Morgunblaðið - 25.07.1980, Síða 13
Pétur Pétursson þulur
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ1980
13
Kontórstingur í
félagsmálapakkhúsi
Það verður að segjast þegar í
upphafi, að ég hefi ekki etið af
skilningstrénu í Hallormsstaða-
skógi, enda skildi ég ekki sunnu-
dagshugvekju iðnaðarráðherrans i
Þjóðviljanum sl. sunnudag. Bless-
aður maðurinn er þar að þæfa
eitthvað um „baráttu gegn verð-
bólgu" og að „bæta kjör“. Fylgist
ekki lífeðlisfræðingurinn með
verði á lífsnauðsynjum? Veit hann
ekki að vöruverð stígur daglega og
þjónusta hækkar öll, meðan
launakjör rýrna? Já, innlendir
orku„gjafar“ sem hann talar svo
fagurlega um, á hátíðastundum,
hafa heldur en ekki hitað mörgum
í hamsi undanfarið með hækkun-
um sínum. Nema náttúrlega Járn-
blendifélaginu, þar sem er nú búið
að teppaleggja stjórnarskrifstof-
urnar með gamburmosa Alþýðu-
bandalagsins. Þar logar glatt und-
ir ofnum á Brekkukotsprís sem
gildir fram að kristnitökuafmæli.
Um að gera að punda hækkunum
raforku og hitaveitu á varnarlít-
inn almenning. Og ganga teljara-
skref á vísitölubrauðinu milli ráð-
uneyta til þess að hlífa valda-
skónum í fúamýrinni. Aldrei er
„svigrúm til launahækkana". En
ævinlega úrræði til verðhækkana.
Svo leyfir ráðherrann sér að
byrsta sig í tali við samtök
launafólks og segja: „Fjármagn
hefir staðið til boða vegna félags-
legra aðgerða, enda verði al-
mennum peningalaunahækkun-
um stillt í hóf.“
Pétur Pétursson
„viðskiptakjaravísitala" alþýðu-
heimilanna dag hvern sem gengið
er til innkaupa.
„Félagslegar aðgerðir", sem
stjúpmæður verkalýðsins í ráðu-
neytunum eru að pípa um, minna
helst á refsiaðgerðir.
Ef svó fer sem horfir hættir
Ríkisféhirðir að greiða laun, en
Bögglapóststofan dreifir félags-
málapökkum.
Já, vel á minnst. Nú þarf
ráðgjafa í hverju ráðuneyti Við
munum úr æsku, að við lásum um
rómverskan keisara er réði sér
ráðgjafa. Sá hneggjaði við stall
með öllum tygjum og var frekur á
fóðrum. Nú er öldin önnur. Nú
skal spara, segir fjármálaráðherr-
ann og fær sér Þröst Ólafsson til
ráðuneytis. Þá fóru sumir að gera
sér vonir um „engil með húfu og
rauðan skúf í peysu". Þess í stað
hélt ráðgjafinn sig vera í boltaleik
við opinbera starfsmenn og vitn-
aði í dægurlagatexta Ómars Ragn-
arssonar, KR-ingar, þig eigið leik-
inn. Svo hreiðraði hann um sig
undir launaþakskegginu.
„... opinberir starfsmenn eiga
kost á margvíslegum réttarbót-
um,“ segir iðnaðarráðherra.
Ekki skal ég deila um réttar-
bæturnar við ráðherra né ráð-
gjafa, á þessu stigi málsins. Eitt
bið ég um: Reiknið út tilboð það
sem fjármálaráðuneytið setti
fram 1977 og samninganefnd
BSRB neitaði þá. Birtið þær
niðurstöður að viðbættri vísitölu,
án skerðingar, og berið saman við
þau tilbóð er stjórnvöld gera nú.
