Morgunblaðið - 06.08.1980, Blaðsíða 38
42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÖST 1980
Rússar halda
eldi leyndum
Moskvu. 5. áxúst. AP.
ELDUR kom .skyndilega upp á
RauAa torginu i Muskvu um
heÍKÍna ok löKreKla flýtti sér aö
fjarlæKja allar huKsanleKar
Ijósmyndir af atburöinum ok
reka skemmtiferöamenn af torK-
inu að söKn sjónarvotta. Einn
þeirra taldi sík sjá mann hrenna
á torKÍnu.
LöKreKlumenn komu aðvífandi
þeKar eldsins varð vart, kröfðu
fólk um filmur ok Kerðu þær
upptækar. Jafnframt var fólk
rekið af torKÍnu ok því var skipað
að fara inn í hliðarKötur. Um 10
löKreKlumenn börðust við eldinn,
fyrst með vatni, síðan með ábreið-
um ok loks með froðu.
SVIÐNIR IILUTIR
Eldurinn var slökktur á tíu
mínútum. ÞeKar ferðamenn fengu
að koma aftur á torKÍð sáu þeir
fjölda löKreKlumanna ok tvo
sviðna ferkantaða hluti þar sem
eldurinn kom upp.
Sovézkur lögreKlumaður sagði
vestrænum fréttamanni að eldur-
inn hefði komið upp frá sígarettu.
Annar sagði að ekkert hefði gerzt.
ELDUR Á RAUÐA TORGINU — Sovézkur lögregluþjónn fylgir manni að lögreglubil eftir að eldur
kom skyndilega upp á Rauða torginu í Moskvu. Sjónarvottar sögðust hafa séð lík í eldslogunum.
Torginu var lokað meðan öll verksummerki voru fjarlægð.
Carter gerir hreint
fyrir sínum dyrum
WashinKton 5. áxúst 1980.
JIMMY Carter hélt fund með
fréttamönnum á mánudagskvöld
og greindi frá þvi, sem að honum
snýr varðandi samskipti Billy
Carters og Libýu. Fundinum var
sjónvarpað beint, en hann var
hálftíma lengri en fundir eru
yfirleitt með forsetanum.
Viðbrögð fólks og fjölmiðla við
fundinum hafa verið jákvæð. Ro-
bert Dole, öldungadeildarþing-
maður frá Kansas og mikill gagn-
rýnandi Carters, sagði, að Carter
hefði staðið sig vel, en enn væri
nokkrum spurningum ósvarað.
Dole á sæti í undirnefnd dóms-
málanefndar þingsins, sem hefur
mál Billys til athugunar. Nefndin
fékk á mánudag langa skýrslu
Hvíta hússins um samband þess
við Billy og Líbýu í hendur.
Eitt helzta kosningaloforð Cart-
ers 1976 var að endurnýja traust
Carter gegn
reglubreynngu
á landsþinginu
Washington 5. ág. AP.
JIMMY Carter, Bandarikjafor-
seti, varði á fundi með frétta-
mönnum á mánudagskvöld reglu,
sem landsþing demókrata mun
taka ákvörðun um á mánudag,
þegar þingið hefst i New York.
Reglan bindur fulltrúana á þing-
inu þeim frambjóðanda, sem þeir
voru kjörnir á landsþingið fyrir i
forkosningum og á flokksþingum
í vetur og vor. Carter sagði, að
þeir, sem hefðu tapað forkosn-
ingabaráttunni, vildu enn hljóta
forsetaútnefningu flokksins,
jafnvei þótt hann hefði unnið
60% atkvæða í baráttunni.
Carter sagðist ekki hafa í hyggju
að gefa fulltrúum sínum frelsi til
að kjósa hvern sem er við útnefn-
inguna. Reglur flokksins hefðu
verið kunnar, þegar kosningabar-
áttan hófst, og ekki væri rétt að
breyta þeim nú. Hann sagði, að
regiubreyting myndi færa flokkinn
10 ár aftur í tímann, þegar algengt
var, að nokkrir valdamenn kæmu
sér saman um forsetaefni flokksins
fyrir luktum dyrum.
Carter sagði, að fulltrúarnir á
landsþinginu væru fulltrúar þeirra,
sem tóku þátt í lýðræðislegum
kosningum út um allt land. Þeir
ættu því ekki aðeins að taka mið af
eigin skoðunum heldur einnig skoð-
unum kjósendanna og vera bundn'.r
af þeim.
ab.
