Morgunblaðið - 05.06.1980, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ1980
29
Hann mun hafa kvatt hann og
styrkt til náms í sjókortagerð á
vegum Sjómælingadeildar.
Guðmundur hóf nám hjá Det
Kongelige Sokort-Arkiv 1950 og
lauk burtfararprófi hjá þessari
stofnun árið 1954, fyrsti íslenski
Sjókortagerðamaðurinn. Sama ár
hóf hann starf hjá Sjómælinga-
deild Vita- og hafnamálaskrifstof-
unnar í starfsgrein sinni. íslend-
ingar tóku nú alveg við útgáfu
sjókorta úr hendi Dana, sem áður
gáfu út slík kort fyrir Islendinga.
Fyrsta íslenska sjókortið sem
Guðmundur teiknaði, og fullgert
var hér á landi, var gefið út árið
1956.
Með námi sínu í sjókortateikn-
un tærði Guðmundur grafiska
kortaprentun. Hann var fram-
úrskarandi vandvirkur og kröfu-
harður um allan frágang og prent-
un sjókorta, sem prentuð voru af
kortagerðarmönnum Sjómælinga-
deildar, en svo gerðu þeir um 9 ára
skeið. I þá daga var það, svo sem
raunar er enn í dag, að menn unnu
tvö störf til framfærslu sér og
sínum. Til að skapa sér slíka
aðstöðu stofnaði Guðmundur árið
1956 með starfsfélaga sínum hjá
Sjómælingadeild, Þorgrími Ein-
arssyni, offsetprentara, offset-
prentsmiðju, sem þeir félagar
nefndu Þegg. Prentsmiðju þessa
ráku þeir í nokkur ár saman og
tóku að sér allskonar verkefni,
sem þeir unnu á kvöldin, um
nætur og helgar. Þegar köfunar-
umsvif Guðmundar urðu það mikil
að hann gat ekki sinnt prent-
smiðjustarfi sínu, seldi hann fé-
laga sínum hluta sinn í fyrirtæk-
inu. Prentsmiðjan hefur síðan
verið rekin undir nafninu end-
urgrent.
A námsárum sinum í Kaup-
mannahöfn lærði Guðmundur köf-
un í skóla Jan Uhre og lauk prófi
1953. Hann var fyrsti Islendingur-
inn sem gerðist froskkafari. Jan
Uhre var þekktur kafari og fram-
mámaður í þróun þessarar nýju
tækni í köfun, sem fundin hafði
verið upp í stríðinu og kom í
stríðslokin fram sem heillandi
möguleiki til skoðunar huldu-
heima hafsins og leyndardóma
þess. Guðmundur var aðstoðar-
kennari Jan Uhre við skóla hans
og frá honum fékk hann bestu
umsögn sem kafari og kennari.
Ekkert var eðlilegra en að menn
óskuðu eftir að nema þessa nýju
köfunartækni af Guðmundi og
varð það til þess að hann rak
kafaraskóla og útskrifaði fjölda
froskkafara, sem fóru til þjónustu
við íslenska flotann og annarra
aðila, sem not höfðu fyrir störf
þeirra neðansjávar.
Guðmundur nam eftir að hann
kom heim hjálmköfun, og stofnaði
fyrirtæki „Köfunarþjónusta Guð-
mundar Guðjónssonar" árið 1966
og vann að alhliða köfunarþjón-
ustu, kortlagningu og mælingum.
Hann var um 2 ára skeið kafari
Hafnmálastofnunar ríkisins og
var víða um land við hafnargerðir.
Hann var einn af stofnendum
Kafarafélags Islands og formaður
þess um nokkur ár.
Hjónin Björg og Guðmundur
keyptu árið 1974 fatahreinsunina
Hreinsi í Starmýri 2, og ráku þá
starfsemi í 2 ár, en seldu síðan og
stofnsettu undir nafninu Hreinn í
Hólagarði í Breiðholti fatahreins-
un, sem enn er rekin og er fyrsta
fyrirtæki sinnar tegundar í þess-
um borgarhluta. Stórmyndarlega
var að þessu staðið og voru hjónin
mjög samhent i þessum fram-
kvæmdum, og lögðu á sig mikla
vinnu.
