Morgunblaðið - 25.07.1980, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 25.07.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1980 23 Að loknu sjóralli 1980 LjÓKmynd ÓI.K.M. Með bikar i hönd og bros á vör sitja sÍKurveKararnir í B-flokki Sjórails 1980 á fleytunni Injfu 06, sem bar þá til sigurs í hringferðinni umhverfis landið. Vel afslappaðir láta þeir andlega o« likamlegu þreytu iiða úr sér. Þeir eru frá vinstri: ólafur Skagvik ok Bjarni Sveinsson. Ék laifði fyrir þá fclana örfáar spurningar. „Þið sigruðuð einnÍK i fyrra?“ „Já, á samskonar báti. Það er 22 feta Flugfiskur. en þó með stærri vél nú“. »Var þetta erfið ferð?“ „Nei, hún var auðveld miðað við það sem hún líetur verið. Það eiifum við veðursældinni að þakka, sem var einstök". „Iiafið þið hug á að keppa að ári?“ „Það máttu bóka“, svarar Óli um hæl. En Bjarni aftur á móti: „Nei. aidrei“. En bætir svo við: „Aldrei að segja aldrei“, og glottir. „Hvað er ykkur efst í huga að lokinni hringferðinni?“ „Fyrst og siðast hjálpsemin og gestrisnin hvar sem komið var. Að auki er okkur ofarlega í huga sérlega góður mórall og keppnisandi meðal keppendanna, allir boðnir og búnir að hjálpa hverjir öðrum, eftir því sem aðstæður leyfðu hverju sinni“. „Óli, þú hefur haft sérstakt orð á þér fyrir að vera laus við allt stress í þessari oft svo hörðu og miskunnarlausu keppni“. „Já“. svarar ÓH. „Allt stress er orkutap. það er ekki nóg að báturinn hafi orku. við þurfum að hafa hana líka. og megum þar af leiðandi ekki sóa henni að óþörfu“. „Er það satt að þegar það fréttist á Akureyri. að þú værir á leið í laugina þar.hafi einhver. sem hafði fylgst með sálarró þinni. varað þig við að synda baksund. svo þú sofnaðir ekki í lauginni?“ „Já“, svarar óli og brosir. „Ég tók aðvörunina fullkomlega til greina, og þakkaði ábendinguna. Eins og þú sérð er ég lifandi". Þótt óli eigi gott með að sofna þegar hann þarf á að halda. þá er vist að hann sefur ekki þegar hann stefnir Ingunni til hafs. Akureyri — Siglufjörður Rásmerki á Akureyri var gefið föstudaginn 11. kl. 14:00. í þetta sinn tóku hinir harðsnúnu ísfirð- ingar forustu á Gusti, slíku höfðu sigurvegararnir frá í fyrra ekki átt að venjast, þeir Bjarni og Ólafur Skagvík á Ingunni. Létu þeir brún- ir síga og bitu á jaxlinn. Á um það bil miðri leið til Siglufjarðar dró allt í einu af Gusti og missti hann ferð, Inga þaut frammúr og kom fyrst til Siglufjarðar. Annar var Spörri og þriðji Gáski. Af Gusti er það að segja að enn brotnar vél í honum, en þeir ísfirðingarnir kom- ust þó inn á Dalvík, þar sem annarsstaðar voru hjálpsamar hendur óg góður vilji til góðra verka og léttu þeim ísfirðingunum Daða og Einari Val erfiðið. Daði átti varavél heima á Isafirði, fékk hana senda með flugvél. Skipt var um vél á mettíma og enn héldu þeir ísfirðingar af stað eins og ekkert hafi í skorist og inn til Siglufjarðar. Komu þeir þangað hressir og kátir að vanda. Á Siglufirði hafði keppinauturinn Inga beðið frétta af bilun Gusts. Er þeir fengu það staðfest hvað bilun Gusts var alvarleg, héldu þeir af stað frá Siglufirði í humatt á eftir bátunum tveimur í A-flokki, sem ræstir voru nokkru áður og höfðu tekið stefnu á ísafjörð. Stig er Siglufjarðarhöfn