Morgunblaðið - 25.07.1980, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1980
21
Björg Einarsdóttir:
Að hálfnuðum áratug'
Áratugurinn 1975—1985 var valinn af Sameinuðu þjóðunum til að
gera átak fyrir bættum hag kvenna i heiminum. Á kvennaárinu 1975
var samþykkt framkvæmdaáætlun og jafnframt að halda ráðstefnu að
timabilinu hálfnuðu og sjá hvað hefði áunnist og á hvað bæri að leggja
áherslu síðari 5 árin.
Kvennaráðstefna SÞ, sem nú er haldin i Kaupmannahöfn, hefur það
verkefni að taka út stöðuna i málefnum, sem stuðia að bættum hag
kvenna og gera tillögur um framhald. I þessum aðgerðum Sb felst
viðurkenning á þvi, að konur almennt hafi iakari stöðu en karlar.
íslensk stjórnvöld senda fulltrúa á ráðstefnuna og sérstök nefnd
var skipuð til að undirbúa þau mál, sem ísland kæmi fram með á
ráðstefnunni. Spurningar voru sendar til aðila vinnumarkaðarins,
stjórnmálaflokkanna, Sambands sveitarfélaga, Kvenréttindafélags-
ins, Kvenfélagasambandsins, Rauðsokkahreyfingarinnar og Jafnrétt-
isráðs. Fiestir munu hafa svarað, þótt tíminn til stefnu væri mjög
naumur.
Af hálfu Sjálfstæðisflokksins var þessum tilmælum undirbúnings-
nefndarinnar beint til formanns Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna i
Reykjavik og i samráði við Ingibjörgu Rafnar, varaformann
jafnréttis- og jafnstöðunefndar félagsins, var eftirfarandi samantekt
send nefndinni.
Tekið var fram, að ekki bæri að skoða greinargerðina sem tæmandi,
vegna þess hve naumur timinn var, spurningarnar viðamiklar og
tölfræðiiegar upplýsingar hér á landi af skornum skammti. Jafnframt
að ekki hefði verið unnt að fjalla um málið á flokkslegum vettvangi og
þvi ekki um stefnu Sjálfstæðisflokksins sem slíka að ræða.
1. SPURNING:
Hvað hefur að ykkar mati
áunnist i jafnréttismálum hér á
landi á hálfnuðum kvennaáratug
(1975-1985):
a) Á sviði menntunar?
Með tilkomu fjölbrautaskóla
hafa opnast fleiri brautir til náms
á mismunandi sviðum. Enda þótt
reynsla sé ekki mikil af þessu
skólakerfi, er ljóst, að sá tálmi er
á undanhaldi, sem ungu fólki —
einkum stúlkum — var búinn
varðandi verkmenntun meðan
„meistarakerfið" í iðnfræðslu var
ríkjandi.
Fullorðinnafræðsla hefur aukist
til muna, að hluta verið aðlöguð
kröfum vinnumarkaðarins og felld
að prófstigum skólakerfisins.
Endurmenntun og símenntun eru
hugtök, sem flestum er ljóst hvað
felst í og námsflokkar á vegum
sveitarfélaga og öldungadeildir
við menntastofnanir á framhalds-
skólastigi hafa auknu hlutverki að
gegna.
Félagasamtök á borð við laun-
þegasamtök, samvinnufélög, sam-
band kvenfélaga, samtök áhuga-
fólks og hagsmunahópa og stjórn-
málafokka, hafa menntun í aukn-
um mæli á stefnuskrá sinni og
framfylgja henni, samanber Fé-
lagsmálaskóla alþýðu, bréfaskól-
ann, námskeiðahald ýmiss konar
eða sérskóla.
Ekki mun vera til nein heildar-
úttekt á þessum þætti menntunar
og örðugt að gera sér grein fyrir
raunverulegu umfangi hennar.
Jafnréttismál eru sums staðar
sérstaklega á námsskrá og í heild
mun þessi starfsemi auka mögu-
leika kvenna til menntunar.
Ljóst er, að sá hópur kvenna,
sem lýkur prófi frá Háskóla ís-
lands og öðrum menntastofnunum
á sviði æðri menntunar, fer
stækkandi. Enn munu þó fleiri
konur en karlar velja stutt nám.
b) Á stjórnmálasviði?
