Morgunblaðið - 02.07.1980, Síða 32
Síminn
á afgreiöslunní er
83033
Bfor0unbIat>ib
MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1980
Síminn á ritstjórn
og skrifstofu:
10100
Sexmannanefnd
í efnahagsmálin
RÍKISSTJÓRNIN hefur falið sex
manna n< fnd aö kanna leiðir otc
Kera tillögur varöandi lausnir í
efnahagsmálum.
Formaður nefndarinnar er Jón
Ormur Halldórsson, aðstoðarmað-
ur forsætisráðherra, og aðrir
nefndarmenn eru alþingismenn-
irnir Eggert Haukdal, Guðmundur
G. Þórarinsson, Halldór Ás-
grímsson, Geir Gunnarsson og
Olafur Ragnar Grímsson.
Vestmannaeyjar:
Fjögur stærstu
frystihúsin segja
upp starfsfólki
Vfstmannapyjum. 1. júlá. 1980.
VERIÐ ER að senda út ábyrgð-
arbréf til starfsfólks fjögurra
stærstu frystihúsanna hér í
Eyjum, þar sem þvi er sagt upp
störfum. Fyrirtæki þessi eru
Vinnslustöðin, Fiskiðjan, ísfé-
lagið og Frystihús F.I.V.E. og
einnig hefur verið sagt upp öllu
starfsfólki Fiskimjölsverk-
smiðju Vestmannaeyja. Upp-
sagnirnar eru miðaðar við 1.
júií og taka gildi 1. ágúst en
siðar hjá fastráðnu fólki. Upp-
sagnarhréfin eru mjög sam-
hljóða og segir í þeim að þetta
sé gert vegna mikilla erfiðleika
í rekstri fyrirtækjanna.
Menn eru mjög uggandi því þó
svo síðasti löndunardagur sé 21.
júlí þá er hætt við að búið verði
að vinna upp allan fisk fyrir
mánaðamótin og því alls óvíst að
hægt sé að halda út allan
mánuðinn, því tapreksturinn er
orðinn það geigvænlegur. Ef til
slíks kemur mun það fyrst koma
niður á skólafólki og þeim sem
stytzt hafa unnið, því þeir hafa
aðeins viku uppsagnarfrest.
Það eru á milli sex og sjö
hundruð manns sem fá uppsagn-
arbréf í hendurnar nú, en ótalið
er það sem óhjákvæmilega kem-
ur á eftir, því hér byggist allt á
sjávaraflanum og er algjör löm-
um atvinnulífsins framundan, ef
ekki koma til einhverjar ráðstaf-
anir.
Sigsntir
Búnaðarbanki íslands 50 ára:
Viðskiptavinum boðið í afmæliskaffi
VIÐSKIPTAVINUM Uúnaðarbankans. sem erindi
áttu i bankann i gær var boðið upp á afmæliskaffi i
tilefni af 50 ára afmæli bankans. Þá afhenti
formaður bankaráðs, Stefán Valgeirsson, formanni
Skógræktarfélags íslands, Jónasi Jónssyni, kr. 10
millj., sem varið skal til eflingar trjáræktar.
Einnig voru Starfsmannafélagi Búnaðarbankans
afhentir til eignar tveir sumarbústaðir og 5 millj.
kr. i námssjóð og aðrar 5 millj. í utanfararsjóð
starfsmanna.
Samningamál BSRB og f jármálaráðherra:
Ljóst verður annað kvöld
hvort samningar takast
ANNAÐ kvöld. fimmtudag. á að
liggja fyrir, hvort félögin innan
Bandalags starfsmanna rikis og
bæja, geta sætt sig við samninga
við ríkisvaldið. þar sem rætt er um
grunnkaupshækkanir á bilinu 2 til
4%, samning til eins árs og þær
félagslegu umbætur, sem um hefur
verið rætt í fréttum. Samninga-
nefnd BSRB hefur verið hoðuð
saman til fundar á morgun, en hlé
hefur verið gert á samningaumleit-
unum milli ríkisvaldsins og samn-
inganefndarinnar á meðan á könn-
Ríkisstjórnin synjar um
verðhækkanir umfram 9%
- þrátt fyrir samþykktir Verðlagsráðs
RÍKISSTJÓRNIN synjaði í gær
um staðfestingu á fjórum sam-
þykktum Verðlagsráðs um hækk-
anir umfram 9% og er þetta í
fyrsta sinn, sem ríkisstjórnin neit-
ar að staðfesta samþykktir Verð-
lagsráðs. Samþykktir þær, sem
hér um ra*ðir eru 12% hækkun á
verði fiskbolla og fiskbúðings.
HSÍ stefnir
ríkisútvarpinu
vegna skulda
Samþykkt var á stjórnarfundi
HSÍ, i fyrrakvöld að stefna Ríkis-
útvarpinu fyrir vangoldnar skuld-
ir vegna sjónvarpsútsendinga á
landsleikjum í handknattleik.
Skuld Ríkisútvarpsins við HSÍ
nemur rúmum þremur milljónum
króna. Að sögn Júlíusar Hafstein
formanns HSI, mun lögfræðingur
sambandsins Jón Magnússon þing-
festa málið næstu daga.
