Morgunblaðið - 02.07.1980, Side 1
32 SÍÐUR
145. tbl. 67. árg.
MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Carter til
Japans
Tókýó. 1. júlf. AP.
UTANRÍKISRÁÐHERRA Jap-
ana. Saburo Okita. sagði i dag. að
Jimmy Carter. Bandaríkjafor-
seti, yrði þ. 12. júlí nk. viðstadd-
ur minningarathöfn um Masa-
yoshi Ohira. forsætisráðherra.
sem lést í síðasta mánuði.
Mike Mansfield, sendiherra
Bandaríkjanna í Japan, tilkynnti
Masayoshi Ito, forsætisráðherra,
þessa ákvörðun Carters, sem að-
eins ætlar að staldra við í einn
dag.
Forsætisráðherrar ýmissa Asíu-
ríkja, ásamt lægra settum emb-
ættismönnum frá Vesturlöndum,
munu verða við minningarathöfn-
ina en talið er að fulltrúi Sovét-
ríkjanna verði sendiherra þeirra í
Japan, Dimitri Polyansky. Kín-
verjar hafa enn ekki tilkynnt um,
hver verði fulltrúi þeirra.
Begin á
batavegi
Brezhnev vildi engu
lofa um Afganistan
Jerúsalem. 1. júll. AP.
MENACHEM Begin, forsætisráð-
herra ísracls, var sagður vera við
góða líðan í dag eftir hjartaáfall,
sem hann fékk í gær. Varaforsæt-
isráðherrann, Yigael Yadin, mun
gegna störfum Begins i veikind-
um hans.
Einkalæknir Begins sagði, að
hann yrði á sjúkrahúsi næstu tvær
eða þrjár vikurnar til rannsóknar,
en að þeim tíma liðnum sagðist
hann telja, að Begin gæti tekið að
fullu við starfi sínu og gegnt því
enn um langan aldur.
Yigael Yadin, varaforsætisráð-
herra og leiðtogi hófsamari arms
samsteypustjórnarinnar, hugði á
fund með ráðherrum stjórnarinnar
við sjúkrabeð Begins í dag og ef
hann heldur uppteknum hætti frá
fyrri veikindum Begins, mun hann
ráðfæra sig oft við hann en taka
fáar sjálfstæðar ákvarðanir.
Talið er að Yadin, sem mun stýra
fundum ísraelsku stjórnarinnar
næsta mánuð, muni geta slegið á
frest ýmsum ákvörðunum, sem Beg-
in hefði tekið, en hins vegar mun
hann lítil áhrif geta haft á sjálfa
stjórnarstefnuna.
Teheran, 1. júlí. AP.
NÝSKIPAÐUR yfirmaður bylt-
ingarvarðarins í íran, Kazem
Bojnourdi, þingmaður og hóf-
samur félagi i íslamska lýðveldis-
flokknum. sagði af sér í dag,
aðeins tveimur dögum eftir að
Bani-Sadr forseti hafði skipað
hann i embættið.
I afsagnarbréfi sínu sagði Bojn-
ourdi, að hann hefði sagt af sér
vegna þess, að þeim skilyrðum, sem
hann hefði sett í upphafi, hefði
ekki verið fullnægt. Hann gat
ekkert frekar um það hver þau
hefðu verið.
Bani-Sadr forseti varaði við því í
gær í ræðu, sem hann hélt í
Teheran, að írönsku byltingunni
væri „ógnað að innan" eins og hann
komst að orði. Hann sagði, að á
Moskvu, 1. júlí. AP.
OPINBERRI heimsókn Helmuts
Schmidt. kanslara V-Þýskalands,
til Sovétríkjanna lauk í gær.
Fyrr um daginn hafði Schmidt
átt annan fund með Leonid Brez-
hnev, forseta Sovétríkjanna, og
æðstu yfirmönnum hermála í
Sovétríkjunum.
V-þýskir embættismenn til-
kynntu, að gengið yrði frá 25 ára
samstarfssamningi V-Þýskalands
og Sovétríkjanna um efnahags-
mál, en tóku fram, að Helmut
Schmidt kanslari eða Genscher
utanríkisráðherra myndu ekki
undirrita hann heldur sendiherra
Þjóðverja í Moskvu. Talið er, að
með þessu vilji V-Þjóðverjar mót-
dögum keisarastjórnarinnar hefðu
eignir og atvinnutæki fólks verið
einskisvirt þegar stjórnvöldum
hefði boðið svo við að horfa, og nú
væri það sama uppi á teningnum
undir því yfirskini, að verið væri að
berjast gegn „gagnbyltingaröfl-
um“.
Bani-Sadr sagði ennfremur, að
tilgangur byltingarinnar hefði ekki
verið sá að leiða hungur og harð-
rétti yfir fólkið heldur að sjá
fólkinu fyrir fæði og klæði og þaki
yfir höfuðið.
Ayatollah Khomeini erkiklerkur
hefur oft látið eftir sér hafa, að
íranska byltingin væri eingöngu
fyrir guðs sakir, ekki fyrir efna-
hagslífið. „Vor íslamska þjóð hristi
ekki af sér okið fyrir melónur,"
sagði hann fyrir nokkrum mánuð-
um.
mæla innrás Rússa í Afganistan.
