Morgunblaðið - 25.07.1980, Side 16
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ1980
Skammsýni iðnaðarráðherra
Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra hefur verið
atkvæðalítill í störfum sínum. Hann hefur einskorð-
að sig við það í ráðherrastólnum að fela starfshópum að
sinna nokkrum gæluverkefnum en látið hjá líða að móta
heildarstefnu. Slagorð Alþýðubandalagsins um íslenska
atvinnustefnu er orðið hjóm eitt í ráðherratíð hans, nema
í henni felist, að horfið skuli nokkra áratugi aftur í
tímann. Meðal fyrstu afreka Hjörleifs eftir að hann tók
við ráðherrastörfum, var að leggja stein í götu eðlilegs
framkvæmdahraða við Hrauneyjafossvirkjun og tefja
fyrir uppbyggingu járnblendiverksmiðjunnar á Grund-
artanga. Rétt í þann mund, sem hann hvarf úr
ráðherraembætti síðastliðið haust, gaf Hjörleifur grænt
ljós á Bessastaðaárvirkjun. Raunar slökkti nýr ráðherra á
þeirri týru eftir brottför Hjörleifs. Og hann hefur ekki
kveikt á henni að nýju, eftir að hann komst aftur í
iðnaðarráðuneytið, enda er flestum ljóst, að ráðherrann
var kominn í kosningaskap á liðnu hausti. En í
kosningaham á Reyðarfirði lofaði hann íbúunum þar
stóriðju í tengslum við virkjunina. Það loforð hefur ekki
verið endurtekið síðan, þótt það sé hið eina, sem sýnir, að
Hjörleifi er ekki alls varnað, þegar mikið liggur við.
Æ betur verður ljóst, hve hættulegt það er að hafa í
sæti iðnaðarráðherra mann, sem helst vill, að menn verji
landið með hamri og sigð. Slík viðhorf eru stórhættuleg á
tækniöld og þau eru beinlínis fáránleg hjá þjóð, sem býr
yfir miklum óvirkjuðum orkulindum en þarf að takmarka
fiskveiðar sínar og landbúnaðarframleiðslu. Með sterkum
rökum hefur verið sýnt fram á það að ekki síðar en á
næsta ári verður að taka ákvörðun um næstu stórvirkjun
og hún verður ekki hagkvæm nema samhliða henni verði
ráðist í stóriðju. „Essin 4“ svonefndu, sem iðnaðarráð-
herra er með allan hugann við, að því er virðist, þ.e.
steinullarverksmiðja, saltverksmiðja, stálbræðsla og syk-
urverksmiðja eru ekki viðfangsefni, sem svara kröfunni
um traust fyrirtæki samhliða stórvirkjun. Hér er um
meðalstór fyrirtæki að ræða og áhættusöm vegna þess að
með þeim er ráðist í hálfgerða tilraunastarfsemi. Hins
vegar er skynsamlegt að hafa augastað á slíkum
viðfangsefnum, um leið og unnið er að sannkölluðum
stóriðjuverkefnum.
Eitt af gæluverkefnum iðnaðarráðherra hefur verið að
láta starfshóp vinna að tillögugerð um orkusparnað. Með
reglulegu millibili efnir ráðherrann til blaðamannafund-
ar með þessum hópi og skýrir frá alls kyns pappírstillög-
um hans, sem vafalítið hefur verið varið mikilli
hugarorku til að semja. Sú spurning vaknar, hvort ekki sé
rétt að spara alla þá orku og pappírinn, sem hún er
bundin á, þegar ríkisstjórnin keppist við það í hinn sama
mund að knésetja einn stærsta innlenda orkuframleið-
andann, Hitaveitu Reykjavíkur. Er hér með skorað á
iðnaðarráðherra, að hann feli orkusparnaðarnefnd að
reikna út þann skaða, sem þjóðarbúið yrði fyrir, ef komið
yrði í veg fyrir nýframkvæmdir á vegum Hitaveitu
Reykjavíkur. Með þeim hætti væri orka starfshópsins
nýtt af skynsemd.
Einn þingmanna Alþýðubandalagsins í Reykjavík
gengur nú fram fyrir skjöldu með alls kyns dylgjum og
órökstuddum fullyrðingum til að gera sem minnst úr
þeim vanda, sem að Hitaveitunni steðjar. Iðnaðarráð-
herra verður að láta í ljós skoðun sína á þessu brýna máli.
Það verður að liggja skýrt fyrir hver afstaða hans er.
Reynslan sýnir hins vegar, að ráðherrann getur ekki látið
í ljós neina sjálfstæða skoðun, annað hvort verður hann
að hafa skjól af starfshópi eða þingflokki Alþýðubanda-
lagsins og þar ræður Ólafur Ragnar ríkjum. Á meðan ekki
liggur annað fyrir, verða menn því að álykta sem svo, að
Ólafur Ragnar Grímsson flytji stefnu þingflokks komm-
únista, þegar hann berst fyrir því með oddi og egg að
olíukynding verði tekin upp á Reykjavíkursvæðinu.
