Morgunblaðið - 02.07.1980, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.07.1980, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1980 Rússar sakaðir um að rjúfa lofthelgi Manila, 1. júlí. AP. JOSE D. Ingles, settur utanríkis- ráðherra Filippseyja, kvaddi sendiherra Sovétríkjanna á sinn fund í dag til að mótmæla ítrek- uðum brotum sovézkra fluKvéla á lofthelgi Filippseyja. „Þetta endurtekna flug sovezkra flugvéla, án fyrirfram leyfis verö- ur að hætta,“ sagði Ingles sendi- herranum, Valerian Mikhailov. „Það stofnar ekki aðeins milli- landaflugi í hættu, heldur lýsir það virðingarleysi fyrir megin- reglum í samskiptum ríkja." Tilkynnt var að sovézkar Ilyus- hin- og Tupolev-flugvélar hefðu flogið inní lofthelgi Filippseyja 10. 11. og 15. apríl og aftur 19. maí og 6. júní. I að minnsta kosti eitt skipti, 15. apríl fylgdust þrjár herflugvélar Filippseyinga með sovézku flugvélunum þangað til þær fóru úr lofthelginni. Sovézka sendiráðið í Manila neitar því að sovézkar flugvélar hafi flogið í lofthelgi Filippseyja. Flugræningi hélt gíslum í 12 tíma Huenos Aires. 1. júlí. AP. VOPNAÐUR stuðningsmaður Ju- an heitins Perons forseta rændi þotu argentínska flugfélagsins og hafði gisla í haldi um horð í rúma 12 tíma. áður en hann gafst upp i nótt. Maðurinn sleppti flugstjóranum Veður víða um heim Akureyri 17 hólfakýjað Amsterdam 16 rigning Aþena 33 heiðskírt Berlín 18 m ** l BrUssel 19 rigning Chicago 25 rigning Feneyjar 22 skýjað Frankturt 19 rigning Færeyjar 10 léttskýjað Ganf 17 skýjað Helsinki 20 heiöskírt Jerúsalem 34 heiöskírt Jóhannesarborg 14 heiðskírt Kaupmannahöfn 17 skýjað Las Palmas 23 léttskýjað Lissabon 27 heiðskírt London 15 rigning Los Angeles 30 skýjað Madríd 31 heiðskírt Malaga vantar Mallorca vantar Miami 32 rigning Moskva 20 skýjað New York 27 heiðskírt Ósló 18 heiðskírt París 21 skýjað Reykjavík 11 rigning Rio de Janeiro 30 heiðskírt Rómaborg 26 heiðskírt Stokkhólmur 19 heiðskírt Tel Aviv 30 heíöskírt Tókýó 23 skýjað Vancouver 20 skýjað Vínarborg 17 skýjað IIcrtoK- inn stundi á bana- stundinni Lundun. 1. júlí. AP. HERTOGINN af Windsor. sem lagði niður völd til að kvænast frú Wallis Simpson fyrir rúm- um 40 árum, stundi rétt fyrir andlát sitt „yfir þessari sóun,“ að því er fyrrverandi hjúkr- unarkona hans. Oonagh Shan- ley segir í viðtali í dag við kvennablað. Hjúkrunarkonan Iýsir síðustu klukkustundunum, sem hertoginn lifði 28. maí 1972 í París, og segir að hann hafi verið með hálfgerðu óráði og tárazt. „Hann sagði eitthvað um „England" og síðan um „þessa sóun, þessa sóun“,“ sagði hún. „I öllum samræðunum sem hann átti við mig næstu daga á undan hafði hann sagt nokkrum sinnum hve mikið hann hefði langað til að fá eitthvað gagnlegt starf fyrir land sitt.“ Hertoginn róaðist undir lokin og síðustu orðin sem hann sagði við hertogafrúna voru: „Ég sofna bráðum. Gerðu það fyrir mig að hvíla þig.“ og 19 ára gamalli flugfreyju, síðustu gíslum sínum, rúmum tveimur tímum eftir að árásar- sveit flughersins fleygði tára- gassprengju í þotuna, sem var af gerðinni Boeing 737, og gerði sjö öðrum gíslum kleift að flýja. Flugvélarræninginn tók flugvél- ina á leið frá strandbænum Mar del Plata og krafðist þess að fá 100.000 dollara „úr vösum Martin- ez de Hoz“ efnahagsmálaráðherra. Hann sleppti 45 farþegum við komuna til Buenos Aires, en hélt fimm öðrum farþegum og fjögurra manna áhöfn flugvélarinnar. Mað- urinn veitti flugfélaginu frest fram að hádegi til að ganga að peningakröfunni, setja