Morgunblaðið - 06.08.1980, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 06.08.1980, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÚST 1980 11 -.Klæðum og bólstrumj ígomul húsgögn. Gott<j ,úrval af áklæðum BÓLSTRUIM( ÁSGRÍMS, Bergstaðastræti 2, Simi 16807, P 31800 - 31801 p FASTEIGIMAMIÐLJUN Sverrir Knstjánsson heimasími 42822 HREYFILSHÚSINU -FElLsMÚLA 26, 6.HÆÐ Smáragata Til sölu rúmgóö 2ja herb. fb. í kjallara. Samþykkt. Laus fljótt. Gamli bærinn Til sólu einbýlishút byggt 1905, eftir Rðgnvald Ólafsson. Húsió, sem er járnvariö timburhús, er: kjallari, ca. 51 fm, lofthæö 2,2 m er eitt herbergi, þvottaherbergi og geymsla; 1. hæö ca. 51 fm. Lofthasö 4,4 m, 3 herbergi, eldhús o.fl.; Rishæö ca. 48 fm. Lofthæö 3,1 m. 3 herbergi. Lóöin 471 fm. Mjög rólegur og góöur staöur. Upplýsingar um þetta hús eru aöeins gefnar ó skrifstofunni. Ljósheimar Til sölu 4ra herb. íbúö á 3. hæö. Samliggjandi stofur, sórinngangur af svölum. Lyftuhús. Verö 38—40 millj. Hólahverfi Til sölu ca. 130 fm 5 herb. endaíbúö á 4. hasö í lyftuhúsi. Verö. Verö kr. 43—44 milij. Seltjarnarnes Til sölu parhús sem er ca. 220 fm ásamt 40 fm bflskúr. Möguleiki á 2 fbúöum. Fokheld raóhús viö Hálsasel og Melbæ, Seláshverfi Stykkishólmur Til sölu parhús sem er 121 fm á 2 hæöum, ásamt bílskúr og þurrkhjalla. Ræktuö lóö. Góö eign. Laus 1. sept. Verö 38 millj. Vesturberg Tll sölu mjög vönduö 2ja herb. íbúö á 2. hæö. íbúöin er skáli, stofa og eldhús meö mjög vandaöri innréttingu. Þvotta- herb. er innaf eldhúsi. Allt flfsalagt. Vandaö baö. Rúmgóö sér geymsla. Mikiö útsýni. Blikahólar Tll sölu mjög góö 97 ferm. 3ja herb. fbúö á 2. hæö, ásamt ca. 30 ferm. bflskúr. Laus fljótt. Álagrandi Tll sölu 3ja herb. ca 75 ferm. íbúð á Jaröhæö. Ibúöln er rúmlega tllbúln undlr tréverk. Laus strax. Suóurhólar Til sölu sérlega vönduö og vel frágengin 4ra herb. ca. 110 ferm. fbúö á 2. hæö. Miklar innréttingar. Laus fljótt. Blöndubakki Tll sölu göö 4ra herb. Ibúö é 1. hæö ásamt rúmgóöu herb. I kjallara og stórrl geymslu. Laus f okt. nk. Kleppsvegur Til sölu 4ra herb. 115 ferm. endaíbúö á 8. hæö f lyftuhúsi. Laus fljótt. Æsufell Tll sölu 160 ferm. mjög góö 7 herb. íbúö á 3. hæö. Einbýlishús í smíöum á Arnarnesi Ca. 150 ferm. ásamt stórum bflskúr. Afhent fokhelt fljótt. Miðvangur raöhús Tll sölu mjög rúmgott raöhús viö Miövang ásamt innbyggöum bflskúr. Esjuberg Kjalarnesi Tll sölu hús sem er ca. 170 ferm. Steyptur kjallarl. Lofthæö 2,40 þar er innbyggöur tvöfaldur bflskúr o.fl. Á hæöinni er 125 ferm. timburhús frá Siglufiröi (Vinkilhús). Fokhelt aö innan en frágenglö aö utan. Skipti á 2)a—3ja herb. íbúö koma til greina. Húsiö er laust til afhendingar strax. Hef kaupanda aö góöri 2ja herb. íbúö innan Elliöaáa. MÁLFLUTNINGSSTOFA SIGRÍOUR ÁS3EIRSDÓTTIR hdl HAFSTEINN BALDVINSSON hrl. Við vötn SKAFTFELLINGUR. 