Morgunblaðið - 24.04.1980, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1980
Drengja-
hlaup
Armanns
DRENGJAHLAUP Ár-
manns fer fram n.k. sunnu-
dag og vcrður hlaupið í
Laugardal, hlaupin verður
sama leið og undanfarin tvö
ár. Keppt verður í tveimur
flokkum. Yngri fiokki
drengja fæddir 1%6 og siðar
og eldri flokki 1 fæddir 1960
og síðar. Einnig verður
sveitakeppni, 3 og 5 manna
sveitir í hvorum flokki.
Hiaupið hefst - kl. 14.00.
Þátttökutilkynningar skulu
hafa borist Jóhanni Jóhann-
essyni fyrir föstudagskvöld í
sima 19171.
Kristín
stóð sig
með
sóma
FYRIR hefur farist að segja
i Mbi. frá fræknum árangri
sem Kristin Magnúsdóttir
náði í einstaklingskeppninni
i Evrópumótinu í badminton
um síðustu helgi. Komst hún
i 3. umferð, lagði að veili
pólska og norska keppi-
nauta, en tapaði síðan fyrir
Jane Webster kunnri bad-
mintonkonu frá Englandi í
3. umferð. Tapaði Kristin
2—11 og 5—11. Webster
varð m.a. Evrópumeistari i
tviiiðaieik að þessu sinni
sem segir meira en mörg orð
um getu hennar.
Víkingur
meistari
VÍKINGUR sigraði í 2.
flokki íslandsmótsins i
handknattieik, en úrsiita-
keppnin fór fram i iþrótta-
húsi Hafnarfjarðar um sið-
ustu heigi. Voru Vikingarn-
ir sæmiiega vel að sigrinum
komnir. en annað iið, Grótta
stai þó senunni, vann m.a.
Viking með þriggja marka
mun. En Grótta tapaði með
einu marki fyrir Þrótti í
siðasta leik sínum, þannig
að Vikingur slapp fram úr.
Sem sagt, Vikingur sigraði,
en Grótta varð í öðru sæti.
Sumardagsmót
unglinga
SUMARDAGINN fyrsta, þ.e.
fimmtudaginn 24. aprii
næstkomandi verður hið ár-
lega Sumardagsmót ungl-
inga haldið í TBR-húsinu.
Keppt verður i einliðaieik.
Keppnisgjöid verða sem hér
segir: i hnokka- og tátu-
fiokki kr. 2000, í flokki
sveina og meyja kr. 2500, í
flokki drengja og telpna kr.
3000 og i pilta- og stúlkna-
fiokki kr. 3500.
Hnokkar — tátur
(f. 1968 og siðar),
sveinar — meyjar
(f. 1966 og 1967),
drengir — telpur
(f. 1%4 og 1%5),
piitar — stúlkur
(f. 1%2 og 1%3).
Stórsigur Hamborg S.V.
sigraði Real Madrid 5-1
— ÉG er sannfærður um að við
verðum bæði Evrópumeistarar og
Þýskalandsmeistarar, sagði Kev-
in Keegan i viðtali við Mbl.
síðastliðið haust áður en keppn-
istimabilið hófst. Og allt bendir
tii þess að þessi orð hans rætist.
Lið hans Hamburger S.V. sýndi
hverju sterkt það var i gærkvöldi
er Real Madrid var tekið í
kennslustund á Volkspark Stad-
ion i Hamborg. Hamborg sigraði
5—1 í leiknum eftir að staðan í
hálfieik hafði verið 4—1.
Lið Hamborgar lék stífan sókn-
arleik frá fyrstu til síðustu
mínútu leiksins. Enda ekki nema
von, fyrri leik liðanna töpuðu þeir
í Madrid 2—0, og nú var að duga
eða drepast. Fyrsta mark Ham-
borg skoraði Kaltz úr vítaspyrnu á
10. mínútu leiksins. Kevin Keegan
hafði verið brugðið illa inn í
vítateig og Kaltz náði forystunni.
Á 16. mínútu skoraði svo Hru-
besch með gullfallegum skalla. Og
nú var staðan orðin jöfn á milli
liðanna. Á 30. mínútu skoraði
Cunningham fyrir Real Madrid og
enn var von hjá liðinu en ekki
lengi. Kaltz skoraði sitt annað
mark í leiknum með þrumuskoti
af 25 metra færi á 41. mínútu.
Hrubesch bætti svo fjórða marki
Hamborg við rétt áður en flautað
var til hálfleiks.
