Morgunblaðið - 24.04.1980, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1980
María Thoroddsen
— Aldarminning
í Orðskviðum Salomons standa
þessi orð: „Væna konu, hver hlýtur
hana? Hún er miklu meira virði en
perlur. Hún breiðir út lófann á
móti hinum bágstadda, og réttir
út hendurnar móti hinum snauða.
Maður hennar er mikils metinn í
borgarhliðunum. Kraftur og tign
er klæðnaður hennar og hún hlær
að komandi degi. Hún opnar
munninn með speki og ástúðleg
fræðsla er á tungu hennar."
Einmitt þannig minnist ég frú
Maríu Thoroddsen, konu Sigurðar
heitins Thoroddsen fyrrv. lands-
verkfræðings og síðar stærðfræði-
kennara við Menntaskólann ‘í
Reykjavík.
Heimilið þeirra stóð að Frí-
kirkjuvegi 3. Stendur það
stílhreina látlausa hús enn, milli
gamla barnaskólans og fríkirkj-
unnar; og geng ég aldrei framhjá
.því enn þann dag í dag, án
þakklætis fyrir þá hlýju og birtu
og einlægu vináttu og gestrisni,
sem ég naut þar meðan Thor-
oddsensfjölskyldan fyllti þar her-
bergin og vistarverur allar með
bjartri hlýju og stundum glöðum
söng, á hátíðis- og tyllidögum.
Eg var skólabróðir Valgarðs
heitins sonar þeirra, og varð
þannig á þeirri tíð, næstum eins
og ungur frændi eða vinur á þessu
gagnmerka heimili við spegil-
skyggða Reykjavíkurtjörn, stund-
um á sumrum, en ísi lagða oft á
vetrum.
Frú María fæddist að Reynistað
í Skagafirði hinn 25. apríl 1880
þeim mætu hjónum Jean Valgarði
Claessen og Kristínu, dóttur Egg-
erts Briem, er á þeim árum sat
þann stað í sýslumannsembætti
sínu. Síðan átti hún bernsku sína
og uppvöxt á Sauðárkróki við sólu
roðinn Skagafjörð, þar sem
Drangey ber við bláan mar og
leiklistin er talin hafa hér fyrst
numið land undir handleiðslu
Poppe kaupmanns.
En hér í Reykjavík átti hún
lengstum vettvang ævi sinnar og
hér andaðist hún í ekkjudómi hinn
24. júní 1964, 84 ára gömul.
Hún var á tímabili formaður
Húsmæðrafélags Reykjavíkur. Þá
var hún lengi í stjórn sjálfstæð-
iskvennafélagsins „Hvatar" — eða
frá stofnun þess. Ennfremur var
hún meðal stofnenda kvenfélags-
ins „Hringsins“ — og vann hún
þar mikið starf við hlið systur
sinnar, Ingibjargar Þorláksson, er
gift var Jóni Þorlákssyni, fyrrv.
ráðherra.
Það er sagt, að sumir skilji eftir
ilm í sporum sínum. Þannig minn-
ist ég frú Maríu Thoroddsen. Hún
átti drottningar vald í heimilinu
gagnvart manni sínum og börnun-
um öllum — elskunnar vald. Ég
heyrði hana aldrei brýna raustina,
— sá hana aldrei skipta skapi,
heldur ganga um háttvísa og
kyrrláta og oftast með hlýjunnar
bros á vör. I eldhúsinu hjá henni
sátu oft einstæðingar, sem margir
aðrir gleymdu — sátu þar og
drukku kaffi og nutu næringar og
fengu að brosa með henni í þeirri
hljóðlátu göfginnar og menning-
arinnar hlýju, sem fylgdi henni,
hvar sem hún fór.
Ég varð ríkari við hvert hennar
bros, svo móðurlega ummgekkst
hún mig, feiminn og óframfærinn
vin Valgarðs. — Og nú þegar
hundrað ár eru liðin frá fæðingu
hennar, finn ég, að engum vanda-
lausum hefi ég borið skuggalaus-
ari eða dýpri virðingu fyrir.
Ég lýk svo þessum minningar-
orðum mínum með því að telja
upp nöfn barna hennar með virð-
ingu og innilegum samúðarhug:
Sigríður, ekkja Tómasar heitins
Jónssonar fyrrv. borgarlögmanns.