216 bls. Ritstj. Friðjón Guðröðarson. 2. árg. — 1980. íltg. Austur- Skaftafellssýsla. Skaftfellingar eru sagðir hóg- værir menn og raunsæir. Þetta ársrit ber hvorutveggja vitni. Hér er lítið um óbeislað hugarflug og vangaveltur en þeim mun meira af staðreyndum. Friðjón Guðröðar- son er ritstjóri og ábyrgðarmaður. Fyrsti þáttur ritsins er eins konar Bókmenntlr eftir ERLEND JÓNSSON ritstjórnargrein frá hans hendi: Umhverfis- og náttúruverndar- mál (upphaflega flutt sem fram- söguerindi á bændafundi). Friðjón talar þar til sýslunga sinna með hliðsjón af að þeir horfast nú í augu við breyttar aðstæður: ein- angrun héraðsins rofin með hringveginum alkunna. »Ég vara við þeirri hættu og því neikvæða andrúmslofti,* segir Friðjón, »sem stífni og ósanngirni skapa, þó sjaldgæft sé og kemur fram hjá einstaka sveitamanni við þéttbýl- isfólk.« Friðjón vill að bændur leyfi fólki að skoða sig um á jörðum sínum. En yfirvaldið veit líka að ekki fara allir göngumenn með friði: »Ein er sú tegund ferða þéttbýlisfólks um lönd bænda sem með öllu er óliðandi, án sérstaks leyfis hverju sinni, sem sagt svonefndar sportveiðar.« Friðjón hvetur til að bændur »gæti réttar síns og kæri brotlega* og upplýsir að »viðurlög eru ströng«. Hér sýnist mér Friðjón leggja landeig- endum á herðar vanda sem erfitt muni að rísa undir. í víðlendu og strjálbýlu héraði hlýtur að vera ógerningur að fylgjast með öllum mannaferðum utan vega. Og skot- menn fara um allt. Að eiga þvílíka umferð yfirvofandi, sí og æ, hlýtur að vera óþolandi fyrir heimafólk. Og reynslan annars staðar gefur til kynna að hinir ófyrirleitnustu eru jafnframt ágengastir og síst til þess líklegir að biðja einn né neinn um leyfi. Að samræma eignarrétt bænda og útivistarrétt þéttbýlisbúa er því hreint ekki svo einfalt mál sem ætla mætti í 43466 Hverfisgata 2ja herb. 55 fm. jarðhasö. Verð 21 millj. Ásbraut — 3ja herb. 2. hæð 86 fm. Verð 30 mi'lij. Kársnesbraut — 3ja herb. 100 fm. jaröhæð, sér inn- gangur og þvottahús. Verð 34 millj. Ásbraut — 4ra herb. 100 fm. jaröhæð. Verð 35 millj. Langafit — sérhœð Efri hæð í þríbýli. Verö 37 millj. Bekkustígur — 4ra herb. 3. hæð, laus fljótlega. Verö 40 millj. Einbýli — Kópavogsbraut Kjallari hæð og ris, stór bílskúr Bein sala. Raöhús — Garðabæ Endaraðhús 2 hæðir og tvöfaldur bílskúr. Óska eftir Höfum fjársterkan kaupanda aö 2ja herb. íbúö t Furugrund Kópavogi. Vegna mikillar sölu undan- farið vantar allar stærðir eigna á söluskrá. ÍJ™ Fasteignasalan aai EIGNABORG sf. og frera fljótu bragði, að minnsta kosti ekki án verulega vökullar lög- gæslu, og munu Skaftfellingar í fyllingu tímans komast að raun um það. Þá á Friðjón þarna viðtal við Jón Ivarsson, fyrrum kaupfé- lagsstjóra á Höfn í Hornafirði. Jón ívarsson var að allra dómi með fremstu mönnum sinnar stéttar