Morgunblaðið - 24.05.1980, Síða 19

Morgunblaðið - 24.05.1980, Síða 19
AUGLYSING 66 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1980 Ása Finnsdóttir: Hvorki þann versta né næst bezta Þegar ég er spurð, hvers vegna ég ætli að kjósa Pétur J. Thor- steinsson í væntanlegum forsetakosningum, get ég verið fáorð. Hann er einfaldlega lang- hæfastur frambjóðenda og að öðrum ólöstuðum líklegastur til að veita þingi og þjóð styrk og forsjá. Þar ber allt að sama brunni, gáfur hans, menntun og glæsileg starfsreynsla, en ekki sízt festa, hógværð og ljúf- mennska. Um þetta eru flestir sammála, en samt heyrast fáránlegar at- hugasemdir á borð við það, að ekki sé nú hyggilegt að styðja Pétur, því að hann sé ekki nógu sigurstranglegur samkvæmt skoðanakönnunum, þótt hæfast- ur sé. Svo aulalegum hugsunar- hætti er jafnvel ekki hægt að líkja við það sem tíðkazt við veðreiðar, því að þar hika menn ekki við að veðja á hrossið, sem þeir telja bezt að atgervi. For- setakosningarnar eru ekki veð- reiðar og þær eiga ekki heldur að vera hápunkturinn á meðal- mennsku íslendinga. Þær eru lýðræðislegasta aðferð, sem um getur til að velja þjóðhöfðingja og við það val eiga menn engu að fylgja öðru en eigin sannfær- ingu. Annars höfum við ekkert við lýðræði að gera. Snæfríður Islandssól kvaðst frekar vilja þann versta en þann næstbezta. Ég vil, að íslenzka þjóðin fái aðeins þann bezta. Sá er munurinn á okkur og Snæfríði íslandssól, að við eigum kost á þeim bezta. Ása Finnsdóttir. Útgefendur: Stuöningsmenn Péturs J. Thorsteins- sonar Ritnefnd: Arnór Hannibals- son (ábm.) Guörún Egilson Hákon Bjarnason Haraldur Blöndal og Sveinn Guðjónsson Fjölsóttir fundir Þann 9. maí hélt Pétur Thorsteinsson í fundaferöalag um Noröurland og heimsóttí Dalvík, Ólafsfjörð, Þórshöfn, Raufarhöfn, Kópasker og Húsavík ó tveim dögum. Á öllum þessum stöðum hétt Pétur bæði vinnustaöafundi og almenna fundi. Þann 11. maí flaug Pétur til Grímseyjar og komu 12 atkv»öisb»rir menn á fund með honum af 38 á eynni. Fundargestir spurðu Pétur margs og létu í lokin í Ijós þá ósk, að hann yröi hjá þeim tvo daga. Pétur flaug frá Grímsey til Akureyrar og ók til Skagafjaröar. Hann hélt fundi í Varmahlíö, á Sauðárkróki, Hofsósi og Siglufirði. Á þessum fundum voru fjörleg skoðanaskipti og var Pétri hvarvetna vel tekið. Myndirnar hér til hliðar og neöst á síöunni eru frá fundi sem stuöningsmenn Péturs efndu til í Sigtúni í Reykjavík þann 15. maí. Efst á síðunni og á myndinni hér fyrir neðan til vinstri má sjá margmenni á fundi meö Pétri og Oddnýju í Laugarásbíói þann 3. maí. Hér fyrir neöan má sjá Pétur leggja af staö til Þórshafnar þann 10. maí. Velium Pétur forseta — Hann er vandanum vaxinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.