Morgunblaðið - 25.07.1980, Síða 22

Morgunblaðið - 25.07.1980, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ1980 Sigríður Benediktsr dóttir - Minning Fædd 9. júlí 1896 Dáin 18. júlí 1980 (ÍH'fuhlomin kfAh um ljomi stræti alla daita æfinnar eflÍHt haKur farsældar. Mér finnst, er ég sest niður til að festa á blað og minnast föður- systur minnar nokkrum orðum, þá sé það vel við hæfi að hafa sem inngang að þeim framan ritaðar ljóðlínur, sem eru úr ljóðabréfi eftir föður hennar, Benedikt Stef- ánsson, til bróður síns, Guðmund- ar bónda og hagyrðings í Minni- Brekku í Fljótum. Benedikt mun hafa átt létt með að gera vísur en flíkaði því lítt og því sára lítið til eftir hann. Sigríður var fædd 9. júlí 1896. foreldrar hennar voru hjónin Benedikt Stefánsson, béndi í Neðra-Haganesi, Sigurðssonar, fyrrum bónda að Ytri-Mælifellsá og síðar bónda að Minni-Brekku. Móðir Sigríðar var Ingibjörg Pét- ursdóttir Jónssonar, bónda á Sléttu í Fljótum. Átta af börnum þeirra Ingibjargar og Benedikts komust til fullorðinsára og nú þegar Sigróður kveður er allur systkinahópurinn genginn á bak móðunnar miklu á fund feðra sinna. Uppvaxtar- og ævikjör Sigríðar voru að mestu áþekk því sem allur þorri aldamótaæskunnar átti við að búa. Þegar Sigríður er tveggja og hálfs árs verða hún og heimilið fyrir því mikla áfalli að missa heimilisföðurinn frá stórum b ípi í hina votu gröf sjávar- ir. ann ásamt fimm sveitung- um sínum fóru í kaupstaðarferð á opnum árabáti um hávetur frá Haganesvík til Hofsóss til að sækja björg í bú, en sá fengur kom aldrei að landi en miklu fórnað að missa þar sex vaska menn á góðum aldri. Þess háttar ferðir voru ekki óalgengar á þeim tíma og á slíkum farkostum þvi ekki voru bílarnir til að skjótast á til næsta kaupstaðar. Konan Ingi- björg Pétursdóttir var hugumstór og kjarkmikil og hélt áfram bú- skap næstu tvö árin með börnum sínum. Árið 1901 bregður hún búi og skilja þá leiðir barna og móður SVAR M/TT EFTIR BILLY GRAHAM Hippar eru nú fáir, en eg er hippi. Það þýðir, að eg trúi á frelsi einstaklingins til þess að vera hann sjálfur. Eg skil ekki, hvers vegna þetta lifsviðhorf stendur i fólki. Eg hef jafnvel heyrt yður gera athugasemdir við okkur hippa. Getið þér ekki mæit með frelsi manna til að vera þeir sjálfir? Kristur boðaði frelsi öllum öðrum fremur. Hann sagði: „Þér munið þekkja sannleikann, og sannleikur- inn mun gjöra yður frjálsa". Hann fór sjálfur eigin götur. Hann áleit, að fólk ætti að vera það sjálft, ekki strengjabrúður. En það er hættulegt að njóta frelsis, því að sú ábyrgð fylgir því að velja rétt og taka réttar ákvarðanir. Tökum dæmi. Fallhlífastökk er stórfengleg íþrótt, og menn eru frjálsir að stökkva, ef þeir vilja. En það væri fávíslegt að henda sér út, ef ekki væri gengið úr skugga um, að allt væri með felldu. Það væri heimskulegt að stökkva án fallhlífar. Það er ekki langt síðan við lásum í fréttum, að nokkrir menn hefðu farizt, af því að þeir virtu ekki reglur um flug. Bæði karlar og konur biðu bana af þessum sökum. Hippi má lifa eins og hann lystir, eins og allir menn. En hvers konar frelsi fylgir ábyrgð, og meira en það: Það er tengt lögmáli umbunar og endurgjalds. Enginn okkar er frjáls að því að lifa við óheilnæmar aðstæður sem nágrönnum okkar getur stafað hætta af. Enginn er frjáls að því að traðka á landslögum, hafa illt fyrir börnum okkar, brjóta siðgæðislögmal Guðs — nema hann taki afleiðingun- um. + Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu við fráfall og útför fööur okkar, tengdafööur og afa. GUÐMUNDAR PÁLSSONAR, Hraunbraut 37, Kópavogi. Pólhildur Guómundsdóttir, Jón Ingi Júlíusson, Jóhann Guómundsson, Léra Vigfúsdóttir, Anton Guömundsson, Arnheiöur Jónsdóttir, Siguróur Guömundsson, Ingibjörg Árnadóttir, Erla Guómundsdóttir, Leo Hoffman, Engilráö Guömundsdóttir, Gene Felegy, og barnabörn. að nokkru leyti. Það sama vor hefja þá búskap í Neðra-Haganesi hjónin Guðmundur Halldórsson og Aðalbjörg Pétursdóttir, systir Ingibjargar, og ræðst það svo að Sigríður fer til móðursystur sinn- ar og manns hennar og elst þar upp framundir tvítugsaldur í skjóli þeirra ágætu hjóna. Minnt- ist hún þeirra ætíð með virðingu og ljúfum minningum sem fóst- urforeldra sinna og leit á börn þeirra sem systkini sín og talaði um þau sem slík. Næst lá leið Sigríðar að stórbýlinu Tungu í Stíflu og vann hún því heimili í mörg ár, fyr^t sem heils árs manneskja en síðan á sumrum, en á vetrum var hún í Reykjavík við fatasaum. Upp úr 1941 flytur hún alfarin til Siglufjarðar og var lengst af í þjónustu þess fyrirtækis sem Kjötbúð Siglufjarðar hét, eða fram til 1964 að hún flytur til Reykjavíkur og síðustu tæp þrjú árin hefur hún verið í skjóli systurdóttur sinnar, Sigríðar A. Jónsdóttur, forstöðukonu á Hrafn- istu í Hafnarfirði. Þetta er í fáum orðum lífshlaup og ytri rammi á vinnu- og dvalarstöðum Sigríðar Benediktsdóttur, en segir í raun alveg sára lítið hver hún var. Sigríður Benediktsdóttir var með afbrigðum verklagin, forkur til starfa, þrifin, stjórn- og sam- viskusöm og því eftirsóttur vinnu- kraftur. Ég sem barn, er ólst upp við hlið hennar, þótti stundum nóg um stjórnsemi hennar á okkur krökkunum. Hún vildi hafa allt í röð og reglu og að við rifum ekki föt eða óhreinkuðum að þarflausu, en trúlega hafa þessir eiginleikar ekki verið aðalsmerki á mér ef kapp hljóp í kinn hvort heldur það hefur verið þarft eða þarflaust sem gert var. Ekki var laust við, svona í aðra röndina, eftir að Sigríður var að heiman á vetrum að kvíði færi um mig er vora tók og komu hennar og stjórnunar að vænta. Á hinn bóginn var einnig tilhlökkun og eftirvænting við komu hennar, því vitað var að hún kæmi ekki tómhent úr borginni, því það var hennar yndi og hálfa líf að gefa og gleðja aðra. Já, svona er barnshugsunin ekki allt- af reist á hinu raunsæja. Þó Sigríður festi ekki ráð sitt, sem kallað er, eða eignaðist afkomend- ur, þá átti hún fjölda barna sem þurfti að gleðja og hugsa um og ekki var örgrannt að henni fyndist sem hún bæri ábyrgð og skyldur til sumra þeirra. Er mér þá efst í huga heimili fóstursystur minnar sem hún bar mjög fyrir brjósti og einn son hennar leit Sigríður á sem fósturson sinn, og veit ég að góður hugur og kveðjur fylgja henni að leiðarlokum frá þessari fjölskyldu, sem og raunar frá öllum sem hana þekktu. Sigríður var aldrei auðug að hinu forgengilega, en þeim mun ríkari að því sem mölur og ryð fá ei grandað og það var hjartahlýj- an. Ég tel að ljóðlínur þær, sem vitnað er í hér að framan eftir föður hennar, þó að vísu séu ekki kveðnar til hennar persónulega, geti þær átt við hana. Hún var gæfublóm á margan hátt og henn- ar lífsfylling og farsæld var að gleðja aðra og tengja vináttubönd hvar sem leiðir hennar lágu. Sigríður hafði yndi af lestri góðra bóka og stytti sér stundir með því er tóm gafst frá hinu hversdagslega striti. Hun hafði sjálfstæðar skoðanir á málefnum og duldi þær ekki fyrir neinum ef svo bar undir og sagði þær um- búðalaust og á skíru máli. Hún var hreinskiptin og laus við allt sem kalla má áreitni enda mun hún ekki hafa eignast neinn óvildar- mann á lífsleiðinni, en vinahópur- inn var því stærri og þess bar heimili hennar gott vitni. Þar voru mörg andlitin af