Morgunblaðið - 24.04.1980, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 24.04.1980, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1980 33 Háskólatónleikar á laugardaginn SJÖTTU Háskólatónleikar vetrarins verða haldnir laugardaginn 26. apríl 1980. Tónleikarnir verða haldnir í Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut og hefjast kl. 17. Aðgangur er öllum heimill. Á þessum tónleikum leika hjónin Ursula Ing- ólfsson-Fassbind og Ketill Ingólfsson fjórhent á píanó auk tónverka fyrir tvö píanó. Til er talsverð- ur fjöldi tónverka fyrir píanó og tvo flytjendur en mörg þeirra eru píanóút- setningar á tónverkum sem upphaflega voru sam- in fyrir önnur hljóðfæri. Verkin sem flutt verða á þessum tónleikum eru hins vegar öll upphaflega samin fyrir píanó þó að sum þeirra hafi síðar ver- ið umrituð fyrir hljóm- sveitarflutning. Á efnisskránni eru Mars í D-dúr og Fúga í e-moll eftir Franz Schu- bert, Sónata í D-dúr og Fúga í c-moll eftir W.A. Mozart og Tilbrigði í B- dúr um stef eftir Joseph Haydn eftir Johannes Brahms. Ursula Ingóifsdóttir-Fassbind og Ketill Ingólfsson leika fjórhent á pianó auk tónverka fyrir tvö píanó. Vestur-þýskur bassa- leikari í Djúpinu VESTUR-þýski bassaleikarinn Peter Kowald leikur einleik á tvennum tónleikum sem Gall- erí Suðurgata 7 gengst fyrir í Djúpinu í Hafnarstræti á morgun, föstudag, kl. 20.30 og laugardag kl. 16. Kowald hefur hér viðkomu á leið sinni til Bandaríkjanna þar sem hann mun stunda tónleikahald á næstunni. Skátakaffi SKÁTAFÉLAGIÐ Kópar í Kópavogi heldur sína ár- legu kaffisölu í Félags- heimili Kópavogs í dag, sumardaginn fyrsta, kl. 3.00. í Kópavogi Þar verður hlaðborð með góðum veitingum á hóflegu verði. Með því að líta inn í Félagsheimili Kópavogs, njóta menn góðra veitinga og styrkja gott málefni. Lions-hlutavelta í Kópavogi LIONS-klúbbur Kópavogs efnir til sinnar árlegu hlutaveltu klukkan 15 í dag í Kópavogsskóla, að loknum útihátíðarhöldum. Verður þar að venju margt eigulegra muna á boðstólum. Allur ágóði rennur til líknarmála, en meðal þeirra verkefna, sem klúbburinn leggur nú fé í, er bygging hjúkrunarheim- ilis aldraðra í Kópavogi. BRESK X/ll/A AÐ HOTEL LOFTLEIÐUM 25.APRÍL TIL 2. MAÍ 1980 L I VIKINGASAL, BLÓMASAL, VÍNLAN OG RÁÐSTEFNUSAL Breskur matreiðslumeistari frá Mayfair Hotel. Fjórréttaður matseðill öll kvöld. Breskir skemmtikraftar Magnús Magnússon, hinn kunni sjónvarpsmaður, ræðir við gesti. Matargestir fá happdrættismiða. Vinningur vikudvöl í London fyrir tvo, fargjöld, gisting og matur innifalinn. Stuðlatríó leikur fyrir dansi. Ókeypis kvikmyndasýningar um helgar. Magnús Magnússon flytur tvo fyrirlestra um Víkingasýninguna í London. Sjáið gimsteina bresku krúnunnar! Kynningarrit um Bretland liggja frammi. Borðapantanir og nánari upplýsingar hjá f símum 22321 og 22322. Verið velkomin HÓTEL LOFTLEIÐIR BRESKA FERÐAMÁLASTJÓRNIN Ritsafn Gunnars Gunnarssonar J V. j \ Saga Borgarættarinnar Vargur i véum Svartfulg Sælir eru einfaldir Fjallkirkjan I Jón Arason Fjallkirkjan II Sálumessa Fjallkrikjan III Fimm fræknisögur Vikivaki Dimmufjöll Heiðaharmur Fjandvinir S f j r Almenna Bókafélagið, Austurstrnti 18, Sksmmuvsgur 36, simi 18707 simi 73055. V. r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.