Morgunblaðið - 23.08.1980, Page 2

Morgunblaðið - 23.08.1980, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1980 .. þá held ég að hún endist ekki lengi, ríkisstjórnin64 - sagði Steingrímur Hermannsson ef ekki takist að leysa vanda frystihúsanna án þess að auka verðbólgu „ÞAÐ ERU að sjálfsöKðu ýmis úrræði. Ég vil taka það fram. að mínu mati ber að skoða hvernig láta má framlegðina eða það. sem er eftir endast lengra. Það er til dæmis að reyna að lækka vaxtakostnað, vaxtabirgðina eitthvað. En það er ekki nóg, því fer viðs fjarri. Þá eru hin úrræðin í fyrsta lagi þau að láta gengið síga eins og gert er jafnt og þétt, sem lagar grundvöllinn þannig, að hann getur orðið í lagi í 3 mánuði. Og þá lendum við aftur í sömu súpunni. næstu kollsteypu. Og þá verðum við hér með verðbólgu, sem er 60% til 70% og verður stöðugt verra vandmál við að eiga,“ sagði Steingrímur Hermannsson, sjáv- arútvegsráðherra í viðtali við fréttastofu Hljóðvarps í fyrra- kvöld við spurningu frétta- manns um hver raunveruleg úrræði væru til við vanda fisk- vinnslunnar í landinu. Fréttamaður spurði hvort vandinn yrði leystur nú með gengisfellingu. „Eins og ég sagði áðan, höfum við haft gengissig og gengisfellingu árum saman. Það getur vel komið til greina, að við þurfum að fella gengið í einhverj- um áföngum og draga úr áhrifum þess á vísitölu með því að bæta launþegum upp það, sem þar kæmi inn á annan máta,“ svaraði Steingrímur. Þá spurði fréttamaður hvort þetta yrði gert í samráði við launþegasamtökin. „Tvímæla- laust," svaraði Steingrímur. „Svona verður aldrei ráðist í nema í samráði við launþega." Þá spurði fréttamaður hvaða úrræði ríkisstjórnin hefði ef slíkar að- gerðir mæltust illa fyrir í röðum launþega. Steingrímur svaraði: „Ef að launþegar fallast ekki á þetta þá hygg ég að núverandi ríkisstjórn að minnsta kosti geti ekki gert annað en að láta gengið síga eins og við höfum gert og þá er verðbólgan 50% til 60% og þá held ég að hún endist ekki lengi, ríkisstjórnin. Þetta getur ekki gengið meðan hráefni og laun eru yfir 80% (af útgjöldum frystihús- anna). Það getur ekkert frystihús haldið þannig áfram. Það er útilokað mál.“ r""wysá-veTöiir Tánfla”trýslihusanna 30651 aöáuká veröDó~atina. i .DAGAR RÍKISSTJORHAR- i nillftR ftNNARS TALDIR M boiqon. pa *ro nliiV4l|Orníriiwiír UM' ið. »r enqr. nlmi»|0ri ,*r< 10 10*. v»r« . *»»»«»Ji „Gengisfellingablaður Steingríms að venöa efnahagsvandamál” vFramsokn óttast kerfisbreytingar” segir Ólafur Ragnar Grímsson syni er á góðri leið méð^rvTða hÚn 'æk' ekk' efnahagsvandamál. Sifelli gengisfell- ■ngartal hans er úr takl við þá tillögu- gerð í efnahagsaðgerðum sem unnið varaðá vegum stjórnarflokkanna,” sagði Olafur Ragnar Grímsson, full- trui Alþýðubandalagsins i efnahags- nefnd rikisstjórnarinnar, í morgun. Olafur Ragnar var spurður álits á ummælum sjávarútvegsráðhe rrja j í»t. á málinu. ., Alþýðubandaiagið mun ekki failast á gengisfellingu sem tekin va-ri ut úr útreikningi á kaupi. j slað gengisfeliingarblaðurs i sífellu og hotun á stjórnarslitum væri nær að snua sér að umræðu um raunhæfari leiðir á grundvelli efnahagstillagn- sagði Olafur Ragnar við DB. anna r~'u „Margur heldur mig sig“ - segir Steingrímur Hermannsson um ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar Steinjfrímur Hermannsson „MARGUR heldur mig sig,“ sagði Steingrímur Hermannsson, sjávarútvegsmálaráðherra í við- tali við Mbl. í gærkvöldi þegar borin voru undir hann ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar um, að „blaðrið í Steingrími Her- mannssyni er á góðri leið með að verða efnahagsvandamál“ í DB í gær. Aðspurður um ummæli Svavars Gestssonar, heilbrigðis- og félags- málaráðherra um að líf ríkis- stjórnarinnar velti meðal annars á því að menn fari hóflega í yfirlýsingar og hvort Steingrímur teldi sig því hafa hlaupið á sig, svaraði Steingrímur. „Nei. Ég get ekki setið fundi með frystihúsa- mönnum og tjáð skoðanir mínar þar og síðan komið fram í fjöl- miðlum og sagt eitthvað allt annað. Svavar fellst á það í Vísi að grípa þurfi til aðgerða til að tryggja rekstrargrundvöll fisk- vinnslunnar í landinu og viður- kennir staðreyndir sem blasa við.