og þjóðkunnur, meðal ann- ars vegna þess að Jónas Jónsson frá Hriflu gat hans manna oftast í pistlum sínum og dáðist mjög að framtaki hans. Spurningar Frið- jóns beinast einkum að þætti Jóns ívarssonar í uppbyggingu kaupfé- lagsins en hann gegndi starfi kaupfélagsstjóra 1922—43, kom að félaginu næstum því gjaldþrota en skilaði því af sér sterku og traustu. Viðtalið er fróðlegt en sumár spurningar spyrjanda eru óþarflega klúðurslega orðaðar, t.d. þessi: »Heldur þú að menn hafi verið full bjartsýnir um greiðslu- kjör og verð, uppá framtíðina, alla vega eins og hún varð, eða jafnvel í það heila?« Undanfari verslunar á Höfn í Hornafirði var sem kunnugt er Papósverslun. Einar Bragi og Sig- urður Björnsson, Kvískerjum, rita báðir um sögu hennar, fróðlega þætti. Skaftafellsfjara og nytjar hennar heitir þáttur eftir Ragnar Stefánsson, Skaftafelli. Ragnar lýsir einkum selveiðinni eins og hún var stunduð fyrrum. Erfitt hefur það verk verið ekki síður en mörg önnur glíma sem Skaftfell- ingar máttu heyja í sinni hörðu lífsbaráttu. Hjá Austur-Skaftfellingum nefnist langur þáttur eftir Þórð Tómasson, Skógum. Þórður fór um sýsluna til að kanna hvað til væri af fornum munum og minjum og er þátturinn eins konar ferðasaga. Þórð þarf ekki að kynna því hann er löngu kunnur, bæði af ritstörf- um og ekki síður því stórmerka byggðasafni sem hann hefur kom- ið á fót í Skógum undir Eyjafjöll- um. Hann veit því manna best »hve sagan er fljót að heimta til sín líðandi stund« eins og hann orðar það sjálfur á einum stað í frásögn sinni. Þórður kemur á marga bæi og hittir fjölda fólks en segir alltaf eitthvað hnyttið um hvern stað og hvern mann svo frásögn hans verður ágætur MtDBORG fasteignasalan i Nyja btohusinu Reykjavik Símar 25590,21682 Jón Rafnar sölustj. h. 52844. Kóngsbakki 3ja herb. ca. 95 fm. íbúð í fjölbýlishúsi. Sér lóó. Skápar í báöum svefnherb. Sér þvotta- hús. Verö 33 mlllj. Útb. 25 millj. Hjallabraut Hafnarf. 3ja herb. ca. 95 fm. íbúö í fjölbýlishúsi. Sérstaklega björt og skemmtileg íbúö með suður- svölum. Sér þvottahús. Verð 36 millj., útb. 27 millj. Álfheimar 4ra herb. ca. 110 fm. íbúð í fjölbýlishúsi. íbúðin er öll í mjög góðu standi. Suöursvalir. Verö 40—42 millj., útb. 30—31 millj. Brattakinn Hafnarf. 4ra herb. ca. 80 fm. neörl hæö í tvíbýlishúsi. Ný eldhúsinnrétt- ing, nýir gluggar og fl. endurnýj- aö. Ca. 30 fm. bflskúr með rafmagni og hita. Verð 39—40 millj., útb. 30 millj. Merkiteigur Mosf. Einbýlishús, ca. 140 fm. auk ca. 50 fm. bílskúrs. Húsiö er rúm- lega tilbúlö undir tréverk en vel íbúöarhæft. Rólegur og skemmtilegur staður. Verð 63 millj., útb. 42 millj. Þorlákshöfn Einbýlishús ca. 100 fm. með 3 svefnherb. Verð 28—29 millj., útb. 20 millj. Álfaskeiö Hafnarf. 