Morgunblaðið - 06.08.1980, Blaðsíða 22
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÚST 1980
Heimsmeistaramót sveina:
Tvö tilboð í
Höfðabakkabrú
— annað upp á 421.7 milljónir króna og
hitt upp á 795.3 milljónir króna
AÐ SÖGN Torbens Frið-
rikssonar, forstjóra Inn-
kaupastofnunar Reykja-
víkur bárust tvö tilboð í
byggingu á Höfðabakka-
brú, fara þau fyrir
stjórn Innkaupastofnunar
Reykjavíkur í næstu viku.
Annað tilboðið var frá
Árna Jónssyni og hljóðaði
það upp á 421.7 milljónir
króna og hitt var frá Ár-
mannsfelli h.f. og hljóðaði
þeirra tilboð upp á 795.3
milljónir króna, eða um
89% hærra.
Torben sagði, að kostnað-
aráætlun Gatnamálastjóra
hefði hljóðað upp á 406
milljónir króna, en gat þess
jafnframt, að Reykjavíkur-
borg myndi leggja til nokk-
uð af efni. Hlutur væntan-
legs byggjanda yrði um
80% af heildarverði brúar-
innar.
Norræn sýning fyrirhuguð í Bandaríkjunum:
Byrjað að safna göml-
um ljósmyndum
UM ÞESSAR mundir er að
hefjast undirbúningur á all
umfangsmikilli listsýninvtu i
Bandaríkjunum sem bera mun
heitið „Scandinavia Today“. Á
sýninjfunni verða ínálverk,
Ijósmyndir, hdjfKmyndir o.fl.
frá Norðurlöndum og mun sýn-
ingin verða opnuð í New York
haustið 1982 en fara síðan víða
um Bandarikin, og hugsanlega
koma hinKað til íslands. Morj?-
unblaðið hafði samband við
Þorstein Jónsson, forstöðu-
mann Listasafns ASÍ, sem séð
hefur um að leita uppi og skoða
gamlar islenskar Ijósmyndir
íyrir þessa sýningu. Þorsteinn
var inntur eftir hvernig staðið
hefði verið að undirbúningi
sýningarinnar af íslands hálfu
og hvernig gengið hefði að afla
gamalla ljósmynda: „Öflun
Ijósmynda er eini þátturinn i
undirbúningi þessarar sýn-
ingar, sem hafist hefur verið
handa við hérlendis. Utanrikis-
ráðuneytið hefur haft umsjón
með undirhúningi þessa þáttar
i samráði við Ljósmyndarafé-
lagið og fleiri aðila.
Sýningunni er ætlað að
spanna bilið frá 1850—1982 en
íslendingar byrjuðu ekki að taka
ljósmyndir fyrr en um 1870, og
er næsta lítið til af frummynd-
um frá því fyrir aldamót. Utan-
ríkisráðuneytið auglýsti eftir
gömlum ljósmyndum og barst þá
nokkurt magn en það hefði
gjarnan mátt vera meira. Mikið
er til af gömlum ljósmyndum í
einkaeign og víða til gömul
filmu- og glerplötusöfn. Eg hef
verið fenginn, ásamt Leifi Þor-
steinssyni frá Ljósmyndarafé-
laginu, til að leita uppi og skoða
þessi gömlu myndasöfn. Ætlun-
in er að vinna sem mest af
þessum gömlu filmum og gler-
plötum á pappír og einnig að
safna saman gömlum stækkun-
um eftir íslenska ljósmyndara
til að fá sem heillegasta mynd af
íslenskri ljósmyndagerð í gegn
um tímann, — auk þess sem hér
er um að ræða býsna merkilega
sögulega heimildasöfnun. Reynt
verður að skrá sem mest af
þessu myndefni en síðan valið úr
þeim til sýningarinnar, sem
verður sú umfangsmesta sem
sett hefur verið upp á ljósmynd-
um frá Norðurlöndum. — Við
vildum gjarnan frétta af göml-
um filmum og glerplötum, sem
áreiðanlega eru víða til, og
biðjum fólk að láta okkur vita ef
það veit af einhverju slíku,"
sagði Þorsteinn að lokum.
