Morgunblaðið - 02.07.1980, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ1980
Seitjarnarnes:
Áfengisútsölu
var hafnað
Grundarfirði 27. júní — Slík skörð, sem sjást á myndinni, er að finna í veginum yfir
Búlandshöfða. Eru þau bæði ómerkt og hafa ekki verið snert af vegagerðarmönnum í sumar.
Ljósm. (Bæring).
Dansleikjahald í Borgarfirði
Eitt af samkomuhúsum Borgfirðinga er að Logalandi.
LjÓNm.: Carsten KristinsHun
Á SELTJARNARNESI var kosið
um það á sunnudag, hvort leyfa
ætti rekstur áfengisútsölu þar í
bæ, en bæjarstjórnin bar fram ósk
um kosningu þessa, vegna mið-
bæjarskipulags, sem nú er unnið
að þar. Atkvæði greiddu 1.450
manns og sögðu 897 nei og 499
voru samþykkir opnun áfengisút-
sölunnar. Auðir seðlar voru 42 og
ógildir 12. Andvígir opnun áfeng-
isútsölu voru því rúm 61% þeirra
Kvenyogi í
heimsókn
HÉR Á landi var nýlega á ferðinni
á vegum Ananda Marga-hreyf-
ingarinnar kvenyogi, Acaiya
Maniita frá Paraguay.
Ananda Marga-hreyfingin hef-
ur nú starfað hér á landi í u.þ.b.
fimm ár og hefur á þeim tíma
skotið nokkrum rótum, rekur m.a.
matvöruverslun og barnaheimili,
auk þess að gefa út ýmis rit.
Hreyfingin hefur nokkrum sinn-
um á undanförnum árum fengið
hingað fólk til að kenna hugleiðslu
og halda fyrirlestra. Kom Acaiya
Maniita hingað í þeim tilgangi, en
hún er forsvari Evrópudeildar
hreyfingarinnar. Blm. hitti kven-
yogann að máli, ásamt Sigmari
Arnórssyni starfsmanni. Taldist
Sigmari til að u.þ.b. 1000 íslend-
ingar hefðu lært hugleislu eftir
kerfí Ananda Marga, tantra-yoga,
á undanförnum árum. Tantra-
yoga er ein grein af mörgum á
meiði hugleiðslufræða og flokkast,
að sögn Sigmars og Maniita, undir
„hagnýtt" yoga. Þau vildu taka
fram að ekki væri um neinn
sem tóku afstöðu og 34,4% voru
henni fylgjandi.
Sigurgeir Sigurðsson bæjar-
stjóri sagði, að bæjarstjórn hefði
einungis viljað fá úr því skorið
hvort opna skyldi áfengisútsölu í
bænum vegna miðbæjarskipulags-
ins, en hún hefði enga afstöðu
tekið til þess hvort það væri
æskilegt eða ekki, vilji meirihlut-
ans réði í þessu efni.
átrúnað að ræða, heldur hug-
leiðslukerfi sem allir gætu tileink-
að sér. Væri ástundun þess hug-
víkkandi og hefði auk þess í för
með sér aukna ást til mannkyns-
ins. „Tilgangur Ananda Marga er
tvíþættur; annars vegar að þroska
sjálfan sig, hins vegar að þjóna
samfélaginu."
AÐ VANDA hefur verið úthlutað
dögum til dansleikjahaids í sam-
komuhúsum Borgarfjarðar. Er
það sýsiumannsembættið, sem út-
hlutar. Er það gert til þess að
mörg samkomuhús séu ekki með
dansleik sömu helgina og til að
koma í veg fyrir að þau séu að
berjast um sálirnar.
Hér fer á eftir listi yfir dans-
leikjahald í sumar: 5. júlí, Brún,
12. Brautartunga, 19. Lyngbrekka,
26. Hlaðir, 9. ágúst Hreðavatns-
skáli, 16. Borgarnesbíó, 23. Valfell,
30. Logaland, 6. sept. Hlaðir, 13.
Brautartunga, 20. Brún, 27. Borg-
arnesbíó, 4. okt. Valfell, 11. Hlaðir,
18. Hreðavatnsskáli og 25. Borg-
arnesbíó.
Þar með er listinn tæmdur eins
og hann liggur nú fyrir. En þar
sem Ungmennasamband Borgar-
fjarðar hefur verslunarmanna-
helgina fyrir dansleikjahald er
hún ekki talin upp hér. Geta menn
nú skipulagt sumarsamkundur
sínar með tilliti til þessa, — og
vitað nákvæmlega hvenær kaupa-
konurnar koma á dansleikina.
Fréttaritari.
Sýning íslenzkra arkitekta
Framlag íslenzkra húsameist-
ara til Listahátíðar 1980, er
sýnishorn á ýmsu því athyglis-
verðasta er þeir telja, að gert
hafi verið á sviði húsagerðarlist-
ar sl. 20 ár. Sýningin er til húsa í
Ásmundarsal við Mímisveg og er
svo til allt veggrými hússins
hagnýtt til hins ítrasta. Þrátt
fyrir það, kom greinilega fram
takmörk hússins varðandi slíka
yfirlitssýningu, það er alltof
þröngt um myndirnar og þá ekki
síst í ljósi þess að heil sveit
húsameistara kynnir hér verk
sín, eða 29. talsins. Þá hefur
maður séð ýmsar tillögurnar
áður og jafnvel fjallað um þær í
listrýni. — En að sjálfsögðu er
það góðra gjalda vert að koma
upp slíkri sýningu en umfang
hennar hefur þurft að vera
miklu meira og húsakynnin
stærri. Mér gæti dottið í hug, að
slík sýning yrði eitt af aðalatrið-
um næstu listahátíðar vegna
þess, að húsbyggingar í nútíð og
fortíð eru mjög í brennidepli.
