Morgunblaðið - 06.08.1980, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÚST 1980
7
Misheppnuö
ráöstefna?
Af greinargerö þeirri,
sem íslenska sendi-
nefndin á kvennaráð-
stefnunni í Kaupmanna-
höfn hefur sent frá sér
eftir heimkomuna, viröist
mega ráða, að ráðstefnu-
haldið hafi lítinn árangur
borið. Þar segir meðal
annars: „Við efum að
konum muni þykja
ómaksins vert að sækja
þriðju ráðstefnuna af
þessarí tegund." En
ráöstefnan í Kaupmanna-
höfn var haldin sam-
kvæmt ákvöröun þeirrar
ráðstefnu, sem haldin var
að frumkvæði Samein-
uöu þjóðanna í Mexíkó á
kvennaárinu 1975.
Hvers vegna mis-
heppnaðist ráðstefnan í
Kaupmannahöfn?. í við-
tali við Vísi kemst einn
íslensku þátttakendanna,
Vilborg Harðardóttir,
fréttastjóri Þjóðviljans,
svo að orði: „Svo virtist
sem megintilgangur
sumra fulltrúanna á
ráðstefnunni, sérstaklega
frá Rússlandi og Indlandi,
væri að koma í veg fyrir
að tillögur annnarra
næðu fram að ganga,
fremur en þeir vildu
koma einhverju jákvæöu
til leiðar sjálfir.“ Á ráö-
stefnunni fór mikill timi í
karp um afstöðuna til
ísraels og alls kyns áróð-
ur þeirra, sem hallir eru
undir Sovétvaldið. Þessi
sífellda árátta til að nota
hvert tækifæri á alþjóöa-
vettvangi til að fjalla um
allt annað en rauverulega
skiptir máli er furöulega
langlíf. Hún þjónar tvenn-
um tilgangi, annars vegar
að dreifa athyglinni frá
meginviðfangsefninu, en
umfjöllun um það kemur
sér yfirleitt illa fyrir upp-
hlaupsmennina, og hins
vegar aö slá sig til ridd-
ara á fölskum forsendum
í þeirri von aö geta þann-
ig komist í mjúkinn hjá
löndum þriðja heimsins.
Þessi alþjóðlegi skrípa-
leikur er orðinn ákaflega
hvimleiður. Hann rís
hæst í þeim samtökum,
þar sem kommúnistar
hafa tögl og hagldir eins
og til dæmis í Heimsfriö-
arráðinu, sem þrátt fyrir
nafngiftina sér ekki
ástæöu til að álykta um
hernám Afganistan, svo
aö aðeins eitt dæmi sé
nefnt.
Það er fróðlegt að
kynnast sjónarmiðum
fréttastjóra Þjóðviljans í
þessu máli. Greinilegt var
af ummælum Vilborgar
Haröardóttur á fyrstu
dögum Kaupmannahafn-
arráðstefnunnar, að hún
taldi þar um mikinn við-
burð að ræða og svo var
á henni aö skilja, aö ræða
sú, sem á ráðstefnunni
var flutt í nafni íslensku
sendinefndarinnar, hefði
haft mikil áhrif og jafnvel
vakið heimsathygli.
Ahrifin virðast því miður
hafa fjarað út með mjög
skjótum hætti, svo skjót-
um, að íslenska sendi-
nefndin telur varla
ómaksins vert aö kasta
slíkum perlum á nýjan
leik. Fréttastjóri Þjóövilj-
ans ætti að gefa fleiri
atburðum á alþjóðavett-
vangi gaum með sama
hugarfari. Fréttamatiö í
blaði hans einkennist
harla oft af þeim tví-
skinnungi, sem fram kom
hjá Sovétmönnum og
Indverjum í Kaupmanna-
höfn: að koma í veg fyrir
að tillögur annarra nái
fram að ganga í staö þess
að koma sjálfur einhverju
jákvæöu til leiðar.
Hefðbundin
viðbrögð og
hótanir.
Nýlega var skýrt frá því
í frétt hér í blaðinu, aö
Vestur-Þjóðverjar hefðu
lýst sig viljuga til að láta
flota sinn taka aö sér
aukin verkefni á Noröur-
Atlantshafi, þ.e. allt frá
Eystrasalti að Grænlandi.
Jafnframt kom fram, að
Vestur-Evrópusamband-
iö hefði samþykkt að af-
létta þeim kvöðum af
Vestur-Þjóöverjum, að
þeir mættu ekki smíða
stærri herskip en 3000
lestir og kafbáta en 1800
lestir.