Aldamótamynd frá Reykjavik.
Nú standa sem hæst upptökur á kvikmyndinni Punktur, punktur,
komma, strik, sem gerð er eftir samnefndri sögu Péturs
Gunnarssonar. Undanfarna daga hefir verið tekinn upp sá hluti
myndarinnar. sem gerist i sveit og fóru þær myndatökur fram að
Indriðastöðum i Skorradal. Á myndinni er verið að undirbúa töku
inniatriðis og það er söguhetjan Andri, sem þarna sést.
Ljósm. Mbl. Ofeigur Gestsson.
Elvar
hefur
3V2
vinning
HINN ungi og efnilegi skákmað-
ur Elvar Guðmundsson frá
Reykjavík tekur um þessar
mundir þátt i heimsmeistaramóti
sveina í skák, sem fram fer i Le
Havre i Frakklandi.
Alls verða tefldar 11 umferðir
og að 6 umferðum loknum hefur
Elvar hlotið 3vinning. Hann
gerði jafntefli í 1. umferð við Saee
frá Dubai, vann Norðmanninn
Kristiansen í 2. umferð, tapaði
fyrir Dananum Hansen í 3 um-
ferð, og Rúmenanum Barbulescu í
4. umferð, vann Ochoa frá Kól-
ombíu í 5. umferð og loks vann
hann Chapman frá Ástralíu í 6.
umferð.
Daninn Hansen hefur 4 'k vinn-
ing og biðskák. Sovézki pilturinn
Saloff hefur sömuleiðis 4'k vinn-
ing og Milos frá Brasilíu hefur 4
vinninga og 2 biðskákir.
Seldi í Hull
EITT íslenzkt fiskiskip seldi ytra í
gærmorgun. Ljósafell seldi 94.1
tonn í Hull og fékk fyrir það 51.5
milljóna króna, eða um 547 krónur
fyrir hvert kíló að meðaltali.
Viðræðjim V.M.S.S.
og A.S.I. lokið í bili
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Vinnumálasambandi samvinnufé-
laganna.
Undanfarinn hálfan mánuð
hafa staðið yfir samningaviðræð-
ur um kaup og kjör milli Vinnu-
málasambands samvinnufélag-
anna og Alþýðusambands íslands
á grundvelli tillagna Vinnumála-
sambandsins.
Ástæðan fyrir því, að Vinnu-
málasambandið kom fram með
þessar tillögur var sú skoðun, að
nauðsynlegt væri að gera tilraun
til þess að ganga frá hóflegum
kjarasamningum og tryggja
vinnufrið í landinu en viðræður
Alþýðusambands íslands og
Vinnuveitendasambands íslands
voru á þessum tíma komnar í
strand.
Tillögur Vinnumálasambands-
ins voru í aðalatriðum þær, að
umræðum um samræmdan kjara-
samning yrði frestað um sinn, en
núgildandi samningar framlengd-
ir um eitt ár. í staðinn fengju
launþegar 5% kauphækkun, sem
að hluta yrði greidd í hækkun
slysa- og sjúkrabóta til handa
launþegum og að hluta sem al-
menn grunnkaupshækkun.
Eitt af skilyrðum Vinnumála-
sambandsins fyrir sííkum samn-
ingi var, að öll aðildarsambönd
Alþýðusambandsins tækju þátt í
samningum.
Þegar langt var komið umræð-
um um þennan samning og þær
komnar á lokastig klauf Málm- og
skipasmíðasamband íslands sig úr
þessum umræðum og lýsti yfir því,
að það hefði tekið upp sjálfstæðar
samningaviðræður við samband
Lækkun á unn-
um kjötvörum
VEGNA aukinna niðurgreiðslna
ríkissjóðs á iandbúnaðarvörum
lækka unnar kjötvörur í verði um
5,7—10,2%. Kindakæfa lækkar
mest eða um 10,2% hvert kíló,
kindabjúgu um 9,4%, kjötfars um
7,5% og pylsur um 5,7%.
