Morgunblaðið - 24.04.1980, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.04.1980, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1980 887 bjargað af ferju sem sökk við árekstur Manila. 23. apríl. AP. FERJA með að minnsta kosti 960 manns um horð sokk á Mið-Fil- ippseyjasundi þar sem krökkt er af hákörlum eftir árekstur við olíuflutninfíaskip. Yfirvöld segja að minnst 14 hafi beðið bana ög 59 sé saknað. Yfirmaður strandgæzlu Fijipps- eyja, Simeon Alejandro flotafor- ingi, sagði að skip og varðskip hefðu bjargað 887 manns. Tólf tímum eftir áreksturinn sáu áhafnir bandarískra herflugvéla menn sem komizt höfðu lífs af í sjónum. Sjónarvottar segja að óttaslegn- ir farþegar á ferjunni hafi stokkið eins og rottur í sjóinn þar sem Táragasi beitt í Suður-Afríku Jóhannesarhorg. 23. apríl. AI\ LÖGREGLA beitti táragasi gegn kynblendingum sem mótmadtu kynþáttastefnu í skólum í Suður-Afríku og réðst á þá með barsmíðum að sögn sjónarvotta í dag. Prestur sem stóð með foreldrum fyrir utan gagnfræðaskóla í kyn- blendingahverfinu Eldorado Park, um 24 km fyrir sunnan Jóhannes- arborg, sagði að námsmennirnir hefðu ekki verið ofsafengnir og aðeins safnazt saman á skólalóð- inni og hrópað „Við viljum jafn- rétti í skólum". „Lögreglan fór að berja þá að ástæðulausu," sagði hann. Fjórtán ára gömul stúlka sýndi læknisvottorð þar sem lýst var skrámum sem hún fékk í árás lögreglu, sagði að margir náms- menn hefðu verið fluttir í sjúkra- hús. Námsfólkið í Eldorado Park hefur með aðgerðum sínum hafið þátttöku í skólamótmælum, sem hófust í síðustu viku í Höfðafylki þar sem flestir 2,4 milljóna kyn- blendinga í Suður-Afríku búa, og hafa síðan breiðzt út til annarra héraða landsins. Blöð segja, að rúmlega 100,000 námsmenn taki þátt í mótmælaaðgerðunum, þar á meðal fólk af asískum uppruna í Jóhannesarborg og Natal. Fréttir herma að lögregla hafi beitt táragasi gegn um 100 náms- mönnum í kröfugöngu í hafnar- borginni Durban, en rólegra var í Höfðafylki þar sem skólastjórar skoruðu á nemendur að halda sig á skólalóðum. Desmund Tutu biskup, ritari suður-afríska kirkjuráðsins og kunnur blökkumannaleiðtogi, sagði að atburðirnir væru ná- kvæm eftirlíking á námsmanna- óeirðunum í Soweto 1976 er ollu miklu umróti og leiddu til dauða 700 blökkumanna. Hann sagði að hingað til hefðu skólabörn reynt að sýna friðsam- lega, að þau vildu afnám misréttis og kynþáttaaðgreiningar. En hann kvað þá staðhæfingu Marais Steyn ráðherra, sem fer með mál kyn- blendinga í stjórninni, að utan- aðkomandi æsingamenn og blöð ættu sökina, sýna að „ekkert að gagni hefði verið lært af atburð- unum 1976.“ gráðugir hákarlar biðu þeirra þeg- ar ferjan fór á hliðina og sökk. Reynaldo Lora, 19 ára gamall námsmaður, sagði að hann hefði ferðazt á öðru farrými sem var troðfullt. „Um kl. 10.30 rákumst við á eitthvað. Skipið fékk strax á sig slagsíðu og skelfing greip um sig. Hvítklæddur maður sagði að ekkert væri að óttast. En skipið hallaðist mikið.“ „Ég hljóp upp á dekk og þreif björgunarvesti. Báturinn var óð- um að sökkva og fólk fleygði sér fyrir borð. Ég stökk og fann marga detta ofan á mig. Ég hlýt að hafa verið í sjónum í hálftíma til einn klukkutíma.“ Lora var einn 321 farþega sem var bjargað í myrkrinu á Tablas- sundi um borð í olíuskipið Taclob- an City sem rakst á ferjuna Don Juan, sem sökk á tæpum fimmtán mínútum. Skipið fór með Lora og hina farþegana til Batangas City. „Ég sá ekkert,“ sagði Lora um síðustu mínúturnar fyrir árekst- urinn. „Það var niðamyrkur og ég heyrði aðeins skyndilegan dynk.