Morgunblaðið - 24.04.1980, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 24.04.1980, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1980 47 r Frá leik KR og Hauka í gærkvöldi. Árni jafnaði á elleftu stundu Það vantaði ekki spennuna í úrslitaleikinn í bikarkeppni HSÍ er Haukar og KR reyndu með sér í gærkvöldi, en úrslit fengust hins vegar ekki. Margir hefðu þó viljað skipta á spennunni og úrslitum. Jafntefli varð ofan á, 18—18, og var spennan undir lokin hreint gífurleg. Staðan í hálfleik var 8—8. Það verður þvi að fara fram aukaleikur, enn einn aukaleikurinn i vor og þarf bráðum að fara að reikna út f jölda þeirra á tölvu. Skal nú lýst síðustu 7 mínútum leiksins, en þá var mikil spenna í Höllinni og áhorfendur vel með á nótunum, kannski of vel, því að til slagsmála kom eftir lokaflautuna. Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálf- ari KR. — KR átti að sigra í þessum leik, en slæm mistök um miðjan síðari hálfleikinn ollu því að við misstum leikinn út úr höndunum á okkur. Við stefnum að því að gera mun betur í næsta úrslitaleik og þá vinnum við. Þetta var spennandi leikur og góð skemmt- un fyrir áhorfendur. Viðar Símonarson, þjálfari Hauka — Fyrst KR-ingar gátu ekki unnið okkur í þessum leik eins illa og við lékum geta þeir ekki sigrað okkur í næsta leik. Varnarleikur- inn var mjög slakur allan leikinn og sóknarleikurinn langt frá því að vera nægilega beittur. FRAM sigraði Þór í bikarkeppni kvenna á Akureyri í gærkvöldi með 20 mörkum gegn 11 eftir að staðan i hálfleik hafði verið 8—6 Fram í hag. Guðríður Guðjóns- dóttir var langbest af Framstúlk- unum og skoraði 9 mörk, þar af 5 úr vitaköstum. Þá átti markvörð- ur Fram, Kolbrún, góðan dag. 18:18 Staðan var 16—14 fyrir Hauka, eftir 14—14. Ólafur Lárusson skoraði 15. mark KR og síðan fiskaði Símon víti með miklum tilþrifum og úr vítinu skoraði Björn og jafnaði, rúmar þrjár mínútur eftir. Ekki létu KR-ingar þar við sitja, Friðrik fiskaði send- ingu, óð upp og skoraði, en Árni Hermannsson jafnaði snarlega, 2,40 eftir. 25 sekúndum síðar lyfti Símon sér upp og þrumaði í netið. í næstu sókn Hauka varði Gísli Stefán Jónsson, Haukum — Við vorum slakir í þessum leik og máttum þakka fyrir jafn- tefli úr því sem komið var. Við komum tvíefldir til næsta leiks og sigrum þá. Friðrik Þorbjörnsson, fyrirliði KR — Ég er ekki ánægður með úrslit leiksins, við áttum að sigra. Við vorum óeðlilega taugaveiklað- ir í lokin. En við gerum betur næst og sigrum. Gunnar Einarsson, markvörð- ur Hauka — Vörn okkar var afspyrnuslök svo ekki sé meira sagt. Það er lítið spennandi að vera í markinu þegar hún er ekki betri. Það er enginn vafi á að við sigrum í næsta úrslitaleik. - þr. _ Hjá Þór átti Kristín Ólafsdóttir markvörður bestan ieik. Mörk Fram: Guðriður 9, Odd- ný 4, Margrét 2, Arna, Steinunn, Jenný, Jóhanna og Sigrún allar eitt mark hver. Mörk Þórs: Harpa 4, Magnea 3, Valdis 2, Freydis 1, Þórunn 1. sor Felix snilldarlega línuskot frá Andrési, KR-ingar höfðu öll tök á að gera út um leikinn, en þá lét Símon dæma á sig ruðning. Sek- úndurnar tifuðu og þegar 33 voru eftir var Éinar Vilhjálmsson rek- inn af leikvelli. Haukarnir nýttu það til fulls, létu knöttinn ganga hratt og opnuðu hornið fyrir Árna Sverrisson sem skoraði öruggiega jöfnunarmarkið. Annars var leikurinn allan tímann í járnum, KR-ingarnir þó lengst af yfir 1—2 mörk. Oft var þó jafnt, t.d. frá 8—8 og upp í 13—13. Handknattleikurinn sem boðið var upp á var sannarlega hraður, en engu var líkara en að hvorugt liðið væri fært um að leika agaðan handknattleik, með- alsóknarlotur stóðu í 10—15 sek- úndur, leikmenn beggja liða voru ekkert á því að bíða þess að færi opnuðust. Taugaspenna hefur haít sitt að segja, enda um úrslitaleik að ræða, en það sem skorti af gæðum, það bætti upp hin mikla barátta beggja liða, hröð atburða- rás og mikil spenna í lokin. Það stóð enginn sérstakur upp úr í þessum leik, margir áttu góða spretti, en síðan mistök á milli, eins og gengur og gerist. Gísli Felix og Pétur Hjálmarsson í marki KR voru mjög góðir í leiknum og Ólafur Lárusson var drjúgur. Konráð lék framan af einn sinn besta leik, fiskaði þrjú víti, skoraði nokkur mörk og átti sendingu sem gaf mark, en er líða tók á leikinn dapraðist Konni. Flatneskjan var meiri hjá Hauk- um, Ólafur Guðjóns varði vel framan af, síðan lak flest inn bæði hjá honum og Gunnari Einars- syni. Það var helst að Árnarnir, Hermannson og Sverrisson sýndu tilþrif, svo og gamla kempan Stefán Jónsson. Þeir Gunnlaugur Hjálmarsson og Björn Kristjánsson dæmdu lengst af vel, en þeim virtist sjást yfir nokkur mjög áberandi og mikilvæg brot, einkum á veslings Friðrik í horninu, en einnig önnur. Mörk Hauka: Hörður 7 (6), Júlíus 4, Árni Hermannsson 3, Árni Sverrisson 2, Sigurgeir og Stefán 1 mark hvor. Mörk KR: Björn 6 (6v), ólafur 4, Konráð 3, Friðrik, Símon, Haukur Geirmundsson og Haukur Ottesen 1 mark hver. — gg. Sagt eftir leikinn: Fram sigraði í bikarkeppni kvenna Húsgögn á góðu verði Hjóiwrúm meó 2 náttboröum án hilla, án dýna kr. 108.000.- Hægt aö kaupa hillur í náttboröin. Fataskápar, 2 stæröir frá kr. 155.800.- Efnl: Fura ólðkkuö Svefnbekkir meö rúmfata skúffu og dýnu frá kr. 96.500.- Efni: Fura ólökkuð. Skrifborö með hillum, kr. 69.200.- Stereo-skápur meö hillum kr. 66.800.- Svefnbekkur m/dýnu. Skrifborö — stereó — skáp ur — hillueining. Allt kr. 192.400.- Efní: Furuviöarlíki. Úrval húsgagna á góöu verði. Sendum um land allt. Vörumarkaöurinn hf. Ármúla 1A. Húsgagna og heimilisd S-86-112 r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.