Morgunblaðið - 06.08.1980, Síða 27

Morgunblaðið - 06.08.1980, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÚST 1980 31 Á leið til kristni- boðsstarfa í Kenya HJÓNIN Valdís Magnúsdóttir kennari og Kjartan Jónsson guð- fræóinKur hafa boóið si« fram til kristniboðsstarfa á vegum Sam- bands íslenzkra kristniboósfé- laga og er ráðgert aó þau haldi til Kenya eftir næstu áramót. Mbl. ræddi stuttlega við þau nýlega og voru þau fyrst spurð hvað ráðið hefði því að þau færu út í kristniboðsstarfið: — Eg fór í guðfræðinámið með það í huga, að hafa réttindi til að verða kristniboði. Allt frá ungl- ingsárum hafði ég velt því fyrir mér hvort ég hefði köllun frá Guði til þessa starfs. Ég eignaðist ekki endanlega sannfæringu um þetta fyrr en nú í vor eftir mikla baráttu um hvort þetta væri rétt eða ég ætti að verða prestur hér heima á íslandi, sagði Kjartan. — Nokkru eftir kennaranám hér heima fór ég til Noregs og stundaði nám við kristniboðs- skóla. Þangað fór ég, því mig langaði til að komast til botns í því hvort Guð væri að kalla mig til kristniboðsstarfa. í framhaldi af því fór ég til Englands í málanám, sagði Valdís. Þau hafa bæði tekið þátt í kristilegu starfi kirkjunnar og ýmissa félaga inn- an hennar. Um miðjan ágúst halda þau til Englands þar sem Kjartan leggur stund á ensku- nám, en síðan er ráðgert að þau haldi til Kenya: — Það fer nokkuð eftir fjárhag Kristniboðssambandsins og að- stæðum hvenær við höldum til Kenya, en við búumst við að það verði laust eftir áramót. í Kenya verðum við í nánu samstarfi við norska kristniboða, enda starfar Kristniboðssambandið í mjög nánum tengslum við norska sam- bandið. En hvers konar málanám munu þau stunda fyrst eftir að komið verður til Kenya? — Við munum leggja stund á swahili-nám í nokkrar vikur eða mánuði en síðan eigum við að læra Pokot-málið í nokkrar vikur þar sem við komum til með að starfa í Pokot-héraði, sem er í vesturhluta Kenya. Þar er nú starfandi Skúli Svavarsson kristniboði. Hvernig leggst þetta starf í ykkur? — Við höfum enga oftrú á sjálfum okkur, en í trausti þess að Guð, sem kallaði okkur, muni gefa okkur styrk og annað sem við þurfum, erum við reiðubúin að halda út í þetta starf. Okkur finnst líka gott að vita af því að við verðum ekki ein í starfinu. Skúli Svavarsson verður vonandi samtímis okkur úti í um það bil ár, áður en hann heldur heim í leyfi. Þar sem hann hefur starfað sem kristniboði í fjölda ára má gera ráð fyrir því að hann geti miðlað okkur af dýrmætri reynslu sinni. Við erum engir brautryðj- endur, en trúum því að við getum orðið að gagni í þessu starfi með Guðs hjálp. I hverju verður starf ykkar fólgið? — Meðal annars verður það fólgið í ýmis konar námskeiða- haldi og predikunarstarfi. Á ís- lenzku stöðinni er ekki sjúkra- skýli þótt brýnt sé að koma því upp og fá hjúkrunarfólk til starfa, enda mun það standa til eftir því sem fjárhagurinn leyfir. En fyrst í stað fer tíminn í að koma sér fyrir, komast niður í málinu og kynnast fólkinu og gerum við jafnvel ráð fyrir að þurfa að standa í byggingarframkvæmdum fyrst í stað. Á kristniboðsstöðinni í Chepareria þar sem við verðum, er nú eitt íbúðarhús og reisa þarf annað fljótlega, þar er húsnæði fyrir skóla og verið er að býggja kirkju. Stöðin er því enn í upp- byggingu og verður það sjálfsagt enn um sinn, enda háð fjármun- um og mannafla hversu hratt er hægt að koma upp allri starfs- aðstöðu. Að síðustu segja þau Valdís Magnúsdóttir og Kjartan Jónsson nokkur orð um mikilvægi kristni- boðsstarfsins: — Það er mikið talað um að- stoð við þjóðir hins svok^llaða þriðja heims. Þeim eru gjarnan sendar matarbirgðir, peningar eða ýmis tæki. Allt er þetta gott, en jafnast ekki á við að senda fólk á staðinn og kenna íbúunum að bjarga sér sjálfir. Kristniboðs- samböndin hafa t.d. komið upp landbúnaðarskólum sums staðar, iðnskóla, morgum sjúkrahúsum og sjúkraskýlum og almennum skólum. Norska ríkið hefur gert sér grein fyrir, að fjármunir til þróunarhjálpar hafa verið bezt nýttir í þessu starfi og veita því nú stórum hluta af þróunarhjálp- inni, sem er umtalsverð, til kristniboðsins. En öll þessi hjálp er hluti af þeim kærleika, sem Jesús kallar kirkju sína til að sýna meðbræðr- unum. Mikilvægasta hjálpin er þó sú, að menn kynnist Jesú Kristi persónulega sem frelsara sínum, boðskap hans og kærleika, sem breytir mönnum innan frá og veitir þeim löngun til að sýna öðrum kærleika hans. Þá verður líknarskólastarf eðlileg afleiðing þessa lífssambands við Jesúm. LATTU EKKIUTUTIÐ VILLA DIG VERÐIÐ ER LÆGRA EN DÚ HELDUR kr. 5.601 þúsund (28.7/80) það fer þó stöðugt hækkandi, því er það þinn hagur að tala við sölumenn okkar sem fyrst. JPOLONEZ IfiaT-UMBODID. / Smiðjuvegi 4 - Stmi 77200

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.