“ Eigendur Don Juan segja að 878 farþegar og 85 manna áhöfn hafi verið á ferjunni þegar slysið varð, eða 963 manns í allt. Þessar tölur koma ekki heim og saman við upplýsingar strandgæzlunnar, en engin skýring hefur fengizt á þessu misræmi. Nokkur farþega- og vöruflutningaskip voru nálægt slysstaðnum og hugsanlegt er tal- ið að nokkrum skipbrotsmönnum hafi verið bjargað um borð í þau. Kúbönsk kona hrópar slagorð til stuðning Fidel Castro á fjöldafundi sem var haldinn i Havana þar sem flóttamennirnir í sendiráði Perú voru fordæmdir. 200 fluttir með bátum frá Kúbu ERLENT Mariel. Kúbu, 23. april. AP. BÁTAR mannaðir kúbönskum útlögum frá Florída sigldu til Bandarikjanna í dag með rúm- iega 200 fióttamenn frá sendiráði Perú í Havana innanborðs. Þrátt fyrir viðvaranir banda- rískra embættismanna þess efnis að flutningarnir væru ólöglegir biðu um 10 Batar til viðbótar í Mariel, um 25 km frá Havana, og hugðust flytja rúmlega 300 flótta- menn, sem hefur verið heimilað að Kennedy bjartsýnn eftir sigurinn í Pennsynvaníu Frá Önnu Bjarnadóttur (réttaritara Morgunblaðsins í Washington. EDWARD Kennedy, frambjóðandi demókrata, og George Bush, frambjóðandi repúblikana, sigruðu mótherja sína, Jimmy Carter og Ronald Reagan, eftir harða baráttu í forkosningum flokkanna í Pennsylvaníu á þriðjudag. Sigur Kennedys var mjög naumur. Þegar 96 prósent atkvæða voru talin, hafði hann aðeins hlotið 8000 fleiri atkvæði en Carter. Bush sigraði Reagan í vinsældakosning- um repúblikana með 54 prósent atkvæða gegn 45 prósent. Reagan er spáð 50 af 77 fulltrúum ríkisins á landsþing flokksins í sumar, en þeir voru kosnir sérstaklega. Hlutfall atkvæða frambjóðenda ræður fjölda fulltrúa þeirra frá Pennsylvaniu á landsþingi demókrata. Cartcr og Kennedy munu því skipta 126 fulltrúum ríkisins jafnt á milli sín, en 59 fulltrúar verða kjörnir á fiokksþingi i ríkinu í júní. Fyrstu tölur á þriðjudag sýndu, að Kennedy myndi sigra með 2 prósent atkvæða. Þótt hann gæti ekki fagnað stórum sigri dró það ekki úr fögnuði stuðningsmanna hans. Hann sagði, að barátta hans bæri árangur og hann tryði því að hann hlyti útnefningu flokksins og ynni sigur í forsetakosning- unum í nóvember. Jody Powell, talsmaður Cart- ers, sagði, að naumur sigur Kennedys í Pennsylvaníu hefði lítil áhrif á svo til örugga útnefningu Carters á landsþingi flokksins. Hann minnti á yfir- gnæfandi meirihluta fulltrúa Carters meðal þeirra sem hafa þegar verið kjörnir á landsþing- ið, og benti á velgengni Carters í prófkosningum í Missouri á þriðjudag. Hann nefndi ekki prófkosningar í Vermont sama dag, en þar gekk Kennedy betur en Carter. Pennsylvanía er annað stóra iðnaðarríkið þar sem Kennedy vinnur sigur. — Hann vann forkosningar í New York fyrir þremur vikum. Hann vonar, að honum takist að vinna í Michi- gan, New Jersey og Ohaio, sem eru einnig stór iðnaðarríki og eiga eftir að halda forkosningar. En þó að honum gangi vel þar, spá fáir honum útnefningu flokksins. Mörg Suðurríkin eiga eftir að halda forkosningar og Carter er sterkur þar. Kennedy segist halda baráttunni áfram til að tala um þau málefni, sem hann telur mikilvæg, og Carter hefur staðið illa að. Hann vonast þannig til að hafa áhrif á stefnu flokksins í kosningunum og næstu stjórn. Orðrómur um, að hann muni reyna að fá reglum landsþingsins breytt þannig, að fulltrúarnir verði ekki bundnir við fyrstu atkvæðagreiðslu, verð- ur æ háværari, en