5 herb. ca. 120 fm. endaíbúö í fjölbýlishúsi. Vandaðar innrétt- ingar, sér þvottahús. Frystihólf í kjailara. Bílskúr fylgir. Verö 45 millj., útb. 32—33 millj. Guðm. Þórðarson hdl. Friðjón Guðröðarson skemmtilestur — auk þess að færa manni heim sanninn um hvernig safnari rekur slóð gamalla muna og gengur beint að því sem markverðast er á hverjum stað, en ferðina fór hann að beiðni Aust- ur-Skaftfellinga sem voru að und- irbúa stofnun byggðasafns. Veldi guðs á engin takmörk heitir þáttur eftir Torfa Þor- steinsson, Haga, byggður á sam- tali við Vilmund Jónsson, bónda í Árnanesi í Hornafirði. Vilmundur er maður aldraður, kominn á tíræðisaldur, en man glöggt eldri tíð. Vilmundur segir ekki aðeins frá gömlum búskaparháttum, hann víkur einnig að skáldskap og trúmálum. »Við vitum ekkert um uppruna lífsins,« segir hann, »eða hvað um það verður. Og ég glími ekkert við ráðgátuna miklu um það, hvað við tekur.« Ég nefni líka þættina Skessan í Skaftafelli eftir Þorstein Guð- mundsson frá Reynivöllum og Siminn kemur i Áustur-Skafta- fellssýslu eftir Gísla Björnsson, Höfn. Síðarnefndi þátturinn er reistur á endurminningum höf- undar frá sumrinu 1915. Fleira efni er í ritinu, ljóð t.d.; svo og annálar hVers hrepps fyrir sig auk skrár um »látna vestan Fljóta«; og fleira. Rit af þessu tagi eru nokkuð mörg í gangi á landinu. Sum hef ég lesið, önnur þekki ég einungis að nafninu til. Mér sýnist stefna þessa rits einkum vera fólgin í að skrásetja þann fróðleik sem enn geymist í minni elstu manna og tel ég það rétt að farið. Kirkjubækur og aðrar ritaðar heimildir fyrri tíðar munu ef guð lofar varðveit- ast og því nógur tíminn að grúska í því efni, það má bíða. En enginn veit nær gamall þulur hverfur á vit feðra sinna með þau fræði sem hann geymir í hugskoti sínu. Sífellt er því hver síðastur að bjarga þeim fræðum frá eilífri gleymsku. Vonandi heldur rit- stjórn Skaftfellings áfram í svip- uðum dúr. Brottrækur fyrir að gagnrýna kerfið RUDOLF BAHRO heitir rit- höfundur sem vísað var frá Austur-Þýskalandi fyrir bók sina Valið. Hann býr nú i Vestur- Þýskalandi og er þar framarlega í flokki umhverfisverndarmanna sem kalla sig hina grænu eða Die Grtinen. Nýlega flutti Rudolf Bahro fyrirlestur á vegum Þýsku menn- ingarstofnunarinnar í Stokkhólmi þar sem hann lýsir aðdraganda þess að hann var gerður brottræk- ur frá Austur-Þýskalandi og fjall- ar einnig um fyrrnefnd umhverf- isverndarsamtök. Fyrirlesturinn birtist í tímaritinu Ord & bild (1/80). Til þess að girða fyrir að á hann sé litið sem andkommúnista lýsir Bahro því yfir að hann sé skilgetið afkvæmi kommúnistaflokksins og þar með Austur-Þýskalands; hann kveðst trúa því enn í dag þrátt fyrir óvægna gagnrýni sína að Áustur-Þýskaland sé þegar á heildina sé litið hið betra Þýska- land. Bahro bendir á að það sé rangt að meirihluti andófsmanna í Austur-Þýskalandi séu á móti ríkinu. Hann