Morgunblaðið - 01.06.1980, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 1980
61
156 nemendur við Stýrimanna-
skólann i Reykjavík i vetur
Stýrimannaskólanum í
Reykjavík var slitið í 89. sinn 23.
maí. I skólanum voru 156 nemend-
ur þegar flestir voru. Auk þess var
1. stigs deild á ísafirði í tengslum
við Iðnskólann þar.
Utan venjulegrar stundaskrár
voru haldin nokkur námskeið við
skólann svo sem brunavarnar-
námskeið á vegum Slökkvi-
stöðvarinnar og verkstjórnarnám-
skeið á vegum Iðntæknistofnunar
íslands. Auk heilsufræðikennsl-
unnar í skólanum fengu nemendur
að fylgjast með aðgerðum á slysa-
deild Borgarspítalans. Ennfremur
fóru nemendur 2. og 3. stigs
æfingaferðir með varðskipum
ríkisins.
Prófi 1. stigs luku samtals 60
nemendur auk 8 á ísafirði. Prófi 2.
stigs luku 62 og prófi 3. stigs 28.
Efstur a prófi 3. stigs var Valur
Simonarson, 9,57 og hlaut hann
verðlaunabikar Eimskipafélags
íslands, farmannabikarinn. Efstir
á prófi 2. stigs voru Hólmsteinn
Björnsson og Viðar Ásmundsson
Ólsen með 9.88 og báru þeir brott
á milli sín verðlaunabikar Öld-
unnar, Öldubikarinn. Lands-
samband íslenskra útvegsmanna
veitti verðlaun fyrir hæstu einkun
í siglingafræði, fiskimanni á 2.
stigi og hlaut þau Páll Ægir
Pétursson, klukku með loftvog.
Bókaverðlaun úr Verðlauna- og
styrktarsjóði Páls Halldórssonar
skólastjóra hlutu eftirtaldir nem-
endur. Á 3. stigi: Halldór Benóný
Nellet, Tryggvi Gunnar Guð-
mundsson og Valur Símonarson.
Á 2. stigi: Aðalsteinn Arnar Hall-
dórsson, Ágúst Aðalsteinn Ragn-
arsson, Barði Ingibjartsson, Frið-
rik Jón Arngrímsson, Guðlaugur
Ágústsson, Hólmsteinn Björnsson,
Páll Ægir Pétursson, Sigtryggur
Gíslason, Sigurður Vilhjálmsson
Sverrir Hans Konráðsson og Viðar
Ásmundsson Ólsen. Bókaverðlaun
fyrir góða frammistöðu í dönsku
veitti danska sendiráðið þeim Val
Símonarsyni á 3. stigi og Pétri
Daníel Vilbergssyni og Viðari
Ásmundssyni Olsen á 2. stigi.
Eftir afhendingu skírteina
ávarpaði skólastjóri nemendur og
brýndi fyrir þeim að gæta þeirrar
ábyrgðar sem fylgir því að taka að
sér stjórn á skipi.
Viðstaddir skólaslit voru margir
eldri nemendur skólans og færðu
honum gjafir. Af hálfu 50 ára
nemenda talaði Sigurður Guð-
jónsson. Þeir gáfu fjárhæð í
Styrktarsjóð nemenda til minn-
ingar um látna skólabræður og
kennara. Af hálfu 30 ára nemenda
talaði Sigurður Óskarsson. Gáfu
þeir fjárhæð i Minningarsjóð
Friðriks Ólafssonar skólastjóra.
Orð fyrir 25 ára nemendum hafði
Guðjón Reynisson. Þeir gáfu skól-
„Gengið út fyrir
ramma velsæmis44
Blaðinu hefur borist eftirfar-
andi ályktun frá Félagi bifvéla-
virkja:
í tilefni uppsagna Kaupfélags
Árnesinga vegna þriggja bifvéla-
virkja, tveggja járniðnaðarmanna
og eins verkamanns, álykta stjórn
og trúnaðarmannaráð Félags bif-
vélavirkja eftirfarandi:
Þrátt fyrir ákvæði í lögum og
kjarasamningum varðandi gagn-
kvæma uppsagnarmöguleika, lítur
Félag bifvélavirkja þannig á að
kaupfélagsstjóri Kaupfélags Ár-
nesinga, fyrir hönd kaupfélagsins,
hafi gengið út fyrir ramma vel-
sæmis í uppsögnum starfsmanna.
Félag bifvélavirkja telur það
vera ógnun við mannréttindi að
svipta fullorðið fólk möguleikum
til að afla sér lífsviðurværis og út
frá siðferðislegu sjónarmiði er það
lágkúra af hendi Samvinnuhreyf-
ingarinnar að segja þeim starfs-
mönnum fyrstum upp störfum
sem lengstan hafa starfstíma hjá
sama fyrirtæki. Þá telur Félag
bifvélavirkja það lágkúru af hendi
Samvinnuhreyfingarinnar að
segja upp starfsmönnum, án þess
að gera fyrst hina minnstu tilraun
með útvegun annarrar vinnu hjá
fyrirtækinu. Félag bifvélavirkja
harmar það dugleysi stjórnar
Kaupfélags Árnesinga að þora
ekki upp á sitt eindæmi að taka af
skarið og afturkalla uppsagnirnar.
