Morgunblaðið - 02.07.1980, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ1980
Þorskveiðibann
í 36 daga frá 1.
júlí — 15. ágúst
SKUTTOGURUM og togskipum.
scm eru lenjfri en 39 metrar. eru
bannaðar þorskveiðar i 36 daga á
46 daga tímabili, sem hófst i gær,
eða frá 1. júlí til 15. ágúst. Auk
þess er þessum skipum gert að
vera i 5 daga samfellt frá öllum
veiðum á tímabilinu frá 20. júli
til 4. ágúst.
Fyrir önnur skip eru
ákvæði um það í reglugerð sjáv-
arútvegsráðuneytisins, að þorsk-
veiðar í net eru bannaðar frá 16.
júli til 15. ágúst. Öðrum skipum
en skuttogurum og stórum tog-
skipum eru bannaðar þorskveið-
ar frá 26. júlí til 4. ágúst.
í gær gaf sjávarútvegsráðuneyt-
ið út reglugerð, sem breytir
ákvæði reglugerðar um þorsk-
veiðitakmarkanir skuttogara og
togskipa á tímabilinu frá 1. júlí til
15. ágúst. Lýtur breytingin að
siglingum togara með fisk til sölu
erlendis, reynist þorskur yfir 15%
af heildarafla. Samkvæmt breyt-
ingu þessari, gildir nú sú regla, að
þorskveiðibann er talið hefjast er
togari heldur úr íslenzkri höfn
með fisk til sölu erlendis.
Kristján Jóhannsson tenór:
„Algjör upplifun að
syngja í Scala ... “
„ÞETTA gekk Ijómandi vel hjá
mér í Scala-óperunni í Mílanó,“
sagði Kristján Jóhannsson
söngvari. i samtali við Morgun-
blaðið i gær, en hann söng sem
kunnugt er fyrstur íslendinga í
þessu fræga sönghúsi á Ítalíu
sl. sunnudag í Verdi-söng-
keppni.
„Þetta var algjör upplifun og
ég var klappaður fjórum sinnum
fram á sviðið eftir sönginn. Eg
lenti í 5. sæti í keppninni, en það
var ekki í hlutfalll við fagnaðar-
lætin, því það má með sanni
Kristján Jóhannsson
segja, að ég hafi átt húsið og ég
held, að margir hafi verið sam-
mála um það, að ég hefði átt að
lenda eitthvað ofar í röðinni. Eg
hafði hins vegar komið eitthvað
við rófuna á yfirdómaranum
daginn fyrir tónleikana, þar sem
ég neitaði að syngja prógram,
sem hann hafði sett saman fyrir
mig án þess að tala við mig, en
það gerði hann við hina söngvar-
ana. Maður verður víst að passa
sig á þessu, en ég er engu að
síður mjög ánægður og er t.d.
búinn að gera samning við
svissneska sjónvarpið um mik-
inn sjónvarpsþátt þar sem ég
syng ásamt söngkonunni sem
varð númer eitt í Verdi-keppn-
inni í Scala, en hún er frá
Portúgal, sópran og mikið skip,
var eiginlega sjálfskipað
flaggskip söngvaraflotans
þarna. Við munum syngja með
100 manna hljómsveit í Sviss í
útileikhúsi í Luganó og verður
því sjónvarpað fyrir Eurovis-
ion.“
Kristján kvað marga þekkt-
ustu söngvara Ítalíu hafa verið á
Scala-tónleikunum, m.a. Renötu
Tebaldi og Carlo Bergonzi, en á
næstunni mun Kristján syngja
víða á tónleikum, bæði einn og
með öðrum söngvurum.
Að mörgu þarf að hyggja i erli dagsins
Kolmunn-
inn finnst
ekki á mið-
um eystra
SÍÐARI hluta síðustu viku fund-
ust kolmunnagöngur úti af Aust-
urlandi. Fengu skipin, sem ætla
að reyna fyrir sér á þessum
veiðum þá nokkurn afla á
skömmum tima. en síðan ekki
söguna meir. Þannig fékk Börk-
ur NK hátt i 100 tonn á föstudag-
inn, fljótlega eftir að skipið kom
á miðin, en síðan hvarf kolmunn-
inn af þessum slóðum og hefur
ekki fundist siðan.
