Morgunblaðið - 02.07.1980, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 02.07.1980, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ1980 17 forsetaefni íslendinga fjárupphæðum er veitt í vopnabún- að, hvað fjárausturinn er gífurlegur og spennan í hlutfalli við það. Ég er bjartsýnismaður og ég veit að bjartsýni eykur orku en svartsýni slævir þrek. Ég óska þess að við íslendingar verðum ávallt bjartsýnt fólk, svo við höldum dirfskunni og þrekinu." Vigdís var spurð að því hver skoðun hennar væri á því, að kjör hennar sýndi vinstri sveiflu, en slíkt hefði komið fram í skrifum og umræðum. „Svo fjarri kommúnisma sem frekast getur veriðu „Hvað er vinstri sveifla," spurði Vigdís á móti, „ég er feikilega íhaldssöm á íslenzka menningu og þannig í fyllsta máta það sem kallað er konservativ á erlendu máli. Það hefur verið talað um mig hlýtur að vera forseta mikill styrk- ur. Það er til dæmis vegna þessa sem ég hef fengið svo mikið af blómum og skeytum víða af land- inu, og í morgun komu til mín sjómenn af togaranum Ingólfi Arn- arsyni og færðu mér þennan yndis- lega nýveidda fisk, en þeim fannst það skemmtilegra þar sem ég hefði örugglega fengið svo mikið af blóm- um með öðrum heillaóskum." „Trúi á þroska íslenzkrar þjóðaru___________ Vigdís var spurð að því hvort það væri ekki erfitt fyrir hana að vera sameiningartákn þjóðarinnar, þar sem hún hefði sigrað með einum þriðja hluta atkvæða landsmanna. „Ég trúi,“ svaraði hún, „að ís- Vigdís Finnbogadóttir á heimili sinu í gær. ir dirfsku sem vinstri manneskju af því að ég geng ekki eftir einhverjum ákveðn- um vegi afmörkuðum, en ég er svo fjarri því að vera kommúnisti sem frekast getur verið. Ég hef stundum verið að segja eftir allt þetta kommatal um mig, að ég væri orðin svo útlímd með kommafrímerkjum í bak og fyrir, að það væri hægt að senda mig til Moskvu án þess að pakka mér inn. Þar myndi mér verða tekið opnum örmum og það yrði sagt da da, já, já, en um leið og ég færi að rexa um frelsið yrði sagt njet, njet og þeir myndu sennilega senda mig á geð- veikrahæli. Ég hef verið talin vinstri sinnuð, en hef aldrei sagt það sjálf. Hitt er svo, að enginn getur lýst sjálfum sér og maður er að nokkru bergmál af því sem sagt er að maður sé. Sumt í slíkum umsögnum hefur maður skynjað og skilið, annað ekki. Mér er til dæmis sagt, að ég tali kjarnyrt íslenzkt mál, ég veit það ekki, en mér er sagt það og þykir vænt um það.“ Mikill styrkur að persónulegum tengslum Vigdís kvaðst telja að þessi kosn- ingaaðferð, með ferðalögum um allt landið, leiddi það af sér að fleiri þekktu forseta sinn persónulega. „Þessi kosningaferðalög hafa skap- að svo persónulegt samband og vináttutengsl víða um land og það lenzk þjóð sé svo þroskuð, að hún sameinist um forseta sinn. Það var mjótt á mununum milli Ásgeirs Ásgeirssonar og séra Bjarna Jóns- sonar í forsetakosningunum árið 1952, en það kom aldrei annað til greina en að sameinast að loknum kosningum. í skeytum til mín hafa menn tekið það fram, að þeir hafi verið stuðningsmenn annarra frambjóð- enda, en sætti sig við úrslitin. Þetta sýnir þroska og er til mikils sóma fyrir þá sem tala og skrifa, enda búum við yfir þeim auði fámennrar menningarþjóðar að vera vel upp- lýstir einstaklingar. Við verðum sífellt að gæta okkár á vanahugsun- inni, gæta þess að sitja ekki uppi með fordóma. Þannig leggjum við kapp á að rækta það að halda virðingu okkar og það skiptir miklu máli á svo margan hátt. Ég rakst til •dæmis einu sinni á það í gömlum gögnum frönskum frá fyrri tíð, að frönskum sjómönnum sem fiskuðu á íslandsmiðum, voru settar reglur á þá leið, að aldrei mætti taka neitt ófrjálsri hendi frá íslendingum, hvorki sauði, grös né annað sem þjóðin lifði af, því þótt íslendingar gengju út úr þeim hólum, sem útlendingum virtust gömlu torf- bæirnir vera, þá væru þeir allir læsir og gætu lesið nafnið á skipinu og klagað fyrir sýslumanni." -á.j. Grein: Árni Johnsen Mynd: Ólafur K. Magnússon Simamynd frá Jan Erik Lauré. fréttaritara Mbl. i Ósló. Kosning Vigdísar Finnbogadóttur í embætti forseta íslands hefur verið forsiðufrétt i mörgum dagblöðum á Norðurlöndun- um, m.a. í Noregi. Mynd þessi sýnir hvernig nokkur norsk blöð sögðu frá kosningunni í gær. fleiri