Morgunblaðið - 06.08.1980, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.08.1980, Blaðsíða 30
34 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÚST 1980 t Móðir mín, ANNA LILJA STEINÞÓRSDÓTTIR frá Vík ( Héðinsfirði, Hringbraut 115, Reykjavík, andaöist f Landspítalanum, mánudaginn 4 Fyrir hönd aöstandenda, 9ust. Kristjana Heiðberg Guömundsdóttir. t Maöurinn minn, faöir okkar og tengdafaöir, BERNHARD B. ARNAR, fyrrum kaupmaður, Stórholti 17, lézt aö morgni hins 4. ágúst. Rannveig Arnar, Erna Arnar, Péll Vígkonarson, örn Arnar, Margrét Arnar, Björn Arnar, Karen Arnar, barnabörn og barnabarnabarn. t Eiginmaöur minn og faöir okkar, GUÐMUNDUR JÓNSSON, Bólstaðarhlfð 64, andaöist aöfaranótt 4. ágúst. Sigríöur Hannesdóttir og synir. + Sonur minn og bróðir okkar, GUÐMUNDUR SAMÚELSSON, húsgagnasmiöur, varð bráökvaddur 2. ágúst sl. ■ / Árndfs Arnadóttir, Ingvi Samúelsson, Snasbjðrn G. Samúelsson, Guörún Samúelsdóttir, Þórunn Samúelsdóttir. + HALLDÓR BJARNASON, Hraunbraut 40, Kópavogi, andaöist fimmtudaginn 31. júlí. Margrét Þorvaldsdóttir, Heiðar Páll Halldórsson, Rannveig Siguröardóttir, Sigrún Halldórsdóttir, Bjarni Guðmundsson, Bjarni Halldórason, Auður Sigurgeirsdóttir, Erla Halldórsdóttir, Halldór Halldórsson, Sigríður Helgadóttir. + Faöir okkar og tengdafaöir, SIGUROUR GUNNARSSON, Snekkjuvogi 5, lést aö kvöldi 2. ágústs. Fyrir hönd vandamanna. Gunnar Sigurðsson, Guörún isaksdóttir, Hafdfs Moldoff, Ragnar Jóhannasson. + Eiginmaöur minn og faðir okkar, HENNING CHRISTENSEN, andaöist aö heimili sínu sunnudaginn 3. ágúst. Dóróthe Vilhjélmsdóttir og börn. + Faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, MAGNÚS GUDMUNDSSON, fyrrv. prófastur, Ólafsvík, andaöist í Landspítalanum 1. ágúst sl. Helga Magnúsdóttir, Kristín Möller, Anna Magnúsdóttir, Guöm. Óli Ólafsson, Einar Th. Magnússon, Petrína H. Steinadóttir, börn og barnabörn. Minning: Margrét Ólafsdótt- ir frá Kolbeinsá Fædd 25. desember 1895 Dáin 27. júlí 1980 t>á eik i stormi hrynur háa hamra því heltin skýra írá. en þá fjólan fellur hláa fallið þaA enxinn heyra má; en ilmur horfinn innir fyrst urtahyKKÓin hvers hefur misst. B. Th. Þessar kunnu hendingar úr erfi- ljóðum eftir Bjarna Thorarensen hafa varla liðið úr minni mínu síðan Margrét Ólafsdóttir frá Kol- beinsá lést í Borgarspítalanum að kvöldi sunnudagsins 27. júlí sl. Margrét var orðin öldruð, slitin og sjúk og hafði lokið farsælu ævi- starfi. Og venjulega verður enginn héraðsbrestur þegar gamalmenni fellur frá, þótt ættingjar og vinir finn,i jafnan til sársauka og sakn- aðat. Og víst er að Margrétar Ólafsdóttur verður lengi minnst og saknað af ástvinum og frænd- garði. Margrét Soffía Ólafsdóttir var fædd að Kolbeinsá í Bæjarhreppi í Strandasýslu þann 25. desember 1895 og því 84ra ára þegar hún féll frá. Foreldrar hennar voru hjónin Ólafur Björnsson bóndi á Kol- beinsá og Elísabet Stefánsdóttir. Þau Ólafur og Elísabet eignuðust átta börn og var Margrét yngst þeirra sex er náðu fullorðinsaldri. Kveður hún nú síðust þeirra systkina. Hin voru Þórunn Sigríð- ur, er giftist Kristmundi Jónssyni, kaupfélagsstjóra á Borðeyri og síðar fulltrúa í Stjómarráðinu, Stefán bóndi á Kolbeinsá, er kvæntist Jóhönnu Lýðsdóttur, Ingibjörg, er giftist Jóni Jónssyni, bónda á