Morgunblaðið - 02.07.1980, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 02.07.1980, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ1980 19 Markús örn Antonsson ritstjóri Frjálsrar verzlunar, Ólöf Árnadóttir. teiknari. ólafur Stephensen, Böðvar Kvaran or Jóhann Briem, forstjóri Frjáls framtaks. Viðurkennmg fyrir gerð auglýsingar ÚTGÁFUFYRIRTÆKIÐ Frjálst framtak hf. hefur ákveóið að heiðra áriega þann aðila. sem að mati fyrirtækisins hefur gert at- hyglisverðustu auKlýsinKu ársins sem ætluð er til birtinKar i tíma- ritum. Er hér um að ræða viður- kenninKU fyrir vel útfærða huK- mynd, ok fékk Frjálst framtak hf. menn úr útKáfustjórn fyrirtækis- ins til þess að velja auKÍýsinKU þá er viðurkenninKuna hlýtur. Viðurkenningu ársins 1979, og þar með fyrstu viðurkenninguna sem veitt er af þessu tagi, hlýtur lallmarsdóttir ShelKörur daglega án þess ad hafahugmynd um það! o%* Olkifengtð SkXjongur h f Oliufélagið Skeljungur hf. fyrir auglýsingu er ber yfirskriftina „Hún Ásdís Hallmarsdóttir notar Shellvörur daglega án þess að hafa hugmynd um það.“ Að mati þeirra er augiýsinguna völdu er hún athyglisverð fyrir margra hluta sakir. Hún er byggð á góðri hugmynd, er skemmtileg, um leið og hún er upplýsandi, útfærsla auglýsingarinnar er fínleg og vel unnin, og hún vekur forvitni og áhuga með hinni góðu hönnun og fyrirsögn. Auglýsing þessi var gerð af fyrirtækinu Olafur Stephensen, Auglýsingar og almenningstengsl, Reykjavík. Ólöf Árnadóttir, teikn- ari FÍT, annaðist útfærslu auglýs- ingarinnar en ljósmynd er eftir Guðmund Ingólfsson. Viðurkenning sú er Frjálst fram- tak hf. veitir er veggplatti með auglýsingunni grafinni í zink og hljóta bæði Ólöf Árnadóttir og Olíufélagið Skeljungur slíka viður- kenningu. Á undanförnum árum hefur orð- ið mjög hröð og mikil framþróun í gerð auglýsinga í timaritum, og vill Frjálst framtak hf. m.a. vekja athygli á henni með viðurkenningu þessari, sem afhent var í hófi í gær. Markús Órn Antonsson afhenti viðurkenninguna, en einnig tóku þeir Ólafur Stephensen og Böðvar Kvaran, framkvæmdastjóri mark- aðsdeildar Skeljungs, til máls. Gengissig og geymdur vandi helstu orsakir hækkunar bensínverðs MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatiikynning frá rfkisstjórninni þar sem fjallað er um ástæður siðustu hækkunar á bensínverði: Ástæður til hækkunar á verði á bensíni og gasoliu, sem varð í síðustu viku, eru þrjár. Mestur hluti hækkunarinnar stafar af gengissigi, sem orðið hefur frá fyrri verð- ákvörðunum, en einnig er verið að mæta geymdum vanda frá síðasta ári og færa tekjuöflun til vegagerð- ar til samræmis við áætlun fjárlaga. Bensíngjald, sem hækkaði um kr. 8,50, rennur einvörðungu til vega- gerðar. Sú hækkun gjaldsins sem nú kom til framkvæmda, var heimil þegar í apríl, eftir að ný bygg- ingarvísitala lá fyrir. Geymdi vandinn er þannig til kominn, að í fyrra sumar, þegar hækkanir á olíuverði voru örastar, var tekið þriggja miiljarða króna erlent lán til að unnt væri að dreifa hækkunum á gasolíuverði yfir lengra tímabil en ella. Nú er endur- greiðsla þessa láns hafin, og ganga til hennar 5,46 krónur af verði hvers gasolíulítra. Frá verðákvörðun bensíns í mars í ár fram til nýju verðákvörðunarinn- ar hefur gengi bandaríkjadollars