Morgunblaðið - 05.06.1980, Side 11

Morgunblaðið - 05.06.1980, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ1980 11 HAFSKIP H.F. Ferðaskrifstofan UTSÝN VÍKINGUR á Laugardalsvelli í kvöld kl. 20.00 Mikil atvinna er á Ólafsvík Ólafsvík. 3. júni. MIKIL atvinna er hér þessa dagana og vel hefur aflast. Tiu bátar hafa róið með þorskanet frá því að banni lauk og hafa þeir aflað ágætlega. Fékk t.d. einn bátanna. Halldór Jónsson. 60 tonn i síðustu viku. en algengasti afli er 6—7 tonn eftir nóttina. Fjórir bátar eru á trollveiðum og nokkrar trillur eru með hand- færi. Tregt hefur verið hjá þeim að undanförnu eftir góða byrjun. Togararnir Lárus Sveinsson og Már lönduðu í gær 75 og 121 lest, mest grálúðu. Auk vinnu við fisk er hér mikil vinna við húsabygginar, t.d. er langt komið við að smíða grunn og kjallara nýja félagsheimilisins. - Helgi. Fjórir aldraðir sjómenn heiðraðir IIÚHjkvik. 3. júni. SJÓMANNADAGURINN var hér haldinn hátiðlegur með hefð- bundnum hætti, en i tilefni hans voru fjórir aldraðir sjómenn heiðraðir. Það voru þeir Nói Baldvinsson, Hólmgeir Árnason, Þórhallur Friðgeirsson og Þorgrimur Jóelsson. Landsbankabátinn hreppti að þessu sinni Kristbjörg ÞH 44, en hann er farandgripur, sem sá bátur hlýtur, sem hæst meðalverð fær fyrir innveginn borðfisk. Kristbjörgin veiddi 590 tonn og var meðalverðið 143,67 krónur fyrir hvert kíló. Næstur var Sig- þór. Um þennan grip keppa ein- ungis dekkbátar, en einn trillu- karlinn, Hreiðar Jósteinsson á trillunni Vilborgu, fiskaði á síðasta ári 118 tonn og var meðal- verð hjá honum 150,02 krónur fyrir hvert kíló. — Fréttarltari. Málning og málningarvörur Veggstrigi Veggdúkur Veggfóöur Fúavarnarefni Bondex, Solignum, Pinotex, Architectural. Afsláttur Kaupir þú fyrir: 30—50 þús. 4A0/ veitumviö IU /0 Afslátt Kaupir þú umfram 50 bús. 4CO/ veitum við 10 /0 afslátt. Sannkallað LITAVERS kjörverö Ertu að byggja, viltu breyta, þarftu að bæta? Líttu við í Litaveri, því þaö hefur ávallt borgað sig. Grenaáavegi. Hreylilahúamu. Sími 82444. FORMPRENT Nú er að duga eða drepast. Áfram KR Vormarkaður Fríkirkjukvenna VORMARKAÐUR Fríkirkju- kvenna verður á Lækjartorgi (útimarkaður) á morgun, föstu- daginn 6. júni. Verður þar ýmis- legt áhugavert á boðstólum að vanda, svo sem ýmiskonar fatn- aður, kökur, f jallagrös og fleira. Kvenfélagið hefur löngum verið ein styrkasta stoð Fríkirkjusafn- aðarins og lagt ómælt af mörkum til kirkjumála og alls konar menn- ingarmála. Safnaðarstarfið hafa konurnar stutt með myndarlegum fjárframlögum. Þær hafa gefið stórgjafir til kirkjuhússins sjálfs til fegurðarauka og gagns, og einmitt um þessar mundir hafa Ólafsvík: íslenzkur reynir á hvert heimili Ólafsvik. 3. júni. SKÓGRÆKTAR- og náttúru- verndarféiag ólafsvikur hefur á undanförnum árum gróðursett allt að þrjú þúsund trjáplöntur á ári i landi sinu fyrir ofan þorpið. í vor var auk þess, í tilefni af Ári trésins, hrint í framkvæmd skemmtilegri hugmynd til þess að vekja athygli almennings á þess- um málum, en það var, að félagið gaf eina plöntu af islenzkum reyni á hvert heimili í þorpinu, eða alls um 300 plöntur. Hver þeirra er um einn metri á hæð. Þessi starfsemi félagsins er fjármögnuð með sölu á afskornum blómum um hvíta- sunnuna. Einnig eru félagar um þessar mundir að selja fjölær- og sumarblóm. Árlega sér félagið svo um innkaup á trjáplöntum fyrir almenning og keyptu þorpsbúar í ár fyrir 1,5 milljónir. Félagar í Skógræktar- og náttúruverndar- félagi Ólafsvíkur eru 40 og for- maður er Sigríður Þóra Eggerts- dóttir. - Helgi. þær ýmislegt á prjónunum á því sviði. Kvenfélag Fríkirkjusafnaðarins verðskuldar því fullan stuðning allra safnaðarmeðlima og annarra velunnara Fríkirkjunnar. Vænti ég þess, að sem flestir leggi leið sína um Lækjartorg á morgun og kynni sér hvað konurnar hafa á boðstólum. Kristján Róbertsson, frikirkjuprestur. ECG ÉG ÁRSMIÐAR á alla heimaleiki KR í 1. deild verða seldir við innganginn. Verð kr. 13.000 SKÓSALAN LAUGAVEGI 1 ANDRI ■ ■ 11 ENDURSKOÐUNARSKRIFSTOFA ISVEINS JÓNSSONAR STUÐNINGSMENN KR Munið að taka kunningj- ana með á völlinn. Það munar um hvern KR-ing sem mætir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.