Guðmundur Einar Guðjónsson
var fæddur í Reykjavík 23. mars,
1931. Foreldrar hans voru Oddný
Guðrún Guðmundsdóttir og Guð-
jón Sveinbjörnsson, vélstjóri.
Guðjón er nýlátinn en móðir
Guðmundar lifir son sinn. Guð-
mundur var í hópi 3 systkina;
Guðný, gift Guðmundi Baldvins-
syni veitingamanni, eldri systir og
Hulda yngri systir, gift Garðari
Svavarssyni kaupmanni. Oddný
móðir Gumundar er ættuð undan
Eyjafjöllum, en Guðjón úr Grund-
arfirði. Konu sinni Björgu Björg-
vinsdóttur kynntist Guðmundur í
Kaupmannahöfn á námsárum
sínum, og gengu þau i hjónaband
30. október 1954. Börn þeirra eru:
Guðjón Rafn, kvæntur Margréti
Ásgeirsdóttur og eiga þau eina
dóttur Björgu Rós, Magnús Rafn
og Guðrún. Einnig Sigríði Rögnu
gifta Ástráði Bertelsen.
Guðmundur var vel af Guði
gerður, þrekmikið karlmenni, sem
var hvers manns hugljúfi. óvænt
voru þessi örlög. Marga svaðilför-
ina hafði hann farið í sínu
áhættusama starfi í myrkri og
vondum veðrum. Traustur var
hann og góður vinur, og þakklátur
er ég fyrir vináttu hans.
Ástvinum hans öllum, og ætt-
ingjum unga mannsins, sem með
þeim feðgum fór þessa örlagaferð,
sendi ég samúðarkveðjur.
Einar Stefánsson.
Nokkur kveðjuorð til Magnúsar,
nokkur orð fyrir kynni okkar af
honum og þakklæti fyrir heim-
sóknirnar hingað. Það er mikið
áfall þegar ungur maður, sem
dreymir stóra drauma og ætlar
sér svo margt í lífinu, er skyndi-
lega horfinn frá öllu. Það tekur
tíma að átta sig á því að allt i einu
vantar einn i hópinn. Hann sem
setti svip á hópinn, var bæði
fríður og aðlaðandi. Svo var hann
djarfur og hugrakkur, en það þarf
svo sannarlega til, þegar stunduð
er köfun. Það gerði hann með
föður sínum frá því hann var
unglingur. Nú þegar manni fannst
minni hætta á ferðum, á fiskibát á
sléttum sjó, skeður þetta svo
óvænt. Það er svo margt sem
kemur upp í hugann á kveðju-
stund, en mest viljum við þakka
honum samveruna á Ítalíu fyrir
tveimur árum síðan. Það var
ánægjulegt að hafa hann með.
Eftirminnilegast er hvað hann var
stórtækur og óhræddur við allt.
Eftir 3ja vikna fjarveru að heiman
þegar vinkonan hafði orð á því
hvað hún hefði saknað þess að fá
ekki mjólk svona lengi, talaði
hann um að mest af öllu hefði
hann saknað bílanna. Hraðinn
skipti hann miklu. — Þannig var
hann.
Hvar sem Magnús er að finna,
kveðjum við hann með söknuði og
vottum móður hans, bróður og
systur samúð á þessari sorgar-
stundu.
Fjölskyldan
Mávahlið 48,
Reykjavik.
Lífið er fljótt að breytast og
enginn ræður við það. Það mætti
líða jafn langur tími þangað til
maður deyr og timinn sem líður
áður en maður fæðist, því allir
eiga einhverju ólokið. Og það er
ekki fátt sem Magnús átti eftir að
gera þótt hann væri búinn að gera
margt í sínu stutta lífi en því
miður kom ekki í framkvæmd.
Aldrei leiddist manni í návist
Magnúsar, það var allt fullt af
fjöri, bæði bílar og mótorhjól og
síðast en ekki síst ferðalög og þau
var ekki hægt að koma honum á
óvart með, og öllum var ljóst að
Magnús gerði sem mest hann gat
til að lifa lífinu til fullnustu, og
ekkert var svo alvarlegt að ekki
væri hægt að laga það á einhvern
máta. Og ekki voru nú ráðagerð-
irnar af verra taginu sumarið ’80.
Öruggur er ég þegar ég segi að
Magnús kunni ekki að hræðast og
ráðagóður og öruggur í öllum
ferðum sem við fórum saman, en
aldrei, aldrei átti maður von á að
Maggi, nei ekki Maggi, honum
hafði verið ætlað að gera annað en
að deyja strax af okkur vinum og
aðstandendum. En svona er þetta,
sjóinn ræður víst enginn við. Og
votta ég aðstandendum Magnúsar
mína dýpstu samúð.
Þórður Bogason
Magnús Rafn og Kári Valur
kvaddir.
Lífid manns hratt (ram hleypur
hafandi öngva biö
í dauöans xrimmar Kreipur
gröfin tekur þá viö.
Allrar veraldar vejcur
vikur aö sama punkt
fetar þann fús sem tretcur
hvort fellur létt eöa þungt.
(Hallxrimur Pétunwon).
Þótt svo að við öll gerum okkur
grein fyrir að líf okkar hér á
jörðinni renni hratt að sama
punktinum sem við öllum munum
ná í fyllingu tímans og þrátt fyrir
minnast þessara félaga með sökn-
uði og hlýjum hug.
Hvíl í friði.
Davíð ólafsson.
Hallur Gunnar Erlingsson.
Erlingur J. Erligsson.
í dag fer fram frá Dómkirkj-
unni minningarathöfn um Kára
Val Pálmason, sem fórst við Vest-
mannaeyjar 23. apríl síðastliðinn.
Verður jafnframt minnzt tveggja
annarra manna, er fórust í sjó-
slysi þessu, en það átti sér stað,
þegar stálbáturinn Jökultindur
hvarf í hafið, þar sem hann var að
veiðum skammt undan Vest-
mannaeyjum.
Kári Valur var fæddur þann 21.
desember 1959 hér í Reykjavík og
stóð því á tvítugu, þegar hann lézt.
Hann var sonur hjónanna Þórdís-
ar Jónsdóttur og Pálma
Arngrímssonar garðyrkjumeist-
ara. Móðurforeldrar hans voru
þau hjónin Helga Káradóttir og
Jón Sigurjónsson frá Bláfeldi í
Staðarsveit á Snæfellsnesi. Föð-
urforeldrar voru Arngrímur Fr.
Bjarnason á ísafirði og síðari
kona hans, Ásta Eggertsdóttir.
Kári Valur lauk grunnskóla-
námi við Ármúlaskólann og vann
að við búum í harðbýlu landi þar
sem slysfarir til lands og sjávar
eru allt að því hluti af daglegu lífi
okkar, þá er það nú einu sinni
þannig að þegar maður fregnar að
góðir vinir og sannir félagar hafi
látið lífið a voveiflegan hátt ein-
mitt í þann mund er þeir voru að
hefja lífshlaup sitt fyrir alvöru þá
verður manni sannarlega illa
brugðið. Það er skemmst frá því
að segja að við félagar þeirra sem
umgengumst þá allt að því dag-
lega höfum enn ekki fyllilega
áttað okkur á því að þessi lifsglöðu
ungmenni gangi ekki lengur um á
meðal okkar.
Þegar við lítum til baka á það
tímabil er við þekktum þá félag-
anna verður okkur hugstæðast
hversu þeir voru jákvæðir og
framsæknir einstaklingar. Það má
reyndar segja að einstaklingar
eigi vel við um þá félaga því það er
með engu móti hægt að segja að
þeir hafi fallið inn í fjöldann. Þeir
höfðu báðir mjög ákveðnar skoð-
anir um lífið og tilveruna og það
að hvaða marki þeir stefndu. Það
var einkennadi fyrir þá báða hvað
þeir voru framsæknir og miklir
athafnamenn. Það var þeirra
æðsta boðorð að sitja aldrei auð-
um höndum og þeirra mesta þrá
að reyna ávallt eitthvað nýtt.