Það er ekki nóg þótt selskaps-
páfagaukar í stéttasamvinnubúri
Alþýðubandalagsins pípi: „Það
liggur svo dæmalaust ljómandi á
mér“ og mauii bankabygg úr
sólskríkjusjóði Vinnuveitenda-
sambandsins.
Þeir eiga ekki að vera í fyrir-
svari stéttarsamtaka. En þeir
mega bródera og baldýra í
ómældri aukavinnu:
Drottinn blessi félagsheimilið.
Pétur Pétursson þulur.
Ekki tekið tillit
til neinna aðgerða
segir Steingrímur Hermannsson um
spá Þjóðhagsstofnunar
ÉG HEF ekki ennþá séð neitt
um spá Þjóðhagsstofnunar
nema það sem lesa mátti í
Morgunhlaðinu og get þvi lítið
tjáð mig um hana, en í henni er
þó ekki tekið tillit til neinna
efnahagsaðgerða, sagði
Steingrímur Hermannsson
formaður Framsóknarflokks-
ins er Mbl. innti hann álits á
spá Þjóðhagsstofnunar um
verðbólguþróun ársins.
Steingrímur Hermannsson
sagði að ríkisstjórnin myndi
beita ýmsum aðgerðum til að
hægja á verðbólguþróuninni og
að hún hefði fullan hug á að
beita niðurtalningu og öðrum
aðgerðum í því skyni, en hann
kvaðst að öðru leyti ekki vilja
ræða þessi mál að svo stöddu.
Hvaðan kemur ráðherranum
það vald og „viska“ að tala um að
stilla þurfi „peningalaunahækk-
unum“ í hóf? Hverjir sögðu að
ísland væri á láglaunasvæði er
opinberir starfsmenn settu fram
kröfur sínar í samningsgerð árið
1977? Hvenær breyttist það álit?
Hefir seta ráðherrans í ríkisstjórn
sjálfkrafa flutt landið af einu
launasvæði yfir á annað?
Ummælum ráðherrans um hóf-
semi eiga launamenn að vísa til
föðurhúsanna. Þeir hafa sagt:
„Vinna fólksins stendur til boða,
enda sé verðhækkunum stillt í
hóf.“
En það er nú eitthvað annað en
svo hafi verið. Um það vitnar
Kind flækt-
ist í veiði-
girni og
missti fótinn
Stykkishólmi, 21. júli.
BÓNDINN á Svelgsá í Helga-
fellssveit, Bjarni Guðmundsson,
sagði mér að fyrir skömmu hafi
maður komið til sín og vakið
athygli á kind úti í haga sem
aðeins væri með 3 fætur.
Kvaðst hann hafa brugðið við
til að athuga þetta, en þegar
hann kom að kindinni sá hann
strax hvers kyns var. Kindin
hafði flækst í mjóu og eggsáru
veiðigirni sem hugsunarlausir
veiðimenn höfðu skiiið eftir
skammt frá vatni því sem kind-
in var í og var nú svo komið
fyrir kindinni að einn fóturinn
var næstum sorfinn sundur og
leið kindin mikið við þetta.
Sýndi Bjarni mér girnið sem
hann hirti. Er nú reynt það sem
hægt er að koma kindinni til
bjargar og ekki er enn séð hver
árangur verður. Þetta atvik sýn-
ir að menn skyldu ævinlega gá
vel að því sem þeir henda úti á
víðavangi.
Platan hans Pálma
er nú komin í hljómplötuverslanir um land allt
Á plötunni koma fram margir af þekktustu
hljóðfæraleikurum landsins, s.s.:
Magnús Kjartapsson, Karl Sighvatsson, Pétur Hjaltested, Tryggvi Hubner,
Björgvin Halldórsson, Friörik Karlsson, Þóröur Árnason, Qunnar Þóröarson,
Siguröur Karlsson, Jeff Seopordi, Kristinn Svavarsson o.fl.
iwAl
k-AMAVEQi» ~ «MH tW - t*
DREIFING: