Morgunblaðið - 24.04.1980, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1980
19
Spegilmaðurinn
SPEGILMAÐURINN
Litla leikíélagið Garði.
Ilöfundur: Brian Way.
Leikstjórn önnuðust leikararn-
ir með hjálp Sævars Helgason-
ar.
Einn ágætur maður sagði eitt
sinn eitthvað á þá leið að:
heimurinn væri leiksvið og við
Lelkllst
eftir ÓLAF M.
JÓHANNESSON
leikarar á því sviði. Þetta er
umdeild lífsskoðun og ekki hér á
dagskrá en víst er það að
leikhúsið skiptir gjarnan veru-
leikanum í tvennt. í fyrsta lagi
er sá sem fer fram á sviði
leikhússins og framinn er af
leikurunum og síðan er sá sem
áhorfendur búa við. Leikararnir
vilja að vísu gefa áhorfendunum
kost á hlutdeild í hinum leikna
sviðsveruleika en sjaldgæft er að
þeir verði sjálfir þátttakendur í
leiknum. Leikhúsið teygi í eigin-
legri merkingu svið sitt til þeirra
og heimur áhorfandans verði
þannig leiksvið. Hér fyrir helgi
varð ég vitni að tilraun íslensks
leikhúss í þessa átt. Litla leikfé\
lagið í Garðinum reyndi með
uppfærslu á leiknum Spegil-
manninum eftir Brian Way að
virkja hóp 6 til 8 ára krakka sem
saman voru komnir í leikfimisal
Hólabrekkuskóla. Reyndu leik-
arar og leikstjóri með ýmsum
brögðum að fá andsvör og virk
viðbrögð krakkanna. Og það
tókst sannarlega, þakið á leik-
fimisalnum ætlaði hreinlega að
Kallað eftir
þingmálum
úr nefndum
SVERRIR Hermannsson forseti
neðri deildar kváddi til fundar í
vinnunefnd deildarinnar á þriðju-
dag, en í þeirri nefnd sitja formenn
nefnda deildarinnar og er forseti
formaður. „Ég kvaddi til þessa
fundar í framhaldi af kvörtunum
um að mál tefðust í nefndum,"
sagði Sverrir í samtali við Mbl.
eftir fundinn. „Ég kallaði eftir þeim
málum, sem bíða óafgreidd í nefnd-
um og menn höfðu góð orð um að
taka til hendinni við afgreiðslu
þeirra."
Fyrirlestur um
mataræði og
hjartasjúkdóma
BANDARÍSKUR læknir, William
P. Castelli, flytur fyrirlestur á
vegum Manneldisfélags íslands í
Lögbergi, kennslustofu laganema
nr. 101, Háskóla íslands föstudag-
inn 25. apríl kl. 20.30. Fyrirlestur
inn nefnist „Mataræði og hjarta-
sjúkdómar“, og er öllum heimill
aðgangur meðan húsrúm leyfir.
William P. Castelli er einn af
forstöðumönnum hinnar þekktu
hóprannsóknar m.t.t. hjartasjúk-
dóma, sem kennd er við Framing-
ham í Massachusett fylki í Banda-
ríkjunum. Læknirinn "er hér í
fyrirlestraferð á vegum Hjarta-
sjúkdómafélags ísl. lækna og Fél.
ísl. lyflækna. Hann mun m.a. flytja
fyrirlestur á laugardag á sympos-
ium um háþrýsting sem haldið
verður í Domus Medica.
Á föstudag 25. apríl kl. 14.00
flytur hann fyrirlestur í kennslu-
stofu Landspítalans um aðra þætti
rannsóknarinnar.
rifna þegar galdranornin í leik-
ritinu hugðist ræna töfrabók
nokkurri sem lék stórt hlutverk í
leiknum (lítill polli gerði meira
að segja tilraun til að bjarga
bókinni). Nú milli spennuatriða í
leikritinu datt á dauðaþögn sem
er óvenjuleg á barnaleikritum.