hækkað um rúmlega 13%. Frá því í desember í fyrra, þegar gasolíuverð sem gilti fram í síðustu viku var ákveðið, nemur hækkun á gengi dollarans 18%. Þessar gengisbreyt- ingar eru meginástæðan til að um þessi mánaðamót er innkaupajöfn- unarreikningur bensíns óhagstæður um 666 milljónir króna og inn- kaupajöfnunarreikningur gasolíu óhagstæöur um 1,023 milljónir. Vegna þeirra ástæðna, sem hér hafa verið raktar, hækkaði bensín- lítri í verði úr 430 krónum í 481 krónu og lítri af gasolíu úr kr. 155,20 í 196,40. Veitinga- og gistihúsaeigendur: Fara gestirnir jarmandi út? MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi bréf til birt- ingar frá Sambandi veitinga- ok gistihúsaeigenda. sem ritað er af Hólmfriði Árnadóttur, fram- kvæmdastjóra sambandsins: „Við megum þakka fyrir meðan gestirnir ganga ekki jarmandi út,“ varð mætum veitingamanni að orði á ferðamálaráðstefnu fyrir 20 ár- um. Til umræðu var lambakjötið íslenzka, nánast eina kjötið sem þá var á boðstólum í landinu. Síðan hefur margt breytzt til hins betra. Bændur hófu að ala naut til neyzlu. Síðar voru reist stór, sérhæfð svína- og alifuglabú. Þau hafa fullnægt eftirspurn eftir afurðum sínum á samkeppnisfæru verði, án þess að niðurgreiðslur hafi komið til. Þótt lambakjötið sé sem fyrr ein aðaluppistaðan í fæðuvali hefur þetta valdið byltingu á neyzluvenj- um þjóðarinnar. Veitingamenn sem gestir hafa tekið aukinni fjölbreytni fegins hendi, og þeim fækkar erlendu ferðamönnunum, sem eftir nokkurra daga dvöl á landinu hafa ástæðu til að stynja: „Gefið okkur hvað sem er nema lambakjöt.“ Nú ber svo við, að boðaður hefur verið skattur á fóður það, sem er uppistaðan í eldi svína og alifugla. Afleiðingin hlýtur að verða stór- hækkað verð þessara afurða og minnkað framboð. Þessu vilja veitingamenn mót- mæla. Það má ekki gerast, að markaðslögmálið um framboð og eftirspurn fái ekki að njóta sín, að samkeppnishæf vara verði skatt- lögð svo hátt, að greiðslugetu almennings sé ofboðið. Gestir íslenzkra veitingahúsa SKÁTAFÉLÖGIN á ísafirði. Vaikyrjur og Einherjar, gangast fyrir skátamóti er hefst fimmtu- daginn 3. júli og lýkur á sunnu- dagskvöld. Fer það fram í botni Dýrafjarðar. Rammi mótsins verður skór og lögð er áhersla á gönguferðir og útilif. Tvær tjaldbúðir verða á mótinu, skátatjaldbúð og fjölskyldutjald- eru góðu vanir, þeir krefjast þess að fá hér vöruúrval og þjónustu, sambærilegt við það sem gerist með öðrum þjóðum. Það sem þeir létu sig hafa fyrir 20 árum, sætta þeir sig ekki við í dag. Stolt veitingamanna og grund- völlur húsa þeirra eru ánægðir viðskiptavinir. Þeir beina því þeim tilmælum til ráðamanna, að þeir falli frá ráðstöfunum, er kalla munu fram jarmkór óánægðra gesta.“ búð. Hvert félag um sig fær sitt afmarkaða svæði í skátatjaldbúð- unum, sem það skreytir með tilliti til ramma mótsins. Dagskrá verð- ur fjölbreytt og gefst þátttakend- um kostur á leikjum, þrautum, fræðslu og margs konar keppni. Mótssvæðið verður opið gestum eftir hádegi n.k. laugardag og þá um kvöldið verður aðalvarðeldur mótsins. Skátamót hefst í Dýrafirði á morgun MYNDARLEGT SUMARFRÍ LJÖSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F. LAUGAVEG1178 REYKJAVlK SlMI 85811

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.