Við fráhvarf þessara félaga okk-
ar hefur skapast mikið og vand-
fyllt skarð. Hætt er við því að við
félagarnir eigum eftir að sakna
þessara vina okkar er við í fram-
tíðinni gleðjumst saman á góðri
stund, því að ekki síst á þeim
vettvangi mun þeirra félaganna
verða minnst. Þeir voru einatt
hrókar alls fagnaðar og
óþreytandi í uppátækjum sínum
og hugmyndum sem ávallt nutu
mikillar hylli.
Við félagarnir erum sannfærðir
um að hefði þessum vinum okkar
enst aldur og ævi til, hefðu þeir
náð langt á lífsbrautinni.
Samhliða því sem við vottum
öllum aðstandendum hluttekningu
okkar langar okkur að taka fram
að við munum um alla framtíð
að því búnu nokkra hríð við
bílasölu. Hafði hann sem margir
ungir menn mikinn áhuga á bílum
og vélum og öðrum hlutum, sem
þeim tengdust. Stóð hann sig enda
mjög vel í því starfi. Fyrir þremur
árum settist hann í Iðnskólann og
hóf nám í gullsmíðum. Verklega
námið stundaði hann á gullsmíða-
verkstæði stjúpföður síns, Hall-
dórs Sigurðssonar gullsmiðs. Það
kom snemma í ljós að Kári Valur
átti mjög auðvelt með að ná
góðum tökum á þeirri iðn og
listgrein, sem gullsmíði er. Hann
var bæði listfengur og hagur og
var til þess tekið hve vandaðir og
vel unnir þeir smíðisgripir voru,
sem frá hans hendi komu, þótt
hann hefði ekki enn lokið námi að
fullu, er hann féll frá. Við þetta
starf undi hann glaður, og þar var
hann tvímælalaust líklegur til
góðra afreka, að dómi þeirra
manna, sem gjörst þekktu til.
Sýndi hann þar bæði dugnað og
samviskusemi svo sem hann átti
kyn til. t
Snemma á þessu vori bauðst
Kára Val starf um nokkra hrið
sem aðstoðarmaður Guðmundar
Guðjónssonar kafara við störf í
Vestmannaeyjahöfn, og vann
hann þar ásamt syni hans um
borð í Jökultindi, sem notaður var
við verkið. Er tími gafst til réru
þeir til fiskjar og lögðu net sín út
af Eyjum. Ur einni slíkri ferð, sem
farin var á sólbjörtum vordegi
þann 23. apríl, snéru þeir ekki
aftur. Enginn sjónarvottur varð
að slysinu og ekki er enn ljóst
hvernig það bar að höndum. Á
einni svipstundu var klippt á
þráðinn og ungur maður í blóma
lífsins horfinn sjónum ættingja og
vina fyrir fullt og allt.
Við slíkan atburð er erfitt að
sætta sig, ekki sízt þar sem hér
átti í hlut slíkur efnismaður, sem
lífið virtist brosa við og ávallt
hafði verið fjölskyldu sinni til
ánægju og yndis á sinn hlýja og
hógværa hátt. En hér sannast hið
fornkveðna, að enginn má sköpum
renna og hjóli örlaganna verður
ekki snúið til baka í þessum heimi.
Mikill harmur er því kveðinn að
foreldrum hans og systkinum,
ekki sízt Arngrími eldri bróður
hans, sem átti hann að bezta vini
og Heigu systur hans og ættingj-
um öllum. En það má verða þeim
til hugarléttis og sorgarstillis á
þessari þungbæru stundu að eftir
lifir minningin um góðan dreng,
sem heiðríkja og birta einkenndi í
öllu lífi sínu og dagfari.
G.G.S.
Harmfregnin segir mér að minn
glaði æskuvinur og félagi sé látinn
og ennþá sárara er að hann
hverfur héðan í blóma lífsins,
ásamt bráðefnilegum ungum syni
sínum Magnúsi Rafni og starfsfé-
laga þeirra Kára Val Pálmasyni.