“ Ný landgræðslu- áætlun á lokastigi ÞESSA dagana leggur land- græðslunefnd síðustu hönd á nýja landgræðsluáætlun. Jónas Jónss- on, búnaðarmálastjóri og formað- ur landgræðslunefndar, sagði í samtali við Mbl. í gær, að frum- drög að þessari áætlun hefðu verið JÓIIANN Þorvaldur Beck prentari í Winnipeg lézt 16. ágúst sl. á áttugasta og fyrsta aldursári. Þorvaldur fæddist að Svínaskála- stekk í Reyðarfirði 9. febr. 1900. Hann var sonur hjónanna Kjartans Beck bónda og Þórunnar Vigfúsínu Vigfúsdóttur. Þorvaldur fluttist ungur vestur um haf, eða árið 1919. Hann var m.a. prentsmiðjustjóri send landbúnaðarráðherra i byrj- un maí og hefðu síðan verið til umfjöllunar i þingflokkunum. Jónas sagði nefndarmenn vonast eftir að áætlunin yrði með í dæm- inu við undirbúning fjárlaga. Hann kvað áætlunina tvíþætta, annars Lögbergs og um langt árabil for- stjóri Columbia press. Þorvaldur tók þátt í margs konar félagsstarfi eins og bróðir hans Richard Beck. M.a. var Þorvaldur felagi í mörgum kórum íslendinga í Kanada og hann var mikill áhugamaður um bind- indismál. Þá starfaði hann ötullega að málefnum Þjóðræknisfélagsins. Þorvaldur var kvæntur Arnbjörgu Svanhvíti Þorsteinsdóttur. vegar greinargerð um verkefni og hins vegar skýrslu um framkvæmd síðustu áætlunar frá 1974. Jónas sagði þessa áætlun hliðstæða þjóð- hátíðaráætluninni, það væri fengist við sama heildarverkefni og sömu aðferðum beitt, en þær væru alls ekki eins, það væri lögð mismun- andi áherzla á verkefni og önnur verkefni væru nú komin í myndina. — Hvað mikið vinnst, sagði Jón- as, fer eftir fjármagninu sem við höfum til ráðstöfunar. Ekki vildi hann gefa upp, hvað nefndin hefði farið fram á stóra fjárveitingu. Aðspurður sagði Jónas samhug ríkja í nefndinni um þessa nýju áætlun. Búnaðarmálastjóri kvaðst reikna með að landgræðsluáætlunin yrði gerð að þingsályktunartillögu þegar þing kæmi saman í haust. Landbún- aðarráðherra er erlendis þessa dag- ana, svo ekki fékkst uppgefin af- staða ríkisstjórnarinnar. Þorvaldur Beck prent- smiðjustjóri er látinn Grundarfjörður: Fundur með foreldrum grunn- skólanemenda um helgina FYRIRHUGAÐ er, að haldinn verði fundur nú um helgina með foreldrum barna i grunnskóla Grundarfjarðar og þeim, sem hlut eiga að máli i deilunum á staðnum um endurkomu skóla- stjóra skólans úr ársleyfi. En eins og komið hefur fram í fréttum, hafa átta kennarar af níu lýst því yfir, að þeir treysti sér ekki til að hefja kennslu í haust, er skólastjórinn hefur störf þar á ný. Telja þeir skóla- stjórann ósamvinnuþýðan og áhugalausan um störf sín og vilja í hans stað fá afleysingarskóla- stjórann í starfið. Menntamálaráðherra, Ingvar Gíslason, hefur ákveðið að auglýsa stöður kennaranna lausar til um- sóknar og telur ádeilu þeirra án alls rökstuðnings. Þó sagði hann í viðtali við blm. Mbl., að á þessu stigi málsins sæi hann ekki ástæðu til annars en auglýsa eftir kennurum, en ef ekki tækist að manna skólann fyrir ráðgerðan upphafstíma skólaársins, gæti komið upp sú staða að kanna þyrfti málið á ný. ómar á siðasta snúning i gær. Ljósm. Mbl. Arnór. 9 af 17 ralla enn NÍU biiar i Ljómarallinu voru enn á ferðinni i gærkvöldi á leið um Kjöl, en þá höfðu átta biiar orðið frá keppni vegna hilunar og þar á meðal bill Omars og Jóns Ragnarssona sem höfðu haft for- ystu i rallinu. Kúplingspressa fór i bil þeirra. Eftir það börðust Norðmennirn- ir um tvö efstu sætin fram eftir degi eða þar til að Hafsteinn Aðalsteinsson komst upp á milli þeirra og var í öðru sæti í gærkvöldi á bíl sínum Subaru GFT. í fyrsta sætinu var Anderson á Datsun 160 og í þriðja sæti var Hogiand á Skoda 130 RS. í nótt gistu rallararnir á Sauð- árkróki, en í morgun áttu þeir að halda aftur suður á bóginn um Skaga, Húnavatnssýslu og Kalda- dal að Laugarvatni þar sem þeir gista fyrir lokaáfangann á sunnu- dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.