Morgunblaðið - 06.08.1980, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 06.08.1980, Qupperneq 1
44 SÍÐUR 174. tbl. 67. árg. MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Fellibylur á Karíbahafi CaKtries. St. Lucia. 5. áKÚst. AP. FELLIBYLURINN „Allen“ æddi vestur yfir Karihahaf i dag áleið- is til Jamaica og vindhraðinn mældist allt að 270 kilómetrar á klukkustund. Fellibylurinn hef- ur þegar orðið átta manns að bana, hundruð manna hafa misst heimili sin ok stór hluti banana- uppskerunnar á St. Lucia hefur eyðilajfzt. Embættismenn í St. Lucia, sem hlaut nýlega sjálfstæði, segja að neyðarástand ríki í landinu og þeir óttast að fleiri muni farast. Rafmagn fór af aðalsjúkrahúsinu á eynni í fellibylnum og hluti þaksins fauk. „Hættulegur“ Bandaríska veðurstofan segir að „Allen“ sé „harðasti og hættu- legasti fellibylur á Karíbahafi á þessari öld.“ Fellibylurinn fór suður með eynni Hispaniola, þar sem Haiti og Dominikanska lýðveldið eru, laust fyrir hádegi og stefndi í vest-norðvestur á Jamaica. Veðurfræðingar segja að felli- bylurinn muni berast inn yfir Bandaríkin, en ekki fyrr en snemma í næstu viku. Deilur vegna kolmunnaveiða í uppsiglingu? Osló 5. á»f. Frá frcttaritara Mbl. Jan Erik Laurie. KOLMUNNAVEIÐAR Sovét- manna við Jan Mayen geta orðið Nú vill Ludmila hitta mann sinn Muskva 5. á«úst. AP. LUDMILA Vlasova. dansmær við Bolshoiballettinn hefur sótt um leyfi til að fara til eiginmanns síns í Bandarikj- unum. Mál þeirra hjóna vakti heimsathygli fyrir tæpu ári, en þá bað eiginmaðurinn, Alex- ander Godonov, um hæli i Bandarikjunum eftir að ball- ettflokkurinn hafði verið þar á sýningarferðlagi. Bandarísk stjórnvöld töldu að Ludmila sæktist einnig eftir að fá að verða eftir og fékk flugvél Aeroflot með hópinn ekki leyfi til flugtaks fyrr en eftir sólar- hrings þref. Við komuna til Moskvu þá sagðist Ludmila glöð yfir því að vera aftur komin til Sovét- ríkjanna og þaðan vildi hún aldrei fara. Að sögn ballettdansmærinn- ar hefur hún sótt um leyfi til að fara ein og hún vill fá að halda ríkisborgararétti sínum til að geta komið aftur heim til sín þegar hún vill. mjög viðkvæmt og vandmeðfarið mál á haustnóttum, því að norskir sjómenn krefjast þess að fá bætur frá Sovétríkjunum vegna þess að Norðmenn hafa stækkað kvóta þeirra í Barentshafi. Norðmenn hafa fram til þessa lítið skeytt þessum veiðum Sovét- manna þrátt fyrir að Sovétmenn veiddu yfir 660 þús. tonn í fyrra. Þetta svarar til alls þess magns af loðnu sem er veidd við ísland og Jan Mayen. Það hefur verið staðfest að þessi atriði muni verða mjög í brenni- depli í viðræðunum í haust. Norsk sjávarútvegsstjórnvöld íhuga nú, hvaða leiðir séu heppilegastar í framtíðinni. Það mun t.d. koma til greina að Norðmenn krefjist hluta sovézka kvótans á loðnu og þorski í Barentshafinu. Árás á ræðis- mannsskrifstofu Lyon. Frakklandi. 5. á*. AP. VOPNAÐUR maður gekk inn í ræðismannsskrifstofu Tyrklands á þriðjudag, hóf skuthriö og særði fjóra, þar af þrjá alvarlega. Samtök Armena hafa lýst sig ábyrg fyrir verknaði þessum. 00 D No P® VVATEP- íranir i London efndu til mótmæla við bandariska sendiráðið þar i borg á mánudagskvöld. Siðan brutust út óeirðir og allmargir lögreglumenn meiddust. Sjötiu og fimm íranir voru handteknir. Mótmælin voru til þess gerð að sýna samstöðu með írönum þeim sem voru teknir eftir mótmælaaðgerðir i Bandarikjunum. Iran: Bróðir Zahedis var handtekinn í gær — þekktum hófsömum þingmanni neitað um sæti á þingi I/ondon. 