Guðmundur Einar Guðjónsson
var fæddur í Reykjavík 23. mars
1931 einkasonur sæmdarhjónanna
Guðjóns Sveinbjörnssonar, vél-
stjóra, sem lést 18. mars s.l. og
eftirlifandi konu hans Oddnýjar
Guðmundsdóttur. Guðmundur ólst
upp á myndarheimili foreldra
sinna að Ásvallagötu 10, ásamt
tveim systrum Guðnýju og Huldu.
Á Ásvallagötunni endurnýjuð-
ust kynni okkar Guðmundar, þeg-
ar ég flutti í næsta hús og við
vorum enn á barnaskólaaldri. Við
höfðum þó þekkst áður frá því við
vorum báðir litlir pollar á Skóla-
vörðustígnum. Sjómennskan var
Guðmundi í blóð borin, faðir hans
og föðurbróðir, Jóhannes, sem
áttu saman húsið Ásvallagötu 10,
voru báðir sjósóknarar og bjuggu
þar með fjölskyldum sínum. Jó-
hannes var skipstjóri en Guðjón
faðir Guðmundar var á þessum
árum vélstjóri á björgunarskipinu
Sæbjörgu. Það var því eðlilegt að
Guðmundur heillaðist af sjó-
mennsku, sem átti hug hans allan
á unglingsárunum. Þá var oft
gaman að koma með honum um
borð í Sæbjörgu að hitta Guðjón
vélstjóra, föður hans, og fá pönnu-
kökur hjá Lása kokki. Strax í
Miðbæjarskólanum og seinna i
Gagnfræðaskóla Ingimars bar á
ýmsum hæfileikum Guðmundar,
m.a. var hann þá þegar afbragðs
teiknari og íþróttamaður og á
Gagnfræðaskólaárunum varð
hann brátt ein efnilegasta
sundstjarna íþróttafélags Reykja-
vikur (ÍR) í bringusundi og vann
félagi sinu marga sigra. Seinna
vann hann líka sigra í stakkasundi
í sjó á Sjómannadaginn, en hann
tók þátt í þeim við góðan orðstír.
Á þessum skólaárum var Guð-
mundur svo heppinn að komast á
sumrin í áhöfn Péturs Sigurðsson-
ar, sjóðliðsforingja, á sjómæl-
ingabátnum Tý, sem var við mæl-
ingar víða í kring um land og
þegar við hittumst aftur á haustin
eftir þessar ferðir hafði Guð-
mundur frá mörgum ævintýrum
að segja sem gaman var að hlusta
á.
I frámhaldi af störfum sínum
við mælingarnar og þau mörgu
ævintýri, sem þeim fylgdu fyrir
ungan mann, fer hann til náms til
Danmerkur og lærir fyrstur ís-
lendinga gerð sjókorta hjá Sökort
Arkivet Farvands Direktoratet í
Kaupmannahöfn, og er við það
nám.næstu árin.
Við Skrifuðumst alltaf á bæði
þegar hann var á Tý og seinna í
Kaupmannahöfn þessi ár.
Hann hafði þá kynnst Björgu
Björgvinsdóttur, dásamlegri
stúlku sem varð svo eiginkona
hans.
Ógleymanleg verður mér leið-
sögn hans og móttökur er við
hittumst sumarið 1953 í borginni
við sundið Kaupmannahöfn. Ég
hafði orðið fyrir slysi og varð að
liggja á spítala í nokkra daga, en
Guðmundur kom til mín á hverj-
um degi og þegar ég hafði náð
heilsu tók hann sér frí og við
þeystum síðan um Danaveldi í
ævintýralegri mótorhjólaferð.
Þessi ár í Danmörku notaði
Guðmundur líka til þess að læra
fyrstur íslendinga froskköfun hjá
Jan Ure, fremsta kafara Dana þá.
Guðmundur varð þannig fyrstur
til að kynna þessa köfunartækni
hér heima og síðan kenna fjölda
íslendinga á sérstökum námskeið-