Real Madrid reyndi allt hvað af
tók í síðari hálfleiknum að jafna
metin en tókst ekki. Leikurinn
varð nokkuð harður er líða tók á
leikinn og Kaltz og Keegan fengu
gul spjöld fyrir að mótmæla dóm-
um. Spánverjinn Del Boque var
rekinn af velli í síðari hálfleiknum
fyrir að slá Keegan í andlitið.
Arsenal og Valencia
leika til úrslita
Enska
1 knatt-
spyrnan
BÆÐI Manchester Utd og Liver-
pool unnu góða sigra í ensku
deiidarkeppninni í gærkvöldi,
þannig að spennan er enn gifur-
leg, eins stigs munur, en Liver-
nool á eftir þrjá leiki, United tvo.
Urslit í gærkvöldi urðu þessi:
1. DEILD:
Manch. Utcf — Aston Vllla 2—1
Stoke — Liverpool 0—2
Tottenham — Wolves 2—2
2. DEILD:
Bristol Rovers — Leicester 1 — 1
3. DEILD:
Chester — Chesterfield 1—0
Skotland. úrvalsdeild:
Celtic — Aberdeen 1—3
Dundee Utd — Morton 2—0
Kilmarnock — Rangers 1—0
Partick — Hibs 1—0
Heimsmet
r m r mm
I spjotl
Ference Paragi frá Ungverja-
landi setti i gærkvöldi nýtt
heimsmet í spjótkasti, varpaði
spýtunni %,72 metra, eða 2,14
metrum betra heldur en gamla
metið sem landi hans Miklos
Nemet átti.
Nottingham Forest fær nú
tækifæri til þess að vinna Evr-
ópubikarinn annað árið í röð, en í
gærkvöldi sló liðið Ajax frá
Hollandi út úr keppninni. Leikur
Forest til úrslita gegn Hamburg-
er SV sem fór á kostum gegn
Reai Madrid. Forest tapaði þó
leiknum í gærkvöidi, 0—1, en
hafði unnið fyrri ieikinn 2—0,
— ÞETTA var að mörgu ieyti
sögulegur leikur fyrir mig þótt
ekki hafi hann verið ýkja merki-
legur. sagði Ásgcir Sigurvinsson,
aðspurður um sigur Standard
Liege yfir botniiðinu Hasselt um
helgina, en Standarsd vann 3:0 á
útivelli.
— Leikurinn var sögulegur að
því leyti að ég var í fyrsta skipti
fyrirliði Standard og var það
auðvitað stór stund fyrir mig og
einnig var leikurinn sögulegur að
því leyti að ég misnotaði víta-
spyrnu. Það hefur aðeins einu
sinni gerst áður í þau fjögur ár,
sem ég hef verið vítaskytta liðsins.
Þetta gerðist í byrjun seinni
hálfleiks þegar staðan var 2:0 og
við öruggir um sigur. Ég var búinn
Stjarnan
Framhaldsaðalfundur Stjörn-
unnar verður mánudaginn 28.
apríl að Lyngási 12, kl. 20.30.
Stjórnin.
• Manfred Kaltz, bakvörður
HSV skoraði tvö glæsimörk fyrir
lið sitt gegn Real Madrid.
þannig að Forest komst áfram á
samanlögðu markatölunni 2—1.
Enginn annar en Peter Shilton
hélt Forest á floti í leiknum, hvað
eftir annað varði hann ótrúlega
þrumuskot úti við stangirnar. Að-
eins einu sinni tókst framherjum
Ajax að koma knettinum í netið
fyrir aftan hann, það gerði Dan-
inn Sören Lerby á 66. mínútu.
að stilla knettínum á vítapunktinn
og búinn að ákveða hvar ég ætlaði
að skjóta þegar Edström kom til
mín og ráðlagði mér að skjóta á
mitt markið, því markvörðurinn
myndi eflaust henda sér í annað
hvort hornið. Ég fór eftir þessum
ráðleggingum en markvörðurinn
brást við öðru vísi, hann stóð eins
og steingervingur í miðju markinu
og fékk boltann beint á brjóstið!
Þetta var nú hálf neyðarlegt allt
saman, sagði Ásgeir.
Edström skoraði tvö fyrstu
mörkin eftir að Ásgeir hafði lagt
boltann fyrir hann í bæði skiptin
og í seinni hálfleik bætti Portúgal-
inn De Matos við þriðja markinu.
