Morgunblaðið - 06.08.1980, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 06.08.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÚST 1980 15 Dagvistunarrými er fyrir 22.7% barna á aldrinum 0 til 6 ára Á VEGUM Félagsmálastoín- unar Akureyrar hafa eftir- farandi upplýsingar verið unnar upp úr þjóðskrá 1. desember 1979 og töflu frá Menntamálaráðuneytinu um fjölda barna á dagvistarstofn- unum í desember 1979. Taflan sýnir hve mörg pró- sent barna á aldrinum 0 til 6 ára, í hverju sveitarfélagi, áttu aðgang að dagvistarrými 1. desember 1979. Dagvistar- stofnanir munu ekki vera reknar í öðrum sveitarfélögum en hér eru talin. ísafjörður 10%, Keflavík 16%, Vík 17%, Hafnarfjörður AIIGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 JHargunblatiii* 18%, Seltjarnarnes 18%, Vopnafjörður 18%, Akureyri 19%, Dalvík 19%, Bolungarvík 20%, Garðabær 21%, Njarðvík 21%, Grindavík 23%, Reyðar- fjörður 23%, Vestmannaeyjar 23%, Þorlákshöfn 23%, Sauð- árkrókur 24%, Eyrarbakki 25%, Selfoss 25%, Vogar 25%, Hveragerði 26%, Raufarhöfn 26%, Skagaströnd 26%, Ólafs- fjörður 27%, Mosfellssveit 27%, Þórshöfn 27%, Eski- fjörður 28%, Húsavík 29%, Hella 30%, Skútustaðahrepp- ur 30%, Egilsstaðir 31%, Nes- kaupstaður 31%, Siglufjörður 31%, Höfn 32%, Blönduós 33%, Fáskrúðsfjörður 33%, Grundarfjörður 33%, Ólafsvík 33%, Reykjavík 33%, Hvammstangi 36%, Seyðis- fjörður 36%, Flateyri 38%, Suðureyri 40%, Hvolsvöllur 46%, Stykkishólmur 50%, Bíldudalur 52%, Hellissandur 52%, Tálknafjörður 52%. í töflu ráðuneytisins eru talin upp öll dagvistarheimili landsins og reynast 50 sveit- arfélög reka dagvistarstofnan- ir. Auk þess eru tekin með, dagheimili og leikskólar sem aðrir reka í viðkomandi sveit- arfélögum. Þá er aðeins eftir ein dagvistarstofnun, sem er við Kristneshæli í Eyjafirði og eru þar átta börn. Ef dagvistarrými sam- kvæmt ofanskráðu er deilt á öll börn í landinu á aldrinum 0—6 ára, kemur í ljós að til er dagvistarrými fyrir 22.7% þeirra. í sveitarfélögum með litla eða enga þéttbýliskjarna er engin dagvistun fyrir hendi og því eru börn á slíkum stöðum útilokuð frá dagvistun. Sama sagan er með börn undir 2ja ára aldri, því vöggustofur eða skriðdeildir eru óvíða. Þar að auki eru 6 ára börn víðast hvar byrjuð í 6 ára bekkjum barnaskólanna og því ekki ætlað að fá inni á dag- heimilum og/eða leikskóla. Fréttatilkynning. Elías enn ófundinn ENN hefur ekkert spurst til Elíasar Kristjánssonar, sem leitað hefur verið síðan sunnudaginn 27. júlí. Hann sást síðast svo vitað sé með vissu þann dag á Vesturlands- vegi á móts við Gravarvog á bíl sínum og var þá á leið frá Reykjavík. Farþegi var með honum í bílnum. Elías er 46 ára að aldri, meðalmaður á hæð, með þykkt hár en það tekið að grána. Hann var í köflóttum jakka, blárri skyrtu, gráum buxum og brúnum skóm. Bifreið hans er af gerðinni Zastava, rauð að lit, með einkennisstafina R— 25258. Þeir, sem hafa séð til ferða Elíasar eða vita hvar bifreiðin er nú niðurkomin, eru beðnir að hafa samband við lögregl- una í Reykjavík. Meðfylgjandi myndir eru af Elíasi og bifreið sömu gerðar og hann ekur. í sól og sumaryl bjóðum vió SÓISKINSVERÐ Á NÝJUM BÍIUM Eigum óráðstafaö fáeinum Chrysler LeBaron 2ja og 4ra dr. '79, super deluxe, á ótrúlega lágu afsláttarveröi. Þetta eru lúxusbílar í algjörum sérflokki meö öllum hugsanlegum aukabúnaöi, auk þess V8 vél, sem er meö tölvustýringu á blöndungi, sjálfsklptingu, aflhemlum, veltistýri og sjálfvirkum hraöastilli, svo dæmi séu nefnd. Nú færö þú þér einn meö öllu á sólskinsverði, sem er ca. 11,5 millj., miöað viö gengi 28.8.80. Ný sending af hinum vinsæla franska fjölskyldubíl, Talbot Simca Horizon 1980, er kominn til landsins á sérstaklega umsömdu sumarverði, sem á aö mæta stööugi gengissigi stjórnvalda. Þetta er fimm manna framhjóladrifinn fjölskyldubíll meö fimmtu hurðina aö aftan. Verö frá kr. 7.150 þús. miðaö viö gengi 25.8.80. CHRYSLER ~nn nnnnn hll J ii L L Suðurlandsbraut 10. Símar 83330 - 83454 Dodge Omni ’80 er einnig til afgreiöslu nú, bæöi 2ja og 4ra dr. Þetta er minnsti lúxusbíllinn sem fæst frá Bandaríkjunum. Omni er 5 manna bíll m. 4 cyl. vél, sjálfskiptingu og öörum deluxe búnaöi. Omni er einhver eftirsóttasti litli lúxusbíllinn sem völ er á, enda er Omni lúxuslausn í orkukreppu. Verö frá ca. 9,5 millj. UMBOÐSMENN: Bílasala Hinriks, Akranesi, Sniðill h.f., Oseyri 8, Akureyri, Óskar Jónsson, Neskaupstað, og Friðrik Oskarsson, Vestmannaeyjum. Talbot Simca 1100 ’80 litli þrautgóöi fjölskyldubíllinn, er nú til á ótrúlega góöu sumarveröi, sem m.a. Japaninn ræður tæplega við. Simca 1100 er 4 dr. framhjóladrifinn fjölskyldubíll, sem eyöir 7,7 I. pr. 100 km. Öryggispönnur eru undir vél, benzíngeymi og gírkassa, auk þess er 221 cm. undir lægsta punkt. Aldeilis stórkostlegur þfll, ætlaður íslenzkum staðháttum. Verö miöaö viö gengi 15.7.80: 1100 LE kr. 5.535.817 og GLS kr. 6.128.518. MMMNMNMM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.