Börkur hélt inn til Neskaup-
staðar, en Grindvíkingur til Eski-
fjarðar með 150-200 tonn. Krón-
borgin frá Færeyjum er hins
vegar úti af Austurlandi enn og
leitar kolmunnans.
Undanfarið hefur sézt til rússn-
eskra skipa djúpt úti af Austur-
landi, en þar var t.d. stóran hluta
síðasta árs stór floti veiði- og
verksmiðjuskipa.
Vigdís Finnbogadóttir í útvarpsviðtali:
„Það sem ég er á móti
er herstöð í landi okkar“
Frá Önnu Bjarnadóttur
í Washington í kut:
GREINT var frá kjöri Vigdísar
Finnbogadóttur í emba*tti forseta
Islands i bandariskum blöðum á
þriðjudag. Mest áherzla var lögð á
andstöðu Vigdísar við bandarísku
herstöðina i Keflavik.
í frétt The New York Times
sagði, að „vinstri sinnaður and-
stæðingur áframhaldandi aðildar
íslands að NATO“ hafi verið
kjörinn fyrsti kvenforseti lands-
ins. The Washington Post sagði í
frétt sinni: „Vigdís Finnbogadótt-
ir, andstæðingur NATO og mál-
svari margra vinstri sinnaðra
skoðana, er fyrsta konan, sem
kjörin er forseti. Hún vann naum-
an sigur yfir þremur karlfram-
bjóðendum i forsetakosningunum
á íslandi...“
1 fréttaþættinum „All Things
Considered" í NPR útvarpsstöðinni
á mánudag var fluttur hluti við-
tals, sem Peter Ruff, fréttamaðuY
brezku útvarpsstöðvarinnar BBC,
átti við Vigdísi eftir sigurinn. Þar
sagðist Vigdís vera mikill friðar-
sinni og hlynnt afvopnun stórveld-
anna. Hún var spurð, hvort kjör
hennar þyrfti að vekja óróleika hjá
yfirmönnum NATO. Hún kvað nei
við og sagðist vona, að Bandaríkja-
menn skildu, að hún hefði ekkert á
móti Bandaríkjamönnum. „Það,
sem ég er á móti,“ sagði Vigdís „er
herstöð í landi okkar og mér finnst,
að við íslendingar ættum að mót-
mæla þessu, því það er svo auðvelt
að sofna á verðinum ... ég neita að
láta landið í hendur næstu kynslóð-
ar, barna okkar, þannig að þau hafi
sofnað og gleymt að það er herstöð
í landinu."
Flugleiðir og flugmenn:
Deilt daglangt um for-
gang að flugverkefnum
SÁTTAFUNDUR i kjaradeilu flugmanna og Flugleiða stóð yfir frá
klukkan 9 í gærmorgun og var ekki lokið seint i gærkvöldi. þegar
blaðið hafði tal af samningamönnum. Samningaviðra*ðurnar fara fram
undir stjórn dr. Gunnars G. Schram. prófessors, sem er sáttasemjari í
deilunni.
Lítil ásókn í verð-
tryggðu reikningana
Á fundinum í gær var nær
eingöngu rætt um forgang Flug-
leiðaflugmanna að verkefnum á
vegum Flugleiða innanlands og
utan, og gerðu Flugleiðir flug-
mönnum tilboð um ákveðna at-
vinnutryggingu þeim til handa,
gegn því að þeir féllu frá boðaðri
vinnustöðvun sinni næstu tvo
laugardaga. í gærkvöldi voru ekki
horfur á að flugmenn féllust á
þetta tilboð Flugleiða.
Stéttarfélög flugmanna hafa
sem kunnugt er boðað til vinnu-
stöðvunar hjá Flugleiðum næstu
tvo laugardaga til að leggja
áherslu á þá kröfu félaganna, að
flugmenn Flugleiða hafi forgang
að flugverkefnum, sem um er að
ræða á hverjum tíma á vegum
Flugleiða í áætlunarflugi og leigu-
flugi innanlands og utan. Vinnu-
stöðvun þessi tekur ekki til leigu-
flugverkefna félagsins erlendis og
mun því ekki hafa áhrif á leiguflug
Flugleiða með John R. Anderson.