FC Brugge vann Waregem á
útivelli og heldur enn tveggja
stiga forystu. Á sunnudaginn leika
bæði leiðin á heimavelli, Standard
gegn Cercle Brugge og FC Brúgge
gegn FC Liege svo segja má að
þarna verði um að ræða uppgjör
borganna Liege og Brúgge. Liege á
1000 ára afmæli á þessu ári og
formaður FC Liege hefur sagt að
lið hans muni leggja sitt af
ENSKA liðið Arsenal sýndi Ju-
ventus tennurnar í Tórínó í
gærkveldi, er liðið gerði sér lítið
fyrir og sigraði ítalska stórliðið á
eigin heimavelli, eftir að fyrri
leik liðanna á Highbury í London
hafði lokið sem jafntefli. Arsenal
sigraði því samanlagt 2—1 og
leikur til úrslita um UEFA-bikar-
inn gegn Valencia frá Spáni sem
sló Nantes frá Frakklandi út úr
keppninni i gærkvöldi.
Terry Neill, framkvæmdastjóri
Arsenal tefldi djarft þegar hann
tók þá David Price og Brian
Talbot út af þegar aðeins 13
mínútur voru til leiksloka. í þeirra
stað setti hann þá John Hollins og
Dave Waessen, ungan nýliða. Og
það voru þeir félagarnir sem lögðu
upp sigurmarkið, Hollins sendi á
Rix sem sendi aftur til Waessen
sem skoraði örugglega þegar tvær
mínútur voru til leiksloka. Leik-
menn Juventus gátu sjálfum sér
Bæjakeppni í
Vestmannaeyjum
í dag fer fram bæjakeppni í
Vestmannaeyjum. Kópavogsbúar
sækja Eyjamenn heim. Leikur
liðanna hefst kl. 17.00.
mörkum til þess að færa borginni
meistaratitil í afmælisgjöf með
því að vinna FC Brúgge um næstu
helgi.
í haust verður mikið um dýrðir
vegna afmælisins og mikil keppni
haldin í Liege til að minnast þess.
Þar keppa Standard, FC Liege,
Köln og Ajax. Skömmu áður mun
Standard taka þátt í svipaðri
keppni í Köln í Þýzkalandi og þar
verða þátttökuliðin Köln, Ham-
burger SV, Standard og Ajax.
Af öðrum íslendingum í belg-
ísku knattspyrnunni er það að
frétta að Lokaren tapaði á útivelli
gegn Lierse 2:0 og eru Arnór
Guðjohnsen og félagar nú endan-
lega úr leik í baráttunni um
meistaratitilinn. í 2. deild tapaði
La Louviere á heimavelli en Karl
Þórðarson og Þorsteinn Bjarnason
eru engu að síður svo gott sem úr
fallhættu. í 3. deild hafa Ólafur
Sigurvinsson og félagar nú 10
stiga forystu og að sjálfsögðu hafa
þeir fyrir löngu tryggt sér sigur í
deildinni.
- SS.
um kennt, þar sem liðið dró flesta
menn í vörn þegar líða tók á
leikinn til þess að halda marka-
lausu jafntefli, sem hefði nægt
liðinu til að komast í úrslitin.
Á sama tíma var spænska liðið
Valencia í litlum erfiðleikum með
franska liðið Nantes og sigraði
4—0. Nantes sigraði 2—1 í fyrri
leiknum, þannig að Valencia
kemst áfram á samanlögðu
markatölunni 5—2. Reinar Bonhof
skoraði fyrsta markið á 9. mínútu
og fyrir hléið bætti Angel Subir-
ats öðru marki við. í síðari
hálfleik skoraði argentínski snill-
ingurinn Mario Kempes tvívegis
og gulltryggði sigur sinna manna.
Urslitaleikurinn fer fram í Brugge
14. maí.
Þróttur vann
Þróttur sigraði Ármann í
Reykjavíkurmótinu i knatt-
spyrnu í gærkvöldi með einu
marki gegn engu, er það annað
tap Ármanns i roð, eftir að hafa
byrjað mótið af miklum krafti.
Næsti leikur Reykjavíkurmótsins
er í dag klukkan 17.00, en þá
leika Fram og Valur.
Spennandi keppni í
víðavangshlaupi ÍR?
Víðavangshlaup ÍR verður háð
í 65. sinn í dag og verður með
svipuðu sniði og undanfarin ár,
þ.e. hlaupið hefst í Hljómskála-
garðinum og eftir að þar hefur
verið hlaupinn hringur leggja
hlaupararnir Ieið sína út i
Vatnsmýrina, en hlaupinu lýkur
svo fyrir utan Alþingishúsið eftir
endasprett um Tjarnargötu og
Kirkjustræti. Hefst hlaupið kl.
14.00.
Forest tapaði
en vann samt!
Sögulegur leikur hjá Ásgeiri:
Var fyrirliði í fyrsta skipti
og misnotaði vítaspyrnu
’i