Morgunblaðið - 06.08.1980, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÚST 1980
Nýr Hólmatindur
til Eskif jarðar
„MÁLIÐ ER loks komið í höfn,
við munum sigla með (jamla
Hólmatindinn út i næstu viku og
selja aflann úr honum i Bretlandi
eða Þýzkalandi, og halda siðan til
Frakklands og skipta á honum
og nýja skipinu, sem mun hljóta
sama nafn,“ sagði Aðalsteinn
Jónsson framkvæmdastjóri
Hraðfrystistöðvar Eskifjarðar, í
samtali við Mbl.
Mikið stímabrak hefur staðið
um hvort leyfa ætti Aðalsteini að
kaupa nýja skipið og var ráðu-
neytið fyrir sitt leyti búið að
hafna því.
Aðalsteinn sagði, að hið nýja
skip væri fimm ára gamalt og í
alla staði mjög fullkomið, en það
er um 500 lestir að stærð. —
„Þetta verður gífurlegur munur
fyrir okkur, því gamli Hólmatind-
ur hefur alla tíð verið of lítill fyrir
okkur, við höfum ekki getað sett í
hann fiskikassa með góðu móti,“
sagði Aðalsteinn.
Þá kom það fram hjá Aðal-
steini, að gera þyrfti smávægi-
iegar breytingar á nýja Hólma-
tindi til þess að geta komið
fiskikössum í hann og er þar fyrst
og fremst um að ræða stækkun á
lúguopum. — „Við gerum okkur
því vonir til þess að skipið verði
tilbúið á veiðar innan mánaðar,"
sagði Aðalsteinn.
Nýja skipið kostar um 8 milljón-
ir franskra franka, sem á gengi í
dag er um 960 milljónir íslenzkra
króna. Aðalsteinn sagði að gamli
Hólmatindur gengi beint upp í
kaupin og væri hann metinn á um
helming kaupverðs hins nýja
skips, eða rúmlega 400 milljónir
króna.
Auk Hólmatinds á Hraðfrysti-
stöð Eskifjarðar svo helming í
togara á móti Reyðfirðingum.
Þessi myndarlegi hópur úr Skátafélaginu Haferninum i Breiðholti leggur i dag af stað i tveggja vikna
för til Risör í Noregi. Skátarnir, sem eru á aldrinum 12—19 ára taka þar þátt í miklu skátamóti. Alls
verða í hópnum 33 skátar og foringi hans er Sigfrið ólafsson. f Mh| R
Orkustofnun í bréfi til iðnaðarráðuneytis:
Verð Hitaveitunnar 75%
af meðalverði 1973
— Fer ekki á milli mála að Hitaveitan þarfnast
EKKI fer á milli mála, að Hita- ur fengið undanfarin ár, segir
veita Reykjavikur þarfnast meiri m.a. i bréfi Orkustofnunar til
gjaldskrárhækkunar en hún hef- iðnaðarráðuneytisins.
Sr. Magnús Guð-
mundsson látinn
MAGNÚS Guðmundsson, fyrrver-
andi prófastur i ólafsvik, er
látinn 84 ára að aldri, en hann
var fæddur 30. júlí 1896 á Innri-
Hólmi á Akranesi.
Magnús varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1916
og síðan guðfræðingur frá Há-
skóla íslands 1920. Síðar fór
Magnús margar ferðir erlendis til
að kynna sér störf kirkjunnar
fyrir sjúka menn.
Magnús var vígður aðstoðar-
prestur árið 1921 og síðan settur
sóknarprestur í Nesþingpresta-
kalii 1923 og veitt það prestakall
árið eftir, en sat á Ólafsvík.
Hann var varasýslunefndar-
fulltrúi í Snæfellssýslu árin
1928—1946. Hann sat í stjórn
Samtaka lækna og presta, auk
þess að vera formaður þeirra um
tíma.
Falsaður 100 krónu seðill og ófalsaður. Sá faisaði er fyrir ofan.
Borgaði með föls-
uðum 100 kr. seðli
HENNI brá hcldur betur af-
greiðslustúlkunni i Kjötmið-
stöðinni við Laugalæk i gær-
dag, þegar hún varð þess var,
að einn hundrað krónu seðill-
inn, sem gróinn viðskiptavinur
búðarinnar hafði nýgreitt með
var falsaður.
Hrafn Backmann eigandi
Kjötmiðstöðvarinnar sagði í
samtali við Mbl., að stúlkan hafi
alls ekki áttað sig á því, að
seðillinn var falsaður fyrr en
konan, sem með honum borgaði
var farin út, svo listavel var
hann falsaður.
gjaldskrárhækkunar
Þá segir, að á árunum 1973—
1977 hafi verð hitaveitunnar á
heitu vatni 1. janúar hvers árs
umreiknað á verðlag 1. janúar
1980 verið mjög jafnt að undan-
teknu einu ári, 1976, eða um 170
krónur á rúmmetra að meðaltali.
Hins vegar var verðið 1. janúar
1980 119.00 krónur á rúmmetra
eða aðeins um 70% af meðalverði
fyrrtaldra fimm ára. Nú um mitt
árið er verðið hins vegar komið í
127.55 krónur á rúmmetra eða um
75% af meðalverði áranna 1973—
1977.