Hlutfall kvenna af heildarfjölda
kjörinna fulltrúa á Alþingi og í
sveitarstjórnum gæti bent til þess,
að konur væru ekki í sókn þar og
hlutur þeirra í endanlegri ákvarð-
anatöku virðist ekki stór. En ef
litið er til þeirra þátta, sem eru
undanfari þess að taka sæti í
sveitarstjórn og á Alþingi, kemur í
ljós, að fjöldi kvenna í prófkosn-
ingum eykst.
Varðandi Sjálfstæðisflokkinn
sérstaklega, má benda á, að í
flokksfélögunum eru konur víða í
forystu, á landsfundi fjölgar kon-
um jafnt og þétt sem fulltrúum
sinna byggðarlaga og í miðstjórn
flokksins hefur hlutfall kvenna
aukist.
c) í heilbrigðismálum?
Almenn heilsugæsla er á háu
stigi hér á landi og fyrirbyggjandi
aðgerðir, s.s. skipulögð leit að
krabbameini, hafa skapað öryggi í
daglegu lífi fólks og m.a. gert
konum í ríkara mæli kleift að
skipuleggja störf sín og fjöl-
skyldulíf. Almenn vitneskja um
getnaðarvarnir og að þær eru á
söluskrá lyfjabúða, samhliða
rýmkaðri löggjöf um fóstureyð-
ingar, hefur aukið svigrúm fólks.
d) í atvinnumálum?
Tölur um félaga í launþega-
samtökum eftir kynjum benda til
þess, að konur hafi á seinni árum
sótt í auknum mæli út á vinnu-
-markaðinn. En þar lenda konur
og karlar í afkimum, þ.e.a.s. í
sérstökum kvenna- og karlastörf-
um, og hefur uppbygging launa-
stigans tekið mið af því. Tilhneig-
ing er rík til að verðleggja starf
eftir því, hvort karl eða kona
sinnir því, en ekki eftir hæfni
starfsmanns eða vanda verksins.
Starfsmat og kjarasamningar
taka að stórum hluta mið af
hefðum að þessu leyti og uppbygg-
ing vinnumarkaðarins miðar við
að giftar konur séu varavinnuafl í
landinu. Atvinnuleysi er oft dul-
búið með því að þoka konum út af
vinnumarkaðinum undir yfirskini
fjölskyldumála og helst oft í
hendur við samdrátt í efnahags-
lífi. Lagaákvæði ýmiss konar, s.s.
skattalög, styrkja þá þróun.
Þáttur kvenna í framleiðslu-
störfum er augljós og hefur verið
sannaður með því að konur lögðu
eitt sinn (24. okt. 1975) allar
samtímis niður vinnu og kom þá í
ljós, að þjóðfélagið var óstarfhæft
án þátttöku þeirra.
Ljóst er, að á þessum vettvangi
er mest að vinna til að ná fram
raunverulegu jafnrétti milli karla
og kvenna. Fjölbreyttara starfsval
bæði karla og kvenna myndi í
raun blanda fólki meira í starfs-
greinar og það eitt með tímanum
knýja á um endurskipulag kjara-
mála.
Grundvallandi og óhjákvæmi-
legir þættir í fjölskyldu- og heim-
ilislífi fólks (barnsfæðingar, upp-
eldismál, húsbyggingar o.fl. þ.u.I.)
og heildarskipulag vinnumarkað-
arins þarfnast samhæfingar. Aðil-
ar vinnumarkaðarins og stjórn-
völd hljóta að þurfa að marka
sameiginlega stefnu í þeim mál-
um.
e) Að öðru leyti?
Viðhorf fólks til jafnréttismála,
jafnrar stöðu karia og kvenna,
hafa orðið jákvæðari og á margan
hátt er auðveldara nú, en við
upphaf áratugsins, að vekja at-
hygli ráðamanna á atriðum, þar
sem misbrestur er og jafnframt að
vinna að úrbótum. En eins og bent
var á í stafliðnum á undan, er hér
m.a. um beint efnahagslegt atriði
að ræða (kjaramál, markaðsmál).
2. SPURNING:
Hverju er áfátt? Telja samtök-
in, að við höfum að einhverju
leyti stigið skref aftur á bak?