Málm- og skipasmiðja, sem eru
aðilar að Vinnuveitendasambandi
íslands.
Vinnumálasambandið lýsti sig
reiðubúið að bíða með sínar við-
ræður við Alþýðusambandið, þar
til séð yrði hver úrslit fengjust úr
þessum viðræðum.
Nú hefur það hins vegar gerst,
að Alþýðusamband íslands og
Vinnuveitendasamband íslands
hafa ákveðið að taka upp viðræður
um samræmdan samning að nýju
og boðið Vinnumálasambandinu
aðild að þeim umræðum. Vinnu-
málasambandið hefur óskað eftir
að fá að fylgjast með viðræðunum
og fá að gerast aðili að þeim þegar
séð verður í hvaða átt málin
þróast.
Með tilvísun til þessara atburða
telur Vinnumálasambandið að
lokið sé viðræðum þess við Al-
þýðusambandið að sinni, á grund-
velli tillagna Vinnumálasam-
bandsins. Jafnframt lýsir Vinnu-
málasambandið því yfir, að það er
reiðubúið til þess að taka þátt í
hverjum þeim samningaviðræð-
um, sem leitt geta til hóflegra
kjarasamninga í landinu.
Norræn umhverfislist á Korpúlfsstöðum:
Kvikmyndir
sýndar í kvöld
SL. LAUGARDAG, 2. ágúst,
hófst sýning á norrænni um-
hverfislist að Korpúlfsstöðum.
Sýningin nefnist „Experimental
Enviroment 11“ og stendur til 15.
ágúst. Að þessari sýningu standa
36 norrænir listamenn, sem segj-
ast „vinna með náttúrunni, í
náttúrunni eða láta náttúruna
vinna fyrir sig,“ eins og Jón
Gunnar Árnason hjá Nýlistasafn-
inu komst að oröi í samtali við
Mbl.
Á sýningunni eru nær eingöngu
útiverk, en einnig eru kvikmynda-
sýningar tvö kvöld. í kvöld kl.
20.30 sýna listamennirnir Rúrí,
Margit Jacobsen, Metta Arre og
Guðjón Ketilsson kvikmyndir sín-
ar, og á fimmtudagskvöldið Bjarni
Þórðarson, Rúrí, Hendrick Pry-
desbeck, Ólafur Lárusson og
Metta Arre — auk þess er þá á
dagskrá mynd frá finnska sjón-
varpinu. Bæði kvöldin eru í gangi
litskyggnur af verkum listamann-
anna. Jón Gunnar Árnason kvað
sýninguna vekja mikla athygli,
hingað til lands hefðu komið
blaðamenn og sjónvarpsmenn frá
hinum Norðurlöndunum. Hann
vildi eindregið hvetja fólk til að
koma að Korpúlfsstöðum, sýning-
in væri opin sýningardagana frá
kl. 14-22.
Prestkosningar
í Seljasókn
þann 31. ágúst
PRESTKOSNINGAR fara fram í
Reykjavík þann 31. ágúst næst-
komandi, i hinu nýja prestakalli,
Seljasókn i Breiðholtshverfi.
Umsækjendur eru tveir, þeir
Úlfar Guðmundsson sóknarprest-
ur á Ólafsfirði, og Valgeir Ást-
ráðsson sóknarprestur á Eyrar-
bakka. Þriðji umsækjandinn, séra
Heimir Steinsson skólastjóri Lýð-
háskólans í Skálholti, dró umsókn
sína til baka.
Umsækjendur um hið nýja
prestakall munu prédika í Bú-
staðakirkju næstu sunnudaga,
Úlfar Guðmundsson þann 10.
ágúst og Valgeir Ástráðsson þann
17.