Morgunblaðið - 01.06.1980, Page 20
68
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ1980
Þessi fréttamynd af „Litla
stráknum“, sem eyddi Hiroshima,
vakti óhog og ugg þegar Kjarnorku-
nefnd Bandaríkjanna ákvaö birtingu
hennar fyrir tveimur áratugum.
Þaö er vísast engin tilviljun aö
birtingardaginn bar uppá tuttugu ára
afmæli árásarinnar á Pearl Harbor.
Kjarnorku-
sprengjan
eftir ANTHONY
TUCKER
Læknastéttin
þáöum megin
Atlantshafs hefur
hafiö krossferö
til aö minna
almenning á
hinar ólýsanlegu
hörmungar sem
fylgja mundu í
kjölfar
kjarnorkuárásar
Að gera sér grein fyrir kjarnorku-
sprengjunni.
Við höfum lifað svo lengi í
skugga kjarnorkustríðs, að viö sjá-
um ekki lengur hörmungarnar sem
mundu skella á með því né óttumst
afleiöingarnar sem á eftir fylgja.
Sykursætt mál hernaöarsamn-
inga, „varnar-“ eða „skammdrægar
sprengjur", dylur hinar ægilegu
staöreyndir um hvaö gerast mundi
ef kjarnorkusprengjum yröi í raun
beitt, og oft er í útreikningum á
hversu margir kæmust af, gert ráð
fyrir að haldið sé uppi læknisþjón-
ustu sem í rauninni er fáránlegt að
gera ráð fyrir.
Á meðan hver ófriöarhættan
tekur við af annarri er mesta
hættan fólgin í því að íbúar stór-
veldanna dofni fyrir ógnun kjarn-
orkunnar, þegar þeir eru fóöraöir á
útreikningum sem gefa í skyn aö
margir kæmust af og þeim talin trú
um að kjarnorkan sé aðeins viöbót
við hefðbundinn vopnabúnað. Þá er
hætt viö að þeir geri stjórnvöldum
kleift aö líta á kjarnorkustríö sem
raunhæfan möguleika.
Álit margra líffræðinga og sér-
fræöinga í læknavísindum á mati
Tæknistofnunar Bandaríkjanna frá í
fyrra á afleiðingum kjarnorkustríðs
er, að það byggi á forsendum sem
geri of lítiö úr þeim afleiðingum sem
kjarnorkustríð mundi sennilega
hafa í för meö sér, og því hafa
komiö fram auknar kröfur af hálfu
lækna um raunsærra mat á afleiö-
ingum margra megatonna kjarn-
orkusprengjuárása á mikilvæga
iðnaðarmiðstöðvar og þéttbýlar
borgir.
Læknastéttin er þekkt að öðru
en því að vera fús til að taka
pólitíska afstööu og maöur kynni aö
ætla aö í landi eins og Bandaríkjun-
um væru „Samtök lækna um fé-
lagslega ábyrgð" einkum skipuð
ungum, síðhæröum, heldur vinstri-
sinnuöum, nýútskrifuðum læknum.
Ekkert gæti verið fjær sanni. í
hópnum er næsti forseti Læknis-
fræðistofnunar ríkisins, Dr. F.C.
Robbins, en hann er deildarforseti í
Case Western læknaskólanum, sex
nóbelsverðlaunahafar, Howard
Hiatt, deildarforseti heilsugæslu-
deildar læknaskólans í Harvard, og
um sex hundruð menn aðrir, þar á
meöal margir mestu áhrifamenn í
læknadeildum og sjúkrahúsum
Bandaríkjanna.
Þeir hófu baráttu sína meö að-
vörun sem þeir sendu Carter og
Brésnev um að það væri þýðingar-
laust aö reyna aö skipuleggja
fjöldaslysavarnir meö tilliti til lækn-
isþjónustu í sambandi viö kjarn-
orkustríö, að þaö væri engin leiö að
skapa almennum borgurum raun-
hæft öryggi, og að möguleikar fólks
á að ná sér aftur eftir kjarnorkustríð
vaBru hverfandi litlir.
í þá tvo daga sem fundurinn í
Harvard stóö, frá honum var greint
í tímaritinu „Science", kom fram
mat manna á hinum ógnþrungnu
afleiöingum sem yröu ef mörgum
megatonnum af kjarnorkusprengj-
um yröi varpað á Bostonsvæöiö.
Sams konar ályktanir má draga ef
skotmarkíö yrði London, Man-
chester, Bonn eöa París. Sumir
kannast við lýsinguna. En þessir
menn telja aö tími sé kominn til að
fá okkur til aö beita ímyndunarafl-
inu og reyna aö skilja hvaö felst í
kjarnorkuárás, jafnvel takmarkaðri
árás eins og þeirri sem skilgreind
var og athuguö í Harvard, hverjar
afleiðingarnar yröu gagnvart inni-
króuðum mannfjöldanum í þéttbýl-
um iðnaöarborgum.
í raunverulegri kjarnorkuárás
yröu helstu þéttbýlissvæðin senni-
lega fyrir yfirþyrmandi sprengju-
regni. Að minnsta kosti er gert ráð
fyrir því í herfræðilegum útreikning-
um og ef um væri að ræða London,
París eða Washington, væri
sprengjumagnið um það bil 200
megatonn. Ef til vill er ekki hægt að
ímynda sér slíkt, því allar lýsingar
sem birtar hafa verið opinberlega
miöast viö takmarkaða beitingu
kjarnorkuvopna og í þeim eru
metnar afleiðingar t.d. einnar 20
megatonna sprengjuárásar.