segir að allir hugs- andi menn í Austur-Þýskalandi séu ósáttir við kerfið, veldi þess. Jafnvel þeir sem eru sjálfir full- trúar kerfisins séu oft sama sinn- Bókmenntlr eftir JÓHANN HJÁLMARSSON is. Menn eru ekki ánægðir með þvinganir kerfisins og að það sé óhagganlegt. Það sem átti að vera í sósíalískum eða kommúnískum anda er ekki til. í staðinn ríkir kyrrstaða, mestu skiptir að við- halda kerfinu. Bahro segist hafa skýrt andóf sitt áður en hann var fangelsaður. Þá sagðist hann vera í hópi þeirra manna sem hefðu glatað voninni um kommúnískt samfélag í Austur-Þýskalandi, en að því vildi hann vinna að koma því á. Félagar mínir lesa bók mína, segir Bahro, og eru sammála flestu í henni. En skoðun þeirra er sú að ég hefði ekki átt að skrifa bókina og allra síst láta prenta hana í vestri. Þeir óttast í raun og veru um framtíð ríkisins. Sjálfur er Bahro svipaðr- ar skoðunar. Tilgangur hans með Valinu var að efna til hugmynda- fræðilegrar umræðu, en ekki hvetja til pólitískra átaka. Póli- tískar aðgerðir í Austur-Þýska- landi eru að mati Bahros dæmdar til að misheppnast. Þær myndu annaðhvort vera barðar niður strax leiða til sovéskrar íhlut- unar. Málflutningur Rudolfs Bahros minnir á ýmsar yfirlýsingar Wolfs Biermanns, Bahro og Biermann eru þrátt fyrir slæma reynslu af alþýðulýðveldinu í Austur-Þýska- landi reiðubúnir að verja það gegn auðvaldsöflum í velferðarheimi Sambandslýðveldisins. Þeir líta svo á að mestu skipti að bæta ástandið og það verði best gert með því að vera trúr hinum gömlu kommúnísku hugsjónum. Það er ekki auðvelt að skilja þá. Þeir vilja ekki fallast á að kommúnisminn hafi verið orsök þeirrar ógæfu sem kerfið í Austur-Þýskalandi er. Bahro gengur til liðs við hina grænu í Vestur-Þýskalandi vegna þess að hann telur að hið kapítal- íska markaðssamfélag með hrika- legri samkeppni sinni eigi eftir að steypa mannkyninu í glötun. Bier- mann aftur á móti hæðist að græningjum í beiskum söngvum. Það er kannski tímanna tákn aö marxistinn Rudolf Bahro er á sama máli og íhaldsmaðurinn Herbert Gruhl sem er öflugur liðsmaður hinna grænu og hefur varað við þróun mála í bókinni Ein planet wird geplúndert. Þeir sem hafa valdið miklu um þroska Bahros að hans sögn eru menn eins og Beethoven, Hölder- lin, Fichte og Jean Paul. Þeim kynntist hann í skóla hjá kennara sem lagði kapp á að innræta nemendum sínum húmanisma. Bahro naut þessarar kennslu og gerir enn í dag. En kennarinn víðsýni var hrakinn burt frá Austur-Þýskalandi. Sjálfsagt hef- ur hann þótt of borgaralega sinn- aður. Nú standa Rudolf Bahro, Wolf Biermann og fleiri í sömu sporum og kennarinn sem dýrkaði Beethoven. Sumum okkar þykja þeir ráðvilltir, ekki síst þegar þeir verja þá hugmyndafræði sem kom öllum djöflaganginum af stað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.