eldsneyti á flugvélina og fljúga með hann til Mexíkó. Flugherinn neitaði að semja og fresturinn rann út. Lögregla flug- hersins umkringdi þotuna á flug- brautinni nálægt Plata-fljóti og hleypti úr hljólbörðum hennar. Yfirvöld héldu áfram að tala við flugyélarræningjann meðan björgunartilraun var undirbúin. Farþegar sögðu, að flugvélar- ræninginn hefði tekið flugfreyj- una til fanga aftarlega í flugvél- inni 15 mínútum eftir að þotan fór frá Mar del Plata, skotið einu skoti til að vekja á sér athygli og skipað flugstjóranum í hátalara að sjá til þess, að 100.000 dollarar í reiðufé biðu hans á flugvellinum í Buenos Aires. Þetta geröist 1976 — Norður- og Suður-Víetnam opinberlega sameinuð. 1974 — Nixon og Brezhnev kunn- gera samkomulag í Moskvu um takmörkun tilrauna með kjarn- orkuvopn neðanjarðar. 1972 — Pakistan og Indland undir- rita griðasáttmála. 1967 — Moise Tshombe handtek- inn í Alsír eftir rán á flugvél hans á leið til Mallorca. 1954 — Frakkar hörfa frá suður- hluta óshólma Rauðár, Indókína. 1940 — Vichy-stjórnin sett á laggirnar í Frakklandi. 1937 — Síðast heyrist til Amelia Earhart á flugi yfir Kyrrahafi. 1890 — Briissel-lögin um útrým- ingu þrælasölu í Afríku og bann við sölu áfengis til frumstæðra þjóða samþykkt á alþjóðaráðstefnu. 1881 — James Garfield forseta sýnt banatilræði í Washington (d. 19 sept.). 1862 — Sjö daga orrustunni lýkur í Virginíu. 1860 — Rússar stofnsetja borgina Vladivostok. 1747 — Frakkar sigra Breta við Maestricht eftir innrás í Holland — Bretar og Rússar mynda banda- lag, en Bretar neita að styðja Rússa gegn Svíum. 1734 — Stanislaus Póllandskon- ungur gerður landrækur og flýr til Prússlands. 1657 — Danir ráðast til atlögu gegn Karli X af Svíþjóð sem herjar á Rússa, Pólverja og Austurríkis- menn. 1644 — Orrustan um Murston Moor; Oliver Cromwell sigrar Rup- ert prins. Hriðursvörður sovézkra hermanna ber ólympíufánann inn í Ólympíuþorpið í Moskvu. Ein milljón fagnaði páfa í bæ í Brazilíu Belo Horizonte. fírasilíu. 1. júlí. AI*. JÓHANNES Páll páfi II kom flugleiðis í dag til námuborgarinnar Belo Horizonte í Mið- Brasilíu og þar fagnaði honum einhver mesti mannfjoldi, sem nokkru sinni hefur safnazt saman í landinu. rúmlega ein milljón manna. í útimessu, sem páfi hélt, varaði hann við „kynórum sem græfu undan ást og leiddu til upplausnar fjölskyldunnar“. Hann hvatti brasilískar konur að berjast fyrir „sönnum kvenréttindum“, sem hann kvað „hluta af fjölskyldunni og samfélaginu“. Tólf daga pílagrímsferð páfa til Brasilíu — lengsta ferðalag hans til þessa — hófst í höfuðborginni, Brasilíu, í gær, þegar hundruð þúsunda pílagríma fögnuðu hon- um við útimessu. Tugir manna, þar á meðal herlögreglumenn, sáust falla í yfirlið eftir margra klukkustunda bið eftir páfanum. Með komu sinni hefur páfi dregizt inn í deilur milli kirkjunn- ar, sem lætur þjóðfélagsmál mikið til sín taka, og herforingjastjórn- ar landsins. Páfinn gaf sterídega til kynna, að hann styddi starf kirkjunnar, en biskupar hennar hafa tekið afstöðu gegn ríkis- stjórninni í vinnudeilum og stefnu stjórnarinnar skiptingamálum. „Ég bið til Brasilíumenn mannréttindi og ávallt vera höfð 1 guðs, að muni að þau heiðri," jarða- allir virða megi sagði páfi og beindi máli sínu til Joao Figueiredo forseta, fimmta fyrr- verandi hershöfðingjans, sem hef- ur verið við völd í Brasilíu, síðan herinn gerði stjórnarbyltingu 1964. En hann varaði kirkjunnar menn í Brasilíu við því að ganga svo langt með virkri afstöðu sinni, að köllun þeirra yrði eingöngu þjóðfélagsleg og pólitísk, en ekki kristin. Það hefur verið von stjórnar- innar, að Jóhannes Páll II færi íhaldssamanboðskap um þátttöku presta í stjórnmálum. En páfi tjáði klerkum í þjóðardómkirkju Brasilíu, að hann væri kominn til Brasilíu „til að styðja og reyna að uppörva kirkjuna". 