konur sem vilja í verki sýna fram á jafnrétti milli kynjanna í stjórnmálum." Mörg dagblöð hafa spurt vegfarendur í Finnlandi um álit þeirra á kosningunni. Flestir eru mjög jákvæðrar skoðunar og margir segjast geta hugsað sér konu í for- setstóli í Finnlandi. Stjórnar- skráin hindrar þó að svo verði, því í henni er þess getið, að forseti lýðveldisins Finn- lands skuli vera karlmaður vegna þess, fyrst og fremst, að forsetinn er yfirmaður hers- ins. „Mun hafa áhrif á störf kvenna innan stjórnmála“ Á forsíðu Óslóar-blaðsins „Vort Land“ var í gær grein undir fyrirsögninni „Sögueyj- an Island brýtur blað í sögu heimsins". Fleiri morgunblöð segja einnig frá kosningunum á forsíðu. Kosning Vigdísar vek- ur umræður um kven- forseta í Finnlandi Kosning Vigdísar Finnbogadóttur í emb- ætti forseta íslands hef- ur vakið mikla athygli á Norðurlöndunum og fjölmiðlar þar hafa skrifað mikið um málið. Islenskum kjósendum er óskað til hamingju með af- stöðu sína til jafnréttismála, er rauði þráðurinn í skrifum finnskra dagblaða um forseta- kosningarnar á íslandi. Skrif- in eru yfirleitt mjög jákvæð. Samhliða því hafa sprottið upp umræður um hugsan- legan kvenforseta í Finnlandi. íhaldsblaðið Uusi Suomi tekur enga afstöðu til úrslita kosninganna. Á hinn bóginn talar blaðið við þrjár þekktar finnskar konur, sem allar eru mjög ánægðar með kosning- una og segja að það komi vel til greina að kjósa konu í embætti forseta í Finnlandi. Vinstri blöðin láta í ljós ánægju með kosninguna. Blaðið Suomen Sosialdemo- kratti skrifar ekki mikið, en tekur undir hamingjuóskirn- ar. Kansan Uutiset tekur ofan fyrir því, að íslendingar skuli vera lausir við fordóma og það, að fyrir valinu skuli hafa orðið kona, sem er vinstri sinnuð og sé mótfallin setu bandaríska herliðsins á ís- landi. Auk þess sé hún fráskil- in. „Allt þetta hefur verið óyfirstíganlegur þröskuldur í öðrum löndum," segir blaðið. Blaðið Aamulethi í Tamm- erfors er hliðhollt Samein- ingarflokknum. Blaðið leggur áherslu á að alþýðleiki Vigdís- ar Finnbogadóttur og reynsla hennar, sérstaklega á sviði menningarmála, muni koma henni að gagni í starfi hennar sem forseti. „Það er heldur ekki hægt að ganga framhjá kynferðinu," segir blaðið. „Kvenforsetar eru ekki marg- ir í heiminum og því mun íslenski forsetinn vekja at- hygli.“ „íslendingar hafa valið vel“ Hufvudsstadsbladet segir, að sú athygli sem kosningarn- ar hafa vakið um allan heim, muni gefa forsetanum mögu- leika til að starfa betur fyrir þjóðina. „íslendingar hafa ekki að- eins brotið blað í sögu heims- ins, þeir hafa valið vel,“ segir blaðið. Helsingin Sanomat, stærsta blað Finnlands og óháð stjórnmálaflokkum, skrifar: „Fyrir það fyrsta má óska Islendingum til hamingju með að allir fjórir forsetafram- bjóðendurnir eru hæfir menn. Það er sjaldgæft í heiminum í dag. Þá má óska þeim til hamingju með að hafa valið konu. Það sýnir að þeir eru lausir við fordóma.“ Þá bendir blaðið á að t.d. Indira Gandhi og Margaret Thatcher hafi mun meiri völd en forseti á íslandi. „En með því að velja Vigdísi hafá Islendingar vísað veginn fyrir Sendiherra Noregs á íslandi sagði í norskum fjölmiðlum í gær, að kosning Vigdísar hefði brotið blað í sögu kvenna. I Arbeiderbladet ræða fjór- ar konur um kosningarnar, Berit Knæven, varaformaður í Vinstriflokknum, segir, að úr- slitin komi til með að hafa mikil áhrif á störf kvenna innan stjórnmála. Stærsta blað Noregs, Aften- posten, hefur ekki haft blaða- menn í Reykjavík meðan á kosningunum stóð, en sendir nú mann til þess að taka viðtal við Vigdísi. Það á að birtast í þætti sem ber nafnið „Nafn vikunnar" í morgunút- gáfunni á laugardaginn. r A forsíðu allra blaða í Svíþjóð I Svíþjóð voru kosningarnar á forsíðu síðdegisblaða á mánudag og morgunblaða á þriðjudag, og var leiðari um þær í báðum Stokkhólmsblöð- unum. Er íslendingum þar óskað til hamingju með kosn- inguna og þess getið, að Vig- dís sé örugglega jafn fær um að gegna störfum forseta og karlmaður. I Expressen í gær voru myndir af Vigdísi í miðopn- unni og í grein í sænska Dagblaðinu er talað um, að kosning Vigdísar sé sigur fyrir jafnréttisbaráttuna. Þá voru viðtöl við Vigdísi í sænska sjónvarpinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.