Svo er að sjá að einstaklingar í
valdastólum Samvinnuhreyf-
ingarinnar, séu einráðir í þeim
málum sem þeir sjálfir æskja.
anum fjárhæð til ráðstöfunar af
eigin óskum. Fyrir 20 ára nemend-
ur talaði Gunnar Arason. Þeir
gáfu skólanum málverk eftir Jón
E. Gunnarsson til minningar um
látinn skólabróður, Pétur Jó-
hannsson. Af hálfu 10 ára far-
manna talaði Helgi Ivarsson. Þeir
ásamt þeim sem voru í öldunga-
deild skólans fyrir 15 árum gáfu
skólanum Loran C staðarlínutæki.
Fiskimenn 10 ára gáfu fjárhæð í
Tækjasjóð skólans. Orð fyrir þeim
hafði Bjarni Sveinsson. Jónas
Þorsteinsson frá Akureyri færði
skólanum ljósrit af Siglingafræði
Einars Ásmundssonar í Nesi frá
sér og syni sínum. Siglingafræði
þessi er handskrifuð og er önnur
elsta siglingafræði sem samin
hefur verið á íslensku.
Núverandi nemendur færðu
Styrktarsjóði fjárhæð, ágóða af
skólaverslun.
Að lokum þakkaði skólastjóri
gestum komuna og gjafir sem
skólanum höfðu verið færðar. Lét
hann í ljós sérstaka ánægju sína
yfir heimsókn eldri nemenda. Þá
þakkaði hann kennurum, skóla-
nefnd og prófdómendum störf
þeirra og góða samvinnu á liðnu
skólaári og saði skólanum slitið.
Frá sýningu á verkum Saura
myndaflokknum.
m.a. má sjá verk úr íslenzka
Mynd Mbl. Emilia
99
Islenzki mynda-
flokkurinn44
— meðal verka á sýningu á^verkum
Antonio Saura í Listasafni Islands
„Sýning Listasafns tslands á
verkum Antonio Saura er framlag
safnsins til Listahátíðar í ár,“ sagði
dr. Selma Jónsdóttir, forstöðu-
maður Listasafns íslands. á
blaðamannafundi. Meðal verka,
sem sýnd verða á sýningunni, er
„islenzki myndaflokkurinn", sem
Saura nefnir svo. Það eru 13 verk,
sem sýnd verða í fyrsta sinn og eru
frá Islandsferð listamannsins i
fyrrasumar.
Sýningin á verkum Antonio Saura
verður opnuð í dag kl. 14. Lista-
maðurinn sjálfur verður viðstaddur
opnunina. Antonio Saura er einn af
þekktustu og sérstæðustu myndlist-
armönnum nútímans. Hann fer ekki
troðnar slóðir til að koma hugmynd-
um sínum á framfæri. Iðulega um-
myndar hann verk gömlu meistar-
anna og setur fram eigin ímynd af
þeim, iðulega afskræmda og ofsa-
fengna. Saura er Spánverji og í
verkum hans má finna djúpstæða
ást á landinu og margþættri menn-
ingu Spánar. Sýningin verður opin
daglega frá kl. 13.30 til 22. til 21. júní
MYNDARLEGT
SUMARFRÍ
Félag bifvélavirkja bendir á að
sá árstími sem starfsmönnum
Kaupfélags Árnesinga er skipað í
atvinnuleysi, er sá tími þegar
mest er um vinnu á bifreiðaverk-
stæðum og vekur furðu að stjórn
Kaupfélags Árnesinga, sem er að
mestu skipuð fulltrúum bænda,
skuli Ieggja út í að loka fyrir
viðhaldsþjónustu á landbúnaðar-
tækjum þegar annatími fer í hönd
í sveitum, sem og að bifreiðaskoð-
un stendur yfir.
Félag bifvélavirkja er ekki
grunlaust um að ásetningur kaup-
félagsstjóra Kaupfélags Árnes-
inga með uppsögnum þessum, sé
sá að ná fram hefndum gagnvart
þeim starfsmönnum Kaupfélags
Árnesinga, sem stóðu í deilunum
1975.
Stjórn og trúnaðarmannaráð
Félags bifvélavirkja skorar á alla
þá sem í Samvinnufélögum eru að
gera sitt til að stöðva þessa
öfgaþróun og varast jafnframt að
fela þeim mönnum framkvæmda-
vald innan Samvinnuhreyfingar-
innar sem eingöngu hugsa um
hámarksgróða hverju sinni, en
láta manngildið sigla lönd og leið.
Stjórn og trúnaðarmannaráð
Félags bifvélavirkja beinir því til
verkalýðsfélaga og samtaka þeirra
að vera á verði og snúast gegn
árásum Kaupfélags Árnesinga og
allra annarra atvinnurekenda sem
rýra kynnu afkomumöguleika
þessa fólks, er einungis hefur
vinnuafl sitt að selja.
LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F.
LAUGAVEG1178 REYKJAVÍK SiMI 85811