Sovétmenn ákváðu að leyfa ekki
v-þýskum fréttamönnum að vera
viðstaddir undirritun samstarfs-
samningsins um efnahagsmál og
einnig voru þeir útilokaðir frá
fréttamannafundi við upphaf
lokafundur þeirra Schmidts,
Genschers og Brezhnevs. Litið er á
þessa ráðstöfun sem andsvar
Rússa við þeirri ákvörðun
Schmidts að rita ekki sjálfur
undir samninginn.
í gær átti Helmut Schmidt
tveggja stunda fund með rússn-
eska varnarmálaráðherranum,
Dmitri F. Ustinov, og varavarn-
armálaráðherranum, Nikolai
Ogarkov. Schmidt sagðist hafa
gert þeim grein fyrir áhyggjum
V-Þjóðverja af rússnesku SS-20
eldflaugunum, sem komið hefur
verið fyrir í Mið-Evrópu og er
beint gegn stórborgum á Vestur-
löndum. Einnig var fjallað um
Backf ire-sprengj uf lugvélina.
Helmut Schmidt sagði á frétta-
mannafundi í gær, að hann hefði
fengið litlar undirtektir hjá Brez-
hnev við þeirri kröfu sinni, að
Rússar héldu áfram brottflutningi
herja sinna frá Afganistan. Hann
sagði, að sú ákvörðun Rússa að
flytja á brott eina herdeild og 108
skriðdreka, væri spor í rétta átt ef
á því yrði framhald, sem lyki með
algjörum brottflutningi alls
rússnesks herliðs.
í ræðu, sem Helmut Schmidt
flutti í kvöldverðarboði, sem hald-
Snow látinn
London. 1. júlft. AP.
RITHÖFUNDURINN, leikrita-
skáldið og visindamaðurinn
Snow lávarður, betur þekktur
sem C.P. Snow, lést í London í
| dag. Hann var 74 ára að aldri.
ið var honum til heiðurs á mánu-
dag, gerðist hann nokkuð harðorð-
ur og krafðist tafarlauss brott-
flutnings rússnesks herliðs frá
Afganistan og að Rússar kæmu
með því í veg fyrir „hættuástand".
í svarræðu sinni vék Brezhnev
engu orði að Afganistan.
Helmut Schmidt kanslari lýsti
árangri viðræðnanna við rússn-
Jimmy Carter Bandarikjaforseti
hefði fyrirskipað tafarlausa
hergagnaflutninga til Thailands.
Kemur sú ákvörðun í kjölfar
árása Vietnama á landamærahér-
uð í Kambódíu.
Vopnin, sem flutt verða til
Thailands. eru einkum létt vopn
og stórskotavopn og er vopna-
sendingin metin á 3,5 milljónir
dollara. Ákvörðunin um hana var
tekin vegna eindreginna óska
Thailendinga.
Hernaðaryfirvöld í Thailandi
sögðu í dag, að hermenn Víetnama
og stjórnarinnar í Phnom Penh
hefðu að mestu lokað landamærum
Thailands og Kambódíu, til að
koma í veg fyrir, að flóttamenn frá
Kamhódíu kæmust aftur inn í
landið. Talsmaður thailenska hers-
ins sagði, að bardagar héldu enn
áfram við landamærin.
Vestrænir hernaðarsérfræðingar
draga í efa, að Víetnamar geti
lokað landamærunum, sem eru um
800 km löng, einkum þar sem
hermenn Pol Pots hafa komið sér
eska ráðamenn með orðinu „við-
unandi", og lagði áherslu á, að
hann hefði ekki farið til Moskvu
fyrr en eftir ítarlegar viðræður
við ráðamenn í Bandaríkjunum og
öðrum vestrænum ríkjum um þau
mál, sem tekin yrðu fyrir.
Tass-fréttastofan sagði, að
Brezhnev teldi viðræðurnar
„nauðsynlegar og gagnlegar".
vel fyrir, en eru þó sammála um, að
þeir hafi girt af um 60 km norður
af Aranyaprathet, þar sem 200.000
Kambódíumenn eru í flóttamanna-
búðum.
Thailendingar hafa ákveðið að
leyfa aftur alþjóðlegum hjálpar-
stofnunum að flytja mat og lyf um
Thailand til Kambódíu en flutn-
ingarnir höfðu verið bannaðir
vegna árásar Víetnama á l.anda-
mærahéruð í Thailandi. Þeir
áskildu sér þó allan rétt til að
stöðva flutningana að nýju ef
„öryggi Thailands væri ógnað".
Lögreglan í Bangkok hafði mik-
inn viðbúnað, eftir að þrjár
sprengjur höfðu sprungið í höfuð-
borginni og slasað fjölda manns.
Útlagastjórn Pol Pots, fyrrv.
forsætisráðherra í Kambódíu, hélt
því fram í dag, að hermenn hennar
hefðu fellt rúmlega 12.000 Víet-
nama og hermenn stjórnarinnar í
Phnom Penh í bardögum í maí sl.
Haft er eftir heimildum í
Moskvu, að háttsettir embættis-
menn víetnömsku stjórnarinnar og
stjórnarinnar í Phnom Penh, séu
komnir til borgarinnar og hafi
haldið með sér einn fund.
Yfirmaður í íran
biðst lausnar
Carter sendir
Thailandi vopn
Washinnton. 1. júlí. AP.
TILKYNNT var í kvöld. að