Morgunblaðið - 25.07.1980, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 25.07.1980, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1980____________________________________ _______________________________________________________________________________________ ■ Fréttaskýring Fallvalt lýðræði í fátæku landi Umsátursástand hefur ríkt í Bóli- víu stðan herbylting var gerð í landinu á dögunum Við völd- unum hafa tekiö yfirmenn hinna þriggja greina heraflans, Luis Garcia Mesa hershöfðingi, yfir- maður landhersins, Waldo Bernal hershöföingi, yfirmaöur flughersins, og Ramiro Terretza aðmíráll, yfirmaöur sjóhersins. Fráfarandi forseti, frú Lidia Gu- elier, hefur verið í stofufangelsi og hefur samkvæmt óstaðfest- um fréttum reynt að fá hæli í Mext'kó eða einhverju öðru landi í Rómönsku Ameríku. Ýmsir ráöherrar og leiötogar vinstri flokka hafa einnig verið settir í stofuvarðhald. Lidia Guelier hefur undirritaö skjal, þar sem hún afsalar sér for- setaembættinu. Útvarpsstöð námuverkamanna í Miö-Bólivíu hefur hvatt til and- spyrnu og einangrunar bylt- ingarmanna í höfuöborginni, La Paz, frá öðrum stærri bæjum landsins. Stööin hefur einnig hvatt til allsherjarverkfalls, sem gæti hæglega leitt til borgara- stríös, þótt síðari fréttir hermi aö stjórnin hafi fest sig í sessi. Margir valdamiklir stjórnmála- menn og verkalýðsleiðtogar hafa veriö myrtir eða særzt samkvæmt óstaðfestum frétt- um frá La Paz. í þessu sam- bandi er aöallega minnzt á Juan Lechin, aöalritara verka- lýðssambandsins, og Simon Reyes, annan valdamikinn leiö- toga úr verkalýðshreyfingunni. Leiötogi bólivíska sósíalista- flokksins, Marcello Quroga, er sagöur hafa særzt í skotárás. Fallvalt lýðræði Landsmenn virðast ekki trúaöir á, aö nýju stjórninni takist að leysa alvarlega erfiöleika, sem viö er aö stríöa í efnahags- og stjórnmálum landsins. Bólivía hefur veriö sjálfstætt ríki í 155 ár, og á þeim tíma hafa 190 ríkisstjórnir setiö aö völdum í landinu. Þaö hafa, meö öörum oröum orðiö, stjórnarskipti næstum því tíunda hvern mán- uö í landinu síöan þaö hlaut sjálfstæöi. Átján ríkisst jórnir hafa veriö viö völd síðan 1952 og þar af hefur helmingurinn komizt til valda í herbyltingu. Landið hefur haft 16 stjórnar- skrár síöan 1825, en síöan 1966 hefur enginn forseti náö völdum í lýðræöislegum kosn- ingum. Ásakanir um kosn- ingasvik hafa komið fram viö allar kosningar, sem hafa veriö haldnar. Valdaskipti hafa aldrei farið friösamlega fram á síöari Lidia Guelier, frófarandi forseti, á kjörstaö í júní. árum, þaö er, þannig aö stjórn- arandstaöan hafi komizt til valda. Skýringarnar á hinu óstööuga ástandi í Bólivíu hafa jafnan veriö sagöar þær, að efnahags- vandi landsmanna sé gífurlegur og of margir stjórnmálaflokkar starfi í landinu, auk þess sem stjórnmálamönnum hafi ekki veriö lagiö aö komast aö sam- komulagi og semja um mála- miölanir. Ástandiö gæti einna helzt minnt á óþerettu, ef blóösúthellingarnar væru ekki eins miklar og byröar lands- manna eins þungar og raun ber vitni. Meöalævi í Bólivíu er styttri en annars staöar í Rómönsku Ameríku og meöallaun hvergi eins lítil í þessum heimshluta. Reynum að frumflytja ís- lenzk tónverk hvert sumar - segir Helga Ingólfsdóttir