Billy Carter ræðir við fréttamenn
á heimili sinu i Plains. Hjá honum
er Sybil, kona hans.
bandarísku þjóðarinnar á stjórn-
málamönnum og rikisstjórn
landsins. Hann lofaði opinni og
hreinskilinni stjórn. Fréttir af
Billy undanfarnar vikur hafa
varpað skugga á Hvíta húsið og
vakið upp Watergate-drauginn,
þótt flestir séu sammála um að
Billy-hneykslið sé ekki sambæri-
legt við Watergate.
Carter gerði sitt bezta á mánu-
dag til að sýna, að hann og
starfsmenn hans hafa ekki brotið
lögin á nokkurn hátt og hafa
ekkert óhreint í pokahorninu, sem
þeir vilja fela fyrir þjóðinni. Hann
kannaðist við, að dómgreindin
hefði kannski brugðizt honum,
þegar Billy var notaður sem milli-
göngumaður við líbýska sendiráð-
ið í nóvember, en það hefði verið
gert með velferð bandarísku gísl-
anna í Teheran í huga.
Carter rakti sögu bróður síns,
síðan hann tók sjálfur við embætti
forseta. Skyndileg frægð hans,
sem snerist gegn honum, þegar
hann komst í slagtog við Líbýu-
menn, veikindi hans og fjárhags-
erfiðleika. Carter sagðist hafa
reynt að aftra ferðum Billys til
Líbýu, en án árangurs. Hann
sagðist ekki hafa vitað um 220.000
dollara peningalán Billys frá Lí-
býu, fyrr en Billy hafði skráð sig
sem erindreka Líbýustjórnar 14.
júlí sl. og skýrt frá láninu. Carter
sagði að ekkert af þeim peningum
myndi renna til sín eða hnetu-
vörugeymslu Carterfjölskyldunn-
ar.
Carter sagði, að Billy hefði
aldrei reynt á nokkurn hátt að
hafa áhrif á stefnu bandarísku
stjórnarinnar eða forsetans varð-
andi Líbýu. Og hann sagði, að
Hvíta húsið hefði ekki haft nokkur
afskipti af rannsókn dómsmála-
ráðuneytisins á tengslum Billys
við Líbýu. ab.
Sovézkt barn
kyrrt vestra
Chlcaicu. i. áxúst.
BANDARÍSKUR dómari úrskurð-
aði i gær að 12 ára úkraínskur
drengur og systir hans hefðu þörf
fyrir rikisforsjá og gerði að engu,
að minnsta kosti i bili, tilraun
foreldranna til að fara með dreng-
inn aftur til Sovétrikjanna.
Dómarinn, Joseph C. Monney,
lagði til að drengurinn, Walter
Polovshak, og systir hans, Natalie,
17 ára, byggju hjá frændfólki í
Chicago, en skipaði þeim að heim-
sækja foreldra sína minnst þrisvar
sinnum í viku.
Hann fyrirskipaði að börnin
yrðu falin í umsjá barna- og
fjörlskyldumálaráðuneytisins, þar
til vitnaleiðslur færu fram 9. sept-
ember um stöðu þeirra.
Seinna var sagt, að ætlun dómar-
ans væri sú að afhenda foreldrun-
um barnið, þegar hann teldi það
eiga við.
RUSSAR AÐVARA
í Moskvu hafa sovézkir embætt-
ismenn varað bandaríska utanrík-
isráðuneytið við því, að það geti
haft „víðtækar afleiðingar", ef
drengnum og systur hans verður
ekki skilað til Sovétfikjanna ásamt
foreldrunum.
Fréttastofan Tass segir, að sú
ráðstöfun að veita drengnum og
systur hans hæli „geti ekki talizt
annað en rán með opinberu sam-
þykki á börnum frá foreldrum
þeirra".