Þetta er auöveldara að skilja
vegna þess að það er einfalt, a.m.k.
í byrjun. Náðu þér í kort af þínu
borgarsvæði og finndu staðinn sem
sennilegast er að sprengjan yröi
látin falla á. Turn aöalpósthússins,
Effelturninn, eða Piccadilly braut-
arstööina, og dragöu í huganum tvo
hringi. A svæöi sem markast af 10
km radíus er eyðingin algjör. Innan
þess hrings er ailt horfiö. Þaðan og
út að hring sem markast af 32 km
radíus mun helmingur fólksins vera
látinn eða slasaöur. í London,
París, Manchester og flestum öör-
um borgum, eins og Hiroshima og
Nagasaki, munu aöalsjúkrahúsin og
flest sérmenntað aöstoðarfólk
þeirra vera á svæðum þar sem
eyðileggingin er alger. í sumum
borgum munu nokkur meiriháttar
sjúkrahús vera innan síðari hrings-
ins, þar sem eyöileggingin verður
minni. En þetta er aðeins upphafið.
Eldstormurinn og geislavirka
skýið sem fylgja í kjölfarið (ekki er
hægt að segja fyrir um feril þeirra
sem ræöst af veöri og landsháttum
á hverjum stað) valda vindhraða allt
aö 500 km á klukkustund, ofboðs-
legri hitahækkun viö yfirborö jaröar
og ófyrirsjáanlegum skemmdum
sem bætast viö þær sem verða við
sjálfa sprenginguna, eldsúluna og
upphaflegu geislavirknina.
Bjartsýnismenn benda á að viö
árásina á Japan hafi hópur fólks
sem var að vísu nálægt þeim stað
sem sprengjan féll á en niðri í
bankahvelfingu djúpt undir yfir-
borðinu komist lífs af. Þar var um
að ræöa 15 kíótonna sprengju. Við
erum að fjalla um sprengju sem er
1000 sinnum öflugri. Og það er rétt
aö minna á reynslu Evrópubúa af
eldstormum, þar sem þeir sem
virtust öruggir í kjallarabyrgjum
stiknuðu smám saman er byrgi
þeirra breyttust í bakaraofna.
Það er að vísu rétt að viö ytri
mörk þeirra svæða þar sem áhrifin
yrðu mest og fjarri eldstormnum
kann fólk aö vera öruggara í
byrgjum en í húsum með hvítmál-
uðum gluggum, og ef fyrir hendi er
talsverö aöstoð og þjónusta neðan-
jaröar gætu nokkur þúsund manns
lifaö af fyrstu áhrifin ef fólkið væri
djúpt í jöröu, t.d. í göngum neöan-
jarðarbrautarinnar í London. En
þegar í uphafi myndi tala látinna
nema milljónum (í London og París
t. d.) eöa nálgast mllljón í borgum
eins og Birmingham eöa Manchest-
er.
Þetta er mynd af ástandinu eins
og það yrði þegar eftir að sprengj-
an félli, meöal þess sem síöar kæmi
fram, er aö geislavirknin á svæðinu
yrði banvæn í a.m.k. hálfan mánuð
á eftir.
Ef við sleppum óútreiknanlegum
vandamálum vegna dreifingar
geislavirkni, sem gæti náö yfir
u. þ.b. 15.000 ferkílómetra svæöi,
(myndin á sjötta áratugnum af
einnar megatonna sprengju, var af
geíslavirku skýi aflöngu, 15kmx320
km, en langdrægar sprengjur nú
eru miklu stærri) verðum við að
ímynda okkur afarvíölent svæði þar
sem gera má ráð fyrir einni milljón
látinna, annarri milljón manna sem
eru að dauða komnir af brunasár-
um og geislun og ef til vill einni
milljón manna sem hugsanlega
mætti bjarga frá bana ef læknis-
hjálp bærist í tæka tíö.
En með mjög fáum undantekn-
ingum kæmust hjálparsveitir vegna
mikillar geislavirkni alls ekki til
þeirra svæöa sem verst yrðu úti.
Það er alvarleg blekking að láta
sem almenn þjónusta, læknishjálp
og hjálparsveitir væru til staöar, í
nægilegum mæli og nægilega
snemma. Það væri ekki einu sinni
mögulegt að ráða við hiö ömurlega
heilbrigðisvandamál aö grafa hina
dauöu.
Það er ekki nóg með að geisla-
virkni þar sem sprengjan félli yröi
lífshættuleg dögum saman, heldur
yrði hún 1000 einingar (rads) á
klukkustund dögum saman í
margra kílómetra fjarlægö og úr
henni drægi smám saman meö
tímanum og eftir því sem fjær
f KAUPMENN- VERSLUNARSTJÓRAR
AVEXTIR
KUNNAR
Epli rauð,
epli gul,
græn,
Isínur,
vatnsmelónur,
nektarínur,
ananas,
avocado.
grapealdin,
sítrónur,
bananar,
perur,
300
!
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU