Morgunblaðið - 25.07.1980, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ1980
M
Mörg og stór verkefni
framundan hjá lands-
liðinu í handknattleik
STJÓRN Handknattleikssambands íslands boðaði til blaðamanna-
fundar í fyrrakvold ox útskýrði þá afstöðu sína KaKnvart þeim
blaðaskrifum. sem orðið hafa eftir að fráfarandi landsliðsþjálfari.
Jóhann In«i Gunnarsson. boðaði til blaðamannafundar fyrir skömmu.
Formaður HSÍ. Július Hafstein. harmaði það á fundinum. að óþarfa
leiðindaskrif skyldu þurfa að koma i kjölfar þessa máls. Jafnframt
harmaði Júlíus. að Jóhann In«i skyldi ekki sjá sér fært að biða i eina
viku með að halda sameÍKÍnlegan hlaðamannafund i stað þess að gefa
út einhliða yfirlýsingu á samningum sinum við Handknattleikssam-
bandið.
Formaður HSÍ skýrði frá því á
fundinum, að kröfur Jóhanns
hefðu verið það háar að ekki hefði
verið hægt að ganga að þeim fyrir
samband eins og HSÍ, sem á í
miklum fjárhagserfiðleikum.
Fyrstu kröfur Jóhanns til HSÍ
námu 15 milljónum króna á árs-
grundvelli. Síðan var reynt að fara
milliveg og Jóhanni Inga voru
síðan boðnar 710 þúsund krónur á
mánuði og fullar verðbætur á
laun, en hann hafnaði því tilboði.
Síðar kom í ljós, að fráfarandi
stjórn vildi ekki hafa upphæð
þessa svo háa, en það voru þeir
Júlíus Hafstein og Gunnar Torfa-
son, sem áttu í samningaviðræð-
um við Jóhann Inga. Júlíus gat
þess á fundinum, að sá munnlegi
samningur, sem Jóhann talaði um,
hafði verið gerður með þeim
fyrirvara að stjórn HSÍ samþykkti
hann. Svo varð ekki enda kom það
ekki að sök þar sem Jóhann hafði
hafnað þessu.
Nýkjörin stjórn HSÍ bauð síðan
Jóhanni 520 þúsund krónur á
mánuði í laun og umsjón með
A-landsliði. Skyldi Jóhann því
vera ráðinn í hlutastarf. Þetta gat
Jóhann ekki fallist á og sagði upp
störfum hjá sambandinu.
Júlíus sagðist harma það, að
ekki skyldu hafa náðst samningar
við Jóhann, hann hefði unnið gott
starf og stjórn HSÍ þakkar honum
samstarfið. Þess má geta, að
Jóhann fékk alltaf greitt sérstak-
lega fyrir fræðslustarf, sem hann
vann á vegum HSÍ og svo átti
einnig að vera ef hann hefði verið
ráðinn áfram. Það kom fram á
fundinum, að laun danska lands-
liðsþjálfarans í handknattleik
munu vera hin sömu og Jóhanni
Inga var boðið, og lætur nærri að
þau séu hin sömu og íþróttakenn-
ari í fullu starfi hefur í mánaðar-
laun. Þannig að Jóhann hefur svo
sannarlega gert miklar kröfur um
laun. Það munu hafa verið um
fjórar milljónir sem bar á milli til
þess að samningar næðust við
Jóhann.
Það kom fram hjá formanni
HSÍ, og reyndar Jóhanni lika, að
hann skilar íslandi í 11. sæti i
heiminum í dag handknattleiks-
lega séð. Þannig hefur staðan
verið um 10 ára skeið, sagði Júlíus,
og því ljóst, að við höfum ekki náð
betri árangri undir stjórn Jóhanns
en annarra þjálfara. HSÍ mun nú
ráða þjálfara í hlutastarf til þess
að hafa umsjón með A-landsiiðinu
og er stjórnin þegar farin að leita
fyrir sér með mann í það verkefni.
Mörg verkefni
framundan hjá
landsliðinu
Framundan eru mörg og stór
verkefni hjá landsliðinu i hand-
knattleik. Það stærsta er B-keppn-
in sem fram fer í lok febrúar á
næsta ári. Fram að þeim tíma eru
fyrirhugaðir 29 landsleikir og
flestir þeirra hér heima. Það
verður því í mörg horn að líta hjá
landsliðsmönnunum. Það kom
fram á fundinum, að þeir munu fá
greitt vinnutap og dagpeninga á
ferðum erlendis og hefur verið
gengið frá þeim samningum við
þá. Þá er það ákveðið, að þriggja
landa keppni fari hér fram í
nóvember árið 1981 með þátttöku
Norðmanna og Svisslendinga.
En lítum nánar á keppnisáætl-
un landsliðsins næsta
keppnistímabil:
— Norðurlandamótið í Hamar í
Noregi 22.-27. október, þar sem 5
leikir verða leiknir.
— V-Þjóðverjar koma til
Reykjavíkur og leika tvo lands-
leiki 14,—16. nóvember.
— Danir koma til íslands og
leika hér þrjá landsleiki 20,—22.
desember.
— Pólverjar koma til íslands og
leika hér þrjá landsleiki 2.-5.
janúar.
— Landsliðið fer í keppnis-
ferðalag til Danmerkur og
V-Þýskalands á tímabilinu 15.—
25. janúar og leika 4 landsleiki í
ferðinni.
— Frakkar koma til íslands í
lok janúar og leika hér 3 lands-
leiki.
— A-Þjóðverjar koma til ís-
lands um miðjan febrúar og leika
hér 3 landsleiki.
— B-keppni Heimsmeistara-
keppninnar í Frakklandi, þar sem
6 landsleikir verða leiknir.
Eins og sjá má á þessari upp-
talningu, verður mikið um að vera.
Þrjú lið í
Evrópukeppni
Það kom fram á fundinum, að
árið 1981 til 1982 munu þrjú
íslensk lið eiga þess kost að taka
þátt í Evrópumótum í handknatt-
leik, lið íslandsmeistara, bikar-
meistara og væntanlega það lið
sem hafnar í 2. sæti í 1. deildar
keppninni næsta tímabil. Jafn-
framt skýrði Júlíus frá því, að
hann hefði haft samband við
forráðamenn þýska liðsins
Leverkusen og munu þeir gera allt
sem þeir geta til þess að Viggó og
Sigurður Gunnarsson, sem leika
með liðinu, fái leyfi til landsleikja
sé þess óskað.
Czerwinski
vill koma
Janus Czerwinski lýsti sig fúsan
til þess að koma til íslands og
starfa hér í tvo mánuði fyrir
B-keppnina. Ég hitti Janus í
Moskvu er ég sat þar alþjóðaþing
handknattleikssambanda og það
fór vel á með okkur. Hann vill allt
fyrir okkur gera, sagði Júlíus.
- ÞR
SINDRAÆvSTÁLHE
Fyrirliggjandi í birgðastöð
ÁLPLÖTUR
Hálfhert efnl í þykktum
frá 0,80 mm — 6,00 mm
Plötustæröir 1200 mm x 2500 mm
Borgartúni31 sími 27222
• Handknattleiksmenn tá mörg verkefni á næsta keppnistímabili.
Stærsta afrek siðasta tímabil var afrek Valsmanna sem komust i
úrslit Evrópumeistarakeppninnar i handknattleik. Á myndinni hér að
ofan sjáum við Þorbjörn Jensson i úrslitaleiknum.
Ragnheiður setti
nýtt íslandsmet
„ÞAÐ LEIT ekki út fyrir að
Ragnheiður mundi setja ís-
landsmet er hún hafði hlaupið
fyrstu 400 metrana. þá hljóp hún
vægast sagt rólega. En þá tók
hún verulega við sér og hljóp
greitt það sem eftir var og hætti
metið um sekúndubrot. Hún get-
ur vafalaust stórbætt metið með
betur útfærðu hlaupi.“ sagði
Gunnar Páll Jóakimsson ÍR i
samtali við Mbl. i gær, en á móti
sem hann keppti i fyrrakvöld i
Köln keppti einnig Ragnheiður
Ólafsdóttir FH, og setti hún þá
nýtt íslandsmet í 1000 metra
hlaupi kvenna. Hljóp Ragnheiður
á 2:50.8 minútum og bætti eigið
íslandsmet um eitt sekúndubrot.
en gamla metið setti hún einnig i
Köln, að visu á síðasta ári.
Ragnheiður hefur litið keppt i
sumar þar sem smávægileg
meiðsl hafa hrjáð hana. Hún
hefur hins vegar haldið nokkurn
veginn sinu striki á æfingum og
bendir árangur hennar til þess
að hún eigi eftir að láta meir að
sér kveða seinna í sumar, en hún
hefur í hyggju að keppa mikið
ytra i næsta mánuði. — ágás.