ættar- og vina- hópnum sem hún naut að hafa í kringum sig og hún hugsaði til og horfði á. Og nú þegar hið jarð- neska lífsskeið er á enda og hún flytur til ókunnra stranda, efast ég ekki um að margur verður til að styðja hana og Btyrkja og greiða hennar götu á framandi braut. Um leið og ég þakka langa sam- fylgd bið ég henni guðs blessunar í nútíð og framtíð. Guðmundur Jóhannsson. Aðalheiður Björns- dóttir - Minning Fædd 20. september 1930. Dáin 16. júli 1980. Miðvikudaginn 16. júlí lést vin- kona mín, Aðalheiður Björnsdótt- ir, eftir langa og erfiða sjúkralegu. Mikil var reisn hennar allan þann tima, enda duldist engum sem kynntist henni að þar fór skap- mikil og dugleg kona sem ekki lét bugast. Álla, eins og hún var kölluð á milli vina, var fríð og hreinskilin, ákveðin í skoðunum, ætíð mjög glaðvær og öðrum góð. Samúðin var rík í hjarta hennar, og gat hún oft miðlað öðrum af þeim mann- kostum sínum. Ég var svo lánsöm að kynnast henni og tókst með okkur góð vinátta, um það leyti er hún fluttist í Stóragerði 3. Þar bjó hún manni sínum og börnum fagurt heimili og ber það henni gott vitni. Oft voru þar glaðir dagar með þeim hjónum. Alla var kona lífs- ins og vildi njóta þess alla tíð, hugrökk og áhugasöm. Hún starf- aði einnig utan heimilisins, lengst af í Mæðrabúðinni og síðast í Skóbúð Steinars Waage. Mikill harmur er nú kveðinn að við fráfall hennar, og stórt skarð í Þorsteinn Helgason Fæddur 13. mai 1913. Dáinn 11. júlí 1980. Hann afi er dáinn, hann er horfinn frá okkur svo skyndilega, okkur sem þótti svo vænt um hann, eins og öllum hinum barna- börnunum. En af sérstökum ástæðum höfðum við bræðurnir meira samband við hann en hin barnábörnin. Hann var svo góður við okkur bræðurna, svo glaður og skilnings- ríkur, þótt við værum oft sem önnur börn erfiðir á köflum þegar við vorum litlir. Við getum sagt með sanni að betri afi var ekki til, og eins og mamma hefur sagt, betri föður gæti enginn átt. Hvernig sem á stóð var hann alltaf svo rólegur, góður og ástrík- ur og allir munu kveðja hann með miklum söknuði og miklu þakk- læti. Yngri bróðirinn minnist sér- staklega ferðarinnar um Vestfirði fyrir 2 vikum sem aldrei mun gleymast og þakkar afa sínum þessa gleðiríku ferð þar sem afi var svo glaður og góður sem áður. Við viljum með þessum línum þakka afa okkar alla þá miklu hennar vinahópi. En við minn- umst hennar sem þróttmikillar konu. Ég votta Sigga og börnunum þeirra fimm, svo og tengdabörn- um, barnabörnum og öðrum ætt- ingjum mína dýpstu samúð. Hafi hún þökk fyrir allt, og hvíli í friði. Björg. Axel - Minning blíðu og vinsemd sem hann veitti okkur bræðrum og við vitum að við mælum fyrir munn hinna barnabarnanna og biðjum góðan guð að veita honum góða heim- komu á nýja staðinn. Guð blessi minningu hans. Með hinztu kveðju, bræðurnir Steini og Þorsteinn Gunnar. Faðir okkar, SVEINN ÞORSTEINSSON, Eyrarvegi 9, Akureyri, sem lést aðfaranótt 19. Júlí, verður jarðsunginn frá Akureyrar- kirkju, þriöjudaginn 29. júlí kl. 13.30. Ejfíkur Swejn.,on Þóra Sveinsdóttir, Björn Sveinsson. Fósturfaöir minn, OLAFUR GUOMUNDSSON, foratjóri, Hnífsdalsvegi 27, ísatirói, veröur jarösunginn frá fsafjaröarkirkju laugardaglnn 26. júlí kl. 2 e.h. Fyrfr mína hönd, barna mlnna, systra hlns látna og sambýliskonu hans- Gestur Halldórsson. t Okkar Innilegustu þakkir fyrlr auösýnda samúö og vinarhug vlö andlát og útför móöur okkar og tengdamóöur minnar, KRISTÍNAR G. BJÖRNSDÓTTUR. Fyrir hönd fjarstaddrar dóttur, barna- og barnabarna. Elísa M. Kwaszenko Björn Magnússon, Svanhvít Gunnarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.