Varðandi síðari lið þessarar
spurningar er rétt m.a. að vísa til
þess, að tölfræðilegar upplýsingar
eru af skornum skammti hér á
landi og úttekt á stöðu ýmissa
málaflokka, s.s. menntunar og
atvinnumála, heyrir til undan-
tekninga. Með tilliti til þess er
ekki auðvelt að segja óyggjandi
um heildarþróun annars vegar og
hins vegar hefur ekki verið sam-
ræmt hvaða þætti ætti að meta.
En sveiflur, þ.e. ris og hnig, koma
yfirleitt fram á öllum sviðum og
eru jafnréttismál þar ekki undan-
tekning. Margir hafa þóst merkja
afturkast eftir hámark umræðna
á kvennaárinu. En þá verður
einnig að hafa í huga efnahags-
lega kreppu á vesturlöndum, sem
hefur haft í för með sér atvinnu-
leysi í nágrannalöndum okkar og
ekki er auðvelt að greina á milli
hvað orsakast af hverju.
3. SPURNING + FYRRI
LIÐUR 2. SPURNINGAR:
Að hverju telja samtökin að
beri að keppa á siðari hluta
áratugsins? Hvert ætti að vera
markmiðiö á íslandi á ofan-
greindum sviðum?
Rétt er að hafa í huga frum-
kvæðis- og fordæmisskyldu opin-
berra aðila. Með setningu laga um
jafnan rétt kvenna og karla nr.
78/1976 er mótuð stefna um jafn-
rétti kynjanna. Segja má, að þar
hafi atjórnvöld haft frumkvæði,
sem flestir telja jákvætt. Samkv.
lögunum skal Jafnréttisráð sjá um
að þeim sé framfylgt. Vegna
fjársveltis hefur ráðið verið van-
megnugt og má af því draga þá
ályktun, að ekki hafi hugur fylgt
máli þegar lögin voru sett.
Leggja ber áherslu á fordæm-
isskyldu stjórnvalda. Ríkið er
stærsti vinnuveitandi lands-
manna, menntakerfið — jafnt
kennaramenntun sem gerð náms-
efnis — er á vegum ríkisins og
ríkið starfrækir fjölmiðla. Þegar
samfélagslegt markmið hefur ver-
ið mótað með lagaákvæðum, ber
ríkinu að ganga á undan með
eftirdæmi.
Menntun kennara og annarra
uppalenda og allt námsefni skal
grundvallað á jafnréttissjónar-
miðum. Starfandi kennarar og
uppalendur hljóti endurmenntun
á sömu forsendum. Dagskrárefni
ríkisfjölmiðlanna taki mið af inn-
taki laga nr. 78/1976.
★
Leggja ber áherslu á, að jafn-
rétti kynjanna er ekki afmarkað
mál, sem fjalla skuli sérstaklega
um, heldur samþætt grundvellin-
um að frelsi einstaklingsins. Það á
sér rætur i frelsisreglunni um
jafnan rétt og jafnar skyldur og
skal því, í samræmi við stjórn-
arskrána og önnur íslensk lög, er
kveða nánar á um ýmis atriði, (s.s.
skattalög, tryggingalög, sifjalög)
vera samofið öllu daglegu lífi
manna.
★
Hjá Sjálfstæðisflokknum hefur
verið umræða um svokölluð tíma-
bundin forréttindi til að flýta
framgangi jafnrar stöðu kynj-
anna. Ríkjandi skoðun er, að
varhugavert geti verið að lögbinda
réttindi vegna kynferðis og sé i
raun misrétti.
Hins vegar mælir margt með
því, að aðilar vinnumarkaðarins
geri með sér samkomulag um
aðgerðir til að jafna stöðu kynj-
anna, t.d. um jafnari fjölda karla
og kvenna í starfsgreinum en nú
er.
Stykkisholmi 21. júli.
ÚTGERÐARFÉLAGIÐ bórs-
nes heíir gefið þær upplýsingar
að bátur fyrirtækisins. bórsnes
II. hafi verið á djúprækjuveið-
um sl. tæpa 2 mánuði. skip-
stjóri Jónas Sigurðsson. Ilefir
háturinn yfirleitt landað í
Stykkishólmi.
