Morgunblaðið - 06.08.1980, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 06.08.1980, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÚST 1980 43 Bolivia: Argentínustjóm við- riðin valdaránið? BRAKIÐ í BOLOGNA Verksummerki eftir sprenjnnguna í Bologna er kostaði tugi manna lifið. — fréttamaður rek- inn úr landi La Paz. 5. ág. AP. BANDARÍSKA vikuritið News- week segir frá þvi i gœr, að líkur bendi til að Argentinustjórn hafi aðstoðað við það að lögmæt stjórn Boliviu var sett frá völdum í valdaráninu þann 17. júli. Bæði hafi Argentinumenn staðið að yfir- heyrsium ýmissa sem voru hand- teknir og fundizt hafi magn af argentinskum vopnum. Segir blað- ið að þetta geti haft hinar hörmu- legustu afleiðingar fyrir Bóliviu, langhrjáð land ug fátækt. Þá segir að inn í valdaránið blandist einnig hagsmunir eitur- lyfjasala, en talið er að kókaín hafi verið selt frá Bólivíu fyrir 500 milljónir dollara á sl. ári. Fréttamaður AP í La Paz, Harold Olmos var rekinn úr landi án þess að nokkrar ástæður væru upp gefnar. Olmos hafði verið í felum síðan 17. júlí, en gaf sig síðan fram við lögregluna. Var stimplað í vegabréf hans: „Rekinn úr landi af stjórn- málaástæðum". Loks segir í fréttum Bólivíustjórn- ar að það muni slíta stjórnmálasam- bandi við nágrannaríkið Nicaragua fyrir afskipti þess af innanríkismál- um Bólivíu, en stjórn Nicaragua hefur gengið mjög skelegglega fram í því að hvetja ríkisstjórnir hvar- vetna til að slíta stjórnmálasam- bandi við herstjórnina. Milljónir mótmæla árásinni í Bologna Bologna, 5. ágúst — AP. MILLJÓNIR ítala lögðu niður vinnu í gær og tóku þátt í miklum mótmælaaðgerðum gegn sprengjutilræði hermdarverkamanna er kostaði 84 mannslíf í Bologna og lögreglan heldur áfram leit að hægrisinnuðum öfgamönnum, sem eru grunaðir um verknaðinn. Verkalýðsleiðtogar segja, að gegn borginni heldur mannslíf- lestarsprengingu, manns að bana. sem varð 12 þátttaka í tveggja tíma mótmæla- verkfalli gegn sprengjutilræðinu hafi verið nánast 100%. Verk- smiðjum var lokað og járnbraut- arlestir og strætisvagnar námu staðar víðs vegar á Italíu. Rúmlega 40.000 manns mættu á mótmælafundi á aðaltorginu í Bologna og margir veifuðu rauð- um fánum. Um 5.000 manns tóku þátt í mótmælagöngu í Feneyjum og verkamenn mættu á geysi- fjölmennum útifundum í Róm og Mílanó. 15 slasaðir Fimmtán manns, þar af sjö börn, eru lífshættulega slösuð eftir sprengjutilræðið. „Árásin beindist ekki aðeins Þetta gerðist 1977 — EUefu farast í sprengju tilræði í Salisbury. 1973 — Bandarískar sprengju- flugvélar ráðast á Neak Long í Kambódíu í misgripum og hundr- uð farast. 1971 — 78 farast í fellibylnum „01ive“ í Japan og Kóreu. 19(52 — Jamaica fær sjálfstæði — Kínverjar samþykkja að ræða við Indverja um landamæri. 1945 — Fyrstu kjarnorkusprengj- unni varpað á Hiroshima. 1915 — Landganga Bandamanna í Suvla við Dardanellasund hefst. 1914 — Serbía og Montenegro segja Þýzkalandi stríð á hendur. 1880 — ósigrar Frakka fyrir Prússum við Worth og Spicheren. 1849 — Ófriði Sardiníu og Aust- urríkis lýkur með Milanó-friðn- um. 1828 — Mehemet Ali af Egypta- landi samþykkir kröfu Breta um brottflutning frá Grikklandi. 