Eins og við var að
búast hafa málgögn sov-
ésku stjórnarinnar
brugðist illa við þessum
tíðindum í samræmi við
kjörorðið: Okkur leyfist
allt en þið eigiö að halda
ykkur á mottunni. Nov-
osti, fréttastofan á vegum
KGB á íslandi, hefur sent
út á íslensku og ensku
greinar úr Izvestíu og
Prövdu, þar sem harð-
lega er ráðist á Vestur-
Þjóöverja af þessu til-
efni.í greininni í Izvestíu
koma fram greinilegar
hótanir, og segir meðal
annars í dreifibréfi Nov-
osti: „Izvestia bendir á aö
Vestur-Þýskaland sé með
þessu orðið öflugt flota-
veldi, og Pentagon hefur
lengi hvatt vesturþýska
herforingja til að stefna
að þessu. Jafnframt og
Pentagon eykur vígbúnáð
sinn á Indlandshafi krefj-
ast Bandaríkin þess að
vestur- þýski flotinn loki
því tómarúmi sem þau
telja vera á noröurvæng
NATO. Þessi ákvöröun
Vestur- Evrópu og stjórn-
valda Vestur—Þýska-
lands teflir öryggi ríkja á
þessum slóöum í tvísýnu
og er hættuleg heims-
friðnum, segir blaðið."
Grein Prövdu um þetta
sama mál lýkur með
þessum orðum: „Þeir,
sem eru fljótir að gleyma,
skulu minntir á þetta:
Uppbygging „stórs flota“
var upphafið á loka-
áfanga í heimsvaldasinn-
uðum undirbúningi
Þýskalands undir fyrri og
síöari heimsstyrjaldirnar.
Eru þeir lærdómar, sem
draga má af sögunni, til
þess fallnir, að menn
endurtaki sömu mistök-
in?“
Rétt er, að menn hafi í
huga, að á hátíðarstund-
um og í viöskiptalegu
samhengi syngja Kremlv-
erjar Vestur—Þjóöverjum
lof og prís, en ailt slíkt er
gleymt og grafið, þegar
hagsmunir sovésku herv-
élarinnar eru annars veg-
ar og það markmið so-
véska flotans að verða
einráður á höfunum um-
hverfis island.
É() þakka innilega öllum þeim sem glöddu mi</ á
áttrœðisafmœli minu 27. júlí með heimsóknum,
yjöfum oy heillaskeytum.
Guð blessi ykkur öll.
Jóney Jónsdóttir,
Hrinybraut 10b. Keflavík.
SIEMENS
SIWAMAT
þvottavélin
frá Siemens
• Vönduö.
• Sparneytin.
SMITH &
NORLAND HF.,
Nóatúni 4, sími 28300.
Viö höfum veriö beönir aö útvega
2ja—3ja herb. íbúö
á leigu í eitt ár. Toppleiga og fyrirframgreiðsla fyrir
áriö í boði.
Vinsamlegast hafi samband við Berg Guðnason hdl.
í síma 82032 eöa Húsafell, sími 81066.
Húsafell
FASTEIGNASALA Langholtsvegi 115
Adalsteinn Pétursson
(Bæiarletöahústnu) ”simi: 8 ro 66 Bergur Gu&nason hdl
Nú þarf enginn að fara
í hurðalaust...
Inni- og útihurðir i
úrvali, frá
kr. 64.900.-
fullbúnar dyr með
■ karmalistum
og handföngum
Vönduð vara við
vægu verði.
H BÚSTOFN
Aðalstræti 9
(Miðbæjarmarkaði)
Símar 29977 og 29979
Mjúkar plötur undir þreytta fætur
Teg. „Hamburg“ Teg. „Rotterdam"
Þolir olíu og sjó, rafeinangrandl,
grípur vel fót og gólf, dregur úr
titringi, svört, 11,5 mm þykk, stæröir
allt að 1x10 metrar.
Notast í vélarrúmum og verksmiðjum
þar sem fólk stendur tímum saman
við verk sitt.
Þolir sæmilega oli'u og sjó, grípur vel
fót og gólf, dregur úr titringi, svört, 23
mm á þykkt, stærðir 40x60 cm,
40x120 cm, 60x80 cm og 80x120 cm.
Notast yfir vélarrúmum og í þrú og á
brúarvængjum.
)É(Lafe(LQg]CLO[f J(§)[rí©[TD cis
Vesturgötu 16, Reykjavík, símar 13280/14680.