Morgunblaðið - 01.06.1980, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 1980
67
MYNDAMÓT HF.
PRENTMYNDAGERÐ
AÐALSTRÆTI • SÍMAR: 17152-17355
Skólaslit í MR:
Frá Kópaskeri.
Norrænt félag stofnað við Öxarf jörð
Formaður Norræna félagsins
Hjálmar Ólafsson ferðaðist fyrir
skömmu um Norð-Austurland og
hélt fundi til kynningar á starfi
Norræna félagsins og erindi um
Angmagssalik á Austur-Græn-
landi og íbúa þaðan, á fjórum
stöðum.
Á Kópaskeri var stofnað Nor-
ræna félagið við Öxarfjörð. Stjórn
þess skipa:
Hildur Halldórsdóttir, hús-
freyja í Gilhaga, formaður Krist-
ján Ármannsson, oddviti Kópa-
skeri, Ólafur Friðriksson kaupfé-
lagsstjóri Kópaskeri, Þórarinn
Björnsson, bóndi í Austurgörðum
og Jón Skúli Sigurgeirsson, bóndi í
Asbyrgi.
Deildir Norræna félagsins eru
nú orðnar 41 talsins.
Á Raufarhöfn, Þórshöfn og
Vopnafirði var komið á fót undir-
búningsnefndum með það að
marki að efna til félagsstofnunar
með haustinu. Formenn undirbún-
ingsnefndanna eru:
Björn Hólmsteinsson, oddviti
Raufarhöfn, Sigtryggur Þorláks-
son, bóndi Svalbarði og Hermann
Guðmundsson, skólastjóri á
Vopnafirði.
Guðni Guðmundsson
Guðni Guðmundsson rektor þess,
að þetta væri í tíunda skipti, sem
hann brautskráði stúdenta og
væru þeir orðnir 1887 á þessum tíu
árum, en til marks um fjölgun
stúdenta væri það, að Pálmi
Hannesson hefði brautskráð 1909
stúdenta á 27 árum, en hann var
lengst allra rektora.
Þá minntist rektor þess, að 100
ár hefðu verið liðin á þessu
skólaári frá stofnun lestrarfélags-
ins íþöku, sem var stofnað á
útmánuðum 1880 vegna bókagjaf-
ar ameríska norrænufræðingsins
Willards Fiskes. Gaf Fiske bækur
til safnsins allt til ársins 1904, er
hann lézt.
Nemendur skólans voru í upp-
hafi skólaárs 782 talsins, 144 í 6.
bekk og 638 í neðri bekkjum. Af
neðri bekkingum hurfu 8,5% frá
námi á skólaárinu, en undir próf í
vor gengu 584 nemendur. 520
nemendur stóðust próf.
Hæstu einkunn remanenta
hlaut Haraldur Sigþórsson, 5.X,
ág. 9,50. Aðrir remanentar, sem
hlutu mjög háar einkunnir, eru:
Ólafur Jóhann Ólafsson, 4.Y, ág.
9,42, Óttar ísberg, 4.Y, ág. 9,29,
Þorsteinn Gíslason, 4.Y, ág. 9,17,
Auður Þóra Árnadóttir, 4.X, ág.
9.17, Gylfi Zoega, 3.E, ág, 9,09,
Ingólfur Johannesen, 3.E, ág. 9.05,
Signý Reynisdóttir, 3.A, ág. 9.00
og Kolbeinn Guðmundsson, 3.1, ág.
9.00.
144 nemendur gengu svo undir
stúdentspróf og stóðust allir.
Hæstu einkunn á stúdentsprófi
hlaut Guðrún Þorhallsdóttir, 6.D,
ág. 9,54, og er hún jafnframt dux
scholae, eins og hún hefur verið
tvisvar áður.
Næst hæst á stúdentsprófi varð
Ragnhildur Hjartardóttir, 6.X, ág.
9,46 og þriðja varð Gyða Bjarna-
dóttir, 6.M, ág. 9,20.
Margir afmælisárgangar stúd-
enta áttu fulltrúa við skólaslit og
færði rektor góðar þakkir skólans
fyrir hlýhug þeirra og ræktarsemi
í garð skólans. Fyrir hönd 50 ára
stúdenta flutti ræðu dr. Sverrir
Magnússon, lyfsali, og færði hann
á 10 árum
Það má til sanns vegar færa að ef þú hefur efni á að leggja til
hliðar ákveðna upphæð mánaðarlega, í ákveðinn tíma,
hefurðu líka efni á að taka lán.
Lán sem þú getur borgað niður á sama tíma
og það tók þig að öðlast það.
Þannig er Safnlán - fyrir þá sem hugsa til lengri tíma.
skólanum þrívíddarsmásjá frá
árgangnum. Fyrir hönd 25 ára
stúdenta flutti ræðu Kristján
Baldvinsson læknir og færði skól-
anum veglega upphæð í Sögusjóð
og einnig frá 20 og 30 ára
stúdentum. Þá tilkynntu 10 ára
stúdentar, að þeir mundu næstu
daga færa skólanum gjöf Sögusjóð
Rektor þakkaði gefendum árn-
aðaróskir þeirra og vinarþel og
tryggð í garð skólans.
Menntaskólanum í Reykavík
var slitið í Háskólabíói fimmtud.
29. maí. í ræðu sinni minntist
Guðni hef ur
brautskráð
Í887 stúdenta