flestum þykir ótrúlegt að reglunum verði breytt í miðjum leik. Carter vann auðveldlega í Pennsylvaníu í forkosningum 1976 og var eftir þær augljós forsetaframbjóðandi flokksins. Skoðanakannanir, sem teknar voru þegar kjósendur fóru frá kjörstað sýndu, að kjósendur, sem greiddu Kennedy atkvæði voru fyrst og fremst óánægðir með efnahagsstefnu Carters. Kennedy gekk bezt í Philadelph- iu og meðal verkafólks og kaþól- ikka. Stuðningsmenn Carters voru ánægðir með utanríkis- stefnu hans og hvernig hann hefur tekið á vandanum í íran. Hann átti mikinn stuðning með- al kvenna og ungra kjósenda. Sigur Bush í vinsældakosning- um repúblikana í Pennsylvaníu hrekkur skammt til að auðvelda honum útnefningu flokksins. Áður en úrslit voru kunn gaf Reagan út yfirlýsingu þess efnis, að íhaldssamt mat starfsmanna hans sýndi, að hann hefði þegar unnið, eða gæti treyst á stuðning 9/10 hluta fulltrúanna, sem nauðsynlegir eru til að hljóta útnefningu flokksins. Bush sagð- ist þó vera mjög ánægður með úrslitin í Pennsylvaníu. Hann ætlar að halda baráttunni áfram til að tala um mikilvæg málefni og benda á þversagnir í ræðum og stefnu Reagans. Bush eyddi milljón dollurum í auglýsingar og ferðalög um Pennsylvaníu. I auglýsingum benti hann á veikleika Carters og gagnsleysi stefnu Reagans. Sjálfur kom hann fram sem áreiðanlegur og reyndur stjórn- málamaður. Skoðanakannanir, sem teknar voru þegar kjósend- ur komu af kjörstað, sýndu að flestir þeir, sem gerðu upp hug sinn í síðustu viku greiddu Bush atkvæði. Þeir voru hrifnir af stefnu hans í utanríkis- og efnahagsmálum. Hann á mestan stuðning meðal vel launaðra og menntaðra repúblikana en Reag- an höfðar til minna menntaðra og verr settra repúblikana. Repúblikanar munu halda for- kosningar í Texas 3. maí. Reagan er spáð auðveldum sigri þar. John Anderson, sem var ekki í kjöri í Pennsylvaníu, hefur ákveðið að taka ekki þátt í kappræðum frambjóðendanna í Texas í kvöld. Það þykir benda til þess að hann muni lýsa yfir sjálfstæðu framboði innan skamms. Báðir flokkarnir munu halda forkosningar í Washing- ton D.C., innan North Carolina og Tennessee 6. maí n.k. ab fara frá Kúbu, að sögn Havana- útvarpsins. Þrjátíu og átta flóttamenn komu til Key West, Florída, í gærkvöldi með rækjubátnum E1 Mir. Skipstjórinn, Jorge Marrero, sagði að Kúbumenn vildu að þeir kæmu aftur svo að þeir gætu tæmt sendiráðið. Áhöfnin á E1 Mir sagði, að hún hefði á tímabili séð 25 báta búa sig undir að sigla frá Mariel. Kúbumennirnir á E1 Mir bætast í hóp 47 flóttamanna úr sendiráð- inu sem voru fluttir með bát til Key West á mánudag. Sá hópur fékk næturgistingu í gamalli flotastöð. Sumir þeirra fóru til viðtals við starfsmenn útlendinga- eftirlitsins í dag. víða um heim Akureyri 1 Amsterdam 10 Aþena 17 Barcelona 16 Berlín 6 BrUssel 16 Chicago 32 Feneyjar 15 Frankfurt S Genf 8 Jerúsalem 25 Jóhannesarborg 23 Kaupmannahöfn 12 Las Palmas Lissabon London Los Angeles Madrid Mataga Mallorca Miami Moskva New York Ósló París Reykjavík Rio de Janeiro Rómaborg Stokkhólmur Tel Aviv Tókýó Vancouver Vínarborg 20 21 10 15 16 18 16 29 18 18 13 12 4 31 14 12 30 20 17 skýjaö skýjaó heióskírt léttskýjaó skýjað skýjaó skýjaó léttakýjaó rígning heiðskírt heióskírt heiðskírt skýjað alskýjaó heiðskírt skýjaó heióskírt heiðskírt heiðskírt léttskýjaö heiöskírt skýjað skýjaó heiðskirt heióskírt skýjaó heióskírt heiöskírt heióskírt heiðskírt heióskirt skýjað rigning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.