Morgunblaðið - 06.08.1980, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÚST 1980
í róðri á Þingvallavatni. Ljósm. Mbi. Emiiia.
Áfallalítil verslimarmannahelgi
þrátt f yrir almenna ölvun
Kveikt í varðeldinum að Sæbóli á sunnudagskvöldið. Ljósm. Mbi. Friða Proppé.
Þrátt fyrir talsverða ölvun um
verzlunarmannahelgina var hún
að mestu stórslysaiaus og áfalla-
minni en oftast áður. Þó voru
óvenjumargir ökumenn teknir
grunaðir um ölvun við akstur og
eru löggæzlumenn yfirleitt sam-
mála um að slikt hafi færzt mjög
i vöxt i ár. Sem dæmi má nefna að
á svæði Selfosslögreglunnar voru
32 ökumenn teknir vegna ölvun-
ar og i Þingeyjarsýslum hafa nú
fleiri verið sviptir ökuleyfi en allt
árið i fyrra. Nokkur óhöpp urðu i
umferðinni, en slys á fóiki hvergi
mjög alvarleg.
Gífurleg ölvun
á Þjóðhátíð
Að sögn lögreglunnar í Vest-
mannaeyjum var gífurleg ölvun á
Þjóðhátíðinni, en þó gekk allt
stóráfallalaust fyrir sig. Mikið
annríki var hjá löggæzlumönnum,
sérstaklega á fimmtudagskvöldið,
en þá var mikið um þjófnaði og
skemmdarverk í Herjólfsdal.
Þrátt fyrir ölvunina var ekki
mikið um ryskingar eða ólæti, en
nokkrir gistu þó fangaklefa lög-
reglunnar er þeir voru orðnir
ósjálfbjarga af áfengisdrykkju.
Lögreglan telur að 6 til 7 þúsund
manns hafi verið á Þjóðhátíðinni,
og var óvenju mikið um aðkomu-
fólk. Gngin alvarleg óhöpp urðu,
en einn maður fótbrotnaði og
annar skaddaðist á baki er hann
féll ofan af danspalli. Tveir menn
voru teknir grunaðir um ölvun við
akstur.
32 grunaðir um
ölvunarakstur
Geysileg umferð var um verzl-
unarmannahelgina á umsjónar-
svæði Selfosslögreglunnar enda
blíðskaparveður og margt um
manninn á hinum ýmsu stöðum í
sýslunni. Flestir voru í Þjórsárdal,
Laugarvatni, Þingvöllum, og við
Úlfljótsvatn. óvenjumikið var um
ölvun og hefur það færst mjög í
vöxt, að menn aki undir áhrifum
áfengis. Selfosslögreglan hafði af-
skipti af 32 ökumönnum, sem
grunaðir voru um ölvun við akst-
ur. Talsvert var um ölvun ungl-
inga og var mikið af víni gert
upptækt hjá þeim eða hellt niður.
Þrátt fyrir þessa miklu ölvun var
helgin friðsamari en oft áður, mun
minna var um slagsmál og þjófn-
aði en verið hefur og nær engin
alvarleg óhöpp. Ungur maður
brenndist nokkuð illa í Þjórsárdal
er grillolía skvettist á hann, þrjár
bílveltur urðu, en meiðsli á fólki
óveruleg. Tveir menn eru nú í
geymslu hjá lögreglunni á Selfossi
vegna gruns um þjófnað á flug-
vélabenzíni úr flugskýlinu í Kaldr-
aðarnesi. Talsvert var um smá
óhöpp, og olli það miklu annríki,
en lögreglan hafði lækni á sínum
snærum og kom það sér vel, að
sögn lögreglunnar á Selfossi.
Rúm 3000 á sumarhátíð-
inni á Laugum
Að sögn lögreglunnar á Húsavík
voru rúmlega 3000 manns á
Laugahátíðinni um verzlunar-
mannahelgina. Talsvert var um
ölvun, en engin alvarleg óhöpp
urðu, einn bíll valt útaf veginum,
en engin slys urðu á fólki, sem
teljandi eru. Talsvert annríki var
hjá lögreglunni vegna þess, að fólk
safnaðist saman víða í sýslunni í
Vaglaskógi voru um 1000 manns,
þegar flest var og um 500 í
Mývatnssveit, en auk þess var
slæðingur af fólki í Ásbyrgi,
Hljóðaklettum og Vesturdal. Tals-
vert var um ölvun við akstur og
við Laugar voru teknir 9 manns
vegna ölvunaraksturs, en auk þess
hafði lögreglan afskipti af ök-
umönnum annars staðar í sýslu-
nni af sömu ástæðum. Að sögn
lögreglunnar á Húsavík hefur
verið óvenju mikið um að menn
aki undir áhrifum áfengis í sumar
og þegar hafa fleiri verið gripnir
en allt árið í fyrra.
Róleg verzlunarmanna-
helgi á Héraði
Að sögn lögreglunnar á Egils-
stöðum var verzlunarmannaheigin
Séð yfir hluta tjaldanna í Þórsmörk. Lj68m. mw. Kristinn óiafsson.