Morgunblaðið - 23.08.1980, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1980
15
mg í As-
mundarsal
Myndllst
efdr BRAGA
ÁSGEIRSSON
Ég höfða hér ekki til ein-
stakra mynda sérstaklega enda
eru myndirnar í senn nafnlaus-
ar og ónúmeraðar, — hinsveg-
ar vil ég sérstaklega vekja
athygli á skólum þessa fólks í
Hollandi og Kanada. Pólk hef-
ur hinar fullkomnustu aðstæð-
ur, jafnvel eigið stúdíó, —
hefur aðgang að fullkomnum
verkstæðum þar sem engu er
til sparað og hálærðir fagmenn
til aðstoðar. Slíkar stofnanir
kosta slíkar ógnarfúlgur, að
litla Island er svo sannarlega
ekki samkeppnisfært og verður
aldrei. Hins vegar getum við
ræktað grundvöllinn að fram-
haldsnámi og höfum gert í
þeim mæli að eftirtekt hefur
vakið erlendis og dugmiklir
nemendur héðan hafa leikandi
létt komisi ínn í skóla erlendis,
sem örfáir af hundruðum um-
sækjenda fá aðgang að árlega.
I stað þess, að auka við þessa
grundvallarþekkingu og undir-
stöðubyggingu, sem er margra
ára nám höfum við tekið upp
samkeppni við stóru skólana,
við ófullkomnar aðstæður í
ófullkomnum verkstæðum, við
stöðugt peningaleysi, — já,
algjört fjársvelti í sumum til-
vikum. Listaskóli okkar þenst
út í eitt stóreflisbákn ótal
listageira, sem í flestum tilvik-
um geta eingöngu útskrifað
fólk með meðalþekkingu í fög-
unum. Kennarar njóta sín ekki
sem listamenn, því að þeir hafa
fullkomlega gleymst í upp-
byggingu skólans og framavon-
ir innan stofnunarinnar hafa
þeir engar nema þá helst að
drukna í skriffinskufargani og
útréttingum síaukinna umsvifa
stjórnunar skólans...
Þessar hugsanir sóttu stíft á
mig á sýningu hins unga lista-
fólks er nú sýnir í Ásmundar-
sal og að ég held með réttu.
Menn ættu að bregða sér þang-
að um helgina því að sýningin
er vel þess virði að vera skoðuð
og víst er að sjaldan hafa sést
vandaðri vinnubrögð né tækni-
lega betur útfærðar myndir á
þessu sviði nýlista hér í borg en
hjá þessu unga fólki.
Experi-
mental
Environ-
ments,
Mokka
og neðan hjá flestu venjulegu
fólki. En ekki vantaði að hvert
fótmál sýnendanna sjálfra væri
skráð og skjalfest í mynd og máli
og margt af því hékk þegar upp á
vegg er sýningin opnaði formlega
á sínum tíma. Sennilega var þar
kominn forsmekkurinn að bók um
viðburðinn sem pottþétt er að
verði gefin út fáist til þess nægi-
legir opinberir styrkir, en þeir
virðast rata ansi glatt í hendur
þessa fólks.
Ég gerði mér aðra ferð á
Korpúlfsstaði á dögunum rétt
áður en sýningunni lauk og sá
ýmislegt áhugavert er farið hafði
fram hjá mér fyrra skiptið, hins
vegar fann ég ekki sumt t.d.
virtust sjávarfallsskúlptúrarnir
horfnir en það telst vafalítið liður
í listaverkinu. Til að forða mis-
skilningi skal tekið fram, að mér
þykir fjarska gaman að slíkum
leikjum, sem hafa margir verið
iðkaðir um örófir alda áður en
athafnirnar voru teknar á dagskrá
sem gild list, — og er einungis gott
um það að segja. Við íslendingar
höfum þetta allt í kring um okkur
þótt mörgum yfirsjáist það, en
þetta er um leið ósjálfrátt ekki
jafn þrungið sama slagkrafti og
t.d. í sýningarsölum stórborga
heimsins þar sem fólk hefur bein-
línis samsamast asfaltinu og vél-
menningunni. Glatað tilfinning-
unni fyrir öllu öðru en tilbúnum
gerfiþörfum.
Það er óþarfi að bæta hér við, að
sá er hér ritar hefur ótakmarkað-
an áhuga á öllum nýjungum í
heimslistinni en honum þóttu
þessar framkvæmdir á Korpúlfs-
stöðum ekki nægilega sláandi né
sannfærandi. En vonandi hefur
hið unga fólk frá hinum Norður-
löndunum átt hér ánægjulegt
sumarfrí og þá er tilganginum
vissulega náð að hluta. Fer þá
heim með ríkar minningar í sínum
listræna mal er ættu að verða
þeim tilefni til viðameiri átaka.
Bragi Asgeirsson.
Útgerðar-
menn
Viljum kaupa heila
skipsfarma af góöum
ísuöum fiski, þaö
sem eftir er ársins.
P/F BACALAO
Þórshöfn, Færeyjum,
sími 11360 og 12226 (Færeyjum).
í dag opnum vlö sýningu á ítölskum eldhúsinnréttingum
og allskonar húsgögnum í verzlun okkar aö Skaftahlíö 24.
Opið í dag kl. 1—7.
Komiö og skoöiö glæsilega hönnun í húsgagnagerö.
Húsgagnamiðstöðin
Skaftahlíð 24, sími 31633.
Sýningin stendur yfir frá 23. ág. — 7. sept.