Kristín, matreiðslukennari. Var
gift Bruno Kress fyrrv. prófessor í
Greifsvald. Valgarð, verkfræðing-
ur og fyrrv. rafmagnsveitustjóri
ríkisins. Eftirlifandi kona hans er
Marie, fædd Tuvnes. Hann lézt
hinn 10. júní 1978. Jónas, fyrrv.
bæjarfógeti á Akranesi, kvæntur
Björgu Magnúsdóttur Guð-
mundssonar fyrrv. ráðherra.
Gunnar, núverandi forsætisráð-
herra, kvæntur Völu Ásgeirsdótt-
ur Ásgeirssonar fyrrv. forseta
íslands. Og loks Margrét Herdís,
deildarstjóri í Tryggingastofnun
ríkisins, gift Einari Egilssyni inn-
kaupastjóra hjá Rafmagnseftirliti
ríkisins.
Afkomendur munu orðnir milli
70 og 80.
Blessuð sé minning frú Maríu
Thoroddsen börnunum, tengda-
börnunum og afkomendum öllum.
Garðar Svavarsson.
Fermingar að
Stórólfshvoli
og Sauðanesi
Ferming og altarisganga að Stórólís-
hvoli sunnudag 27. apríl kl. 10.30 í.h.
Prestur: Séra Stefán Lárusson.
Elías Jón Sveinsson,
Stóragerði 17, Hvolsvelli.
Erlendur Gunnar Gunnarsson,
Norðurgarði 5, Hvolsvelli.
Guðjón Halldór Óskarsson,
Miðtúni, Hvolhr.
Guðjón Örn Ingólfsson,
Kornvöllum, Hvolhr.
Kristján Bjarni Halldórsson,
Norðurgarði 12, Hvolsvelli.
Ragnar Þór Eggertsson,
Nýbýlavegi 34, Hvolsvelli.
Linda Björk Stefánsdóttir,
Norðurgarði 3, Hvolsvelli.
Svava Björk Helgadóttir,
Sólvöllum Hvolhr.
Ferming í Sauðaneskirkju sunnudag-
inn 27. apríl. Prestur: Sr. Guðmundur
örn Ragnarsson.
Ester Þorbergsdóttir,
Langanesvegi 24.
Gunnar Hólm Jóhannsson,
Hafnarvegi 4.
Jóhanna Ósk Eiríksdóttir,
Fjarðarvegi 37.
Kristín Óladóttir,
Fjarðarvegi 9.
Lilja Jónsdóttir,
Austurvegi 14.
Sigfús Kristjánsson,
Hálsvegi 5.
Sigurður Ragnar Kristinsson,
Fjarðarvegi 45.
Svala Sævarsdóttir,
Sauðanesi.
Svanur Snæþórsson,
Lækjarvegi 4.
radauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
óskast keypt
Hjólhýsi
Óskum eftir aö kaupa notaö hjólhýsi, helzt
stærri gerð.
Samband sveitarfélaga á Suöurnesjum,
Brekkustíg 36, Njarövík,
sími 92-3788.
I tilboö — útboö
lmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm\\
Útboð — bílastæði
Tilboö óskast í frágang bílastæöa við
þjónustumiðstöðina Hólagaröar í Breiöholti.
Útboðsgagna má vitja á skrifstofu Hóla-
garðs, Lóuhólum 2—6, Reykjavík, gegn 10
þús. kr. skilatryggingu.
Tilboö opnuö þriöjudaginn 6. maí 1980.
Útboð
Póst- og símamálastofnunin óskar tilboða í
smíöi og fullnaöarfrágang seinni áfanga
póst- og símahúss í Sandgeröi. Útboösgögn
fást á skrifstofu umsýsludeildar, Landssíma-
húsinu í Reykjavík og hjá stöövarstjóra Pósts
og síma í Sandgerði, gegn skilatryggingu kr.
50.000.-
Tilboö veröa opnuö á skrifstofu umsýslu-
deildar mánudaginn 12. maí 1980, kl. 11
árdegis. Póst- og símamálastofnunin.
húsnæöi óskast
3ja herb. íbúð í Vesturbæ
óskast til leigu. Tvennt fulloröiö í heimili.
Fyrirframgreiösla, ef óskað er.
Upplýsingar gefur: Eignaval, sf.,
Aöalstræti 9,
sími 29277.