5. ág. AP. BYLTINGARVERÐIR handtóku i morgun Farrokh Zahedi, bróður Ardeshir Zahedi. sem var lengi sendiherra írans i Washington um hrið utanríkisráðherra og um árabil náinn samstarfsmaður keisarans og var ásamt fjöl- skyldu hans við dánarbeð hans i Egyptalandi. Verður Zahedi leiddur fyrir rétt að sögn bylt- ingarvarðanna. Hann hafði kom- ið á laun til írans og segja þeir að hann hafi ætlað að koma stór- eignum bróður síns i verð. Þá bar það til tíðinda í íranska þinginu í dag að þar var neitaö að leyfa Ahmad Madani, sem er þekktur fyrir hófsemi í stjórnmála- skoðunum sínum, að taka sæti á þinginu. Var þetta samþykkt með 176—1 atkvæði og sjö sátu hjá. Madani hefur verið sakaður um að hafa haft tengsl við keisarastjórn- ina og Bandaríkjamenn. Sjötíu og fimm íranir voru hand- teknir í London í gærkvöldi hvar þeir höfðu uppi mótmæli og há- reysti við sendiráð Bandaríkjanna. Þeir neituðu í dag fyrir rétti að gefa upp nöfn sín og var þá ákveðið að þeir yrðu áfram í gæzluvarð- haldi. Flestir eru Iranir þessir námsmenn í London og voru að mótmæla handtöku samlanda sinna í Bandaríkjunum. Sumir hafa lýst því yfir að þeir ætli einnig að sýna samstöðu með löndum sínum í Bandaríkjunum með því að neyta ekki matar, alténd ekki fyrr en fulltrúar ír- anska sendiráðsins koma til fang- elsisins. Ekki tókst að fá neina yfirlýsingu frá talsmönnum þess í kvöld. 200 manns yfir- heyrðir á Italíu Bolovcna. 5. áKÚst. AP. EINN þeirra sem vinna við rann- sókn sprengingarinnar, sem talið er að hægriöfgamenn hafi staðið fyrir í Bologna og kostaði 76 mannslif, sagði i dag, að það gæti tekið mörg ár að leiða menn, sem Tekst Bandarikjamönnum að draga úr olíuinnflutningi? WashinKton 5. áK- AP. MEÐ því að auka notkun kola, kjarnorku og stórefla rannsóknir ættu Bandarikja- menn að hafa getað dregið úr oliunotkun árið 1990 sem svarar 50% innflutnings nú, að því er sérstakur hópur vísindamanna sem hefur fjall- að um þessi mál sagði i skýrslu i dag. Þar kom fram að Bandaríkin ráða yfir auðlindum og tæ.kni- kunnáttu til að draga úr olíu- innflutningi sem svarar milli 4—5 milljón tunna á dag næstu tíu árin. Þetta þýddi þar með að Bandaríkjamenn þurftu ekki að flytja inn nema sem svarar 10% af þeirri orku sem þeir þurfa að nota, og er það svipað og var á árunum 1950—1960. En í skýrslunni segir enn fremur að til þess að þessi árangur náist verði stjórnin að kúvenda í orkustefnu sinni. Verði ekki breyting á stefnu stjórnarinnar í orku- málum geti svo farið að inn- flutningur á erlendu eldsneyti til Bandaríkjanna aukist og verði 11,3 milljón tunnur árið 1990, miðað við 8,2 milljónir nú. væru grunaðir um verknaðinn, fyrir rétt. Hann taldi líklegt, að handtökur gætu farið fram eftir nokkrar vikur, en sagði að réttarhöld í málinu gætu dregizt í mörg ár þar sem dómskerfið á Ítalíu væri svo svifaseint. Það tók sex ár að dæma átta hægrimenn fyrir sprengju- tilræði, sem kostaði 12 mannslíf í járnbrautarlest í göngum milli Bologna og Flórens 1974. Hafinn er undirbúningur útfar- ar þeirra sem fórust í sprenging- unni. Sandro Pertini forseti og Francesco Cossiga mæta við útför- ina sem fer fram á morgun. Lögreglan í Bologna segir, að 200 menn hafi verið yfirheyrðir víðs vegar á Ítalíu vegna málsins, en ekki hafi tekizt að rekja slóð tilræðismannanna. Nokkrir sjón- arvottar segjast hafa séð tvo grunsamlega menn henda frá sér poka í biðstofu rétt fyrir spreng- inguna. Nánar um sprenging- una: Sjá bls 43.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.