Að lokinni sýningu var börnun-
um afhent plakat með mynd af
leikendum. Var athyglisvert að
sjá hvernig þau hópuðust í kring
um nornina. Var líkt og þau
losnuðu við einhvern ótta og
spennu. Reyndar var nornin ekki
gerð mjög herfuleg í leiknum og
er þar fylgt fyrirmælum höfund-
ar sem ætlast til að börnin verði
ekki of hrædd. Vafalaust byggir
höfundur á ákveðnum sálfræði-
legum forsendum sem hann gef-
ur sér, allt um það þá setur hann
ákveðin skilyrði fyrir uppfærslu
leikritsins.
Lítum nánar á þessi skilyrði í
von um að fræðast um markmið
þessa athyglisverða höfundar:
Skilyrði eitt:
Leikritið á að vera fyrir börn á
aldrinum 5—8 ára og vera
leikið af fullorðnum. (Ef full-
orðnir eru meðal áhorfenda, er
best að þeir sitji annarsstaðar
en börnin, til að þátttaka
barnanna verði óþvinguð.)
■Skilyrði tvö:
Sviðið: Leikið á miðju gólfi, á
afmörkuðu svæði (kringlóttu,
sporöskjulöguðu, eða ferkönt-
uðu), bestur árangur næst ef
áhorfendur sitja á gólfinu.
Ath: Þetta leikrit er gert fyrir
fordyri eða leikfimisal og má
ekki nota leikhússal nema
hægt sé að útbúa leiksvæði á
gólfinu.
Skilyrði þrjú:
Fjöldi áhorfenda (þátttaka,
þ.e.a.s. barna) má ekki fara
yfir 200, í leikfimisal eða
fordyri, 'og ekki yfir 420, ef
leikið er í leikhúsi.
Eins og lesendur sjá af þessum
leiðbeiningum þá er það mark-
mið leikritahöfundar að ná til
barna á því stigi þegar þau eru
opnust og hugmyndaflug þeirra
skarast við veruleikann. Og máir
brúnir hans út. Höfundur vill
með öðrum orðum vekja börnin
af þyrnirósarsvefni mötunar
sjónvarps og myndabóka, enda
kemur það fram hjá höfundi í
skrifum hans að börnunum sé
ætlað að aðstoða leikarana að
vissu marki, gefa þeim tilefni til
„... leiks af fingrum fram“.
Þannig vill höfundur gera til-
raun til að brúa kynslóðabilið.
Láta börnin mæta í senn ímynd-
un sinni og hinum fullorðnu á
táknrænan virkan hátt. Ásta
Magnúsdóttir sem norn, Ingi-
björg Eyjólfsdóttir í hlutverki
Blíðu, spegilmaðurinn í hönd-
um Þórarins Eyfjörð og Sæm-
undur Jóhannesson í gervi
dúkkumannsins mættu eitt
síðdegi í Hólabrekkuskóla hóp af.
litlum börnum með leik sínum í
Spegilmanninum. Hafi þau
þökk fyrir. Það voru reyndar
fleiri fullorðnir þetta síðdegi að
reyna að koma til móts við
börnin. Inni í einni skólastofu
voru tveir fulltrúar hjálpræðis-
hersins að syngja sálma með
barnahóp og í öllum áttum
virtist eitthvað vera á seyði. Úti
á skólalóðinni var þó heldur
daufara, enda dæmigerð íslensk
lægð að hella úr skálum reiði
sinnar. Þá voru tveir strákar að
slást út af því hvort nornin væri
ekta.
BÍLASYNING
fimmtudag — föstudag og laugardag
Fögnum sumri meö opnun glæsilegs nýs
sýningarsalar í Ford-húsinu aö Skeifunni 17.
Sýnum af því tilefni:
Ford Thunderbird
Ford Mustang
Ford Fairmont
Ford Cortina
Ford Fiesta
Ford feti framar
4@E2ÞSveinn Egi/sson hf.
SKEIFUNNI 17 REYKJAVIK
SIMí85100