Morgunblaðið - 24.04.1980, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1980
van Fiebroff er fæddur í Iierlín árið 1931. sonur rússneskra
hjóna. sem fluttu til Þýskalands. Ilann er stórbrotin persóna á
marjfan hátt. Þessi tæplega tveKKja metra hái bassasöngvari hefur
veriö hafinn til skýjanna af gaKnrýnendum OK almonninjd fyrir
list sína undanfarin 20 ár. Þekktastur er hann vafalaust fyrir
sitt gífurlega raddsvið sem talið er spanna tæpar fimm áttundir.
Móðir hans. sem var áhuKasönjíkona. hélt honum að fiðlunámi
en hann hætti því ok sneri sér að söngnámi ok vann þá fyrir sér á
þann hátt að hann söng með hópi sem kallaði sig „the Cossacs of the
Black Sea** eða Svartahafskósakkana.
í raun var þetta upphafiö að hinum glæsilega ferli hans sem
túlkanda rússneskrar þjóðlajíatónlistar.
Frumraun hans á óperusviðinu var. er hann sönjí Don Basilio
í Rakaranum í Sevilla í Frankfurtóperunni 1962 ojí er skemmst
frá því að segja að hann sló umsvifalaust í Kejjn. í framhaidi af því
söng hann aðalkarlhlutverkin í Frankfurtóperunni næstu tvö
árin.
Á næstu árum öðlaðist hann gífurlega frægð oj? var
eftirsóttur í útvarps- og sjónvarpsþætti út um alla Evrópu og
tónleikaskipuleggjendur kepptu um að fá hann til sín.
Útgáfa fyrstu plötu hans ýtti enn frekar undir vinsaddir hans
og síðan hafa plötur hans hlotið mikiar vinsældir.
Arið 1969 varð hann geysiþekktur fyrir leik sinn í frönsku
útgáfunni af Fiðlaranum á þakinu í hlutverki Tevye.
Ilann kom fyrst fram í New York 1970 og sló þá öll
aðsóknarmet á þeim tíma.
Fyrir utan rússnesku, talar þessi fjölhæfi söngvari þýsku,
ensku og grísku, sem kemur sér vel á ferðalögum hans um
heiminn.
Rebroff býr nálægt Frankfurt og helgar sig lestri og tónlist.
eldar fyrir vini og kunningja á g<>ðri stund og lítur eftir heilli
hjörð af ýmiss konar gæludýrum.
Rebrofí talar mfkið með augunum eins og gamansamra er háttur.
„Hef aldrei mátt vera að
því að bíða eftir að lifa“______________
Ég spurði Rebroff hve vel hann þekkti
sig? „Ég þekki mig mjög vel, betur en aðrir,“
svaraði hann, „og það er af því að ég er svo
barnslegur, líklega eins og hluti af íslandi.
Ég átti góða æsku og hafði mjög náin
samskipti af móður minni, án þess þó að um
nokkra ödipusarflækju sé að ræða. Foreldr-
ar mínir fluttu frá Rússlandi eftir bylting-
una og fóru þá til Póllands. Þar hittust þau
reyndar fyrst og giftust. Þau vildu vera í
Póllandi því þar var stutt heim til Rússlands
ef gæfi. Þau voru um tvítugt, pabbi 18 og
mamma 20. En tíminn leið og þeim þótti
ekki álitlegt að fara aftur til Rússlands.
Margir þekktir Rússar bjuggu um skeið í
París, listamenn og pólitíkusar eins og
Selephin, Stravinsky og Rachmaninov. For-
„ísland er eins og hlýtt
hreiður fyrir mig“
„Ég er sannfærður um það að ísland er
bezti barnaieikvöllur í heimi, því þótt ég
hafi ekki verið hér lengi, þá var ég búinn að
afla mér vitneskju um land og þjóð og mér
finnst eins og ég sé í hlýju hreiðri að vera á
íslandi," sagði söngvarinn Ivan Rebroff í
samtali við Morgunblaðið í gær. Hann var
blússhress þegar við heimsóttum hann á
Hótel Sögu, klæddur íþróttagalla af stærstu
gerð eins og við var að búast og hafði verið í
Sundlaug Vesturbæjar í nokkra klukkutíma
fyrr um daginn. Hann sagði að sér hefði þótt
vænt um að margir í sundlauginni heilsuðu
honum og kvaðst hafa haft ómælda ánægju
af að rabba við fólkið og ekki hvað sízt
sitjandi í heita kerinu. „Krakkarnir blikk-
uðu mig,“ sagði Rebroff, „og ég blikkaði þau
og þetta var svo skemmtilegt. Krakkarnir
hér eru svo eðlileg og frjálsleg, enda hafa
þau þetta hreina loft, heilbrigði og víðáttu.
Það er allstaðar í heiminum verið að þétta
byggðina og maður sér að það hefur neikvæð
áfhif á fólk, kallar á glæpi hjá ungu fólki og
óhamíngju. Ég hef strax þá tilfinningu að
margt sé hér á annan hátt og betri en víðast
annars staðar."
Rcbroff í operustílnum.
eldrar mínir vildu til Parísar og það varð úr.
í júlí 1931 komu þau til Berlínar með
járnbrautalest og á jarnbrautarstöðinni
fæddist ég, tveimur mánuðum fyrir tímann.
Ég hef alltaf verið á undan tímanum, aldrei
mátt vera að því að bíða eftir að lifa. Ég
fæddist því í Þýzkalandi og það var gott
fyrir framtíðina þegar ósköpin voru gengin
yfir. Ég var því átta ára þegar striðið brauzt
út og þar sem pabbi var af gyðingaættum
þorði hann ekki að vera í Þýzkalandi og fór
til Sviss fyrst og síðan til Bretlands.
Mamma var áfram í Þýzkalandi með mig og
bróður minn sem er 10 árum eldri en ég.
Hann á nú fjóra syni, alla um tvítugt í
háskólanámi og ég er góði frændinn, gef
þeim peninga ef þeir standa sig vel.
Stríðsárin voru vondur tími og við vorum
á faraldsfæti, fórum aftur til Póllands, en
þá komu Rússarnir þangað og það var ekki
gott. Við héldum því aftur til Þýzkalands og
vorum þar. Það var erfiður tími eftir stríðið,
en allt gekk þó í rétta átt. Ég ætlaði mér að
verða dýrafræðingur, fuglafræðingur, en þá
reið tónlistin yfir á fullri ferð. Ég hef þó
mikinn áhuga á dýrafræðinni og hef góð
sambönd við dýrafræðinga víða um heim,
mér fellur hin villta náttúra.
Mamma ræktaði minn
bezta eiginleika
En mamma hafði ræktað minn bezta
eiginleika. Hún fékk mig til þess að læra á
fiðlu 6 ára gamlan, en henni datt aldrei í
hug að ég yrði söngvari. En ég óx úr grasi og
einhver sagði mér að ég hefði góða rödd og
mér hafði alltaf verið innrætt að það væri
svo eðlilegt að syngja. Pabbi hafði alltaf
reynt að draga úr því að ég legði tónlistina
fyrir mig, taldi að ég gæti ekkert grætt á
því. Það var hans viðmiðun. Pabbi var
„playboy", glæsilegur, sjálfsöruggur og góð-
ur tennisleikari. Hann dó fyrir fjórum
vikum, áttatíu og fjögurra ára gamall. Hann
skildi við móður mína fyrir löngu gegn vilja
hennar, því hún var svo kristin, en hann
gifti sig aftur stúlku sem var 40 árum yngri
en hann. En hvað með það, megi hann fá
frið, friður sé með honum. Hann var
fjölhæfur íþróttamaður en ég get ekki einu
sinni teílt. Ég kann mannganginn en hef
ekki þolinmæðina, ég verð að vera á ferð og
flugi, enda fæddist ég á járnbrautarstöð.
A unga aldri fékk ég áhuga fyri grískri
Með alvæpnMyrir sviðið.
heimspeki og grískum stíl og síðan hef ég
alltaf gætt þess að hlusta á viturt fólk, og ég
hef reynt að finna út hvernig það hefur
lifað. Að meta slíkt er mikilvægt.
Lærði leiklist af
gömlu bíómyndunum____________________
En ég hafði mörg áhugamál og margt
freistaði. Leikhúsið togaði í, en þökk sé
móður minni að ég gat fundið það bezta í
fari mínu og ræktað það: Hver ég var, hvað
ég gat og hvað ég gat ekki. Ef maðúr velur
það bezta hlýtur það bezta að koma út.
Ég er stundum spurður að því hvar ég hafi
lært leiklist og víst fékk ég góðan skóla þótt
ekki fengi ég prófskírteini. Mamma var
þvottakona á þessum árum og ég vann í
stórri búð: þannig öfluðum við fjár til þess
að lifa við þröngan kost. En það var bíó rétt
hjá heimili okkar og þar voru eingöngu
sýndar gamlar bíómyndir með öllum gömlu
frábæru leikurunum. Þótt ég unglingurinn
væri að vinna þá vildu eldri frændur mínir
aldrei gefa mér pening, því þeir sögðu að ég
eyddi öllu í bíó og það líkaði þeim ekki.
Mamma leit hins vegar á bíóferðirnar sem
nám og það hefur svo sannarlega skilað sér.
Að syngja upp á gamla móðinn
Á þrítugsaldri hóf ég söngnám við tónlist-
arskóla, en einnig söng ég með kósakka-
„ísland er bezti