Morgunblaðið - 25.07.1980, Page 5

Morgunblaðið - 25.07.1980, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ1980 5 Nýlokið er rannsókn á fornum silfurmun- um í eigu íslendinga „ÞAÐ var árið 1976, að Ole Villum- sen Krog hefur samhand við mitt ve«na þess að hann var þá að vinna að nýrri útgáfu af bókinni. „Danske sölv mærker,“ eftir C.A. Beje ojí spurðist fyrir um danska silfurmuni hér á landi,“ sanði Þór Matrnússon. þjóðminjavörður, á blaðamannafundi sem haldinn var 1 tilefni þess. að um þessar mundir er að ljúka rannsókn á fornum silfurmunum i eigu kirkna ok einstaklinga hér á landi. Auk Ole hafa InKa Lára Baldvinsdóttir, Liija Árnadóttir ásamt fleirum unnið að þessum rannsóknum. Sumarið 1977 kom Ole hingað tii lands og þá hófst skrásetning danskra silfurgripa. Okkur fannst tilvalið að reyna að skrásetja ís- lenska muni um leið og hafa af því tilefni aliar kirkjur hér á landi verið Þór Magnússon heldur hér á bókinni „Danske sölv mærker“ en i henni er getið um fjölda islenskra silfursmiða. en bók þessi inniheldur nær öll höfund- armerki o.fl. silfursmiða sem störfuðu i Danmörku fyrr á árum. heimsóttar og silfurgripir þeirra skráðir, myndaðir og gert við þá sem viðgerð hafa þurft með,“ sagði Þór einnig. Þá sagði hann að töluvert leynist af silfurmunum hér á landi, miklu meira en marga renndi grun í og menn gerðu sér almennt grein fyrir. Sagði Þór að töluvert hefði verið um það að ísiendingar lærðu gull- og silfur- smíði í Kaupmannahöfn, og reyndar víðar, og hefðu menn ýmist komið upp aftur og sest að sínu búi og smíðað í hjáverkum, en einnig ílendst í Höfn og getið sér góðan orðstír þar. Nefndi hann sem dæmi Sigurð Þorsteinsson, sem hann sagði hafa verið í fremstu röð gull- og silfursmiða á átjándu öld í Kaupmannahöfn. Eftir hann eru m.a. kaleikurinn í Dómkirkjunni í Reykjavík, auk þess sem hann smíðaði einnig kaleikinn sem var notaður í Viðeyjarkirkju, en er nú í vörslu Þjóðminjasafnsins. Skýringuna á mikilli silfurmuna- eign landsmanna taldi Þór m.a. vera þá, að Islendingar hefðu komist hjá söfnun, sem átti sér stað á síðustu öld, á silfur- og gulimunum, vegna gjaldþrots danska ríkisins. Þá sagði hann silfursmíði hafa verið í nær hverri sveit og landsmenn hafi lagt hart að sér til þess að geta eignast slíkan grip. Þór sagði að mönnum hætti oft til að týna gómlum og verðmætum silfurgripum þegar kirkjunum væru gefnir nýir og hætt væri að nota þá gömlu. Að lokum gat Þór Magnússon þess að í ráði væri að setja upp sýningu á þeim verkum Sigurðar Þorsteinssonar, sem hér á landi væru, næsta vetur, og einnig mynd- um af nokkrum verka hans sem væru erlendis. Alls munu hafa verið skráðir munir eftir um eitt þúsund smiði í rannsókn þessari, sagði Lilja Árna- dóttir á blaðamannafundinum. Hún taldi einnig að töluvert væri af óskráðum munum í einkaeign og væri það mikill fengur fyrir Þjóð- minjasafnið að fá að vita um slíka muni. ísafjörður og Bolungarvík: Helgarskákmót dagana 8.—10. ágúst nk. í sumar gangast Tímaritið Skák og Skáksamband ís- lands fyrir helgarskákmótum víða um land. Næsta Helg- arskákmót fer fram á ísafirði og í Bolungarvik og verður haldið dagana 8.—10. ágúst n.k. Skákmót þetta er haldið i samvinnu við bæjarfélögin i Bolungarvík og á ísafirði. Flestir okkar snjöllustu skákmeistara verða meðal þátttakenda og má þar nefna Friðrik Ólafsson, Helga Ólafsson, Jón L. Árnason, Margeir Pétursson, Jóhann Hjartarson, Guðmund Ágústs- son o.fl. Vegleg verðlaun verða í boði, 1. verðlaun eru 300 þúsund kr., 2. verðlaun eru 200 þúsund kr. og 3. verðlaun 100 þúsund kr. Þá eru sérstök kvennaverðlaun í boði, verði þrjár konur með, en verðlaun- in eru 50 þúsund kr. Sá unglingur, yngri en 14 ára, sem bestum árangri nær fær að launum fría skólavist á Skákskólanum að Kirkjubæj- arklaustri næsta sumar. Finnbogi Eyjólfsson deildarstjóri í varahlutadeild