Afli í þessum veiðiferðum
hefir verið misjafn. M.b. Þórs-
Leggja ber áherslu á að hvetja
konur til virkari þátttöku í stétt-
arfélögunum og öðlast þekkingu á
kjaramálum; hvetja stúlkur jafnt
og pilta til menntunar; hvetja
ungt fólk til að gefa meiri gaum að
upplagi sínu og hæfni, þegar
lífsstarf er valið, en ríkjandi
hefðum. Ríkisfjölmiðlarnir geta
stuðlað að breyttum viðhorfum
með markvissri dagskrá.
★
Varðandi síðari lið 3. spurn-
ingar um islensk markmið er ekki
margt að segja umfram hið al-
menna. Oft er það svo að fólk, sem
gefið hefur gaum að jafnréttis-
málum og stöðu karla og kvenna í
nágrannalöndum okkar, kemst að
þeirri niðurstöðu að við séum
eft^rbátar.
í fljótu bragði virðist almenn
umræða um stöðu kynjanna
lengra á veg komin þar, en oft er
það svo, þegar til raunveruleikans
kemur, þá hefur einstaklingurinn
meira svigrúm hér á landi en
víðast hvar annars staðar. Hins
vegar tala tölur því máli, að á
Norðurlöndum eru konur hlut-
fallslega mun fleiri kjörnar á
þjóðþing og í sveitarstjórnir og
ættu samkvæmt því að geta haft
víðtækari áhrif á heildarákvarð-
anir.
Varðandi Island verður að hafa
í huga, að atvinnulíf landsmanna
er einhæft og stendur í mörgu
tilliti á veikum fótum. Breyting á
stöðu kvenna og karla á vinnu-
markaðinum hér á landi hreyfir
við heildarskipulagi og má því
vera, að það sé að einhverju leyti
íslenskt fyrirbrigði í jafnréttis-
málum, að fara sér ekki of óðslega.
★
Margar konur hér á landi bera
þunga ábyrgð á innri málefnum
fjölskyldunnar samhliða því sem
þær afla tekna, fjölskyldunni til
viðurværis. Hópur einstæðra for-
eldra er stór hér og þarf án efa að
koma meira til móts við þarfir
hans en gert er.
Brýnt er að stjórnvöld móti
stefnu í fjölskyldumálum og fram-
fylgi án tafar þeim markmiðum,
sem þegar hafa verið sett og
samkomulag er um.
★
Hjá Sjálfstæðisflokknum hefur
jafnt og þétt verið umræða um
þessi mál og liggja þar fyrir
ýmsar samþykktir, sem eru
grundvöllur að frekari stefnumót-
un varðandi heimili og fjölskyldu,
stöðu kvenna og karla og samspili
við vinnumarkaðinn og þarfir
hans.
nes SH 108, skipstjóri Kristinn
Ó. Jónsson, var ásamt fleiri
bátum héðan á netaveiðum til
25. júní sl. og var afli góður
framan af. Þá hafa bátar verið
hér á togveiðum. Þórsnes hf.
hefir rekið fiskverkunarstöð
sína í sumar þar til nú að lokað
er vegna sumarle.vfa. Hefir
fyrirtækið veitt talsverða at-
vinnu í bænum.
Fréttaritari.
Misjafn afli
á djúprækju
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Merzedes Benz diesel 1976 til
sölu.
Tllboö sendist Mbl. merkt:
„Benz — 4016“.
Lögg. skjalaþýð.
Bodil Sahn, Lækjargötu 1, s.
10245.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR 11798 og 19S33.
Helgarferðir
25.-27. júlí:
1. Eiríksjökull — Strútur.
2. Þórsmörk.
3. Landmannalaugar — Eldgjá
4. Hveravellir — Þjófadalir.
5. Álftavatn á Fjallabaksleiö
syöri. Rólegur staöur. tagurt
umhverfi.
Upplýsingar á skrifstofunni, Öldu-
götu 3.
Feröafélag íslands.
í
KFUM - KFUK
Unglingamót í
Vatnaskógi
Um verslunarmannahelgina
veröur unglingamót KFUM og K
og oplö hús í Vatnaskógi. Þátt-
taka tilkynnist á aóalskrifstofuna
aö Amtmannsstíg 2B Farmiöa
sé vitjaó í síóasta lagi 30 júlí.
Nánari uppl. eru á skrifstofu
KFUM og K ísíma 17536.
AUU.YSfNUASIMINN KH:
22480 QjsJ
JflarounblntXb