Iðnaðarráðherra, sem er svo skammsýnn, að hann gerir
sér ekki grein fyrir mikilvægi stóriðju, nema þegar hann
stundar atkvæðaveiðar, er ekki réttur maður á réttum
stað eins og málum er nú háttað hér á landi — síst af öllu,
þegar hann situr í þingflokki, sem kemur í veg fyrir hitun
húsa með heitu vatni.
Eg hef enga
sjálfsímyntT
Peter Sellers (1925—1980) var
alla tíö þjakaöur af efasemdum
Gamanleikarinn snjalli, Peter
Sellers, tapaöi þrjátíu og fjög-
urra stunda orrustu sinni viö
fjóröa hjartaáfalliö snemma
fimmtudags. Hann var fimmtíu
og fjögurra ára aö aldri. Þrátt
fyrir aö ýmsar brellur hans í
kvikmyndum kæmu milljónum
manna til aó hlægja, skýröi
Sellers eitt sinn frá því í trúnaöi
aö innri hömlur ofþóguðu hon-
um svo aö hann kynni raun-
verulega ekki skil á hvort held-
ur hann væri lífs eöa liöinn.
Læknahópur á gjörgæzlu-
deild Middlesex sjúkrahússins í
Lundúnum,
þangaö sem
Sellers haföi ver-
iö fluttur meö
hraói í á þriöju-
dagskvöld, börö-
ust til einskis til
aö bjarga lífi
hans. Andaöist
Sellers meövit-
undarlaus meö
slöngur og önd-
unartæki í vitum
viö hliö fjórðu
eiginkonu sinnar,
Lynne Frederick,
og tveggja barna
frá fyrri hjóna-
böndum. „Dauöa
hans bar að meö
fullkomlega eöli-
legum hætti,“
sagöi talsmaður
sjúkrahússins.
„Hjartað einfald-
lega gaf sig.“
Sellers hafði orðið fyrir alls
níu hjartaáföllum áöur aö sögn
vina. Hið fyrsta hlaut hann áriö
1964, sjö vikum eftir að hann
kvæntist sænsku leikkonunni
Britt Ekland. Leiðir þeirra höföu
legiö saman er Sellers geröi
kvikmyndina „Kiss me, stupid“
meö Billy Wilder. Annaö meiri-
háttar hjartaáfall kom svo áriö
1977 og var þá settur í hann
gangráöur, er stjórnar slögum
hjartans meö rafsendingum.
Síðast í maí iagöist leikarinn
síöan á sjúkrahús í Dyflinni eftir
minni háttar hjartaáfall.
Peter Sellers er sagöur hafa
unniö, hvílzt og elskaö með
örvæntingarkrafti manns, sem
var þess fullviss aö lífið myndi
ekki endast honum til alls er
hann fýsti að vinna. Hann sló
um sig, sólundaöi fé og naut
aðdáunar um heim allan fyrir
smellinn gamanleik í meira en
fjörutíu myndum, sem kváöu
hafa fært honum alls um fimm
milljaröa íslenzkra króna í tekj-
ur. Hvar sem hann fór vakti
hann forvitni og var eftirsóttur
skemmtikraftur.
En milli þess sem Sellers
sinnti skuldbindingum í stúd-
íóum unndi hann sér engrar
hvíldar. Hann var einatt á
síöum dagblaöa, sem tíunduöu
ástarævintýri hans, fjögur
hjónabönd og þrjá skilnaði,
veikindi, áhugamál, umslátt,
dýrindis bifreiöir og einkar
hreinskilin viötöl annaö veifið.
Heföi Sellers látizt áriö 1964,
en ekki sextán árum síöar,
heföi hans eigi aö síóur veriö
minnst sem furöu fjölskrúöugs
og hæfileikamikils gamanleik-
ara. Líkt og margir grínleikarar
talkvikmyndanna byrjaði Sell-
ers feril sinn í útvarpi. Ótrúleg
eftirhermutækni leikarans fékk
sína fyrstu auglýsingu í gaman-
þættinum „Goon Show“ í
brezku útvarpsstöðinni BBC.
Þessari leikni beitti Sellers síö-
an óspart í kvikmyndum sínum,
þar sem hann brá sér tíöum í
margvíslegustu gerfi í sömu
myndinni.
Stærstu þáttaskilin á frægö-
arferli Sellers uröu án efa er
hann lék í myndinni „Doctor
Strangelove, eöa hvernig mér
læröist aö hætta aö hafa
áhyggjur og elska sprengjuna“.
í kvikmynd þessari fór Sellers
meö þrjú hlutverk, þ.á m.
hlutverk söguhetjunnar, sem
sagt er aö byggö hafi verið á
persónuleika Henry Kissinger.
