Morgunblaðið - 02.07.1980, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ1980
Tvær söl-
ur ytra
Á MÁNUDAG seldu tvö íslenzk
fiskiskip afla sinn erlendis, ann-
að i Þýzkalandi og hitt í Bret-
landi. Gott verð fékkst fyrir
aflann i Þýzkalandi og eins og
oft undanfarið fékkst hærra
verð fyrir karfa og ufsa þar
heldur en fyrir þorsk og ýsu i
Bretlandi. InKÓlfur GK seldi í
Cuxhaven 113,3 tonn fyrir 57,9
milljónir króna, meðalverð 511
krónur. Ölduljón VE seldi G2,3
tonn í Grimsby fyrir 30,5 millj-
ónir, meðalverð 485 krónur.
Nokkuð hefur verið um það
síðustu daga, að útgerðarmenn
hafi hætt við fyrirhugaðar sigl-
ingar skipa sinna eða frestað
þeim og mun það einkum vera
vegna lítils afla síðustu daga.
Kosning Vigdísar vckur athv^Ii í Danmörku:
„íslendingar kunna
að velja sér forseta“
Frá Gunnari KyttKaard. frcttaritara Mbl.
i Kaupmannahofn, 1. júli.
FRÉTTIN „Oddviti íslendinga er
nú kona" var á forsíðum danskra
blaða í gær, þrátt fyrir það að
þriðjudagsblöðin skrifuðu mikið
um hneykslismál innan dónsku
rikisoliufyrirtækjanna. Kosn-
ingarnar hafa vakið ennþá meiri
athygli vegna þess, að íslend-
ingar hafa orðið fyrstir allra
þjóða i heiminum til þess að kjósa
sér kvenforseta. Framhjá því er
ekki hægt að ganga, þótt Jyl-
landsposten skrifi i dag að „sá
timi er löngu liðinn að því var
haldið fram að konur væru
mönnum undirgefnar".
Berlingske Tidende sendir Vig-
dísi Finnbogadóttur og íslensku
þjóðinni hamingjuóskir í leiðara
sínum í dag, sem skrifaður er
undir fyrirsögninni „Hennar há-
tign forsetinn".
„Islendingar kunna að velja sér
forseta, sem persónugerir hið
besta meðal þjóðarinnar og ís-
lenskrar menningar. í þrjú kjör-
tímabil, 12 ár, hefur Kristján
Eldjárn verið forseti íslands. Svo
geöþekkan, hógværan og tilkomu-
mikinn þjóðhöfðingja hefði ekkert
annað land getað kosið sér. Þegar
Kristjáni Eldjárn fannst tími til
kominn að helga sig fornleifafræði
að nýju, völdu íslendingar sem
arftaka hans aðra persónu, sem
stendur framarlega í menningar-
málum, Vigdísi Finnbogadóttur.
Samhliða því var brotið blað í
sögu jafnréttis kynjanna á íslandi.
Það er nokkuð tilkomumikið að
karlmannaþjóðfélag sem hið ís-
lenska skuli vera það fyrsta í
heiminum, sem kýs konu í sæti
þjóðhöfðingja. Þetta gefur til
kynna óskir um breytingar og
eflaust hefur það haft áhrif á
ákvarðanir margra kjósenda, en
einnig vissan um að Vigdís Finn-
bogadóttir væri þess verðug,
manneskjulega og menningarlega
- segir Berlingske
Tidende
séð, að taka við af Kristjáni
Eldjárn.
Samkeppnin af hálfu karl-
manna sem voru í framboði, var
mikil. Þeir voru: Fyrsti atvinnu-
knattspyrnumaður íslands og nú-
verandi stjórnmálamaður, og tveir
af hinum sígildu máttarstólpum
þjóðfélagsins, einn fremsti maður
utanríkisþjónustunnar og sátta-
semjari ríkisins. Samkeppnin var
um vinsældir og virðingu, um
hæfileika og framkomu, og olli því
að kjósendur skiptust í ýmsa hópa.
En flestir þeirra völdu bók-
menntafræðinginn, þann sem
kennt hefur frönsku í íslenska
sjónvarpinu, leikhúsfræðinginn og
leikhússtjórann, Vigdísi Finn-
bogadóttur. Þrátt fyrir það að hún
er einstæö móðir, en ef til vill
einnig vegna þess. Því það, að hún
er einstæð móðir sem hefur ætt-
leitt barn, varð til þess að kosn-
ingabaráttan varð að nokkuð
snarpri deilu um fjölskyldumál í
þess orðs breiðustu og þrengstu
merkingu.