Akureyri 12 alskýjaó
Amsterdam 21 skýjaó
Aþena 35 heióskirt
Barcelona 29 hálfskýjaó
BrOasel 22 skýjaó
Chicago 35 skýjaó
Denpasar, Bali 29 skýjaó
Dublin 20 rigning
Feneyjar 30 heióskírt
Frankfurt 28 heióskírt
Færeyjar 14 skýjaó
Genf 27 heióskírt
Helsinki 23 skýjaó
Hong Kong 30 rigning
Jerúsalem 30 heiðskírt
Kaupmannahófn 23 rigning
Lissabon 30 heióskírt
London 22 skýjaó
Los Angeles 29 heióskírt
Las Palmas 28 heióskírt
Madrid 37 heióskírt
Malaga 27 heióskírt
Mallorca 30 heióskírt
Miami 31 skýjaó
Moskva 26 skýjað
New York 33 heióskírt
Nýja Delhi 34 skýjaó
Osló 23 skýjaó
Parts 23 skýjaó
Rio de Janeiro 29 skýjað
Reykjavík 14 skýjaó
Rómaborg 36 heióskírt
San Francisco 32 skýjaó
Stokkhólmur 22 skýjaó
Tel Aviv 27 skýjaó
Tókýó 27 heiðskírt
Vancouver 20 skýjaó
Vínarborg 23 skýjaó
Afmælis
minnzt í
London
lAindun. I. áijúst. AP.
fiLÍSABET drottningarmóðir var
hyllt á áttræðisafmæli sinu í gær og
henni barst fjöldi Kjafa, allt frá
súkkulaði til flösku af kampavíni.
Hún kom fram á svalir Clarence
House, þar sem hundruð velunnara
fögnuðu henni. Herflugvélar flugu
hjá og mynduðu upphafsstafi henn-
ar. Á hádegi var skotið 21 fallbyssu-
skoti í Hyde Park.
Lávarðadeildin samþykkti árnað-
aróskir í tilefni dagsins. Plötusnúður
spilaði eitt uppáhaldsfaga drottn-
ingarmóður að beiðni dóttur hennar,
Margrétar prinsessu. Um kvöldið fór
fram viðhafnarsýning á Ballett Sir
Frederick Ashton Rhapsody í Covent
Garden. Hundruð manna fögnuðu
drottningarmóður fyrir utan, og eftir
sýninguna risu leikhúsgestir úr sæt-
um og klöppuðu í þrjár mínútur.
Flest dagblöð birtu forsíðumyndir
af „Queen Mum“ nýtt frímerki var
gefið út í tilefni dagsins og lárvið-
arskáldið, Sir John Betjeman, sendi
frá sér sérstakt kvæði.
Umræðu ym gíslamálið
frestað á Iransþingi
Teheran 5. áj?. AP.
FORSETI íranska þingsins hefur
sagt að vegna handtöku irönsku
námsmannanna i Bandaríkjunum
hafi umræðu um málefni gíslana i
bandariska sendiráðinu verið
frestað og að undirbúningur fyrir
réttarhöld gegn þeim gæti senn
hafist. Forseti írans, Bani-Sadr,
skoraði á irönsku námsmennina
að verjast hrottflutningi úr land-
inu af öllum mætti, þannig að
Bandaríkjamenn yrðu að „draga
þá út í flugvélarnar.“
Ásakanir um að írönsku náms-
mönnunum hefði verið misþyrmt
af bandarísku lögreglunni leiddu
til óeirða í íran þar sem krafist var
þess, að réttarhöldin yfir banda-
rísku gíslunum yrðu hafin nú
þegar.
Bandarískir embættismenn
sögðu að námsmennirnir 193 hefðu
verið skoðaðir af írönskum lækni á
sunnudag og hefði hann aðeins
fundið hálfa tylft meiðsla, sem öll
væru smávægileg. Embættismenn-
irnir sögðu að þeir 40 námsmenn,
sem eru í hungurverkfalli, hefðu
fengið sérstaka aðhlynningu og að
ásakanir um að særðir námsmenn
hefðu verið lokaðir inni án læknis-
aðstoðar væru „hreinn tilbúning-
ur“.
Leiðtogi byltingarinnar, Ayatol-
lah Khomeini, hefur ákveðið að
láta iranska þingið ráða örlögum
bandarísku gíslanna. Tæplega 200
bandarískir þingmenn sendu ný-
lega íranska þinginu bréf þar sem
mælst var til þess að gíslamálið
fengi algeran forgangsrétt á ír-
anska þinginu, en nú hefur verið
ákveðið að fresta umræðu um bréf
'þingmannanna. Þess í stað hefur
þingið lagt til að hæstarétti lands-
ins verði falið að undirbúa réttar-
höld yfir gíslunum.
Utanríkisráðherra írans, Sadegh
Ghotbzadeh, sendi Kurt Waldheim,
framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna, bréf á mánudag, þar sem
hann bað Waldheim um að beita
sér fyrir að írönsku námsmennirn-
ir yrðu látnir lausir. Waldheim
hefur enga yfirlýsingu gefið.