Minnisstæöasta afrek Sellers
mun þó mörgum þykja leikur
hans í hlutverki Clouseaus lög-
regluforingja í kvikmyndflokkn-
um „Bleiki pardusinn". Alls
uröu myndirnar í flokki þessum
fimm, en sagt er aö leikarinn
hafi verið með sjöttu myndina í
undirbúningi, er dauöa hans
bar aö. Margir telja hins vegar
að Sellers hafi unnið sinn
stærsta leiksigur í myndinni
„Being there“, sem gerö var á
síöasta ári, en í mynd þessari
leikur hann lítilsigldan garö-
yrkjumann, sem óvænt verður
fjölmiölastjarna. Sagt er aö
Sellers hafi sjálfur veriö all
stoltur af frammistööu sinni í
myndinni og hafi þaö fengið
nokkuö á hann aö kvikmyndin
vann ekki til verölauna á kvik-
myndahátíöinni í Cannes í júní.
En þrátt fyrir frægöina, auö-
inn, einkaheimili í tveimur
heimsálfum, einkaþotuna,
snekkjuna, bifreiöarnar og
nærvist fagurra kvenna voru
efasemdirnar Sellers þungar á
sinni. Hann var ýmist snakillur
eöa ástríöufullur og sambönd
hans og kvenna oft skammvinn
og stormasöm. Eins og margir
mikilhæfustu gamanleikarar
sögunnar var hann í eðli sínu
þunglyndur og óöruggur. „Ég
hef ekki minnstu hugmynd um
hver Peter Sellers er“ sagði
hann eitt sinn. „Ég hef enga
áþreifanlega sjálfsímynd. Ég lít
í spegil og sé einhvern, sem
aldrei hefur þroskast — lotinn
tilfinningamann sem rólar milli
glæstra vona og hyldýpis ör-
væntingar“.
Móöir Sellers, Peg Ray —
eöa Agnes Marks eins og hún
hét réttu nafni — var Ijóö-
söngvaleikari, og fór oftast
meö hlutverk ótrúrrar eigin-
konu, sem komið er á óvart í
hjónarúminu. Faöir hans var
Bilf Sellers, píanóleikari og
tónlistarstjóri við gamalt revíu-
leikhús.
Peg var eitt sinn á sviöi í
Southsea á suöurströnd Eng-
lands, og kvartaöi undan van-
líöan. Þar sem enginn staö-
gengill var nálægur varö hún aö
leika hlutverkið á enda. Flýtti
hún sér heim eftir sýninguna og
fæddi Peter, 8. september,
1925.
Á barnsárum lá hann oft í
körfu viö sviösskörina og fluttu
foreldrarnir hann meö sér milli
ódýrra gistihúsa í leikferöum.
Hann hlaut gloppótta menntun,
þrátt fyrir aö hann skrásettist í
eina sextán skóla áöur en hann
tók í fyrsta skipti til viö að leika
meö Windmill leikhúsinu í
London.
Eftir því sem frægöin jókst
fékk Sellers á sig orö fyrir
þrasgefni og hvefsni viö kvik-
myndaundirbúning. Þannig var
eitt sinn haft eftir honum: „Því
meir sem ég eldist þeim mun
ver fellur mér kvikmyndaiönað-
urinn og fólkiö sem viö hann
vinnur. Eg er næstum farinn aö
hata þaö nú.“
Sellers var tuttugu og fimm
ára gamall er hann giftist ástr-
ölsku leikkonunni Önnu Howe.
Meðan á ellefu ára sambúö
þeirra stóö varö hann ástfang-
inn af ítölsku leikkonunni Sop-
hiu Loren. „Ég skora á hvaöa
mann, sem er, hversu vel giftur
sem hann kann aö vera, aö
sanna aö hann geti staöizt
fegurö Sophiu“ sagði Sellers
nokkrum árum síðar. En Sop-
hia snéri engu aö síöur aftur
heim til eiginmannsins og Sell-
ers var tekinn í sátt hjá Önnu.
Hún kunni hins vegar krók á
móti bragöi og varð skömmu
síðar ástfangin af arkitektinum,
sem teiknað hafði hús þeirra og
hjónin skildu.
Eftir ellefu daga bónorðstíma
giftist Sellers síðan Britt Ekland
eins og áöur segir og skildi við
hana áriö 1969. Þriöja eigin-
kona hans var Miranda Quarry,
dóttir Mancrofts lávaröar og
bjó hann meö henni í fjögur ár.
Hann daðraöi um skeiö við Lizu
Minelli og Titi Wachtmeister
barónessu , áöur en hann giftist
loks í fjóröa skipti, leikkonunni
Lynne Frederick 1977.
En hversu skrautlegur ferill
Sellers í einkalífi kann aö hafa
veriö, er ekki aö efa aö hans
verður minnst sem framúrskar-
andi gamanleikara, sem aldrei
tókst aö taka niöur grímuna.
(Heimildir: Associated
Press og Time)
lltofgtiiiÞIftMfe
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjómarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 5.000.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 250
kr. eintakiö.