Morgunblaðið - 24.04.1980, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1980
13
flýja rússnesku listamennirnir, dansararnir,
tónlistarmennirnir, rithöfundarnir og
vísindamennirnir.
Maður verður að fá að vera frjáls. Ef mig
langar til að syngja þá syng ég virkilega. Ég
er hljóðfaerið og ef þú þekkir hljóðfærið þá
veiztu hvernig er bezt að leika á það.“
„Ég flétta saman það sí-
gilda. þjóðlög og skemmtunu
„En margir spyrja að því hvernig söngv-
ari þú sért, hvort þú sért sígildur söngvari,
þjóðlagasöngvari eða skemmtikraftur?"
„Grunnurinn í minni túlkun er tónlist
fólksins. Ef þú hefur framúrskarandi rödd
þá syngur þú hins vegar fleira en hina
svokölluðu alþýðutónlist, þjóðlögin og
stemmningslögin. Þú syngur þá óperur,
heldur tónleika og skemmtir ef svo ber
undir. Ég hef gengið í gegn um þessa þætti
og reyni að blanda þeim öllum saman, ég
•syng, tala við áheyrendur og skemmti. Mér
líkar'áð syngja alla skemmtilega söngva
sem ná til fólks og þannig flétta ég saman
sígilda tónlist og léttari tónlist.
Mozart var aðeins skemmtikraftur fyrir
sína samtíð, hann dó fátækur og enginn
vissi hvar gröf hans var. Hann var í
rauninni meiningarlaus fyrir sinn tíma. Nú
tvö hundruð árum síðar er allt annað upp á
teningnum og það er gott, en hann fór á mis
við það. Hann átti enga vini og sjúka konu,
en hann samdi tónlist sem hefur persónu-
leika og ótrúlega oft liggja stefin nálægt
þjóðlaginu. Þannig var það einnig með
Schubert og fleiri og fleiri, ef til vill þess
vegna lifðu verk þeirra af,“ og svo söng
Rebroff hástöfum úr hinum ýmsu tónverk-
um, en fjaraði út á kvöldklukkunum rússn-
esku.
„Þeir hleypa refn-
um ekki inn“
Ég spurði hann hvort hann hefði komið til
Rússlands?
„Já oft, en ég hef ekki sungið þar
— segir songvarinn
Ivan Rebroff í
samtali við
Morgunblaðið
Grein: ÁRNIJOHNSEN
Myndir: RAGNAR AXELSSON
söngvurum og fór í læri hjá gömlu Don
Kósökkunum. Þá fyrst fann ég jarðveg til
þess að rækta virkilega það sem í mér bjó.
Árið 1962 tók ég þátt í alþjóðlegri tónleika-
keppni og Evrópukeppni og vann fyrstu
verðlaun í báðum. Þá var mér sagt að ég
væri tilbúinn í slaginn, eins og þroskað epli
sem er tilbúið að falla af trénu. Ég söng m.a.
við óperuna í Munchen og Hamborg, gaf út
fyrstu plötuna mína sem hlaut mjög góðar
viðtökur, sérstaklega í París. Ahuginn
vaknaði og gyðingarnir í París fóru að velta
því fyrir sér hver hann væri þessi Ivan
Rebroff. Um þær mundir stóð til að
sviðsetja Fiðlarann á þakinu og það var
ekkert með það, gyðingarnir í leikhúslífinu í
París sögðu: Þetta er okkar Tevje. Ég talaði
ekki frönsku þá og leizt ekkert á þetta. Þeir
vissu jú hvernig ég söng, en þeir vissu ekkert
um það hvort ég gæti leikið. Þeir heimtuðu
að ég nefndi peningaupphæðina og ég nefndi
nógu háa til þess að sleppa frá þeim, 5000
mörk fyrir kvöldið, en það dugði ekki til,
samningurinn var lagður fram og mér sagt
að skrifa undir. Þá hafði ég ellefu mánuði til
stefnu til þess að læra frönsku. Það var því
ekkert annað að gera en stökkva út í þetta
eins og maður stekkur út í íslenzka
sundlaug. Og þetta gekk upp eins og bezt
varð á kosið og líklega hefur það hjálpað
mér að persónuleiki minn liggur svo nálægt
vinnunni. Ég hef aldrei gleymt að lifa lífinu
eðlilega og frjálslega.
Nú hef ég verið atvinnusöngvari í 22 ár, en
hjá kósökkunum lærði ég að syngja rússn-
esku söngvana upp á gamla móðinn með
hjartað og tilfinninguna í fyrirrúmi. Það
gildir ekki í Rússlandi í dag, allt á að vera
skipulagt og persónuleiki einstaklingsins
dauðhreinsaður og flattur út. Þess vegna
opinberlega. Ég er persóna non grada þar og
fæ ekki að syngja. Hins vegar er ég vinsæll
og vel þekktur þar hjá alþýðu fólks, en þar
er lifað tvenns konar lífi, hinu opinbera og
hinu sem fólk þarf að lúra á, mannlífi
einstaklinganna. Söngur minn hljómar í
la,umi hjá þessu fólki á snældum, plötum og
í útvarpi frá öðrum löndum.
Auðvitað fæ ég ekki að syngja í Rússlandi,
ég er utanaðkomandi en þó nokkurs konar
heimamaður, ég er sýnishorn af kapítalista í
augum rússneska kerfisins og sonur útflytj-
enda og ég mun ekki koma aftur. „Svo ætlar
hann að sýna okkur hvernig á að syngja
okkar söngva," segir kerfið, og hvernig á það
að ganga upp hjá þeim sem vilja hafa allt
skipulagt. Ég verð ekki skipulagður. Ég veit
að ég get haft nóga áheyrendur í Rússlandi
á hverju kvöidi í 20 ár ef þeir leyfðu, en þeir
hleypa refnum ekki inn.“
m ” § >
j mMm
Á ferð í Rússlandi.