Ileklu h.f. Finnbogi Eyjólfsson í Heklu: Við réttan verðsamanburð erum við ekki hræddir MORGUNBLAÐIÐ birti í gær viðtal við Kristján Sigur- páisson, verslunareiganda i Varmahlíð sem hefur sérhæft sig í að flytja milliliðalaust inn varahluti í Land-Rover. í viðtalinu kemur fram. að i mörgum tilfellum er Kristján með talsvert lægra verð en umboðið í Reykjavík og af því tilefni sneri Morgunblaðið sér til Finnboga Eyjólfssonar, deildarstjóra í Heildverslun- inni Heklu og spurðist fyrir um hvaða skýringar væru á þessum verðmun. „Mér finnst það lofsvert þegar ungir menn leita eftir möguleikum á markaðnum og við í Heklu höfum alltaf verið fylgjandi samkeppni, við höf- um bæði talið hana nauðsyn- lega og eðlilega. Varðandi spurninguna um verðmismun verður að hafa í huga, að þegar bera á saman verð á einstökum hlutum verður að taka tillit til margra þátta, sem oft liggja ekki í augum uppi en skýra margt og eru nauðsynlegur fyrirvari á því hvað að baki liggur." Innflutningstími sá sami „Það fyrsta sem hafa ber í huga, er á hvaða tíma hlutur- inn var fluttur inn. Það skiptir höfuðmáli að vita þetta, sér- staklega í þjóðfélagi eins og okkar, þar sem verðhækkanir eru gífurlegar. Frá áramótum hafa varahlutir t.d. hækkað mjög mikið hérlendis sem marka má m.a. af því, að Bandaríkjadollar hefur hækk- að um 54% frá áramótum. Að bera saman verð án þess að taka tillit til þessa er því markleysa." Hvers virði er hluturinn „I öðru lagi þá er ekki verið að bera saman mun á gæðum. Það er oft mikill gæðamunur á vöru sem er annars vegar framleidd undir merki umboðs og er því frumsmíð og hins vegar vöru, sem er eftirlíking af frumsmíðinni og framleidd af hinum og þessum. Reynslan hefur sýnt okkur, að vörur sem framleiddar eru undir merki umboðs, í þessu tilfelli Ley- land, eru að miklum mun vandaðri og öruggari vara. Með eftirlíkingar eins og t.d. Kristján verslar með, er engin vissa um gæðin þrátt fyrir að það sé að sjálfsögðu engan veginn algilt að eftirlíkingarn- ar séu slæmar. Menn geta því oft staðið uppi með varahlut, sem er ef til vill ódýrari ut úr búð en hefur skemmri endingartíma og verður því dýrari í reynd." Ábyrgð á gölluðum hlutum „Þriðja atriðið sem taka verður tillit til er ábyrgðin, sem framleiðendur frumsmíð- ar bera. Verksmiðjan bætir mönnum galla sem upp kunna að koma, án athugasemda og skilyrða, um ákveðinn tíma eða ekinn kílómetrafjölda. Því miður virðast framleiðendur eftirlíkinga oft bera mjög tak- markaða ábyrgð á verksmið- jugöllum, sem kemur því fyrst og fremst viðskiptavininum í koll. I þessu tilfelli er að sjálfsögðu einungis verið að tala um ábyrgð framleiðenda, en eftir stendur ábyrgð selj- enda. Þjónusta og skyldur „Fjórða atriðið sem gleymist þegar bera á saman slík verð, er það þjónustu-hlutverk sem umboðin gegna. Þau verða af siðferðilegum og samnings- bundnum skyldum að hafa ákveðinn skyldulager, sem oft eru dýrar ^örur með dræma sölu. Þessar vörur verðum við að liggja með, sem kostar okkur mikið við háa vexti og vaxandi verðbólgu. Þeir sem versla með eftirlíkingar þurfa ekki að liggja með slíkan skyldulager, þeir versla með hluti sem seljast vel og kaupa þá inn þegar þeim hentar, án neinnar skyldu við viðskipta- vini. Við rekum einnig fullkomið dreifingarkerfi út um allt land, sem tryggir að þeir sem versla við þessa umboðsaðila njóta sams konar kjara og viðskiptavinir umboðsins í Reykjaík." „Þegar bera á saman verð verður að hafa þessi fjögur atriði í huga og við þann samanburð erum við ekkert hræddir. Ég hef ekkert á móti því að menn versli og flytji inn eftirlíkingar en ég vil að fólk viti að hveru það gangi. Það verður því að vega og meta þessa kosti eftir eigin sann- færingu. ÞARFTU AÐ KAUPA? ÆTLARÐU AÐ SELJA? M AK.LYSIR l'M ALLT LAM) ÞK(.AR M AMiLYSIR I MORGINBLADIM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.