Mikið hefur verið rætt um það,
hvort nú sé rétti tíminn til þess að
einhleyp kona taki við völdum á
„Kosning Vigdísar
sýnir afstöðu hóps
Islendinga til
vestrænnar sam-
vinnu,“ segir
Jyllandsposten
Bessastöðum. íslendingar eiga
hrós skilið fyrir það að hlusta ekki
á fordómafullar raddir í kosn-
ingabaráttunni og veija Vigdísi.
Nú stendur hún með pálmann í
höndunum og íslenskir kjósendur
hafa sigrað aðrar þjóðir, hvað
dómgreind snertir," segir að lok-
um í Berlingske Tidende.
„Afstaða til
utanríkismála vekur
athygli heimsins“
Jyllandsposten finnst það vera
aukaatriði að forsetjnn skuli vera
kona. „Það er munum áhugaverð-
ara,“ segir í leiöara blaðsins, „að
manneskja sem ekki er vitað hvar
stendur i stjórnmálum og því
augsýnilega óháð stjórnmála-
flokkum, skuli hafa verið kosin
oddviti íslensku þjóðarinnar.
Þetta undirstrikar nefnilega, að
ísland er í mótsögn við sjálft sig.
Þótt forsetinn ákveði ekki, hvort
ísland sé meðlimur í Atlantshafs-
bandalaginu eða daðri fyrir Aust-
ur-Evrópuríkjum, eins og það ger-
ði fyrir nokkrum árum, þá sýna
forsetakosningarnar ákveðna af-
stöðu þjóðarinnar." Þetta útskýrir
blaðið á eftirfarandi hátt:
„Þegar Vigdís Finnbogadóttir
nú er í forystu fyrir um 200.000
íbúa landsins, má ekki gleyma þvi,
að í kosningabaráttu sinni tók hún
neikvæða afstöðu, svo ekki sé
meira sagt, til setu bandaríska
herliðsins á Keflavíkurflugvelli.
Herliðið hefur siðan í seinni
heimsstyrjöldinni verið eina vörn
Islands. Forsetinn sýnir að vissu
marki afstöðu fólksins i landi. Og
það er utanríkispólitík íslands
sem vekur fyrst og fremst áhuga
heimsins.
Kosning Vigdísar Finnbogadótt-
ur sýnir því afstöðu viss hóps
íslendinga til samstarfsins við
Vestur-Evrópu og lönd Norður-
Atlantshafsins," segir Jyllands-
posten að lokum.
Vf'V -
.
^tmálnlDi)
-ÍAU.T HÚSID UTAN OGíHÍ^
Alifugla- og svína-
bændur fá 25%
af kjarnfóður-
kaupum sínum
1979 með 50%
skatti næstu
þrjá mánuði
FRAMLEIÐSLURÁÐ landbún-
aðarins samþykkti í gær, að fram-
leiðendur eggja, fuglakjöts og
svinakjöts fái á næstu þremur
mánuðum afgreitt kjarnfóður. sem
sé að magni allt að 25% af því, er
þeir keyptu af slíkri vöru á árinu
1979. Verði vara þcssi afgreidd á
verði, sem sé með 50% fóðurbætis-
skatti. Þeir sem ala upp lifunga fá
hliðstæða fyrirgreiðslu.
Af fóðri, sem framleiðendur fyrr-
nefndra vörutegunda kaupa um-
fram þessi 25%, verða þeir að
greiða fullan fóðurbætisskatt eða
200%. Einnig var samþykkt, þar til
annað verður ákveðið, að fella niður
innheimtu fóðurbætisskatts af
fiskafóðri og loðdýrafóðri, enda sé
þetta fóður greinilega merkt.
Með þessari samþykkt Fram-
leiðsluráðs hefur fóðurbætisskattur
á innfluttu kjarnfóðri til alifugla-
og svínaræktar verið lækkaður í
50% á kjarnfóðri, sem svarar til
25% af því kjarnfóðri, er þessir
framleiðendur keyptu á síðasta ári.
Þessi 50% skattur á fóðrið mun láta
nærri að svara til niðurgreiðslna
Efnahagsbandalagsins á fóðrinu.
AlCLVSINf.ASIMIN’N KK:
«... ©>
JWúreiinblnbib