Aldrei hefur verið skrifað meira
um þessi mál né skeleggar um
þau fjallað í hljóðvarpi og sjón-
varpi og er hér um ómælda
framför að ræða. Eins og svo
margt annað, er þetta ekki
séríslenzkt fyrirbæri heldur eru
húsa og umhverfisvernd mjög í
sviðsljósinu austan hafs sem
vestan. Þá hefur þeim er leggja
fyrir sig húsagerðarlist fjölgað
gífurlega undanfarin ár, þannig
hefur orðið helmingsfjöldi í
stéttinni á sl. áratug og verður
það vafalítið á þessum nýbyrj-
aða áratug í ljósi þess hve mikill
fjöldi er við nám erlendis. Aukin
samkeppni verður vonandi til
þess, að útlitsgæði — og fjöl-
breytni húsa verði meiri og auk
þess manneskjulegri hið innra.
Almenningur er að rísa upp gegn
þessum stöðluðu búrum og húsa-
sílóum er hvarvetna rísa upp í
þéttbýli. Til að sporna við þessu
er víða meira hugsa fyrir list-
rænu hliðinni í námi við húsa-
gerðarháskóla en áður og sum-
staðar er ætlast til að útskrifað-
ir húsameistarar leggi fyrir sig
frjálsa skapandi myndlist í 1—2
ár áður en þeir fara að „praktis-
era“. Vel á minnst, svo sem
undirritaður hefur margsinnis
bent á, þá þykir honum margur
arkitektinn of bráðlátur í því
atriði að hefja umsvifalaust full-
gild störf að loknu námi. Nafn-
toguðustu arkitektar veraldar
þjálfuðu sig einmitt í mörg ár á
viðurkenndum teiknistofum áð-
ur en þeir hófu að vinna sjálf-
stætt. Svo sem læknisfræðin, er
húsagerðarlistin orðin að alltof
miklu hreinu og beinu tækni-
starfi og innan hennar rúmast of
lítið af hugsjónum.
Rétt er að taka það fram, að
við höfum eignast fjölda ágætra
arkitekta á undanförnum ára-
tugum er rutt hafa brautina
fyrir nýjum viðhorfum og hug-
myndum en ennþá þykir mér
mikið skorta á manneskjulegu
hliðina. Hér eru heilu hverfin
stöðluð, hæð húsa er t.d. ákveðin
eftir vissum staðli, — útkoman
verða steindauðar húsaraðir og
er það lítið augnayndi að ráfa
um þau hverfi.
Þessar hugleiðingar eiga ekki
endilega við umrædda sýningu
og nú spyrja sjálfsagt margir
stórmóðgaðir, — af hverju fjall-
ar maðurinn ekki um sjálfa
sýninguna í heild. Því er til að
svara, að hér yrði þá að gera
viðamikla úttekt og erfitt er að
gera upp á milli sýnenda vegna
þess hve smár hlutur hvers og
eins er, — þá er því einnig haldið
fram, að ungum og frískum
húsameisturum sé haldið niðri
og þeir eigi of fá verk á sýning-
unni og er það ljótt til afspurnar
og bindur hendur mínar.
Persónulega var ég mjög hrif-
inn af ýmsu á sýningunni og hún
sannar áþreifanlega, að við eig-
Myndllst
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
um arkitekta á heimsmæli-
kvarða og þeir hafa náð langt,
sem fengið hafa að njóta sín til
fulls erlendis, svo sem Högna
Sigurðardóttir og Jón Kristins-
son. Hinir berjast líkt og við
myndlistarmenn við að gera sitt
besta í litlu og takmörkuðu
þjóðfélagi þar sem fáfræði og
fordómar blómstra ásamt til-
hneigingunni til að liggja mar-
flatur fyrir tímabundnum alls-
herjarlausnum er ganga líkt og
logi yfir akur, en er svo fyrir-
varalaust varpað fyrir róða sem
úrelt, óalandi og óferjandi ásamt
því að vera tákn heimsku fyrir-
rennara og hámarks ljótleika!
Ég vil vekja sérstaka athygli á
þessari sýningu og þróttmiklu
starfi húsameistara og félags-
skapar þeirra en miðstöð hans er
einmitt í Ásmundarsal.
Sem fyrr sakna ég mjög hug-
myndarissa er sýna þróun hug-
myndar allt til endanlegrar út-
færslu. Um endanlegu útfærsl-
urnar er nóg ásamt reglustiku-
og teiknistofuvinnu.
Ég hef þessi orð ekki fleiri að
sinni en lofa heildarúttekt er
tími gefst til um stöðu og
framtíð íslenzkrar húsagerðar-
listar.
Sýningin stendur til 30. júní.
Bragi Ásgeirsson.