1825 — Bóiivía lýsir yfir sjálf- stæði og skilnaði frá Perú. 1806 — Hið heilaga rómverska ríki líður undir lok með valdaaf- sali Franz II, sem verður Franz I af Austurríki. 1726 — Austurríki og Rússland mynda hernaðarbandalag gegn Tyrkjaveldi. 1661 — Portúgalar og Hollend- ingar gera sáttmála og sam- kvæmt honum halda Portúgalar um,~ sagði borgarstjórinn í Bol- ogna, Renato Zangheri, á frétta- mannafundi. Hann sagði, að hryðjúverkamennirnir reyndu að valda öngþveiti í landinu, en spáði því að „lýðræðið mundi sigra ef við stöndum sarnan." Zangheri fór heim úr sumarleyfi á Krím þegar hann frétti um sprenginguna. Leit hefur verið gerð í íbúðum og húsum stuðningsmanna nýfas- ista í 20 borgum á Ítalíu að sögn yfirvalda. Talið er að hægrimenn hafi komið sprengjunni fyrir, þar sem sprengingunni svipar til fyrri árása, sem hægrimenn hafa játað að hafa staðið að. Sprengjuárásin var gerð réttum sex árum eftir að hægri menn lýstu sig ábyrga á 6. ágúst Brazilíu og Hollendingar Ceylon. Afmæli. Tennyson lávarður, brezkt skáld (1809—1892) — Alex- ander Fleming, brezkur vísinda- maður (1881 —1955) — Lucille Ball, bandarísk gamanleikkona (1911---) Robert Mitchum, bandarískur leikari (1917---). Andlát. 1637 Ben Jonson, leikrita- skáld — 1660 Diego Velazquez, listmálari — 1900 Wilhelm Lieb- knecht, sósíalistaleiðtogi. Innlent. 1228 Þorvaldsbrenna (d. Þorvaldur Vatnsfirðingur ) — 1218 Bardagi í Vestmannaeyjum (d. Ormr Breiðdælingur ) — 1201 d. Brandr Sæmundarson — 1782 d. Sveinn Sölvason lögmaður — 1851 Nýju stjórnarskrárfrum- varpi útbýtt — 1853 Alþingi samþykkir beiðni til konungs um bankastofnun — 1874 Þjóðhátíð- arsamkoma í Kaupmannahöfn — 1900 82 danskir stúdentar koma í heimsókn — 1907 Lárus Rist syndir yfir Oddeyrarál — 1951 Leiðangur Scotts kemur til Reykjavíkur frá varplöndum heiðagæsarinnar — 1960 Stein- grímsstöð Við Efra-Sog vígð — 1881 f. Hulda - 1931 f. Matthías Á. Mathiesen. Orð dagsins. í þessum heimi er ekkert víst nema dauöi og skattar — Benjamin Franklin, bandarísk- ur stjórnmálaieiðtogi (1706— 1790). Mesta hermdarverkið Sprengingin í Bologna er blóð- ugasta pólitíska ofbeldisverkið frá stríðslokum. Með sprengingunni hafa að engu orðið vonir um að hryðjuverkamenn tækju sér frí í ágúst, en þeir hafa ekki drepið neinn síðan 23. júní. Hryðju- verkamenn hafa myrt 22 manns á Ítalíu það sem af er þessu ári fyrir utan fórnarlömbin í Bologna. Hryðjuverkin gætu ógnað lýð- ræði á Italíu að sögn sérfræðinga þótt tvær byltingartilraunir ný- fasista væru kæfðar í fæðingu 1970 og 1973. Það er yfirlýstur tilgangur hryðjuverkamanna til hægri og vinstri að kalla fram hægribyltingu. Nýfasistar vilja byltingu til að komast til valda, en vinstriöfgamenn vona að slíkt valdarán geti leitt til vinstribylt- ingar. Ráðherra gagnrýndur „Svo mikið er víst að Bologna- árásin miðaði að því að grafa undan því trausti sem ríkir milli ríkisstjórnarinnar og þegnanna," skrifaði Eugenio Scalfari, ritstjóri vinstrablaðsins „La Repubblicat." Búizt er við að stjórn Francesco Cossiga forsætisráðherra verði veikari í sessi. Tomaso Morlino dómsmálaráðherra hefur sætt gagnrýni fyrir að vera ekki nógu harður í horn að taka gagnvart hermdarverkamönnum. Verkamaður í Bilbao drepinn Bilhao. 