Morgunblaðið - 02.07.1980, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ1980
EITT fyrsta atriöiö á Laugardalsvellinum eftir
setninguna á fimmtudagskvöldiö var hópsýning
6—9 ára fimleikastúlkna. Einbeitni skein úr hverju
andliti þegar þær _stuttu“ marseruöu inn á völlinn
íklæddar hvítum kjólum, og var því líkast aö
fiörildahópur léki listir sínar á grænu grasinu.
Blm. haföi hraöann á eftir sýninguna og tókst aö
króa nokkur „fiörildi” af í horni leikfimisalarins inni
í Höllinni Og ná af þeim mynd áöur en þær
skiptu um föt. Sú yngsta, Ásrún Halla Finnsdóttir,
6 ára, var aö vísu komin í íþróttagallann og sagöi
aö sér heföi veriö svolítiö kalt þarna úti í golunni.
En hinar, þær heita Björg Ársælsdóttir, 10 ára,
María Kristín Gylfadóttir, 9 ára og Sigrún
Karlsdóttir, 8 ára, svöruöu spurningu hins kulvísa
blaöamanns neitandi. Stelpurnar sögöu allar aö
þaö væri mjög gaman aö vera í fimleikum, en
þær Ásrún og María æfa hjá Björk í Hafnarfiröi,
en Björg og Sigrún eru í Fylki.
Næst gripum viö afsíöis þær Alydu Jakobs-
dóttur, 10 ára og Margréti Rósu Dagbjartsdóttur,
11 ára. En þjálfari þeirra var í óöa önn aö leggja
hópnum sínum lífsreglurnar þegar okkur þar aö
garði. Alyda og Margrét eru þáöar í Fylki og
sögöust hafa æft nokkuö lengi, Alyda í 3 ár og
Margrét í 4, en hún er líka í rytmiskum fimleikum.
Fyrir hátíðina núna eru þær búnar aö æfa síöan í
maí. Þær voru á því aö halda áfram aö æfa af
krafti og sögöust gjarnan vilja verða fimleika-
stjörnur þegar fram liðu tímar.
Viö erum svo ung-
ar og hressar!
Þórveig Gísladóttir og
Halldóra Nielsdóttir voru
glaöar aö fá aö vera meö í
mótinu. Þær hafa æft í tvo
mánuöi fyrir þessa hátíö.
Ðlaöamaöur spuröi hvort
þær hyggðust halda áfram
leikfimisæfingum, og þær
svöruöu því til aö þær
væru svo ungar og hressar,
aö auövitaö héldu þær áfram.
Ljósm. Kristján.
Langskemmtilegast að synda
Þroskaheftir kepptu á íþróttahátíö Í.S.Í. sem lauk á sunnudag.
Keppnin fór fram í KR húsinu á laugardaginn, og þar hittum viö aö máli
Hólmfríöi Ósk Jónsdóttur. Hún sagöi blm. að hún myndi keppa í
langstökki, hástökki og hlaupi. Þau hafa æft einu sinni í viku fyrir
keppnina, en auk þess aö keppa þarna, keppti Hólmfríöur í sundi í
Árbæjarlaug á föstudaginn. Hún tjáöi okkur aö lokum aö henni fyndist
þetta allt ofsalega spennandi og gaman, en lang skemmtilegast væri aö
synda.
Ljósm Rax.
Vel heppnuð
sumaríþrótta-
hátíð ISI
GLÆSILEGRI íþróttahátíð ÍSÍ lauk á Laugardalsvellin-
um á sunnudagskvöld. Sumaríþróttahátíðin var í alla
staði vel heppnuð og þátttakendur nú um 12.000. Keppt
var í 17 greinum íþrótta og tókst keppni í öllum greinum
mjög vel enda veöur hagstætt til keppni. Skipulag
íþróttahátíöarinnar var gott, en enginn leikur er að
skipuleggja stórhátíðir sem þessa. Gífurlega mikil sjálf-
boöaliðsvinna liggur aö baki. Þaö sem vakti einna mesta
athygli á íþróttahátíðinni voru hinar glæsilegu fim-
leikasýningar. Fimleikasamband íslands undir forystu
Ásbjargar Gunnarsdóttur getur verið stolt af framlagi sínu.
Fimleikahópar frá Gerplu, ÍR, Björk, Ármanní, Fylki og
Akureyri voru allir með sérlega vel æföar sýningar.
Jafnframt fjölmennur flokkur kvenna undir stjórn
Ásbjargar.
Erlendu fimleikaflokkarnir frá Noregi og Danmörku
vöktu líka mikla athygli.
Blaöamenn Morgunblaðsins fylgdust meö íþróttahá-
tíðinni og reynt er aö gera henni eins rækileg skil og
kostur er á.
í blaöinu í gær voru úrslit birt í flestum þeim
greinum sem keppt var í og hér fylgja viðtöl við ýmsa
keppendur sem tóku þátt í hátíðinni. íþróttahátíðin sem
fram fer á 10 ára fresti er ómælt stærsti íþróttaviðburður
íslenskrar æsku hverju sinni og veröskuldar því
nákvæma umfjöllun í fjölmiðlum.
í K.R. húsinu var aö hefjast íþróttamót þroskaheftra er blm. og
Ijósm. litu þar inn á laugardaginn. Þaö var eftirvænting í loftinu, enda
mótiö rétt í þann mund aö hefjast. Vinirnir Reynir Pétur Ingvarsson og
Kristján Már Ólafsson áttu aö keppa í hlaupi og stökki, og Kristján
einnig í hástökki. Þeir voru báöir mjög ánægöir meö mótiö og sögöust
endilega vilja hafa meira þessu líkt. Þaö leyndi sér heldur ekki aö gleöi
hinna þátttakendanna yfir því aö vera meö var mikil.
„Því sjaldnar, því hátíðlegri“
Á áhorfendapöllunum í Laugardalshöllinni hittum viö aö máli þrjá
íþróttakennara, Ósk Óskarsdóttir, Ingveldi Bragadóttur og Hilmar
Pálsson. Þeim fannst mótiö í heild eða hátíðin mjög góö og einstaklega
vel skipulögö. Þeim fannst aftur á móti aðsóknin aö mótinu
skammarlega lítil, og sögöu aö hún þyrfti aö vera helmingi betur sótt.
Aö lokum spuröum viö þau hvort þau myndu vilja hafa hátíö eins og
þessa oftar, en þau svöruöu því til aö svona væri þetta gott og því
sjaldnar sem hátíöirnar væru því hátíölegri væru þær.