var náð. A- 6 flokkur nr. 1 Spörri 05 10 stig, samtals 74 stig. Nr. 2 Gáski 04 7 stig, samtals 62 stig. B-flokkur nr. 1 Inga 06 10 stig, samtals 77 stig. Nr. 2 Gustur 02 7 stig, samtals 57 stig. Siglufjörður — Isafjörður Leggurinn Siglufjörður — Isa- fjörður veittist öllum keppendum auðveldur, engar bilanir eða önnur óhöpp, spegilsléttur sjór og birta góð. Fyrstur til ísafjarðar kom Spörri „litli“ 05, annar Inga 06 og þriðji Gáski 04. Svo daginn eftir um hádegisbil kom Gustur til heimahafnar, sem er Isafjörður. Stig er til ísafjarðar kom. A-flokk- ur nr. 1 Spörri 05 10 stig, samtals 84 stig. Nr. 2 Gáski 04 7 stig, samtals 69 stig. B-flokkur nr. 1 Inga 06 10 stig, samtals 88 stig. Nr. 2 Gustur 02 7 stig, samtals 64 stig. r Isafjörður — Ólafsvík Leiðin til Reykjavíkur er nú farin að styttast aðeins tveir leggir eftir af 11. Meiningin var að ræsa bátana kl. 10 fyrir hádegi, laugar- Fremst á myndinni siglir Spörri frá Grundarfirði upp að bryggju í Reykjavik. sem sigurvegari í A-flokki Sjóralls 1980 umhverfis landið. Hann er aðeins 18 fet á lengd og áhöfnin ung að árum. Magnús Soffaníasson. sem er eigandi bátsins. aðeins 19 ára gamall. og Þriistur Líndal. 21 ára. stendur utan á Spörra. Kg spurði Magnús hvort margt hafi komið honum að óvörum í hans fyrstu hringferð umhverfis landið. „Nei. ég held alls ekki neitt. nema kannski Dyrhólaeyjagatið.” — Ilefur þii hug á að keppa aftur að ári? „Já. ég hef það.“ — llvað er þér minnisstæðast? „()I1 hjálpsemin og allt þetta góða fólk. svo og þessi mikli áhugi sem alls staðar virðist vera fyrir hendi." — Fannst þér ekki 18 feta háturinn of lítill? ...lú. helst til stuttur. stærri bátur væri þægilegri. þó þarf ég ekki að kvarta undan krílinu. hann stóð sig með sóma." Já. hann stiið sig með sóma. rétt eins og ungu mennirnir á Spörra. Þeir vöktu athvgli fyrir yfiriætisleysi. prúðmennsku í allri framgongu. fyrir dugnað og seiglu. Þeir voru sér og sínu byggðarlagi. Grundarfirði. til soma' l.jiiMnynd: Ól. K.M. Ingan 06 frá Vestmannaeyjum kemur hér fyrstur háta sem sigurvegari í B-flokki upp að bryggju í Reykjavík að loknu sjóralli umhverfis landið 1980. Fast í kjölfar hans kemur hinn harði keppinautur. Gustur. frá ísafirði. I.josmynd: Oi. k.M. augum, aðeins vestur fyrir nesið og bæjarlækurinn Faxaflói ófarinn. Bátarnir ræstir kl. 15:15. Veður stillt og flóinn sem spegill. Fyrstur í höfn í Reykjavík, sigurvegari í B-flokki Ingan frá Vestmannaeyj- um, annar Gustur frá ísafirði, þriðji Spörri frá Grundarfirði, fjórði Gáski frá Hafnarfirði. Loka- stig eftir keppnina: A-flokkur Nr. 1 Spörri 05 10 stig, samtals 104 stig. Nr. 2 Gáski 04 7 stig, samtals 83 stig. B-flokkur nr. 1 Inga 06 10 stig, samtals 108 stig. Nr. 2 Gustur 02 7 stig, samtals 78 stig.Nr. 3 Lára 03 0 stig, samtals 22 stig. Nú eftir að þessu sjóralli 1980 umhverfis land- ið er lokið og horft er til baka, kemur margt upp í hugann, margt sem vert væri að minnast á en yrði of langt mál. Þó eru það nokkrir þættir, sem ég kemst ekki hjá að nefna og þakka, svo sem að allir keppendur komu heilir til baka heilir á líkama og sál. Allir góðir menn, vaxa með vandanum, trú mín er að einmitt þátttaka í þessari keppni gefi mönnum tæki- færi til þess. Heyrt hef ég þraut- reyndan sjómann segja að lokinni þátttöku í þessari keppni. „Þetta var góður skóli.