Kolbeinsá, síðar verka- manni í Reykjavík, Þorvaldur, ókvæntur og dvaldist oftast á heimili Margrétar systur sinnar, og Halldór, bóndi á Fögrubrekk- um, kvæntur Guðrúnu Finnboga- dóttur. Öll voru þessi systkini ágætlega gefin og traust og vandað mann- kostafólk eins og þau áttu kyn til. Faðir Ólafs á Kolbeinsá var Björn Sigurðsson, bóndi í Belgs- holti í Melasveit, en hann var sonur Sigurðar Snorrasonar, sýslumanns á Stóru-Giljá í Húna- vatnssýslu og Ingibjargar Björns- dóttur Jónssonar prests í Bólstað- arhlíð. Er sú ætt fjölmenn og kunn og gjarnan kennd við Ból- staðarhlíð. Móðir ólafs á Kolbeinsá og kona Björns í Belgsholti var Ingibjörg Þorvaldsdóttir Böðvarssonar prests að Holti undir Eyjafjöllum. Séra Þorvaldur var þrígiftur. Fyrsta kona hans var Rannveig Stefánsdóttir, prests í Bólstaðar- hlíð Högnasonar. Áttu þau tvö börn er dóu ung. Önnur kona séra Þorvaldar var Guðrún Einarsdótt- ir, lögréttumanns í Þrándarholti, Hafliðasonar. Áttu þau fimm börn. Þriðja kona séra Þorvaldar var Kristín Björnsdóttir Jónsson- ar prests í Bólstaðarhlíð; varð þeim þrettán barna auðið og var Ingibjörg í Belgsholti eitt þeirra mörgu systkina. Þannig koma Bólstaðarhlíðarætt og Þorvalds- ætt víða saman og er af þeim sameiginlega mikill ættbogi. Þess má geta að bróðir Ólafs á Kolbeinsá var séra Þorvaldur Bjarnason á Melstað, sá mikli lærdómsmaður, en hann er móð- urafi Björns Þorsteinssonar sagn- fræðings. Kona Ólafs á Kolbeinsá var eins og fyrr segir Elísabet Stefánsdótt- ir. Var hún dóttir Stefáns Jóns- sonar, bónda á Þóreyjarnúpi í Húnavatnssýslu og fyrri konu hans, Margrétar Pétursdóttur frá Miðhópi. Faðir Stefáns á Þóreyjarnúpi var Jón Pétursson, prestur að Höskuldsstöðum og síðar að Þing- eyraklaustri, en móðir Elísabet Björnsdóttir, prests í Bólstaðar- hlíð Jónssonar. Margrét Ólafsdóttir ólst upp við þeirrar tíðar störf á Kolbeinsá hjá foreldrum sínum og í hópi syst- kina sinna. Heimilið var fjöl- mennt og annasamt, enda Kol- beinsá hlunnindajörð, þar sem tiL^ fellur selur, æðarvarp og fugla- tekja, og því ýmsu að sinna auk venjulegra sveitastarfa. Ekki verða slík hlunnindi nýtt nema með mikilli vinnu og gekk fjöl- skyldan samhent að þeim störfum sem öðrum er sinna þurfti til að tryggja afkomu heimilisins. Þegar Margrét var 22ja ára gömul réðist til starfa á Kolbeinsá ungur maður, Guðlaugur Jónsson að nafni, frá Gestsstöðum í Kirkjubólshreppi. Þetta varð þeim Margréti og Guðlaugi örlagaríkt, því árið 1921 gengu þau í hjóna- band er reyndist farsælt og traust. Stóð sambúð þeirra í 55 ár, eða þar til Guðlaugur lést 2. ágúst 1976. Guðlaugur Jónsson var traustur mannkostamaður, ágætlega greindur, enda bókhneigður og fróðleiksfús og hafði sérstakt yndi af ljóðum. Hann var sjálfur góður hagyrðingur, en fór vel með þann hæfileika samkvæmt upplagi sínu og eðli. Þau Margrét og Guðlaugur + Minningarathöfn um móöur okkar, HELGU HRÓBJARTSDÓTTUR, fyrrvarandi húsfrayju é Brekkum í Mýrdal, fer fram frá Fossvogskirkju miövikudaginn 6. ágúst kl. 10.30. Jaröarförin fer fram aö Skeiöflatarkirkju í Mýrdal laugardaginn 9. ágúst kl. 2. Blóm vinsamlega afþökkuö, en þeir, sem vildu minnast hinnar látnu, eru beönir aö láta Skeiöflatarkirkju í Mýrdal njóta þess. Börn hinna látnu og aörir vandamenn. + Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi, KARL SVEINSSON, Skipasundi 57, R., verður jarösunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 7. ágúst kl. 10.30. Jarðsett veröur í Gufuneskirkjugaröi. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd. Bergþóra Sigmarsdóttir, Sveinn Karlsson, Auður Jónsdóttir, Ásdís Karlsdóttir, Maríus Lund, Sigmar Karlsson, Michaela Bappert, Sigríður Karlsdóttir, Pétur H. ísleifsson og barnabörn. eignuðust þrjú börn, Böðvar kenn- ara og skáid í Kópavogi, Sigur- björgu Elísabetu uppeldisfulltrúa í Kópavogi og Elínu Júlíönu, húsfreyju að Hrútsstöðum í Dala- sýslu. Hafa þau öll reynst mann- dómsfólk og erft eðliskosti for- eldra sinna. Eftir að þau Margrét og Guð- laugur giftust bjuggu þau fyrst um sinn á Kolbeinsá, en síðan eitt ár að Eyjum í Kaldrananeshreppi, norðan Bjarnarfjarðar. Þaðan fluttu þau aftur að Kolbeinsá 1923 og voru þar til 1931 er þau fluttu að Borðeyri. Fimm árum síðar réðust þau í að stofna nýbýli rétt fyrir innan Borðeyri og nefndu það Lyngholt. Reistu þau þar nauðsynleg hús og hófust handa um ræktun þannig að fóðurs handa bústofninum yrði sem mest aflað á ræktuðu landi. Þarna bjó fjölskyldan til 1942 en þá var flutt til Reykjavíkur og þar búið til 1955 er flutt var í Kópavog, fyrst að Hraunbraut 6 en síðan að Melgerði 17. Hvort sem heimili þeirra Mar- grétar og Guðlaugs stóð í Hrúta- firði eða hér syðra var það jafnan opið ættingjum og vinum og allar móttökur einkenndust af höfð- ingsskap og hlýju. Ég kynntist heimili þeirra fyrst er það stóð í Lyngholti og verið var að rækta og brjóta nýja jörð. Var þar gott að koma og dvelja og ekkert sparað til að gera manni dvölina sem ánægjulegasta. Þetta sama endur- tók sig eftir að flutt var til Reykjavíkur og síðar í Kópavog. Margrét var mjög vinamörg og ákaflega frændrækin. Allur frændgarður hennar naut um- hyggju hennar og ástúðar og átti það ekki síst við um börnin. Það var jafnan mikið tilhlökkunarefni að heimsækja Möggu frænku. Um langan aldur hafði sú regla haldist að ættingjar og vinir söfnuðust saman á heimili hennar á jóladag — afmælisdaginn hennar — og nytu þar rausnarlegra veitinga. Þessi siður hélst enn á síðustu jólum, er hún varð 84 ára, og var þar margt um manninn sem jafn- an fyrr. Margrét Ólafsdóttir var mikil gerðarkona, sem í engu vildi vamm sitt vita. Hún var ágætlega gefin og prýðisvel verki farin. Hún var myndarleg og atorkusöm hús- móðir og bar heimili hennar ætíð svipmót þeirra eiginleika. Hún eignaðist prjónavél fyrir mörgum árum og var ólöt að prjóna nauðsynleg plögg á börn ættingja og vina. Hún var einkar fróðleiks- fús og las jafnan mikið ef tóm gafst til, og hélst sá áhugi hennar alveg til hins síðasta. Margrét fylgdist jafnan vel með í þjóðmálum og hafði fastmótaðar skoðanir á því hvernig vandamál þjóðfélagsins yrðu best leyst. Eðl- islæg mannúð hennar hlaut að skipa henni í hóp þeirra er rétta vildu hag lítilmagnans og þeirra er halloka fóru í þjóðfélaginu. Hún var eindreginn verkalýðs- sinni og sósíalisti og fór aldrei dult með þá afstöðu sína. Hún mat mikils þær breytingar og umbæt- ur, sem orðið höfðu á þjóðfélaginu og kjörum alþýðunnar frá fátækt- ar- og kreppuárum fyrri tíma. En

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.