Morgunblaðið - 02.07.1980, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1980
5
Fálkaungarnir sem eftir lifa hressir
FÁLKAUNGARNIR eru
hressir, þ. e. þessir sem
eftir lifa. sagði Ævar
Petersen hjá , Náttúru-
fræðistofnun íslands í
gær, en eins og kom fram
í Mbl. í gær voru þrír
Austurríkismenn hand-
teknir á Reykjavíkur-
flugvelli með fimm fálka-
unga og fjóra smyrils-
unga í farangri sínum.og
ætluðu þeir að smygla
þeim úr landi. Einn
fálkaunginn var það illa
farinn að honum varð að
lóga og smyrilsungarnir
eru það ungir, að þeim er
vart hugað langra líf-
daga að sögn Ævars.
Fálkaungunum höfðu
Austurríkismennirnir
rænt úr tveimur hreiðr-
um í Þingeyjarsýslu og
gripið smyrilsungana
með á svipuðum slóðum.
Austurríkismennirnir við-
urkenndu brot sitt og hefur
þeim verið vísað úr landi.
Viðurlög við slíku broti eru
alls ekki nægilega ströng
sagði Ævar. Reyndar fá þess-
ir aðilar ekki að koma til
landsins í nokkur ár og vegna
samnorræns samnings gildir
það ákvæði um öll Norður-
lönd, en fjársektir eru litlar
sem engar. Lögin eru frá
árinu 1966 og við ákvörðun
fjársekta var ekki tekið tillit
til verðbólgunnar. Lögin
liggja þó endurskoðuð fyrir
alþingi og er þar gert ráð
fyrir hækkun sekta og mun
strangari viðurlögum. Er það
von okkar að alþingi afgreiði
mál þetta hið fyrsta.
Þá sagði Ævar að ekki væri
nákvæmlega vitað um fjölda
fálkapara á landinu, það færi
nokkuð eftir rjúpnastofnin-
um, ekki væri heldur vitað
hversu stuldur á ungum og
einnig eggjum sjaldgæfra
fugla væri mikill. „Það er
enginn sem fylgist með þess-
um hlutum sérstaklega og
tilviljunum háð þegar við
komumst að þessu. Það er
Þeir voru varir um sig
en þó forvitnir fálka-
ungarnir í gær. þegar
Emilía Björg tók
þessa mynd af þeim.
Sá þriðji kúrði sig
niður, enda hafði hann
verið hálflasburða, en
var þó óðum að hress-
ast.
•Æárf- i
Stórauka þarf eftirlit og herða viðurlög —
sagði Ævar Petersen hjá Náttúrufræðistofnun
t.a.m. mjög auðvelt að koma
eggjum undan og lítil áhætta
því mjög auðvelt er að koma
þeim í lóg ef upp um viðkom-
andi kemst." Ævar sagði
margar fuglategundir verpa
hér, sem ekki verptu annars
staðar í Evrópu eða ekki væri
hægt að komst að annars
staðar og nefndi einnig amer-
ískar fuglategundir, s.s.
straumönd og húsönd sem
mjög óaðgengilegt væri að
nálgast nema hér.
Náttúruverndarráð hefur
verið með mál þetta í athugun
og það má nefna það hér, að
ég fór til dómsmálaráðherra
fyrir um mánuði síðan og
ræddi þetta vandamál við
hann, sagði Ævar. Það má t.d.
búast við að tilkoma Smyrils
hafi opnað tiltölulega auð-
velda leið fyrir fólk til að hafa
á brott með sér ýmsa náttúru-
gripi, steina, fugla og plöntur.
Ævar sagðí í lokin að sér
sýndist hér helst til ráða, að
eftirlit yrði aukið verulega,
viðurlög hert og einnig væri
mikil hjálp í því að almenn-
ingur hefði augun opin fyrir
óeðlilegum mannaferðum og
snéri sér til lögreglunnar eða
náttúruverndarmanna, ef það
teldi minnstu ástæðu til.
Maður í gæsluvarðhaldi:
Kærður fyrir að
véla fólk til að
samþykkja víxla
MAÐUR UM fertugt hefur að
undanförnu setið í gæsluvarð-
haldi vegna rannsóknar á kær-
um á hendur honum um meint
fjársvik. Er þarna um að ræða
nokkrar ka'rur, sem ganga í
meginatriðum út á, að kærendur
telja. að maðurinn hafi vélað þá
Flugumferðar-
stjórar falla
frá kröfum
sínum og yfir-
vinnubanni
FLUGllMFERÐARSTJÓRAR hafa
ákveðið að falla frá frekari yfir-
vinnuhannsaðgerðum. og var í ga“r
gengið frá óbreyttum sumarsamn-
ingum þeirra og ríkisins frá' í
fyrrasumar. í síðustu viku var efnt
til alisherjaratkvæðagreiðslu með-
al flugumferðarstjóra um þetta
mál og var framangreind ákvörð-
un tekin i framhaldi af niðurstöð-
um alkvæðagreiðslunnar. að sögn
Haldurs Ágústssonar, formanns fé-
lags flugumferðarstjóra.
Flugumferðarstjórar höfðu áður
gert kröfur vegna sumarsamninga
sinna um. að svonefnt álag yrði
greitt á alla yfirvinnu. Þeir hafa
nú fallið frá þessari kröfu sinni og
verður því eins og áður aðeins
greitt álag á þá yfirvinnu flugum-
ferðarstjóra, sem unnin er vegna
orlofs og veikinda.
til að samþykkja víxla. Rann-
sóknarlögregla rikisins vinnur
að rannsókn málsins og sagði
Erla Jónsdóttir deildarstjóri í
gær. að rannsókn málsins væri
umfangsmikil og seinunnin. en
maðurinn var úrskurðaður í
gæsluvarðhald 21. júní sl. og
rennur ga'sluvarðhaldstíminn út
i dag.
Kærurnar á hendur manninum
eru ekki allar af sama toga, en í
þremur tilvikanna hafði maður-
inn ferðast um landið og fengið
fólk til að taka ýmsar vörur, svo
sem smávarning, leikföng og
skrautmuni, í umboðssölu, að
sögn kærenda. Lét maðurinn
fólkið samþykkja víxla, en fólkið
telur sig hafa tekið vörurnar í
umboðssölu með því skilyrði, að
það mætti skila þeim aftur, ef
þær seldust ekki, og það fengi þá
aftur víxlana. Þegar vörurnar
seldust ekki og fólkið ætlaði að
skila þeim og fá víxlana aftur,
reyndist maðurinn vera búinn að
nota víxlana. Maðurinn heldur
því hins vegar fram, að hann hafi
selt fólkinu vörurnar og víxlarnir
hafi verið greiðsla fyrir þær.
Þá liggja fyrir kærur á hendur
manninum, þar sem kærendur
telja hann hafa vélað sig til að
samþykkja víxla upp í væntanleg
viðskipti, sem aldrei urðu. Alls
nema þau viðskipti, sem kært er
vegna, milli 20 og 30 milljónum,
en ekki liggur enn fyrir hvað
málið kann að snúast um miklar
fjárhæðir.
Danskar peysur,
bolir og vesti