Ennfremur segir, að Orkustofn-
un virðist unnt að slá tvennu föstu
varðandi verðlagsmál hitaveit-
unnar:
— Vatnsverð Hitaveitunnar er
komið niður fyrir það stig sem fær
staðist til frambúðar, og þarf því
að hækka, á föstu verðlagi reikn-
að. Hve mikið þarf að hækka þarf
svo nánari athugunar við.
— Af margvíslegum ástæðum,
þar á meðal baráttu stjórnvalda
við verðbólguna, er ekki raunhæft
að framkvæma þessa nauðsynlegu
leiðréttingu í einu stökki, jafnvel
þótt hún geti verið eitthvað lægri
en 60%.
Rétt virðist því að byrja þessa
leiðréttingu strax með því að leyfa
hækkun einhvers staðar á bilinu
10—20%. Taka ætti fram, að þá
ráðstöfun bæri ekki að líta sem
einangrað fyrirbæri eða skyndi-
lausn, heldur sem fyrsta áfanga í
röð ráðstafana, segir ennfremur í
bréfi Orkustofnunar til iðnaðar-
ráðuneytisins.
Óbreytt borðaröð á
ólympíuskákmótinu
Hlutfallslega minni umferð
um helgina en undanfarin ár
„ÞETTA er alltaf mikil umferð-
arhelgi um allt land,“ sagði óli
H. Þórðarson framkvæmdstjóri
umferðarráðs i samtali við Mbl. i
gær. „Það er okkur því mikið
ánægjuefni, hve lítið hefur verið
um óhöpp og slys um vcrzlunar-
mannahelgina. Okkur virðist,
sem áróðurinn frá okkur sé
farinn að hafa áhrif og teljum
það góða og rétta þróufi.
Við vorum með umferðartaln-
ingu á vegum hér suðvestanlands
eins og verið hefur undanfarin
þrjú ár. Talið var á Vesturlands-
vegi í Kollafirði, á Þingvallavegi
og Suðurlandsveg og okkur telst
til, að um Vesturlandsveginn hafi
nú farið rúmlega 16.000 bílar, sem
er nokkur aukning frá fyrri árum,
um Þingvallaveginn fóru nú tæp-
lega 13.000 bílar, sem er nokkuð
minna en í fyrra og um Suður-
landsveg fóru flestir, eða rúmlega
30.000 bílar, sem er minna en
áður.
Ef þessar tölur eru svo lagðar
saman kemur í ljós að þessar
leiðir fóru nú rúmlega 59.000 bílar,
sem er örlítil aukning frá fyrri
árum. Annars er munurinn svo
lítill, að það mætti halda að þetta
væri alltaf sama fólkið, sem fer út
úr borginni. Þess ber þó að gæta
að þetta er hlutfallsleg fækkun
vegna þess að bílum hefur fjölgað
talsvert á hverju ári,“ sagði Óli H.
Þórðarson að lokum.
Sjá nánari fréttir frá
verzlunarmannahelginni
á bls. 16 og 17.
STJÓRN Skáksambands íslands
kom saman til fundar i gærkvöldi
til m.a„ að ræða deilu, sem upp
var komin vegna niðurröðunar
skákmanna á borð á ólympiu-
skákmótinu, scm fram fer á
Möltu í nóvember, og var eftirfar-
andi samþykkt gerð:
„Samþykkt var samhljóða, að
standa að fyrri ákvörðun, þ.e., að
láta gildandi ELO-stig ráða röð
keppenda. Ákvörðun SI um borða-
röð á ólympíumótinu, sem fram
fer á Möltu í nóvember n.k. var í
samræmi við þá skoðun stjórn-
armanna, að alþjóðleg ELO-stig
skuli ráða niðurröðun keppenda.
Sá fyrirvari var gerður á röðinni,
að skákstig Margeirs Péturssonar
voru ef til vill of lág. Stjórn
Skáksambands íslands hefur nú
undir höndum leiðréttingalista frá
FIDE dagsettann 1. júlí 1980. Á
honum koma ekki fram neinar
breytingar á skákstigum sveit-
armeðlima. Sér því stjórnin ekki
ástæðu til breytinga að svo
stöddu. Vegna blaðaskrifa sem
©
INNLENT
fram hafa farið að undanförnu um
mál þetta vill stjórnin taka fram,
að hún treystir sér ekki til að gera
upp á milli þeirra ágætu skák-
manna sem \ hlut eiga, enda
eðlilegast að miða við gildandi
ELO-skákstig. Þess má loks geta,
að samkvæmt nýreiknuðum ís-
lenzkum skákstigum yrði borða-
röð hin sama og eftir ELO-skák-
stigunum. Borðaröðin verður því
þessi. Á 1. borði Friðrik Ólafsson,
á 2. borði Guðmundur Sigurjóns-
son, á 3. borði Helgi Ólafsson, á 4.
borði Jón L. Árnason, fyrsti vara-
maður Margeir Pétursson og ann-
ar varamaður Jóhann Hjartarson.
Fimm sóttu
um starfið
FIMM menn sóttu um starf
framkvæmdastjóra Flug-
málastjórnar, sem auglýst
var fyrir skömmu, að sögn
Brynjólfs Ingólfssonar, ráðu-
neytisstjóra i samgöngumála-
ráðuneytinu.
Ráðuneytisstjórinn vildi
ekki gefa upp nöfn umsækj-
enda fyrr en umsagnir lægju
fyrir. Hann sagði hins vegar,
að allir umsækjendur væru
starfsmenn stofnunarinnar.