Geymsluhúsnæði
Opinber aöili vill taka á leigu um 2ja mánaöa
skeiö 60—100 fermetra geymsluhúsnæði
meö góðri aökeyrslu.
Tilboö merkt: „Húsnæöi — 6239“ sendist
blaðinu fyrir 29. apríl n.k.
JLFélagsstarf
FUS Baldur
Seltjarnarnesi
Ungt fólk til áhrifa
FUS Baldur og SUS halda fund í félagsheimili Seltjarnarness,
mánudaginn 28. apríl kf. 20.30.
Fundarefni:
1. Hvað nú?
2. Staöa ungs fólks í stjórnmálum.
Gestir fundarins verða:
Einar K. Guöfinnsson, Erlendur Kristjánsson og Bessí Jóhannsdóttir.
Sjálfstæðisfólk í Kópavogi, Garöabæ og Hafnarfiröi sérstaklega
velkomið.
Félagsmenn og annað sjálfstæðisfólk.
Nú er um aö gera að mæta, á þennan síöasta fund, sem FUS Baldur
heldur til hausts. Stjórnin
Skagafjörður
Aðalfundur Sjálfstæöisfélags Skagfiröinga verður haldinn aö Sæ-
borg, Sauöárkróki, þriöjudaginn 29. apríl 1980 og hefst kl. 9 e.h.
Venjuleg aöalfundarstörf.
Stjórnin
Austurlandskjördæmi
— Stjórnmálafundir
Alþingismennirnir Egill Jónsson, og Sverrir
Hermannsson halda félagsfundi í Sjálfstæö-
isfélögum í Austurlandskjördæmi sem hér
segir:
Seyöisfiröi fimmtudaginn 24. apríl kl. 20.30.
Neskaupstað föstudaginn 25. apríl kl. 20.30.
Eskifiröi laugardaginn 26. apríl kl. 17.00-
Reyöarfiröi laugardaginn 26. apríl kl. 14.00-
Egilstööum sunnudaginn 27. apríl kl. 13.30.
Hvað nú?
Erlendur Kristjánsson, Bessí Jóhannsdóttir og Einar K. Guðfinnsson,
flytja framsögu um hvaö nú þurfi aö gera í Sjálfstæðisflokknum og
íslenzkum stjórnmálum.
Fundurinn veröur haldinn í Félagsheimili Seltjarnarness mánudaginn
28. þ.m. kl. 20:30.
Batdur F.U.S. Seltjarnarnesi og S.U.S.
Hvað nú?
jum nnaynussuri uy reiur namsson nyija rramsogu um nv
aö gera i Sjálfstæöisflokknum og íslenzkum stjórnmálum.
Fundurinn veröur
haldinn í Verka-
lýöshúsinu Hellu
mánudaginn 28.
þ.m. kl. 20:30. Allir
velkomnir.
Fjölnir F.U.S. Rangárvallasýslu og S.U.S.
Aðalfundur
Sjálfstæöisfélags Fljótsdalshéraðs veröur haldinn í Valáskjálf (litla sal)
sunnudaginn 27. apríl kl. 10.00.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar og reikningsskil.
2. Skýrsla ritnefndar Þingmúla og reikningsskil.
3. Kjör stjórnar og endurskoöenda.
4. Kjör rltnefndar Þingmúla.
5. a) kjör í fulltrúaráö sjálfstæöisfélaganna.
b) Kjör fulltrúa í kjördæmisráö.
6. Tillögur um lagabreytingar.
7. Önnur mál.
Kl. 13.30 hefst félagsfundur þar sem Sverrir Hermannsson og Egill
Jónsson ræöa stjórnmálaviöhorfið og svara fyrirspurnum.
Fundarlok um kl. 16.00.
Félagar eru hvattir til aö fjölmenna og mæta stundvíslega.
Stjórnin.
Sjálfstæðisfélag
Akureyrar
boöar til fundar í Sjálfstæöishúsinu Akureyri
laugardaginn 26. apríl n.k. kl. 14:00.
Fundarefni:
Stefna ríkisstjórnar.
Hvers má vænta í baráttunni viö veröbólg-
una?
Frummælandi forsætisráöherra Gunnar
Thoroddsen.
Allt áhugafólk hvatt til aö koma á fundlnn og taka beinan þátt í
umræöunum.
Stjórnin.