Morgunblaðið - 25.07.1980, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ1980
Uppreisn bæld á
Nýju Suðureyjum
Lundúnum. 24. júll. AP.
BREZKA utanrikisráðuneytið
skýrði frá því i dag að _náin og
stanzlaus samvinna" hefði verið
milli stjórnvalda i Frakklandi og
Bretlandi um þá ákvörðun að
binda enda á uppreisnina á Esp-
iritu Santo á Nýju Suðureyjum
og senda þanxað tvö hundruð
manna herlið.
Nokkrum klukkustundum eftir
aö herliðið kom á vettvang stað-
festi talsmaður utanríkisráðu-
neytisins að það hefði lokið erindi
sínu „vel og slysalaust“ og sagði að
ekki hefði verið hleypt af svo
mikið sem einu skoti.
Talsmaðurinn sagði að brezkir
strandhöggshermenn og franskt
fallhlífalið hefði verið sent til
Nýju Suðureyja til að endurreisa
stjórnvöld á eynni og sjá svo um
að Bretar og Frakkar gætu lýst
Nýju Suðureyjar sjálfstæðar þann
30. júlí.
SINDRA
Fyrirliggjandi í birgðastöð
plötujárn
STALHF
Þykktir frá 2—50 mm
ýmsar stæröir.
m.a. 1000x2000 mm
1500x3000 mm
1500x5000 mm
1500x6000 mm
1800x6000 mm
Borgartúni 31 sími27222
öllvitumviðað
ostur er bragðgóður
en hann er
lífra Knlhir
því að í honum eru öll næringarefni
mjólkurinnar og flest í mun ríkara mæli.
Próteinið—
byggingarefni líkamans
Daglegur skammtur af því er nauðsynlegur til uppbyggingar og
viðhalds frumum líkamans. Ostur er mun próteinríkari en t. d.
kjöt eða fiskur. Dagleg þörf af próteini er áætluð um 45—65 g
en í 100 g af osti eru 27—32 g af próteini.
Mjólkurostur er
bestikalkgjafínn
í venjulegu fæði. En kalkið á mestan þátt í myndun og viðhaldi
tanna og beina. Af því þurfa börnin
mikið og allir eitthvað.
Auk þess er í osti
gnægð annarra
steinefna og vrtamina
sem auka orku og Iétta lund.
<o
o
Þessi lék sér að þvi að stinga sér i Ijósum logum i sérstæðri
dýfingarkeppni i Vancouver i Kanada. Hann heitir Butts Giraud og
vnan i sinni grein á mótinu, svokölluðu Belly-FIop og Cannonball-
dýfingarmóti.
Svart útlit
til aldamóta
Washinifton. 24. júlí — AP.
STÓRFELLDUR matarskortur.
fátækt. vannæring, offjölgun,
mengun andrúmsloftsins og
drykkjarvatns blasir við mann-
kyninu innan tuttugu ára, nema
þjóðir heims taki upp öflugara
samstarf til þess að stemma stigu
við þessari þróun. Þetta eru
niðurstöður viðtækrar rannsókn-
ar, sem Bandarikjastjórn hefur
látið gera um framtfðarhorfur til
ársins 2000, en skýrsla með niður-
stöðunum var birt i dag.
Jimmy Carter, forseti, sagði í
bréfi til háttsettra embætt-
ismanna, að ef þjóðir heims ynnu
ekki saman að því að stöðva þessa
þróun, yrðu næstu tuttugu ár
samfellt tímabil vaxandi matar-
skorts og offjölgunar, minnkandi
ræktarlands og skóga, dýralífs,
fiskimiða og vaxandi mengunar
andrúmslofts og sjávar.
Búist er við tvöfaldri hækkun
matvöruverðs og yfir tvöfaldri
hækkun orkuverðs fyrir lok þess-
arar aldar. Einnig eru taldar
vaxandi líkur á átökum í heimin-
um og aukinni spennu í alþjóða-
viðskiptum.
Formaður nefndarinnar, sem
stóð að rannsókninni, sagði, að í
skýrslunni gætti áreiðanlega ekki
of mikillar svartsýni og að öllum
líkindum væri ástandið enn svart-
ara en þar væri gert ráð fyrir.
Búist er við að matvælafram-
leiðsla geti aukist um 90% fram að
aldamótum, en fólksfjölgunin
verður að öllum líkindum yfir 60%.
Framleiðsluaukning á mann verð-
ur því ekki meiri en 15% og mun
að öllum líkindum lenda að mestu
leyti hjá þeim, sem nú þegar búa
við velsæld.
Talin er hætta á að jafnvel 20%
allra núlifandi dýrategunda verði
útdauð um aldamótin vegna vax-
andi sóknar í skóga- og önnur
dýrasvæði.
1979 — ísraelsmenn skila Egypt-
um 6,500 ferkílómetra svæði á
Sinaiskaga.
T978 — Fyrsta tilraunaglasabarn-
ið fæðist í Bristol, Englandi.
1977 — Vopnahlé í stríði Egypta
og Líbýumanna.
1975 — Tyrkir boða lokun banda-
rískra herstöðva.
1968 — Stjórn Bolivíu segir af sér
vegna birtingar dagbóka Che Gue-
vara.
1967 - Páll páfi VI heimsækir
Tyrkiand og biðst fyrir fyrstur
páfa í rétttrúnaðarkirkju.
1963 — Tilraunabannssamningur
Bandaríkjamanna, Breta og Rússa
gerður.
1957 — Franska þingið samþykkir
ajálfstæði Túnis.
1956 — Árekstur „Andrea Doria“
og „Stockholm" undan strönd
Nýja-Englands; 50 farast.
1952 — Kola- og stálsamsteypa
Evrópu tekur til starfa.
1943 — Fall Mussolinis.
1934 — Dollfuss, kanzlari Austur-
Hkis, ráðinn af dögum í byltingar-
tilraun nazista.
1920 — Frakkar taka Damaskus
— Grikkir taka Adríanópel.
1909 — Louis Blériot flýgur yfir
Ermarsund.
1907 — Kórea verður japanskt
verndarríki.
1898 — Bandaríkjamenn taka Pu-
erto Rico herskildi.
1897 — Fyrstu kínversku
diplómatarnir koma til Washing-
ton.
1830 — Kúgunartilskipanir Karls
X í Frakklandi.
1689 — Loðvík XIV segir Bretum
stríð á hendur.
1593 — Hinrik IV af Frakklandi
gerist kaþólskur („París er einnar
messu virði").
1581 — Niðuriönd lýsa yfir sjálf-
stæði.
1139 — Alfonso I af Portúgal
sigrar Mára.
Afmæli. AJ. Balfour, brezkur
stjórnmálaleiðtogi (1848—1930).
Andlát. 1834 Samuel Taylor Cole-
ridge, skáld.
Innlent. 1510 Heklugos hefst —
1875 d. Hjálmar Jónsson frá Bólu
— 1902 d. síra Þorkell Bjarnason
— 1942 d. Magnús Stefánsson
skáld — 1956 d. Guttormur Gutt-
ormsson — 1959 Landlegumenn
ganga berserksgang á Siglufirði —
1974 Aiþjóðadómstóll úrskurðar
útfærsluna f 50 mílur ólöglega —
1979 d. Þórarinn Guðmundsson
tónskáld.
Orð dagslns. Þegar maður hefur
ekki gilda ástæðu til að gera
eitthvað, hefur hann gilda ástæðu
til að láta það eiga sig. — Sir
Walter Scott, skozkur. rithöfundur
(1771-1832).