Morgunblaðið - 24.04.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1980 3
Hátíðahöld í tilefni sumardagsins fyrsta:
Hvolí og skemmtiatriði
í miðbæ Reykjavikur
HÁTÍÐAHÖLDIN í Reykjavík
hefjast um morguninn kl. 11 með
fjölskylduguðsþjónustu í Dóm-
kirkjunni. Prestur verður séra
Þórir Stephensen.
Eftir hádegið verður safnast
saman á tveimur stöðum í borg-
inni og frá þeim gengið í skrúð-
göngu niður í bæ. Frá Hlemm-
torgi verður lagt af stað kl. 13.30
og frá Melaskóla verður lagt af
stað kl. 13.20. Fyrir göngunni
munu fara fánaborgir skáta og
lúðrasveitir.
Eftir hádegið verður skemmtun í
miðbænum. Tívolískemmtun skáta
verður í Austurstræti, Pósthús-
stræti og á Hótel-íslandsplaninu
(Hallærisplaninu). Hún hefst strax
og skrúðgöngurnar koma í mið-
bæinn. Er hægt að velja milli um
55 atriða s.s. rúlettu, naglaírekst-
urs, veðreiða, dósabakka o.fl.
Skemmtidagskrá fer fram á
sviði á Lækjartorgi og hefst hún
kl. 14.30. Kynnir verður Þorgeir
Ástvaldsson. Á skemmtuninni
koma fram sönghópar og kórar, s.s.
Lítið söngdúó og skólakór Mela-
skóla, trúðar og önnur slík fyrir-
bæri, leikþáttur o.fl. Ennfremur
verður sýnt það nýjasta í barna-
tískunni og skólahljómsveit Laug-
arnesskóla og Árbæjar og Breið-
holts munu blása nokkur lög.
Skátamessa í
Neskirkju
Það er orðinn árlegur viðburður
að skátafélagið Ægisbúar haldi
skátamessu sumardaginn fyrsta. í
ár fer hún sem oftar fram í
Neskirkju og mun séra Guðmund-
ur Óskar Olafsson þjóna fyrir
altari. Páll Gíslason, skátahöfð-
ingi, prédikar, organleikari er
Reynir Jónsson. Skátar sjá um
söng. Eldri skátar eru hvattir til
að mæta sem og aðrir. Messan
hefst klukkan 11.
Hefðbundin sumar-
hátíðahöld í Kópavogi
Hátíðahöldin á sumardaginn
fyrsta í Kópavogi verða með svip-
uðu sniði og verið hefur undanfar-
in ár. Dagskráin nú verður þessi í
umsjá Ungmennafélagsins Breiða-
bliks:
Kl. 10.00 Víðavangshlaup ÍK við
Fagrahvamm (v/Gagn-
heiði).
Kl. 10.30 Skátaganga frá Víghóla-
skóla til kirkju.
Kl. 11.00 Skátamessa í Kópavogs-
kirkju.
Kl. 13.30 Skrúðganga frá Digra-
nesskóla að Kópavogs-
skóla. Skólahljómsveit
Kópavogs fer fyrir göng-
unni. Stjórnandi Björn
Guðjónsson.
Kl. 14.00 Dagskrá við Kópavogs-
skóla.
Kl. 15.00 Hlutavelta í Kópavogs-
skóla. Lionsklúbbur
Kópavogs.
Kl. 16.30 Knattspyrna á Vallar-
gerðisvelli. UBK - ÍK 6.
flokkur. UBK - ÍK 5.
flokkur.
Kl. 19.30 Diskótek í Hamraborg 1
fyrir 10—12 ára.
Kl. 20.30 sýnir Leikfélag Kópavogs
Þorlák þreytta í Félags-
heimilinu.
Fjölskylduskemmtun
í Mosfellssveit
Stefnur, eiginkonur karlakórs-
manna í Mosfellssveit og ná-
grennasveitum, halda sína árlegú'
fjölskylduskemmtun í Hlégarði
sumardaginn fyrsta kl. 3. Að venju
verða ýmis skemmtiatriði, kaffi-
veitingar, dans o.fl.
Skrúðganga, kaffi-
sala, skemmtiatriði
o.fl. í Garðabæ
Skátafélagið Vífill í Garðabæ
sér um hátíðarhöld dagsins. Kl.
10.45 verður skátamessa í Garða-
kirkju en kl. 14 hefst skrúðganga
frá Karlabraut að Skátaheimilinu
þar sem verður kaffisala og
skemmtiatriði bæði úti og inni.
Skrúðganga og
skrautreið
á Akureyri
Á Akureyri munu skátar fara
fyrir skrúðgöngu frá Strandgötu
upp að kirkjunni þar sem fram fer
skátamessa kl. 11. Meðari göngunni
verður stillt upp mun Lúðrasveit
Akureyrar leika nokkur lög.
Félagar í hestamannafélaginu
Létti munu kl. 14 hefja skrautreið
um suðvesturjaðar bæjarins. Er
reiðinni lýkur verður börnum leyft
að fara á hestbak á félagssvæði
Léttis.
Skátamessa og
víðavangshlaup
í Hafnarfirði
Lagt verður af stað í skrúðgöngu
frá Skátaheimilinu í Hafnarfirði
kl. 10 árdegis. Gengið verður niður
Reykjavíkurveg og á gatnamótum
Reykjavíkurvegar og Fjarðargötu
kemur Lúðrasveit Hafnarfjarðar
inn í gönguna. Síðan verður gengið
sem leið liggur eftir Fjarðargötu
suður Strandgötu og til baka
Suðurgötu að Hafnarfjarðarkirkju
þar sem verður skátaguðsþjónusta
kl. 11. Séra Sigurður H. Guð-
mundsson messar en Rúnar Brynj-
ólfsson yfirkennari flytur ávarp.
Síðan munu börn úr Víðistaðasókn
flytja brúðuleik úr guðspjöllunum.
Einungis barnasálmar verða
sungnir við messuna og leikið
verður undir á gítar.
Eftir hádegið verður víðavangs-
hlaup Hafnarfjarðar háð í 22.
skiptið. Hlaupið hefst við Lækj-
arskólann kl. 14 og verður keppt í 4
karlaflokkum og 3 kvennaflokkum.
Öllum er heimil þátttaka.
(Ljósm. RAX)
Klukkustund-
ar konungs-
heimsókn
BALDVIN Belgíukonungur og
Fabíóla drottning höfðu tæplega
klukkustundar viðkomu á Kefla-
víkurflugvelli á leið sinni frá
Bandaríkjunum til Belgiu.
Drottning steig aldrei frá borði
konungsþotunnar meðan dvalið
var í Keflavík, en Baldvin konung-
ur þáði veitingar í Flugstöðinni og
heilsaði upp á Árna Tryggvason
sendiherra, Kristján G. Gíslason
aðalræðismann Belgíu hér á landi
og fleiri.
Nýkomið:
Flannel föt
m/vesti
★ Stakir jakkar ★ Þunnir sportjakkar ★ Bolir
★ Kakhi-buxur ★ Sportskyrtur
o.m.fl. o.m.fl.