Morgunblaðið - 05.06.1980, Side 33

Morgunblaðið - 05.06.1980, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ1980 33 (< lk í fréttum + ÞESSI ungu hjón, sem fengu leyfi stjórnvalda austur í Kína, til að giftast, komust í fréttir heimspressunnar á dögunum. — Þetta er fyrsta kínversk/ ameríska hjónabandið þar eystra, síðan einhverntíma fyrir menningarbyltinguna. — Unga konan, sem er með háskólapróf frá Harward háskóla, Sussan Wilf, fór austur til Peking til að starfa þar við enskukennslu. — í hópi nemendanna var ungi maðurinn, Chen Daying, sem er tónlistarmaður. — Nú svo komst Amor í spilið. — En kerfið hjá þeim austur í Kína gerði það ekki auðleyst fyrir þau að ganga í hjónaband. Um það gilda alveg ákveðnar reglur þegar um er að ræða hjónaband og annar aðil- inn er útlendingur. Um síðir rofaði til í kerfinu. Þau fengu leyfi stjórnvalda til að giftast. — Nú eru þau að velta því fyrir sér hvar þau eigi að setjast að, í Kína eða Ameríku. Nú geta allir hlustað á Watergate + WATERGATE-hneykslið mikla, sem velti Richard Nixon forseta Bandaríkjanna úr stóii, mun ætið minna á nafn hans. — Og nú er það aftur komið í fréttir. . I Washing- ton, í þjóðarbókhlöðunni, hefur hinum frægu segulböndum Nixons, sem tekin voru upp í forsetatíð hans í Hvíta húsinu, verið komið fyrir í sal einum og almenningi gert kleift að hlusta á böndin. — Þessi fréttamynd er tekin yfir salinn. Má þar sjá fólk vera að hlusta á segulbandsupptökurnar. — Á hverjum degi hefur verið hægt að selja 96 manns aðgang að segulböndunum og hafa aðgöngu- miðarnir selst upp á skammri stundu á hverjum degi. — Blaða- menn hafa spurt fólkið um álit þess á þessu efni. Yfirleitt eru svörin á þá leið, að það hafi fengið það staðfest, að þetta stórmál hafi vissulega verið alvarlegt. Þeir börðust á undanhaldinu fyrir 40 árum + UM síðustu helgi var þess minnst í frönsku hafnarborginni Dunkirk, að liðin eru 40 ár frá því að hersveitir Bandamanna voru fluttar yfir Doversundið á undan haldinu í síðustu heim- styrjöld, er Þjóðverjar tóku Frakkland. Fyrrum hermenn sem þar börðust úr hinum ýmsu deildum hersins komu þá saman í hafnarborginni til þess að minnast undanhaldsins. Gengið var fylktu liði og mátti þar sjá gamla hermenn bera stríðs- medalíur sínar undir herdeild- arfánum, líkt og þessir gömlu hermenn, á þessari fréttamynd. Mátti þar sjá medalíur, sem veittar voru hermönnum fyrir frækilega framgöngu á vígvöll- um í Frakklandi, á Ítalíu, í Afríku og frá bardögunum í Þýzkalandi, eftir að herir Bandamanna höfðu náð fótfestu í sjálfu árásarríkinu, Þriðja ríki Hitlers. í göngunni mátti sjá nokkra gamla hermenn ganga við staf og sex var ekið í hjólastólum. — í höfninni sjálfri lágu fjögur smáskip úr skipaflotanum sem notuð voru til að komast yfir Doversundið til Bretlands. Látravík hf. Aöalfundur félagsins verður haldinn í Leifsbúö, Hótel Loftleiöa fimmtudaginn 19. júní 1980, kl. 20.30. Dagskrá: Samkvæmt samþykktum félagsins. Stjórnin. SIEMENS Vestur-þýzk gædavara Siemens-handþeytari. • Sterkur mótor fyrir stöðuga notkun. • Hraðastilling • Gormsnúra • Vandaðir fylgihlutir. SMITH & NORLAND HF. Nóatúni 4, sími 28300. Kassettur beztu kaup landsins 1 spóla 5 spólur 60 mínútur kr. I 900 kr.t 4000 90 mínútur kr. 1100, kr. l 5000Í Heildsölu birgðir Tískusýning aö Hótel Loftleiöum alla föstudaga kl. 12.30—13.00 Það nýjasta é hverjum tíma af hinum glœsilega íslenska ullar- og skinnafatnaði ésamt fögrum skartgripum verður kynnt í Blómaaal é vagum íslenaka heimiliaiönaðar og Rammagerðarinnar. Modelaamtökin aýna. Víkingaskipið vinaæla bíður ykkar hlaöið gómaætum réttum kalda borösina auk úrvals heitra rétta. Guöni Þ. Guðmundsson flytur alþjóðlega tónlist, gestum til énægju.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.