2. júlí 1568 — Eiríkur XIX af Svíþjóð lýstur geðveikur og ófær um að stjórna og aðalsmenn fylkja sér um Jóhann hertoga. 1502 — Stríð hefst milli Frakka og Spánverja út af skiptingu Napoli. Afmæli. Cristoph Willibald von Gluck, þýzkt tónskáld (1714—1787) — Gottlieb Friedrich Klopstock, þýzkt skáld (1724-1803) - Sir Willian Bragg, brezkur vísinda- maður (1862-1942) - Ólafur V Noregskonungur (1903—). Andlát. 1778 Jean-Jacques Rouss- eau, heimspekingur — 1850 Sir Robert Peel, stjórnmálaleiðtogi — 1914 Joseph Chamberlain, stjórn- málaleiðtogi — 1961 Ernest Hem- ingway, rithöfundur. Innlent. 1178 Ordinacio Thorlaci: Vígsla Þorláks til biskups — 1294, 1305 Réttarbót — 1564 Stóridómur — 1638 d. Gísli bp. Oddsson — 1828 Morðingjar Natans Ketilssonar dæmdir til dauða — 1844 f. Símon Dalaskáld — 1874 Þjóðhátíð norð- an og austan — 1876 „Verona" fer frá Akureyri með 800 vesturfara — 1937 Snekkja Hitlers í kurteisis- heimsókn í Reykjavík — 1956 Níu alda biskupsdóms minnzt í Skál- holti — 1972 Einvígi Fischers og Spasskys hefst í Reykjavík — 1974 Vinstri stjórnin biðst lausnar — 1880 f. Sigurður Kristinsson ráð- herra — 1911 f. Steingrímur J. Þorsteinsson prófessor. Orð dagsins. Það er auðveldara að yrkja miðlungsgott kvæði en að skilja gott kvæði — Michel Ey- quem de Montaigne, franskur rit- höfundur (1533-1592). John F. Krnnedy Kennedy njósnara New York. I. júli. AP. ÞVÍ ER haldió fram í nýrri bók, „Jack: The Struggles of John F. Kennedy“ eftir Herbert S. Parm- et, að John F. Kennedy fyrrver- andi forseti hafi átt vingott við konu, sem var grunuó um að vera njósnari nazista. þegar hann starfaði í leyniþjónustu sjóhersins í siðari heimsstyrjöidinni. Parmet segir, að þessi kona hafi verið fyrrverandi fegurðardrottn- ing Danmerkur, Inga Arvad að nafni, og FBI hafi hlerað fundi þeirra í hótelherbergjum. Ungfrú Arvad starfaði í Washington, þar sem hún var dálkahöfundur. Hún var gift og fjórum árum eldri en Kennedy, sem var 24 ára og einhleypur þá. Ritstjóri konunnar mun að lok- um hafa sagt FBI frá grunsemdum sínum um að hún kynni að vera njósnari, og Franklin D. Roosevelt forseti skipaði FBI að hlera fundi hennar og Kennedys til að kanna hvort hún fengi nokkrar upplýs- ingar frá honum. Parmet segir að hún hafi sótt Olympíuleikana í Berlín 1936 ásamt Adolf Hitler. Þegar faðir Kennedys frétti um ástarsambandið fékk hann son sinn fluttan til Suður-Kyrrahafs, elskhugi nazista? þar sem hann varð stríðshetja á PT-109. Ungfrú Arvad var aldrei ákærð fyrir njósnir og missti áhuga á Kennedy eftir stríðið, segir höf- undur bókarinnar. Yfirmaður FBI, J. Edgar Hoov- er, geymdi upptökurnar af samtöl- um Kennedys og ungfrú Arvad að sögn Parmets. Hann segir, að Hoover hafi þannig getað hótað Kennedy frá 1942 þar til hann var ráðinn af dögum í Dallas 21 ári síðar. Rúmeni strýkur London. 1. júlí. AP. AURELIAN Christache, lækn- ir rúmenska landsliðsins í tennis um sex ára skeið, og vinur tennisstjörnunnar Ilie Nastase, hefur strokið og fengið leyfi til að dveljast í Bretlandi þangað til hann fær kanadíska vegabréfsáritun. Kona hans og tvö börn eru ennþá í Rúmeníu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.