“ Ég tek undir þau orð af heilum huga. Ég hef horft á menn yfirstíga ótrúlega örðug- leika, af slíku kappi og sálarþreki að ég hef undrast. Eftirminnilegt hlýtur að vera öllum þátttakend- um og aðstandendum keppninnar öll sú hjálpsemi ósérhlífni og velvilji sem F.R. menn og fleiri góðir menn í hundraðatali sýndu víðsvegar um landið. Þessir menn léttu keppendunum siglinguna og hjálpuðu við erfiðar viðgerðir hvar og hvenær sólarhringsins sem var, þeir lögðu í mörgum tilvikum nótt við dag til hjálpar. Þeir gerðu það ekki til að teygja sig í pyngju þeirra er hjálpar þurftu hverju sinni, heldur af heilum huga. Guði sé lof að enn á þjóðin góða drengi, sem búa yfir sjálfsvirðingu. Bátar eftir HAFSTEIN SVEINSSON Síöari grein daginn 12. en þar sem svört þoka lá yfir öllum Vestfjörðunum, (þar af leiðandi ekki skilyrði til kvik- myndatöku), var ákveðið að fresta brottför fram yfir hádegi, og sjá til hvort ekki birti upp. Enn lenda Daði og Einar Valur í erfiðleikum. Áður en rásmerkið er gefið, kemur í ljós að ekki er allt með felldu í vél Gusts, við nánari athugun finnst sprunga í heddi og ekkert passandi til staðar, nú er úr vöndu að ráða, þar sem Daði, Einar Valur og Gustur voru í heimahöfn, og fyrir- sjáanlegt að Inga bæri sigur úr bítum í keppninni. Ég hygg að fæstir hefðu legið þeim á hálsi þó þeir hefðu nú hætt keppni í bæjardyrunum. Það gerðu þeir ekki, það var ekki þeirra máti (að gefast upp). Hvað var nú til ráða? Ekki stóðu þeir Daði og Einar Valur einir og óstuddir fremur en fyrridaginn, að auki nú í heima- höfn. í Gusti var Chevrolet vél, og margir Chevrolet bílaeigendur á staðnum. Nú gerðist undrið, heill floti af Chevrolet bílum hrúgast á bryggjuna þar sem Gustur lá fyrir neðan í sjónum. Eigendur bílanna buðu Daða hver á eftir öðrum vélarnar að láni úr bílum sínum. Þetta er ekki gamansaga heldur staðreynd. Var nokkur furða þótt Daði og Einar Valur væru fullir af viljastyrk? Það næsta sem svo gerðist var að vél er rifin úr öðrum báti á staðnum og hún lánuð Daða. Allt tók þetta sinn tíma og tíminn leið, undir kvöld eru svo bátarnir í A-flokki þeir Gáski og Spörri ræstir, en keppinautur Gusts, Inga beið eftir að lánsvélin kæmist á sinn stað í Gusti. Klukkan að halla í tvö um nóttina var allt til reiðu að leggja í hann. Gustur og Inga ræstir um það leyti sem bátarnir úr A-flokki voru að lenda í Ólafs- vík. Gekk ferð allra bátanna mjög vel frá ísafirði til Ólafsvíkur. Fyrstur þar í höfn var Spörri, frá Grundarfirði, mikill mannfjöldi stóð á bryggjunni og fögnuðu köppunum innilega enda heima- höfn á Snæfellsnesi næstur kom svo Gáski, sem einnig var fagnað vel. Morguninn eftir það er sunnu- daginn 13. komu svo þeir Inga og Gustur til Ólafsvíkur. Röð og stig er til Ólafsvíkur var komið. A- flokkur nr. 1 Spörri 05 10 stig, samtals 94 stig. Nr. 2 Gáski 04 7 stig, samtals 76 stig. B-flokkur nr. 1 Inga 06 10 stig, samtals 98 stig. Nr. 2 Gustur 02 7 stig, samtals 71 stig. Ólafsvík — Reykjavík Nú var aðeins eftir að hleypa heimdraganum, sem engum óx í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.