5. ág. AP. VERKAMAÐUR í Baskalandi var drepinn nokkrum klukku- tímum eftir að meðlimir ETA- skæruliðahreyfingarinnar höfðu rænt manninum. Manninum var rænt er hann var að koma frá vinnu sinni. Þrír vopnaðir grímuklæddir menn hrifu hann með sér og síðan var hringt nokkrum klukkustundum síðar til blaðsins Deia, sagt að maðurinn hefði verið líflátinn og vísað á hvar finna mætti líkið. Hafa nú 75 verið drepnir af ETA mönnum það sem af er árinu í Baskalandi. ERLENT Fé lagt til höfuðs skartgripaþjófum Ósló 5. ág. Frá (réttaritara Mbl. Jan Erik Laurie TVÖ norsk tryggingafélög hafa heitið 25 þúsund norskum krón- um (liðlega 2,5 millj. ísl.) hverj- um þeim sem gæti gefið upplýs- ingar um mesta skartgriparán sem framið hefur verið i Noregi. Snemma í júní brutust þjófar inn í einbýlishús í Ósló, og stálu þaðan gulli og gersemum sem metin eru á um 1,6 milljónir norskra króna. Lögreglan hefur birt mjög takmarkaðar fréttir um rannsókn málsins en þar sem svo virðist nú sem hún hafi ekki komizt á spor þjófanna enn, hefur verið leitað til almennings. Dýrasti gripurinn mun vera keðja með tveimur smarögðum og utan um þá eru demantssveigar. Er þessi skartgripur metinn á 400 þús. norskar krónur. Ólympíuleikum slitið i Moskvu ÓLYMPÍULEIKUNUM í Moakvu lauk á sunnudag með engu minni viðhöfn en höfð var við setningu leikanna. í mikilli skrautsýningu sem fram fór á Lenin-leikvangin- um um kvöldið komu fram stúlk- ur í forngriskum klæðum, lúðra- sveitir léku, dansaðir voru rússn- eskir þjóðdansar og hermennirn- ir 5000 sýndu margvislegar myndir með litaspjöldum sinum. Kl. 8.07 var slökkt á óiympiueld- inum og flugeldum skotið á loft yfir leikvanginum. Þetta er í fyrsta skipti sem sósialístískt ríki heldur Olympíu- leikana og einnig í fyrsta sinn sem Bandaríkjamenn taka ekki þátt í leikunum síðan þeir voru endur- reistir 1896. Þrjátíu og fimm lönd ákváðu að senda ekki lið til keppni í Moskvu til þess að mótmæla innrás Sovétmanna í Afganistan og í lokaskrúðgöngunni gengu íþróttamenn 16 landa undir fána Ólympíuhreyfingarinnar í stað þjóðfána sínum, af sömu ástæð- um. Margir háttsettir sovéskir emb- ættismenn voru viðstaddir loka- athöfnina, þar á meðal Gromyko, utanríkisráðherra, og Andropov, yfirmaður KGB. Bandaríski fán- inn var ekki dreginn að hún við lokaathöfnina en vaninn er að við enda leikanna sé flaggað fána þess lands sem næst á að halda leikana. Jimmy Carter, forseti hafði lýst sig andvígan því að fáninn yrði sýndur og fóru sovésk yfirvöld þess á leit við ólympíunefndina, að hún léti undan kröfum hans til þess að samskiptin versnuðu ekki enn frekar milli landanna. Kjörtímabili Killanins lávarðs er nú lokið og við forsetaembætti Alþjóðaólympíunefndarinnar tek- ur Juan Samaranch frá Spáni. Forsetaskiptin fóru fram á mánu- dag og héldu báðir aðilar aðskilda blaðamannafundi á eftir. Fjölluðu þeir um erfiðleikana við að greina á milli atvinnuíþróttamennsku og áhugamennsku og nauðsynina á að halda íþróttum utan við stjórn- máladeilur. Killanin skoraði á íþróttamenn allra landa að koma saman til leiks á næstu Ólympíu- leikum en þeir verða haldnir í Los Angels og í Sarajevo að fjórum árum liðnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.