í frétt frá stéttarfélögum flug-
manna er tekið fram að vinnu-
stöðvun þessi sé ekki boðuð til að
ná fram launahækkun. Þá segir í
fréttinni að á sama tíma og
Flugleiðir séu að segja upp fjölda
starfsfólks, yfirfæri félagið í vax-
andi mæli flugverkefni sín til
dótturfyrirtækja.
Þrotabú Jóns Franklíns:
Kröfur að upphæð 115 millj.
kr. fengust ekki greiddar
í GÆR var í fyr.sta sinn hægt
að stofna við banka og spari-
sjóði verðtryggða innlánsreikn-
inga. Að sögn þeirra hanka-
manna. sem Morgunblaðið
ræddi við. var nokkuð um að
slíkir reikningar væru stofnað-
ir í gær, en þó var það misjafnt
eftir hönkum og útihúum.
Sigurður Eiríksson hjá
Landsbankanum í Austurstræti
sagði, að það væru ýkjur að
segja, að mikið hefði verið
stofnað af slíkum reikningum
þar, en fólk hefði komið jafnt og
þétt og allmargir reikningar
hefðu verið stofnaðir. Sigurjón
Finnsson hjá Útvegsbankanum
við Lækjartorg sagði, að þar
hefði ekki verið mikil aðsókn í
þessa reikninga og aðeins hefðu
verið stofnaðir um 10 slíkir
reikningar hjá þeim.
í Verslunarbankanum fengust
þau svör að nokkur hreyfing
hefði verið varðandi þessa
reikninga, og það væri helst
gamalt fólk og börn, sem stofn-
aði þá, en innleggin væru oft
nokkuð há. Þá kom fram hjá
statfsmanni Verslunarbankans,
að áberandi væri að fólk segði
nú upp vaxtaaukareikningum til
að fá þá lausa eftir ár, en sem
kunnugt er, fást innstæður á
bundnum bankareikningum
ekki lausar til að leggja þær inn
á verðtryggðu reikningana. Sig-
urður Eiríksson hjá Landsbank-
anum sagðist þó líta svo á, að
heimilt væri að losa innstæður á
1 og 10 ára sparisjóðsbókum,
þegar ætlunin væri að leggja
innstæðurnar inn á verðtryggða
reikninga.
Hjá starfsmanni Sparisjóðs
Reykjavíkur og nágrennis feng-
ust þau svör, að ekki hefði verið
mikið um innlegg á verðtryggða
reikninga hjá þeim í gær, en
meira hefði verið um fyrir-
spurnir. Alls hefðu verið stofn-
aðir þar um 10 reikningar yfir
daginn.
LOKIÐ er skiptameðferð á þrota-
búi Jóns Franklíns Franklínsson-
ar, Keldulandi 21, Rcykjavík, en
kröfur. sem lýst var í búið, námu
alls 115.199.629 kr. Af kröfunum
námu svonefndar forgangskröfur
alls rúmlega 1,2 milljónum króna,
en upp í þa*r fengust greiddar
rúmar 116 þúsund krónur.
Að öðru leyti fengust lýstar kröf-
ur í búið ekki greiddar, en meðal
krafna, sem ekki fengust greiddar,
voru ýmsar launakröfur, opinber
gjöld að upphæð 15,3 milljónir
króna og krafa frá skipamiðlun
Gunnars Guðjónssonar að upphæð
14,8 milljónir króna. Þær 116 þús-
und krónur, sem fengust til greiðslu
á kröfum í búið voru eftirstöðvar af
uppboðsandvirði flutningaskipsins
Suðra, en það var á sínum tíma
kyrrsett í Hollandi og boðið þar upp.
Jón Franklín rak um tíma farskipa-
útgerð og gerði þá meðal annars út
Suðra.
Áttu að lenda í Kulusuk
— gistu á Laugarvatni
FLUGVÉL frá SAS-flugfélag-
inu með 33 farþega gat í gær
ekki lent í Kulusuk á austur-
strönd Grænlands vegna sla*ms
veðurs.
Var vélinni þá snúið til Kefla-
víkur og áformað að reyna aftur
að lenda í Kulusuk í dag. Far-
þegunum var ekið til Reykjavík-
ur, en ekki reyndist unnt að fá
inni á hótelum borgarinnar, þar
sem þau eru yfirfull. Var þá
brugðið á það ráð að fara með
hópinn til Laugarvatns, og þar
gisti hann í nótt.