um Sumartónleika í Skálholti SJÖTTA sumarið í röð verða nú í Skálholti haldn- ir nokkrir sumartón- leikar. Verða þeir fyrstu um næstu helgi, 26. og 27. júlí og næstu þrjár helgar þar á eftir, þeir síðustu 16. og 17. ágúst. Helga Ing- ólfsdóttir semhalleikari átti frumkvæðið að þess- um sumartónleikum og hefur Manuela Wiesler flautuleikari lagt fram sinn skerf til móts við Helgu öll árin. Um þessar mundir eru æfingar fyrir fyrstu tón- leikana í hámarki, en ásamt Helgu leikur Ingvar • Jónasson víóluleikari. Flytja þau verk eftir Jón Ásgeirsson, Jónas Tómas- son, Reger, Corrette og J.S. Bach. Mbl. ræddi stuttlega við þau á æfingu nýverið: — Við Manuela höfum reynt að fá bæði hljóðfæraleikara og tón- skáld til að taka þátt í sumartón- leikunum og síðustu þrjú árin höfum við jafnan frumflutt eitt- hvert íslenzkt tónverk, segir Helga, — og nú höfum við fengið Ingvar Jónasson gagngert frá Malmö til að leika á sumartónleik- um. — Sumartónleikarnir hafa orðið tónskáldum mikil hvatning til að semja ný verk, segir Ingvar, — og hlýtur það að vera lærdómsríkt bæði fyrir tónskáldin og hljóðfæraleikarana að vinna sam- an að flutningi nýrra verka. Þetta frumkvæði Helgu og Manuelu er því mikils virði og hafa þær unnið brautryðjendastarf á þessu sviði. Góð aðstaða — Aðstaðan í Skálholti er mjög góð, segir Helga, — staðurinn er þrunginn sögu og þar á vel við að leika bæði gamla tónlist og ný íslenzk verk. Við fáum inni á heimavist lýðháskólans og dvelja tónlistarmennirnir nokkra daga í Skálholti til að æfa, oftast í samvinnu við tónskáldin, sé um að ræða flutning á nýjum verkum og virðist Skálholt hafa þau áhrif að samvinnan verður sérlega árang- ursrík og ánægjuleg. Aðsóknin að sumartónleikunum hefur farið vaxandi og býst ég við að þessari starfsemi verði haldið áfram enn um sinn. Að þessu sinni voru tónlistar- mennirnir að æfa nýtt verk eftir Jónas Tómasson, Notturno III, sem hann samdi til flutnings í Skálholti, en Jónas er tónlistar- kennari og kórstjóri á ísafirði: Samið á nokkrum dögum — Verkinu er skipt í 6 stutta kafla og er það samið með tónlist- armennina í huga, kannski að nokkru leyti með staðinn í huga líka, þótt það fjalli ekki um hann, segir tónskáldið. — Ég byrjaði á því sl. vetur, en þá gekk það fremur hægt og var ég eiginlega hættur við þetta allt, þar til síðustu vikuna í maí. Þá var mikið um að vera á ísafirði, margir tónleikar og greip ég þá í að skrifa á kvöldin og næturnar og lauk verkinu á nokkrum dögum. Aðgangur að öllum sumartón- leikunum er ókeypis. Þeir eru laugardaga og sunnudaga kl. 15, og kl. 17 á sunnudögum er síðan messað í Skálholti. Tónleikarnir taka um klukkustund og er að þeim loknum unnt að fá kaffiveit- ingar í húsnæði lýðháskólans. Tónleikahald sem þetta kvað Ingv- ar vera til í svipaðri mynd í Svíþjóð, á nokkrum stöðum út um landið væri haldin tónleikaröð yfir sumarið með þátttöku margra tónlistarmanna. — Þar eru slíkir tónleikar skipulagðir af sérstök- um aðilum, en hér er það frum- kvæði og áhugi tónlistarmann- anna sjálfra, sem knýr þá áfram. Ljúsm. Emilia. Rætt um tónverkið fyrir æfingu, írá vinstri: Ingvar Jónasson, Helga Ingólfsdóttir og Jónas Tómasson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.