmsháskóla 1967. Hann var blaðamaður um skeið, en hóf störf við Sænsku utan- ríkismálstofnunina (Utrikes- politiska Institutet) 1962. Hann var settur forstöð- umaður stofnunarinnar 1968 og skipaður 1970. Dr. Áke Sparring. Dr. Sparring hefur í störfum sínum kynnt sér sérstaklega öryggismál Norður-Evrópu og íslands. Árið 1972 gaf hann út ritið „Island, NATO och Evr- opa“, sem vakti mikla athygli og umræður fræðimanna og stjórnmálamanna. Bókauppboð á Akureyri Bókauppboð verður haldið á Akureyri á laugardaginn og hefst það klukkan 15.30 á Hótel Varðborg, en það er Jóhannes óli Sæmundsson sem rekur Fornsöl- una Fögruhlið sem heldur upp- boðið. Bækurnar sem seldar verða á uppboðinu eru til sýnis þessa dagana í Fornsölunni og verða þær seldar gegn staðgreiðslu við hamarshögg. Alls eru 140 bóka- titlar á uppboðinu, bækur af ýmsu tagi frá ýmsum tímum. Bana- meinið var morð Banameinið var morð, nefn- ist ný bandarísk sjón- varpsmynd sem er á dagskrá sjónvarpsins annað kvöld, og þar koma þau Katharine Ross og Hal Holbrokk meðal annarra við sögu, en hér sjást þau í hlutverkum sínum, en myndin fjallar um hinn eilífa þríhyrning, tvo menn er berjast um ástir sömu konu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.