12% hækkun á aðgöngumiðum
kvikmyndahúsa. 10% ha-kkun á
steypu án sements og 12% hækkun
á flugfargjöldum í innanlands-
flugi. Hins vegar samþykkti ríkis-
stjórnin á þessum fundi 8% hækk-
un á verði sements og 9% hækkun
á farmgjöldum i oliuflutningum
innanlands.
Tómas Árnason, viðskiptaráð-
herra, sagði í gær, að ástæðan fyrir
þessari synjun ríkisstjórnarinnar
væri sú, að stjórnin hefði ákveðið
að leyfa ekki hækkanir umfram 9%
og væri það í samræmi við þá
niðurtalningarleið, sem fara ætti í
efnahagsmálunum.
Tómas sagði, að ríkisstjórnin
hefði að undanförnu rætt, við
hvaða mörk ætti að miða í þessu
sambandi en í stjórnarsáttmálan-
um væri talað um að heimila ekki
hækkanir umfram 7%.
„Niðurstaðan varð sú að miða við
9% og við þau mörk ætlum við að
miða á næstunni. Það verður þó
sjálfsagt tekið tillit til þess, ef um
sérstakar ástæður er að ræða fyrir
hækkunarbeiðnunum. Og þar á ég
við erlendar hækkanir og hækkan-
ir, sem hægt er að rekja til
ihnlendra kostnaðarhækkana, eins
og fiskverðshækkunar. í öðrum til-
vikum munum við ekki heimila
hækkanir umfram 9% á næstunni,"
sagði Tómas.
un í félögunum stendur yfir.
Tilboð fjármálaráðherra fjallaði
um sérstaka meðhöndlun verðbóta,
þar var bæði „þak“ og „gólf“. I þeim
samkomulagsdrögum, sem nú eru til
umfjöllunar, er þakinu sleppt, þ.e.
hlutfallslegar verðbætur koma á öll
laun ofan við 15. launaflokk, en í
tilboði fjármálaráðherra var kveðið
á um sömu krónutölu á þá launa-
flokka. Hins vegar mun BSRB hafa
tekið jákvætt undir „gólfið“, þ.e. að
öll laun undir 5. launaflokki taki
sömu verðbótakrónutölu og sá
flokkur. Fjármálaráðherra og ríkis-
stjórn mun hafa fallið frá þessari
tillögu um „þakið".
Fái þessi samkomulagsdrög já-
kvæðar undirtektir í aðildarfélögum
BSRB, mun verða gengið til samn-
inga og stefnt að allsherjaratkvæða-
greiðslu meðal félagsmanna BSRB
um samkomulagið eftir 3 til 4 vikur.
Verði hins vegar um neikvæð við-
brögð að ræða, mun slitna upp úr
samningaviðræðum og málið bíða
til hausts. Er þá jafnvel gert ráð
fyrir því, að verkfall opinberra
starfsmanna verði boðað um miðjan
ágúst með mánaðar fyrirvara eins
og lög gera ráð fyrir.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins telja ýmsir forystumenn
BSRB mjög vænlegt nú að gera
slíkan samning til eins árs, ásamt
sérkjarasamningum, sem ávallt
veita opinberum starfsmönnum ein-
hverjar kjarabætur einnig, og síðan
annan samning að ári.
Krafa opinberra starfsmanna er
um allt að 39% grunnkaupshækkun.
Akstur um hringveginn:
Bensínkostnaður 67 þúsund
þar af 36 þúsund í ríkissjóð
VERÐ á bensínlitra er nú kr. 481
eftir síðustu hækkun nú fyrir
mánaðamótin. Af þeirri uppha'ð
renna kr. 256,73 til rikisins sem
er tollur, vegagjald og söluskatt-
ur, en 224,27 til olíufélaganna
sem er innkaupsverð, flutningur,
dreifing, vátrygging o.fl. Hlutur
ríkisins í bensínverði er því
53,4%.
Dæmi um bensínkostnað bíls er
ekur allan hringveginn, um 1400
km, og eyðir 10 I á hundraðið er
67.340 kr. Þar af renna 35.960 til
ríkissjóðs og 31.380 til olíufélag-
anna. Segja má því að það kosti
rúmar 31 þúsund krónur í bensíni
að aka hringveginn og um 36
þúsund til viðbótar í skattheimtu,
m.a. fyrir að fá að aka um
þjóðvegina, en hluti þessarar upp-
hæðar rennur til vegagerðar.
Sovéskar
æfingar á
Noregshafi
SAMKVÆMT frétt i Daily Tele-
graph eru Sovétmenn um það bil
að hefja meiri háttar flota- og
flugheræfingu á Noregshafi. Ber
blaðið fyrir sig tilkynningu yfir-
stjórnar norska hersins sl. sunnu-
dag.
Samkvæmt henni eru nú fjögur
eða fimm sovésk herskip, þar á
meðal flugvélamóðurskip, á haf-
svæðinu milli Skotlands og íslands.
I flotadeild, sem siglir úr norðri er
beitiskip búið þyrlum, sem og
tundurspillar og birgðaskip. Talið
er að um 20 sovésk skip taki þátt í
æfingunni.
Fyrir nokkrum vikum skýrði Mbl.
frá því að sovésk herskip hefðu
safnast saman milli íslands og
Skotlands, og var þá talið að um
venjubundnar voræfingar sovéska
flotans væri að ræða. Virðist því
sem hér sé um óvenjubundna æf-
ingu að ræða.